Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 154. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 154. þings
Af málum sem komu fram voru 27 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 80 seinna en áætlað var.
Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga
Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.
- 158. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur · yfirstandandi1% samþykkt · 1 af 1501 samþykkt32 í vinnslu117 ekki komið fram
- 157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur62% samþykkt · 91 af 14791 samþykkt24 dagaði uppi eða fellt32 kom aldrei fram
- 154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur44% samþykkt · 88 af 20088 samþykkt19 dagaði uppi eða fellt93 kom aldrei fram
- 153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur34% samþykkt · 50 af 14950 samþykkt7 dagaði uppi eða fellt92 kom aldrei fram
| Þing | Dagsetning | Lögð fram | Samþykkt |
|---|---|---|---|
| 158. þing | 24. okt. 2026 | 33 af 150 | 1 |
| 157. þing | 25. okt. 2025 | 45 af 147 | 7 |
| 154. þing | 28. okt. 2023 | 24 af 200 | 0 |
| 153. þing | 29. okt. 2022 | 23 af 149 | 0 |
155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Dómsmálaráðherra
9 af 20 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (sameining héraðsdómstólanna)
Áætlað: október· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Samkvæmt lögum um dómstóla eru héraðsdómstólarnir átta sjálfstæðar stofnanir með aðsetur víða um land. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem sameina þessar stofnanir í einn héraðsdómstól en með starfsstöðvar á þeim stöðum þar sem héraðsdómstólarnir eru nú. Með sameiningu héraðsdómstólanna aukast möguleikar á að jafna starfsálag milli héraðsdómstóla og færa verkefni til dómstóla á landsbyggðinni. Af þessu leiðir að nauðsynlegt er að gera ýmsar breytingar á réttarfarslögum, sérstaklega lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (sameining héraðsdómstólanna).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
90/2018, og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi, nr. 75/2019 (gildissvið gagnvart dómstólum, gjaldtaka o.fl.). Frá gildistöku persónuverndarlaga hefur komið í ljós að skýra þarf nokkur ákvæði laganna nánar eða breyta til að ákvæðin verði framkvæmanleg. Með frumvarpinu er brugðist við ábendingum sem borist hafa, m.a. frá Persónuvernd og fleiri aðilum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (ýmsar breytingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið kveður á um breytingar á ákvæðum laganna um afhendingu gagna til verjenda og réttargæslumanna, lengd og tilhögun gæsluvarðhalds, þ. á m. einangrunarvistar. Þá er einnig mælt fyrir um breytingar er varða öflun fjarskiptagagna, upplýsinga hjá fjármálastofnunum og heimild ríkissaksóknara til að flytja mál á milli embætta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (ýmsar breytingar vegna skipulagðrar brotastarfsemi).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á skaðabótalögum, nr. 50/1993 (örorkumat o.fl.)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum skaðabótalaga sem varða mat á örorku og örorkunefnd. Einnig eru lagðar til breytingar er varða margfeldisstuðul, vísitölutengingu og frádráttarreglur sem lagðar voru til í frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 148. löggjafarþingi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993 (örorkumat o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984 (einföldun málsmeðferðar)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum til einföldunar á framkvæmd laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984 (einföldun málsmeðferðar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (nefnd um dómarastörf, leyfi dómara, tilnefningarhlutverk Hæstaréttar)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á þeim reglum sem gilda um meðferð mála hjá nefnd um dómarastörf í því skyni að gera þær skýrari. Jafnframt eru lagðar til breytingar á þeim ákvæðum sem heimila að veita dómurum leyfi til allt að sex ára til að taka sæti í alþjóðlegum dóm stól eða starfi við aðra alþjóðastofnun eða þiggja setningu við æðri dómstól. Þá eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum er varða tilnefningar Hæstaréttar í nefndir. Í mörgum lagaákvæðum er mælt fyrir um að Hæstiréttur Íslands skuli tilnefna einn nefndarmann eða fleiri í kærunefndir og úrskurðarnefndir innan stjórnsýslunnar. Með frumvarpinu er lögð til breyt ing á þessum ákvæðum þannig að Hæstiréttur tilnefni eftirleiðis einungis í stjórnsýslunefndir ef það telst nauð synlegt eða eðlilegt í ljósi starfsemi hlutaðeigandi nefndar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (nefnd um dómarastörf, leyfi dómara, tilnefningarhlutverk Hæstaréttar).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um söfnunarkassa, nr. 73/1994, og lögum um happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13/1973 (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið miðar að því að bregðast við áhættumati ríkislögreglustjóra um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem tengist aðild Íslands að FAT F (Financial Action Task Force). Í áhættumatinu er m.a. bent á að áhætta geti tengst starfsemi söfnunarkassa og happdrættisvéla og eru því lagðar til breytingar á lögunum vegna þess.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um söfnunarkassa, nr. 73/1994, og lögum um happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13/1973 (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka).
- Kom aldrei framFrumvarp
Lögsögu, gildandi lög, viðurkenningu, fullnustu og samvinnu vegna ábyrgðar foreldra og aðgerða til verndar börnum
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ákvæði sem eru nauðsynleg til að Ísla nd geti fu llgilt samning um lögsögu, gildandi lög, viðurkenningu, fullnustu og samvinnu vegna ábyrgðar foreldra og aðgerða til verndar börnum sem gerður var í Haag 19. október 1996.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um lögsögu, gildandi lög, viðurkenningu, fullnustu og samvinnu vegna ábyrgðar foreldra og aðgerða til verndar börnum.
