Beint í efni
Alviti
157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 157. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

10

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 157. þings

Af málum sem komu fram var 51 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 64 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Heilbrigðisráðherra

9 af 11 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára

    Kom aldrei fram
    Áætlað: maí
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Árleg skýrsla.

    Heiti á skránni: Skýrsla heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til fimm ára.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

9 af 12 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla Vísinda- og nýsköpunarráðs um stöðu vísinda og nýsköpunar hér á landi í alþjóðlegu tilliti, stefnumótun stjórnvalda og helstu samfélagslegu áskoranir

    Kom aldrei fram
    Áætlað: september
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, nr. 137/2022, skal ráðið árlega skila skýrslu til ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar sem skal leggja skýrsluna fyrir Alþingi.

    Heiti á skránni: Skýrsla Vísinda- og nýsköpunarráðs um stöðu vísinda og nýsköpunar hér á landi í alþjóðlegu tilliti, stefnumótun stjórnvalda og helstu samfélagslegu áskoranir.

  • Skýrsla

    Skýrsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Tæknisetur og stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

    Kom aldrei fram
    Áætlað: september
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í ákvæði til bráðabirgða VI. við lög um opinberan stuðning við nýsköpun, nr. 25/2021, kemur fram að ráðherra skuli gefa Alþingi skýrslu um stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, þróun nýsköpunarmála á landsbyggðinni, árangur sem og ásókn í hvatastyrki til nýsköpunar sem ráðuneytið úthlutar og starfsemi Tækniseturs eigi síðar en tveimur árum eftir gildistöku laganna.

    Heiti á skránni: Skýrsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Tæknisetur og stöðu nýsköpunarstuðnings eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Utanríkisráðherra

8 af 8 komin fram

  • Skýrsla

    Skýrsla utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Árleg skýrsla til Alþingis skv. 9. gr. reglna Alþingis um þinglega meðferð EES-mála.

    Heiti á skránni: Skýrsla utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins.

  • Skýrsla

    Skýrsla utanríkisráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands

    Kom aldrei fram
    Áætlað: apríl
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Gerð verður grein fyrir framkvæmd stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028, þar á meðal aðgerðaáætlun 2024–2025 ásamt framlagningu aðgerðaáætlunar 2026–2028.

    Heiti á skránni: Skýrsla utanríkisráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)