Beint í efni
Alviti
157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 157. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

147

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 157. þings

Af málum sem komu fram var 51 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 64 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

2 af 3 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum (kæru- og úrskurðarnefndir)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ráðgert er að forsætisráðuneytið setji á fót nefndahús í formi ólögbundinnar ráðuneytisstofnunar. Horft er til fyrirmynda í Danmörku og Noregi. Gera þarf breytingar á ýmsum sérlögum til að afnema hindranir fyrir því að starfsemi kæru- og úrskurðarnefnda verði samþætt og unnt verði að veita þeim sérfræði- og stoðþjónustu á einum stað.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (kæru- og úrskurðarnefndir).

Atvinnuvegaráðherra

11 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á samkeppnislögu m, nr. 44/2005 (veltumörk tilkynningarskyldra samruna, samrunagjald o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða veltumörk tilkynningarskyldra samruna, sem og gjaldtöku og málsmeðferðarreglur samrunamála.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögu m, nr. 44/2005 (veltumörk tilkynningarskyldra samruna, samrunagjald o.fl.).

  • Frumvarp

    Náttúru- og innviðagjald

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til náttúru- og innviðagjald á ferðamannastaði í eigu íslenska ríkisins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum á sviði neytendamála (neytendasamningar, neytendakaup, stafræn þjónusta, markaðseftirlit o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingu á ýmsum lögum á sviði neytendamála með aukna neytendavernd, upplýsingagjöf og réttarstöðu neytenda að leiðarljósi. Í grunninn er um að ræða innleiðingar á nokkrum tilskipunum ESB, almennt um nútímavæðingu á sviði neytendamála, sem kalla á breytingar á ýmsum lögum á sviði neytendamála, m.a. lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, og lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði neytendamála (neytendasamningar, neytendakaup, stafræn þjónusta, markaðseftirlit o.fl.).

Dómsmálaráðherra

13 af 18 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bótafjárhæðir)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til einföldun á meðferð bótakrafna vegna brota á IX. –XIV. kafla laga um meðferð sakamála. Settar verði reglur um viðmiðunarfjárhæðir bóta sem ríkislögmaður styðst við þegar slíkar bætur eru gerðar upp. Samhliða er felld brott skylda til að veita gjafsókn í slíkum bótamálum. Með þessum breyt ingum er unnt að flýta uppgjöri bóta og fækka dómsmálum vegna ágreinings um bætur. Í frum varpinu felst þannig hagræðing við meðferð málanna, bæði fyrir bótakrefjendur og ríkið, auk þess sem gera má ráð fyrir lækkun útgjalda hjá ríkissjóði í þessum málum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bótafjárhæðir).

  • Frumvarp

    Breyting á kosningalögum, nr. 112/2021 (atkvæðavægi)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (atkvæðavægi).

  • Frumvarp

    Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (tálmun lögreglurannsóknar)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Endurskoðun á ákvæði 112. gr. la ganna, sem varðar tálmun náinna vandamanna á rannsókn sakamáls til að koma grunuðum manni undan refsingu. Horft verður til löggjafar á Norðurlöndunum að þessu leyti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (tálmun lögreglurannsóknar).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (dvalarleyfi)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til úrbætur á dvalarleyfiskafla laga um útlendinga til samræmingar við löggjöf á Norðurlöndum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (dvalarleyfi).

  • Þingsályktunartillaga

    Forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026–2030

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillagan felur í sér að unnið verði markvisst að forvörnum meðal barna og ungmen na gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2026–2030. Jafnframt verða aðgerðir sem lúta að forvörnum gegn líkamlegu ofbeldi meðal barna og ungmenna. Forvarnir verði samþættar kennslu og skólastarfi á öllum skólastigum, á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum, í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öðru tómstundastarfi. Áætlunin er í samræmi við gildandi þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021–2025 og skal byggð á eftirfylgni hennar.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026–2030.

Félags- og húsnæðismálaráðherra

13 af 16 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (heiti laganna, réttindagæslumenn, persónulegir talsmenn, málsmeðferð o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Markmið breytinganna er meðal annars að skerpa á hlutverki réttindagæslumanna og sýslumanna. Þá er lagt til að úrskurðarnefnd velferðarmála taki við því hlutverki að fjalla um undanþágur frá banni við beitingu nauðungar og banni við fjarvöktun.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (heiti laganna, réttindagæslumenn, persónulegir talsmenn, málsmeðferð o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og endurskoðun byggingareftirlits)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar til að tryggja að lögin veiti heimild til að setja hnitmiðaða, árangurs- eða markmiðsdrifna byggingarreglugerð og innleiða áhættumiðað, gagnadrifið byggingareftirlit og tryggja betur neytendavernd vegna fasteignagalla.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og endurskoðun byggingareftirlits).