- Kom aldrei framFrumvarp
Lokuð búsetuúrræði
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að in nleiða ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði Schengen -ríkjanna, m.a. um lokuð búsetuúrræði (br ottvísunartilskipunin).
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um lokuð búsetuúrræði.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bóta fjárhæðir)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lögð til einföldun á meðferð bótakrafna vegna brota á IX. –XIV. kafla laga um meðferð sakamála vegna ólögmætrar handtöku, þvingunarráðstafana o g gæsluvarðhalds á þann hátt að settar verði reglur um viðmiðunarfjárhæðir bóta sem ríkislögmaður styðst við við uppgjör slíkra bóta. Samhliða er felld brott skylda til að veita gjafsókn í slíkum bótamálum. Með þessum breyti ngum er unnt að flýta uppgjöri bóta og fækka dómsmálum vegna ágreinings um bætur. Í frumvarpinu felst hagræðing við meðferð málanna, bæði fyrir þolendur og ríkið, auk þess sem gera má ráð fyrir lækkun útgjalda hjá ríkissjóði vegna málskostnaðar í þessum m álum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bóta fjárhæðir).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á áfengislögum, nr. 75/1998 (vefverslun með áfengi, framleiðsla áfengis til einkaneyslu)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verður lagaumhverfi vefverslunar tekið til endurskoðunar. Jafnframt verður lagt til að ekki verði lengur refsivert fyrir einstaklinga a ð framleiða áfengi, að því gefnu að framleiðslan sé einungis til einkaneyslu og að ekki sé um að ræða fra mleiðslu á sterku áfengi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998 (vefverslun með áfengi, framleiðsla áfengis til einkaneyslu).
Félags- og vinnumarkaðsráðherra
4 af 14 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Atvinnuleysistryggingar
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um atvinnuleysistryggingar sem meðal annars er ætlað að einfalda gildandi atvinnuleysistryggingakerfi sem og að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafa á vinnumarkaði, svo sem hvað varðar ólík ráðningarform.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar.
- Kom aldrei framFrumvarp
Starfsendurhæfingu
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um starfsendurhæfingu. Í lögunum er kveðið á um heildstæðan feril starfsendurhæfingar og mat á virkni einstaklinga til þátttöku á vinnumarkaði eftir að starfsendurhæfing telst fullreynd. Þá er gert ráð fyrir breytingum á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð þar sem áhersla er lögð á sameiningu bótaflokka og einfaldari reglur um útreikninga á greiðslum. Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun örorku- og endurhæfingalífeyriskerfisins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um starfsendurhæfingu.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lög um um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (störf ríkissáttasemjara)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur þar sem meðal annars verður litið til tillagna starfshóps sem fengið hefur það hlutverk að leggja fra m tillögur til að skýra formlegt gildi miðlunartillagna ríkissáttasemjara, forsendur framlagningar og heimildir ríkissáttasemjara til að knýja á um atkvæðagreiðslu um slíkar tillögur eftir að þær hafa verið lagðar fram. Jafnframt er það hlutverk starfshóps ins að kanna hvort, og þá hvernig, rétt sé að styrkja enn frekar hlutverk og heimildir ríkissáttasemjara hér á landi, samanber markmið sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lög um um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (störf ríkissáttasemjara).
- Kom aldrei framFrumvarp
Starfskjaralaga
Áætlað: janúar· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um starfskjör launafólks í stað laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980. Megintilgangur frumvarpsins er að skýra þær grundvallarreglur sem gilda á vinnumarkaði í tengslum v ið laun og önnur starfs kjör launafólks, meðal annars í því skyni að sporna gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði.
Heiti á skránni: Frumvarp til starfskjaralaga.
- Kom aldrei framFrumvarp
Greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna
Áætlað: janúar· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu felast breytingar á tilhögun stuðnings við foreldra og forráðamenn fatlaðra og langveikra barna í samræmi við niðurstöður starfshóps sem skipaður var til þess að meta reynslu af framkvæmd laganna og þörf á breytingum. Einföldun kerfis með sameiningu f oreldragreiðslna og umönnunargreiðslna auk þess sem greiðslur til foreldra taki mið af umönnunarþörf og kostnaði sem er tilkominn vegna fötlunar og veikinda barnsins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sjálfstætt starfandi einstaklingar o.fl.)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Gert er ráð fyrir tilteknum breytingum á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga í samræmi við ákvæði til bráðabirgða VII. í lögum um atvinn uréttindi útlendinga þa r sem kveðið er á um að ráðherra skuli skipa starfshóp til að gera tillögur að lagabreytingum sem heimili útgáfu dvalar- og atvinnuleyfa til sjálfstætt starfandi einstaklinga og að tímabundin atvinnuleyfi skuli skilyrt við tilteknar atvinnugreinar í stað s tarfs hjá tilteknum atvinnurekendum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sjálfstætt starfandi einstaklingar o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Ný heildarlög um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að setja nánari lagaákvæði um r éttarstöðu einstaklinga sem hefur verið gert að sæta öryggisráðstöfunum á grundvelli VII. kafla almennra hegningarlaga og kveða með nánari hætti á um framkvæmd ráðstafananna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.
