Beint í efni
Alviti
153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 153. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

7

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 153. þings

Af málum sem komu fram voru 24 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 33 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

3 af 5 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla forsætisráðherra um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi

    Kom aldrei fram
    Áætlað: maí
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Árleg skýrsla.

    Heiti á skránni: Skýrsla forsætisráðherra um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi.

  • Skýrsla

    Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga

    Kom aldrei fram
    Áætlað: maí
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Árleg skýrsla.

    Heiti á skránni: Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga.

Heilbrigðisráðherra

3 af 9 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára

    Kom aldrei fram
    Áætlað: desember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Til að hrinda lýðheilsustefnu til ársins 2030 í framkvæmd skal gera áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn í samráði við helstu aðila, svo sem sveitarfélög. Slíkar áætlanir verði uppfærðar árlega meðan lýðheilsustefnan er í gildi. Heilbrigðisráðherra skal leggja árlega fram aðgerðaáætlanir lýðheilsustefnunnar til umræðu á Alþingi.

    Heiti á skránni: Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára.

  • Skýrsla

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Til að hrinda heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í framkvæmd skal gera áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn. Slíkar áætlanir verði uppfærðar árlega meðan heilbrigðisstefnan er í gildi. Heilbrigðisráðherra skal leggja árlega fram aðgerðaáætlanir heilbrigðisstefnu til umræðu á Alþingi.

    Heiti á skránni: Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára.

Utanríkisráðherra

5 af 11 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Árleg skýrsla til Alþingis skv. 1. mgr. 55. gr. laga nr. 55/1991.

    Heiti á skránni: Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)