Beint í efni
Alviti
154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 154. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

11

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 154. þings

Af málum sem komu fram voru 27 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 80 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

7 af 9 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um Tæknisetur og stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í ákvæði til bráðabirgða VI við lög um opinberan stuðning við nýsköpun, nr. 25/2021, kom fram að ráðherra skuli gefa Alþingi skýrslu um stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, þróun nýsköpunarmála á landsbyggðinni, árangur sem og ásókn í hvatastyrki til nýsköpunar sem ráðuneytið úthl utar og starfsemi Tækniseturs eigi síðar en tveimur árum eftir gildistöku laganna.

    Heiti á skránni: Skýrsla háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um Tæknisetur og stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Heilbrigðisráðherra

12 af 13 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Til að hrinda heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í framkvæmd skal gera áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn. Slíkar áætlanir verði uppfærðar árlega meðan heilbrigðisstefnan er í gildi. Heilbrigðisráðherra skal leggja árlega fram aðgerðaáætlanir heilbrigðisstefnu til umræðu á Alþingi.

    Heiti á skránni: Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára.

Mennta- og barnamálaráðherra

7 af 13 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla mennta- og barnamálaráðherra um framkvæmd skólahalds í grunnskólum

    Kom aldrei fram
    Áætlað: september
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í 4. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, kemur fram að mennta- og barnamálaráðherra skuli á þriggja ára fresti gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólahalds í grunnskólum. Skýrslan tekur til framkvæmdar skólahalds árin 2017-2021.

    Heiti á skránni: Skýrsla mennta- og barnamálaráðherra um framkvæmd skólahalds í grunnskólum.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

11 af 28 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um raforku

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Skýrsla sem ráðherra skal leggja fyrir Alþingi á tveggja ára fresti skv. 39. gr. raforkulaga, nr. 65/2003.

    Heiti á skránni: Skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um raforku.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)