- Kom aldrei framFrumvarp
Framhaldsfræðslu
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um framhalds fræðslu eftir heildarendurskoðun á gildandi lögum, meðal annars í ljósi reynslunnar við framkvæmd gildandi laga sem og með hliðsjón af yfirstandandi heildarendurskoðun framhaldsfræðslukerfisins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um framhaldsfræðslu.
- Kom aldrei framFrumvarp
Félagslegan viðbótarst uðning fyrir örorkulífeyrisþega
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu verður kveðið á um félagslegan viðbótarstuðning við örorkulífeyrisþega sem búa hér á landi en hafa ekki áunnið sér full réttindi í almannatryggingum og hafa litlar sem engar aðrar tekjur sér til framfærslu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um félagslegan viðbótarst uðning fyrir örorkulífeyrisþega.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Stefna í málefnum innflytjenda og flót tafólks
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kemur fram að móta skuli skýra og heildstæða stefnu í málefnum útlendinga sem miðar að því að fólk sem sest hér að hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Auk þess samþykkti Alþingi árið 2022 þingsályktun, nr. 29/152, um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022 -2025 sem kveður á um að mótuð skuli skýr og heildstæð langtímastefna í málaflokknum. Í ljósi þess er gert ráð fyrir að lögð verði fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flót tafólks.
Fjármála- og efnahagsráðherra
15 af 31 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Fjárfestingar ríkisins
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001. Megintilgangur frumvarpsins er að ná fram aukinni gæðatryggingu í fjárfestingum ríkisins, ásamt því að tryggja samræmda málsmeðferð við ólíkar tegundir fjárfestinga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins.
- Kom aldrei framFrumvarp
Slit og uppgjör ÍL-sjóðs
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að mæla fyrir um skipulögð slit og uppgjör ÍL-sjóðs með hagfelldri niðurstöðu fyrir þá sem hafa hagsmuna að gæta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um slit og uppgjör ÍL-sjóðs.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009 (kolefnisgjald)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á gildissviði og fjárhæð kolefnisgjalds af eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009 (kolefnisgjald).
- Kom aldrei framFrumvarp
Framkvæmdir og umsýslu fasteigna fyrir Landspítala og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu (NLSH)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Endurskoðun á núgildandi lagaramma um NLSH er varðar framkvæmdir við Hringbraut. NLSH fær aukin verkefni er varða undirbúning og framkvæmd bygginga fyrir Landspítala og aðra sérhæfða sjúkrahúsþjónustu í samræmi við ákvarðanir stjórnvalda. Þá er einnig gert ráð fyrir að heimilt verði að færa eignarhald og umsýslu fasteigna vegna sjúkrahúss til félagsins með sambærilegum hætti og gert var vegna umsýslu fasteigna Háskóla Íslands.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um framkvæmdir og umsýslu fasteigna fyrir Landspítala og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu (NLSH).
- Kom aldrei framFrumvarp
Högun upplýsingatækni í rekstri ríkisins
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja stefnumótun og framkvæmd upplýsingatæknimála í rekstri ríkisins o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um högun upplýsingatækni í rekstri ríkisins.
- Kom aldrei framFrumvarp
Verðbréfun (STS)
Áætlað: janúar· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2017/2402, um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða v erðbréfun o.fl. Verðbréfun er tegund fjármögnunarviðskipta fjármálastofnana og álitin mikilvægur þáttur í v el starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi. Með frumvarpinu verður komið á styrkri lagaumgjörð er miðar að því að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurð a frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Með frumvarpinu verða jafnframt lagðar til breytingar á lögum um verðbréfasjóði, vátryggingastarfs emi, lánshæfismatsfyrirtæki, rekstraraðila sérhæfðra sjóða og afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðu viðskiptaskrár, til samræmis við breytingar á öðrum tilskipunum og reglugerðum með reglugerð (ESB) 2017/2402.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um verðbréfun (STS).
- Kom aldrei framFrumvarp
Greiðslur yfir landamæri í evrum (CBPR)
Áætlað: janúar· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2021/1230, um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu. Með frumvarpinu verður lagt til að felld verði úr gildi lög um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/20 14, sem sett voru til innleiðingar á regluge rð (EB) 924/2009, um greiðslur yfir landamæri í Bandalaginu, og ný lög sett í þeirra stað.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum (CBPR).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (uppgjörstímabil o.fl.)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt í tengslum við uppgjörstímabil virðisaukaskatts o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (uppgjörstímabil o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, og lögum um lánasýslu ríkisins, nr. 43/1990 (endurskoðun)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er stefnt að því endurskoða lagaákvæði um lánaumsýslu ríkissjóðs og ríkisábyrgðir. Undir lánaumsýslu falla m.a. tekin lán ríkissjóðs, endurlán, ábyrgðir, afleiður, áhættustýring og sjóðsstýring. Meginmarkmið frumvarpsins er að samræma löggjöfina gildandi lögum um opinber fjármál og stefnu í lánamálum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, og lögum um lánasýslu ríkisins, nr. 43/1990 (endurskoðun).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld (stafræn viðskipti yfir landamæri og lágmarksskattur á alþjóðafyrirtæki)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar sem snúa að skattlagningu tekna vegna stafrænna viðskipta yfir landamæri og lögfestingu lágmarksskatts á alþjóðafyrirtæki.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (stafræn viðskipti yfir landamæri og lágmarksskattur á alþjóðafyrirtæki).