  • Frumvarp

    Breyting á skipulagslögum nr. 123/2010 (raflínuskipulag)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á skipulagslögum með það að markmiði að styrkja enn frekar þá sérstöku málsmeðferð sem mælt er fyrir um í lögunum í tengslum við lagningu raflína í flutningskerfi raforku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010 (raflínuskipulag).

Fjármála- og efnahagsráðherra

21 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Uppbótarskatt á skattstofna innan samstæðna sem sæta lægri skatti en lágmarksskatti

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu samræmdra reglna um 15% lágmarksskatt fjölþjóðlegra samstæðna með það að markmiði að draga úr skaðlegri skattasamkeppni á milli landa. Fyrirmynd reglnanna hefur verið samin á vettvangi OECD (Inclusive Framework), ásamt greinargerð og leiðbeiningum um framkvæmd reglnanna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um uppbótarskatt á skattstofna innan samstæðna sem sæta lægri skatti en lágmarksskatti.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um ríkisábyrgðir og lögum um lánasýslu ríkisins (endurskoðun)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er stefnt að því að endurskoða lagaákvæði um lánaumsýslu ríkissjóðs og ríkisábyrgðir. Undir lánaumsýslu falla m.a. tekin lán ríkissjóðs, endurlán, ábyrgðir, afleiður, áhættustýring og sjóðsstýring. Meginmarkmið frumvarpsins er að samræma löggjöfina gildandi lögum um opinber fjármál og stefnu í lánamálum. Frumvarpið hefur einnig ákveðna tengingu við frumvarp um fjárfestingar ríkisins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir og lögum um lánasýslu ríkisins (endurskoðun).

  • Frumvarp

    Fjárfestingar ríkisins

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001. Megintilgangur frumvarpsins er að tryggja skýra og samræmda málsmeðferð við ólíkar tegundir fjárfestinga ríkisins og að ákvarðanir um fjárfestingar séu vandlega undirbúnar og standist viðmið um góða verkefnastjórnsýslu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins.

Heilbrigðisráðherra

9 af 11 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (færni- og heilsumatsnefndir)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að landshlutabundnar færni- og heilsumatsnefndir í hverju heilbrigðisumdæmi verði lagðar niður og að skipuð verði ein færni- og heilsumatsnefnd á landsvísu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (færni- og heilsumatsnefndir).

  • Frumvarp

    Tóbaksvarnir, rafrettur og níkótínvörur

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sameinaðir verði tveir lagabálkar í einn, þ.e. lög um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og lög um níkótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018. Jafnframt verði gerðar breytingar sem lúta m.a. að eftirliti og um leið lagt til að sambærilegt gjald verði lagt á tóbaksvörur og tóbakslíkar vörur eins og nikótínpúða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um tóbaksvarnir, rafrettur og níkótínvörur.

Innviðaráðherra

10 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Innviðafélag

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður lagt til að stofnað verði sérstakt innviðafélag eða ríkisaðili sem sér um fjármögnun stærri samgönguframkvæmda, s.s. vegna jarðganga og sambærilegra flýtiframkvæmda. Lagt verður til að umgjörð um fjármögnun, framkvæmd og rekstur umferðarmannvirkja, sem myndu falla undir fyrirkomulag af þessu tagi, verði vel skilgreind með fjárhagslega sjálfbærni að leiðarljósi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um innviðafélag.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignamat orkumannvirkja)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til viðeigandi breytingar á lögum með það að markmiði að tryggja nærsamfélagi sem fyrst sanngjarnari hlutdeild en nú er í ávinningi vegna raforkuframleiðslu. Frumvarpið er m.a. lagt fram til að fylgja eftir 6. lið stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að sjá til þess að stærri hluti tekna af orkumannvirkjum renni til nærsamfélags.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignamat orkumannvirkja).

  • Frumvarp

    Strandveiðar og byggðakvóta

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarp til nýrra laga um strandveiðar og byggðakvóta. Með lögunum verða teknar til endurskoðunar heimildir til úthlutunar strandveiðileyfa og skýrðar nánar heimildir til úthlutunar byggðatengdra veiðiheimilda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um strandveiðar og byggðakvóta.

  • Frumvarp

    Breyting á hafnalögum, nr. 61/2003 (EES-reglur)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarp til laga um breytingar á hafnalögum vegna endurskoðunar heimilda hafna til gjaldtöku og innleiðingar reglugerðar (ESB) 2023/1805 (FuelEU). Lagt er til að bætt verði við heimild fyrir aðgangsbanni skipa að höfnum hér á landi vegna vanefnda við kröf ur reglugerðarinnar. Væntanlega lagt fram samhliða frumvarpi umhverfis -, orku- og loftslagsráð herra til breytinga á lögum til að uppfylla kröfur sömu reglugerðar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (EES-reglur).