- Kom aldrei framFrumvarp
Hópfjármögnun fyrir fyrirtæki (ECSP)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2020/1503 sem kveður á um starfsleyfi fyrir þjónustuveitendur sem hafa milligöngu um hópfjármögnun fyrir fyrirtæki í formi lána eða verðbréfakaupa og kröfur þar um. Enn fremur verða lagðar til minni hátt ar breytingar á lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um hópfjármögnun fyrir fyrirtæki (ECSP).
- Kom aldrei framFrumvarp
Stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2022/2554, um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, og tilskipunar (ESB) 2022 /2556, um breytingar á ýmsum gildandi tilskipunum. DORA-gerðirnar svonefndu tilheyra stafrænum fjármálapakka Evrópusambandsins sem ætlað er að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti þörfum og kröfum nútímans, með al annars hvað net- og upplýsingaöryggi varðar. Með frumvarpinu verður lagt til að samræmdar kröfur verði gerðar til viðbúnaðar og umgjarðar áhættustýringar helstu tegunda fyrirtækja á fjármálamarkaði, að teknu tilliti til stærðar og áhættusniðs, eðlis, um fangs og flækjustigs þjónustu/starfse mi og kerfislegs mikilvægis, þar á meðal að því er varðar aðkeypta tækniþjónustu og skyldu til að tilkynna um alvarleg atvik. Fyrirtækjum á fjármálamarkaði verði eftir atvikum skylt að framkvæma einfaldar eða ógnamiðaðar netöryggisprófanir í því skyni að b æta áfallaþol. Þá verði frekari stoðum rennt undir heimildir til miðlunar upplýsinga um ógnir og áhættu sem steðjað getur að starfsemi fyrirtækja á fjármálamarkaði, enda sé slíkt samstarf formgert og hlíti nánar tilgreindum skilyrðum. Með DORAreglugerðinni er komið á sameiginlegri umgjörð yfirsýnar evrópska fjármálaeftirlitskerfisins með stærstu tækniþjónustuveitendum, sem útnefndir verða sem mikilvægir á sameiginlegum innri markaði fjármálaþjónustu. Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á gildandi lögum á fjármálamarkaði, sem þegar víkja að einhverju marki að stafrænum viðnámsþrótti ólíkra fyrirtækja.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018 (miðlægir mótaðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verður lagt til að reglugerð (ESB) 2019/2099, um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 648/2012, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (EMIR 2.2), verði veitt lagagildi hér á landi með breytingu á lögum nr. 15/2018 um sama efni. Frumvarpið felur í sér breytingar á eftirliti með miðlægum mótaðilum. Engir slíkir eru starfandi hérlendis.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018 (miðlægir mótaðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins).
- Kom aldrei framFrumvarp
Starfstengda eftir launasjóði (IORP II)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun (ESB) 2016/2341, um starfstengda eftirlaunasjóði. Með frumvarpinu verður lagt til að felld verði úr gildi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, sem sett voru til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2003/41 um sama efn i, og ný lög sett í þeirra stað. Um er að ræða endurútgáfu á eldri tilskipun um sama efni, það er tilskipun 2003/41/EB, um starfsemi og eftirlit með lögaðilum sem sjá um starfstengd eftirlaun.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um starfstengda eftir launasjóði (IORP II).
- Kom aldrei framFrumvarp
Veggjöld vegna notkunar bifreiða (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis o.fl.)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrirkomulag gjaldtöku í formi kílómetragjalds vegna notkunar bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti á vegakerfið. Samhliða er gert ráð fyrir því að endurskoðun fari fram á þeim lögum sem gilda um ska ttlagningu ökutækja og eldsneytis. Gert er ráð fyrir að nýtt kerfi taki gildi þann 1. janúar 2025.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um veggjöld vegna notkunar bifreiða (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (skattlagning sýndareigna)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um tekjuskatt og lögum um virðisaukaskatt vegna skattalegrar meðhöndlunar sýndareigna, þ.m.t. rafmynta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (skattlagning sýndareigna).
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
7 af 9 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991 (viðbótarvernd)
Áætlað: febrúar· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu felst formleg innleiðing reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) 469/2009 um vottorð um viðbótarvernd fyrir lyf en efnislegt inntak reglugerðarinnar hafði verið lögfest með lögum til breytinga á einkaleyfalögum, nr. 57/2021.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991 (viðbótarvernd).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
3/2003 (endurskoðun). Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið að kortlagningu á umhverfi sjóða á vegum ráðuneytisins síðustu misseri. Þá eru lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir komin til ára sinna og tímabært að endurskoða þau í ljósi þróunar á síðustu árum og þeirrar staðreyndar að stuðningur á grundvelli laganna er ekki einungis stuðningur við vísindarannsóknir heldur fjölbreyttur stuðningur við nýsköpun og vísindi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr.
Heilbrigðisráðherra
12 af 13 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lyfjalögum, nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða sett ákvæði sem veita Lyfjastofnun heimildir til að bregðast við og/eða takmarka áhrif lyfjaskorts í landinu. Enn fremur verða gerðar breytingar á ákvæðum er varða ávísanaréttindi og þau látin ná yfir fleiri heilbrigðisstéttir en fyrir eru með öryggi sjúklings að leiðarljósi. Meðfram þeirri breytingu verður sett skýr skylda á heilbrigðisstarfsmenn með ávísanaréttindi að hafa gilda starfsábyrgðartryggingu. Að lokum verða gerðar breytingar á orðalagi til að gæta samræmis í löggjöfinni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum, nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.).
Innviðaráðherra
16 af 24 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018 (skipan svæðaráða o.fl.)
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Breytingar til að uppfæra kröfur um samsetningu svæðisráðs og einfalda ferli við endurskoðun strandsvæðisskipulags.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018 (skipan svæðaráða o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (gististarfsemi í fjöleignarhúsum)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið hefur að markmiði að skýra þær reglur sem gilda um breytta hagnýtingu séreignar við rekstur gististarfsemi í fjöleignarhúsum, einkum hvort samþykki annarra eigenda sé áskilið fyrir slíkri starfsemi og þá að hvaða marki, hvort sem um heimagistingu eða rekstrarleyfisskylda gististarfsemi er að ræða.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (gististarfsemi í fjöleignarhúsum).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018 (lögheimilisflutningur)
Áætlað: febrúar· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Lagðar verða til breytingar á lögunum sem hafa það markmið að veita einstaklingum sem b úa við ofbeldi í nánu sambandi möguleika á að geta fengið lögheimili sínu breytt og haft það dulið þannig að viðkomandi sé ekki með skr áð sama lögheimili og maki eða sambúðaraðili sem beitt hefur ofbeldi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018 (lögheimilisflutningur).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016 (endurskoðun húsnæðisstuðnings við leigjendur)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið hefur það að markmiði að koma á fót einu húsnæðisstuðningskerfi við leigjendur sem verði á vegum ríkisins í stað tveggja eins og nú. Þannig verði húsnæðisstuðningur í formi húsnæðisbóta ríkisins annars vegar og sérstaks húsnæðisstuðnings sveitarfélaga hins vegar sameinaður í eitt stuðningskerfi í því skyni að tryggja jafnræði leigjenda til stuðnings óháð búsetu og einfalda kerfið gagnvart notendum þess.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016 (endurskoðun húsnæðisstuðnings við leigjendur).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (endurskoðun á fyrirkomulagi stofnframlaga)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið hefur það að markmiði að endurskoða fyrirkomulag stofnframlaga til almennra íbúða í því skyni að slíkur húsnæðisstuðningur nái betur markmiðum sínum og styðji enn betur við fyrirhugaða húsnæðisuppbyggingu á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (endurskoðun á fyrirkomulagi stofnframlaga).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (endurskoðun á fyrirkomulagi hlutdeildarlána)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið hefur það að markmiði að endurskoða fyrirkomulag stofnframlaga hlutdeildarlána í því skyni að slíkur húsnæðisstuðningur nái betur markmiðum sínum og styðji enn betur við fyrirhugaða húsnæðisuppbyggingu á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (endurskoðun á fyrirkomulagi hlutdeildarlána).
- Kom aldrei framFrumvarp
Almenningssamgöngur
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér nýja heildarlöggjöf um almenningssamgöngur hér á landi. Með því er skapaður rammi um samþætt kerfi almenningssamgangna og tengingar ólíkra ferðamáta innan kerfisins og lagt til að stofnað verði opinbert hlutafélag um rekstur almenningssamgangna. Markmið frumvarpsins er að stuðla að virkum, öruggum og hagkvæmum almenningssamgöngum og að auka hlutdeild almenningssamgangna í samgöngum almennt.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um almenningssamgöngur.
- Kom aldrei framFrumvarp
Lóðarleigusamninga
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarp á grundvelli ábendinga Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um úthlutun lóða og rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu húsnæðis. Ekki er til heildstæð löggjöf um lóðarleigusamninga hér á landi og geta réttindi til lóðar, sem mannvirki, verið mismunandi eftir því hvaða sveitarfélagi viðkomandi lóð tilheyrir.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um lóðarleigusamninga.
Matvælaráðherra
5 af 13 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994 (EES-reglur)
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða EES-reglur um lyfjablandað fóður og prótín af dýrauppruna í fóðri.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994 (EES-reglur).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu fyrir dýr, nr
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
66/1998 (gjaldtaka). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða gjaldtöku fyrir leyfisveitingu heilbrigðisstarfsmanna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu fyrir dýr, nr.