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

9 af 12 komin fram

  • Frumvarp

    Stofnun gervigreindarmiðstöðvar

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði á laggirnar miðlæg miðstöð gervigreindar og máltækni sem muni stuðla að ábyrgri innleiðingu gervigreindar, tryggja samhæfingu verkefna og stuðla að aukinni þekkingu og færni á vinnumarkaði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um stofnun gervigreindarmiðstöðvar.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, kvikmyndalögum og bókasafnalögum (Kvikmyndasafn og Hljóðbókasafn)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að sameina Kvikmyndasafn Íslands og Hljóðbókasafn Íslands við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Markmið með sameiningunni er að styrkja faglegt starf safnanna, rannsóknir og miðlun og auka þjónustu við notendur með stærri og öflugri stofnun.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, kvikmyndalögum og bókasafnalögum (Kvikmyndasafn og Hljóðbókasafn).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    23/2013 (viðskiptaboð). Með breytingum á 7. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, verð i heimildir Ríkisútvarpsins til birtinga á auglýsingum takmarkaðar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr.

Mennta- og barnamálaráðherra

4 af 7 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum (gagnagrunnur nemendaupplýsinga)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að aðlaga lagaumhverfi að uppbyggingu gagnagrunns sem heldur miðlægt utan um skráningu upplýsinga um nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (gagnagrunnur nemendaupplýsinga).

  • Frumvarp

    Námsgögn

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um námsgögn sem ætlunin er að komi í stað gildandi laga um námsgögn, nr. 71/2007. Markmið frumvarpsins er að tryggja gæði, framboð og fjölbreytileika námsgagna til að styðja við nám og kennslu í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum. Það felur meðal annars í sér að námsgögn í leik-, grunn- og framhaldsskólum verði í áföngum gerð gjaldfrjáls vegna náms barna að 18 ára aldri.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um námsgögn.

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna og framkvæmdaáætlun gegn fátækt barna

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í samstarfi viðeigandi ráðuneyta leggi mennta- og barnamálaráðherra fram sem tillögu til þingsályktunar, stefnu og framkvæmdaáætlun, til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun gegn fátækt barna.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

15 af 20 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013 (EES-reglur, orkuskipti, sjálfbært flugeldsneyti)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður innleidd reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2405 frá 18. október 2023 um að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði fyrir sjálfbæra flutninga í lofti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013 (EES-reglur, orkuskipti, sjálfbært flugeldsneyti).

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins, EES-reglur)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytin gar vegna ábendinga frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í tengslum við verkefni Raforkueftirlits Umhverfis- og orkustofnunar. Um er að ræða ábendingar ESA vegna sérstakra verkefna Raforkueftirlitsins eins og mælt er fyrir um í tilskipun 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins, EES-reglur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011 (skilvirkari stjórnsýsla, málsmeðferðarreglur)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður mælt fyrir um breytingar á lö gum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011, til að skýra ákvæði laganna m.a. með málsmeðferðarreglum um heimild til breytinga á vatnshloti, m.a. með það að markmiði að auka skilvirkni stjórnsýslu vatnamála.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011 (skilvirkari stjórnsýsla, málsmeðferðarreglur).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna innleiðingar EES-gerða um aukna notkun endurnýjanlegs eldsneytis (EES-reglur, orkuskipti, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1805 um notkun endurnýjanlegs og kolefnislágs eldsneytis í sjóflutningum – (FUEL EU). Með frumvarpinu verður einnig mælt fyrir breytingum til innleiðingar á tilskipun ESB 2018/2001 um aukna notkun orku frá endurnýjanlegum or kugjöfum (RED II). Auk þess eru lagðar til breytingar á lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013, og gildissvið víkkað þannig að lögin nái til hafsækinnar starfsemi í þeim tilgangi að tryggja innleiðingu tiltekinnar aðgerðar í aðgerðaáætlun í lofts lagsmálum. að hluta.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna innleiðingar EES-gerða um aukna notkun endurnýjanlegs eldsneytis (EES-reglur, orkuskipti, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum).

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í 39. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, segir að ráðherra skuli á fjögurra ára fresti leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggi ngu flutningskerfis raforku. Með þessum hætti getur Alþingi lagt fram ákveðnar meginreglur og viðmið sem taka ber mið af við gerð kerfisáætlunar á hverjum tíma skv. raforkulögum. Kerfisáætlunin er annars vegar langtímaáætlun til tíu ára og hins vegar framk væmdaáætlun til þriggja ára. Í tillögu að uppfærðri þingsályktun verður tekið mið af stöðu verkefna sem tilgreind eru í núgildandi þingsályktun sem og orkustefnu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)