- Kom aldrei framFrumvarp
Nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar (heildarlög)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið mælir fyrir um ný heildarlög um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar með því að sameina og endurskoða lagabálka á sviði fiskveiðistjórnunar og sjávarútvegs í ein heildarlög. Frumvarpið byggir m.a. á tillögum úr verkefninu Auðlindin okkar. Í frumvarpinu verður að finna efnisreglur sem varða nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar, þ.e. sjávardýr, s.s. sjávargróður, sem nytjuð eru eða kunna að vera nytjuð innan sem utan fiskveiðilandhelgi Íslands og sérlög gilda ekki um. Frumvarpið tekur mið af þremur stoðum sjálfbærrar þróunar og helstu meginreglum umhverfisréttar um vistkerfis- og varúðarnálgun. Markmið frumvarpsins er að tryggja betri yfirsýn, samræma hugtakanotkun, skýra heimildir til setningar stjórnvaldsfyrirmæ la og heimildir til viðurlaga við brotum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar (heildarlög).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið mælir fyrir breytingum á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, lögum um Hafrannsóknastofnun, nr. 112/2015, lögum um Fiskistofu, nr. 36/1992 og lögum um Matvælastofnun, nr. 30/2018. Lagðar eru til breytingar til að styrkja eftirlit framangreindra stofnana, heimild til upplýsingaöflunar og aðrar breytingar sem eru til þess fallnar að styrkja opinbert eftirlit. Þá eru lagðar til breytingar er varða framkvæmd stjórnsýslu í umræddum stofnunum og hæfniskröfur forstjóra.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um matvæli, nr. 93/1995 (opinbert eftirlit með matvælum)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi opinbers eftirlits með matvælum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli, nr. 93/1995 (opinbert eftirlit með matvælum).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um velferð dýra, nr. 55/2012 (eftirlit)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða eftirlit með velferð dýra m.a. í kjölfar úttektar Ríkisendurskoðunar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um velferð dýra, nr. 55/2012 (eftirlit).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Stefna í lagareldi
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Stefnu um lagareldi er ætlað að skapa skýrari sýn og áherslur fyrir greinina til framtíðar. Stefnan byggir á þeirri stefnumótun sem unnið hefur verið að síðastliðin ár.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu í lagareldi.
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Sjávarútvegsstefnu
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Stefnu um sjávarútveg er ætlað að skapa skýrari sýn og áherslur fyrir sjávarútveg til framtíðar. Stefnan byggir m.a. á niðurstöðum úr verkefninu Auðlindin okkar, matvælastefnu til ársins 2040 sem staðfest var á 153. löggjafarþingi (2022-2023) og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um nýtingu auðlinda hafsins. Með stefnunni er hugað að umgjörð sjávarútvegs í heild sinni og er stefnunni ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku um sjávarútveg, m.a. til að stuðla að hagkvæmari og sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda, þannig að nýting auðlinda hafsins fari ekki umfram þau mörk sem náttúran setur.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um sjávarútvegsstefnu.
Menningar- og viðskiptaráðherra
12 af 24 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (innleiðing)
Áætlað: nóvember· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (SRD II). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða að mestu félög þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipule gum markaði og lúta að deili á hluthöfum slíkra félaga, upplýsingagjöf o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (innleiðing).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (menningarframlag fjölmiðlaveitna)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um fyrirkomulag um skyldubundið menningarframlag fjölmiðlaveitna sem miðla efni til neytenda hér á landi með því að gera kröfu um að tiltekið hlutfall af áskriftartekjum vegna slíkrar miðlunar renni til menningarverkefna sem stuðli að gerð sjónvarpsefnis á íslensku.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (menningarframlag fjölmiðlaveitna).
- Kom aldrei framFrumvarp
Bókhald
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér tillögu um ný heildarlög um bókhald, sem byggjast á heildarendurskoðun á bókhaldslögum með áherslu á rafrænt bókhald og einföldun í þágu minni félaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um bókhald.
- Kom aldrei framFrumvarp
Rafrænar skuldaviðurkenningar
Áætlað: febrúar· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um rafrænar skuldaviðurkenningar, nýtt lánaform sem ætlað er að veita sambærilegt réttarfarslegt hagræði og skuldabréf, en samræmast betur rafrænni lánaumsýslu og þinglýsingu auk þess að stuðla að skilvirkni og einföldun viðskipta.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um rafrænar skuldaviðurkenningar.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, með síðari breytingum vegna innleiðingar á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 og 2019/770 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafræn ni þjónustu og um samninga um sölu á vörum. Þá felur frumvarpið auk þess í sér innleiðingu á hluta til skipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsi ns 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Samband sins um neytendavernd.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tækja og ferla í félagarétti.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (höfundaréttur á stafræna innri markaðnum)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (höfundaréttur á stafræna innri markaðnum).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (reglur um höfundarétt og tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundaréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (reglur um höfundarétt og tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breytin gu á lögum um samvinnufélög, nr. 2 2/1991 (endurskoðun)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er stefnt að heildarendurskoðun laga um samvinnufélög.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytin gu á lögum um samvinnufélög, nr. 2 2/1991 (endurskoðun).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (innleiðing)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2022/2464 um upplýsingagjöf um sjálfbærni (CSRD).
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (innleiðing).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hagræði vegna styrkja til einkarekinna fjölmiðla)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Stefnt er að því að festa í sessi fyrir komulag sem skapi hvata fyrir einstaklinga og lögaðila til að styrkja einkarekna fjölmiðla. Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um skilyrði sem fjölmiðlar þurfa að uppfylla og skilgreina hlutverk e ftirlitsaðila með framkvæmdinni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hagræði vegna styrkja til einkarekinna fjölmiðla).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Fjölmiðlastefnu (stefnumótun og aðgerðaáætlun)
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillagan miðar að því að viðhalda og efla lýðræðislega umræðu og lýðræðisþátttöku með því að stuðla að bættu miðlalæsi og auka fjölbreytni, gagnsæi og fjölræði í fjölmiðlum. Þá miðar tillaga n að því að búa fjölmiðlum starfsumhverfi sem stuðli að öflugri fjölmiðlun í almannaþágu með virkri þátttöku fjölbreyttra fjölmiðla, auka fjölmiðlalæsi almennings og vernda börn og ungmenni gegn skaðlegu efni í fjölmiðlum.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fjölmiðlastefnu (stefnumótun og aðgerðaáætlun).
Mennta- og barnamálaráðherra
7 af 13 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Gagnaöflun um farsæld barna og ungmenna
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um gagnaöflun um börn og ungmenni á málefnasviði mennta- og barnamálaráðherra. Markmið frumvarpsins er að tryggja yfirsýn yfir stöðu og líðan barna og ungmenna. Þar verður meðal annars fjallað um aðferðir við gagnaöflun, greiningar og miðlun gagna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um gagnaöflun um farsæld barna og ungmenna.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (vinnustaðanám, innritun o.fl.)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar sem tengjast stefnumótun á sviði framhaldsskóla. Um er að ræða aðlögun laganna vegna innleiðingar breytinga á reglum um vinnustaðanám og breytingar sem tengjast meðal annars innritun í framhaldsskóla, forvörnum og viðbrögðum vegna eineltis, kynferðislegs ofbeldis, kynferðislegrar áreitni og ofbeldis og samningum við einkaskóla.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (vinnustaðanám, innritun o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Skólaþjónustu
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um skólaþjónustu í leik -, grunn- og framhaldsskólum. Undirbúningur frumvarpsins hefur farið fram í víðtæku samráði frá árinu 2022. Þar verður meðal annars fjallað um innihald skólaþ jónustu og verkaskiptingu ríkis og sve itarfélaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um skólaþjónustu.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um námsgögn, nr. 71/2007, o.fl. (námsgögn)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér endurskoðun á lögum um námsgögn og lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla. Markmiðið er að breyta núverandi fyrirkomulagi námsgagnaútgáfu, m.a. til að stuðla að fjölbreyttri nýsköpun í námsgagnagerð og auknu framboði af nýju námsefni fyrir öll skólastig.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um námsgögn, nr. 71/2007, o.fl. (námsgögn).
- Kom aldrei framFrumvarp
Barnavernd
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér síðari hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga en fyrri hluti heildarendurskoðunarinnar tók gildi 1. janúar 2022. Gert er að ráð fyrir að frumvarpið hafi að geyma endurskoðuð ákvæði um meðferð barnaverndarmála, úrræði í barnavernd og aðra aðlögun lagareglna að þróun í barnaverndarþjónustu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um barnavernd.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, o.fl. (börn með fjölþættan vanda)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á reglum laganna þar sem fjallað er um börn með fjölþættan vanda. Frumvarpið mun taka mið af vinnu stýrihóps um málefni barna með fjölþættan vanda og verður unnið í tengslum við frumvarp til nýrra laga um barnavernd.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, o.fl. (börn með fjölþættan vanda).
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
11 af 28 komin fram
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi o.fl.)
Áætlað: september· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagður grunnur að útfærslu tillagna starfshópa sem fjallað hafa um raforkuöryggi þar sem lagt er til að mælt verði fyrir um s öfnun og miðlun upplýsinga um stöðu á raforkumarkaði og um forgang almennra notenda og smærri fyrirtækja komi til skömmtunar rafo rku.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Loftslagsstofnun
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á stofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfsstöðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auk a stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjón ustu og samfélagsleg an ávinning. Í frumvarpinu er lagt til að Orkustofnun og sá hluti af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að loftslags- og umhverfismálum sameinist í einni stofnun. Gert er ráð fyrir að sá hluti af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd muni verða hluti af nýrri Náttúruverndar- og minjastofnun. Auk nýrra laga er lagt til að breytingar verði gerðar á þeim lögum þar sem viðkomandi stofnanir eru tilgreindar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Loftslagsstofnun.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um loftslag smál, nr. 70/2012 (niðurlagning Loftslagssjóðs)
Áætlað: októberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga ráðuneytisin s. Ráðuneytið rekur tvo sjóði, Orkusjóð og Loftslagssjóð, sem styrkja verkefni sem tengjast orkuskiptum og nýsköpun á sv iði loftslagsmála. Þá hefur ráðuneytið veitt styrki til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins og þá sérstaklega styrki til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu. Með frumvarpinu er ætlunin að framangreindar styrkveitingar verði sameinaðar. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði um Loftslagssjóð verði felld á brott úr lögum um loftslagsmál.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslag smál, nr. 70/2012 (niðurlagning Loftslagssjóðs).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á raforkulög um, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi fyrir raforku o.fl.)
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða gerðar tillögur að breytingum á raforkulögum í tengslum við rekstur skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku. Í raforkulögum er gert ráð fyrir rekstri skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku og að leyfi ráðherra þurfi til þess. Með frumvarpinu verða gerðar tillögur um reglur sem gilda skulu í viðskiptakerfi, svo sem um bann við markaðsmisnotkun sem og eftirlit með rekstri skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulög um, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi fyrir raforku o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Vindorku
Áætlað: nóvemberHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er að finna sérstök ákvæði sem snúa að hagnýtingu vindorku til raforkuframleiðslu í samræmi við skýrslu starfshóps um málið. Í lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, er kveðið á um að allir virkjunarkostir, 10 MW og stærri, skuli fá umfjöllun í rammaáætlun þar sem þeim er raðað í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vindorku.
- Kom aldrei framFrumvarp
Vernd, velferð og veiðar á villtum dýrum, fuglum og spendýrum
Áætlað: nóvember· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun gildandi laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vernd, velferð og veiðar á villtum dýrum, fuglum og spendýrum.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, mót taka úrgangs í höfnum)
Áætlað: nóvember· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttöku úrgangs frá skipum, sem breytir tilskipun (ESB) 2010/65 og fellir úr gildi tilskipun (ESB) 2000/59. Tilskipunin kemur í stað eldri tilsk ipunar um sama efni sem hefur verið innleidd hér á landi. Gera þarf nokkrar breytingar á lögunum vegna innleiðingar á tilskipuninni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, mót taka úrgangs í höfnum).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (varp í hafið)
Áætlað: janúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda er meginreglan sú að varp efna og hluta í hafið sé óheimilt. Umhverfisstofnun er þó heimilt að veita leyfi fyrir því að tilteknum efnum og hlutum sé varpað í hafið. Skilgreining á varpi í hafið hefur í framkvæmd valdið ákveðnum vandkvæðum og verður í frumvarpinu leitast við skýra það frekar og/eða að bæta við heimildum Umhverfisstofnunar til leyfisveitinga. Markmiðið með frumvarpinu er að auka skýrleika og koma í veg fyrir óþarfa reglubyrði, t.d. þegar litið er til mikilvægra rannsóknar- og þróunarverkefna í kolefnisbindingu á hafi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (varp í hafið).
- Kom aldrei framFrumvarp
Eldsneytisbirgðir
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að mælt sé fyrir um lágmarksbirgðahald jarðefnaeldsneytis í samræmi við orkustefnu Íslands, skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 og aðgerðir sem átakshópur um úrbætur á innviðum skilgreindi í kjölfar óveðursins 2019.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um eldsneytisbirgðir.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (landtaka skipa utan hafna)
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði sérstök ákvæði í lögin til að bregðast við áskorunum sem fylgja landtöku skemmtiferðaskipa á viðkvæmum svæðum utan hafna landsins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (landtaka skipa utan hafna).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins)
Áætlað: febrúar· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar vegna ábendinga frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í tengslum við verkefni Raforkueftirlitsins. Um er að ræða ábendingar ESA vegna sérstakra verkefna Raforkueftirlitsins eins og mælt er fyrir um í tilskipu n 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr
Áætlað: mars· EndurfluttHvað stendur í þingmálaskránni?
49/1997 (markmiðsákvæði, endurskoðun hættumats, sektir o.fl.). Í frumvarpinu er aukið á skýrleika laganna, bætt við ákvæði um markmið með lögunum, lagðar til breytingar á ákvæðum um endurskoðun hættumats, eftirlit, um nýtingu húseigna og innheimtu gjalda og lögð til sektarákvæði. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr.
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hollustuh ætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-innleiðing, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur)
Áætlað: mars· EES-innleiðingHvað stendur í þingmálaskránni?
á ákvæði 1. mgr. 6. gr. tilskipunar ESB 2019/ 904 sem kveður á um að einungis megi setja einnota drykkjarílát úr plasti (allt að þriggja lítra) á m arkað ef tappinn eða lokið er áfast ílátinu á meðan fyrirhuguð notkun þess stendur yfir.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuh ætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-innleiðing, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um lofts lagsmál, nr. 70/2012 (styrking stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu verður lagt til endurskoðað hlutverk Loftslagsráðs í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og aukin áhersla lögð á ráð gefandi hlutverk og vísindastarf auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnvöldum. Í frumvarpinu verða enn fremur lagðar fram tillögur að skipulagi og efnistökum landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Frumvarpið mun jafnframt fela í sér e ndurskoðun á hlutverki Umhverfisstofnunar hvað snertir loftslagsstefnu ríkis og sveitarfélaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lofts lagsmál, nr. 70/2012 (styrking stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (endurskoðun eftirlitskerfis)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Markmið frumvarpsins er að fylgja ef tir tillögum starfshóps sem stofnaður var haust ið 2022. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur að nýju eftirlitskerfi á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og matvælalaga eða eftir atvikum breytingum á núverandi kerfi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (endurskoðun eftirlitskerfis).
- Kom aldrei framFrumvarp
Breyting á lögum um stjórn vatnamála (málsmeðferðarreglur)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verður lagt til að skýra málsmeðferðarreglur laga um stjórn vatnamála sem varða heimild til breytinga á vatnshloti. Höfð er hliðsjón af reynslu af framkvæmd laganna með það að markmiði að auka skilvirkni stjórnsýslu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn vatnamála (málsmeðferðarreglur).
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Verndar- og orkunýtingaráætlun (4. áfangi)
Áætlað: marsHvað stendur í þingmálaskránni?
Tillaga lögð fram í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um verndar- og orkunýtingaráætlun (4. áfangi).
Utanríkisráðherra
4 af 6 komin fram
- Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin
Áætlað: nóvember - Kom aldrei framÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr
Áætlað: febrúarHvað stendur í þingmálaskránni?
185/2023: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 frá 30. maí 2022 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskráartækni og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
- Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)