Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 153. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.
Gögn 153. þings eru enn að hlaðast frá Alþingi. Mál sem ráðherra lagði fram geta því vantað, og tölurnar hér eru ekki endanlegar.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 153. þings
Af málum sem komu fram voru 24 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 33 seinna en áætlað var.
Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga
Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.
- 158. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur · yfirstandandi1% samþykkt · 1 af 1501 samþykkt32 í vinnslu117 ekki komið fram
- 157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur62% samþykkt · 91 af 14791 samþykkt24 dagaði uppi eða fellt32 kom aldrei fram
- 154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur44% samþykkt · 88 af 20088 samþykkt19 dagaði uppi eða fellt93 kom aldrei fram
- 153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur34% samþykkt · 50 af 14950 samþykkt7 dagaði uppi eða fellt92 kom aldrei fram
| Þing | Dagsetning | Lögð fram | Samþykkt |
|---|---|---|---|
| 158. þing | 24. okt. 2026 | 33 af 150 | 1 |
| 157. þing | 25. okt. 2025 | 45 af 147 | 7 |
| 154. þing | 28. okt. 2023 | 24 af 200 | 0 |
| 153. þing | 29. okt. 2022 | 23 af 149 | 0 |
155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Forsætisráðherra
3 af 5 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Vísinda- og nýsköpunarráð
Áætlað: september· Endurflutt188. mál· Samþykkt· lagt fram 22. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu er mælt fyrir um endurskoðun laga um Vísinda- og tækniráð, nr. 2/2003 og er þetta fyrsta heildræna endurskoðun á lögunum frá því að þau tóku gildi. Frumvarpið byggist á skýrslu verkefnishóps forsætisráðherra sem skilað var í ágúst 2020. Meginmarkmið breytinganna er að efla stefnu á sviði vísinda og nýsköpunar með því að skýra hlutverk Vísinda- og tækniráðs, auka stuðning við stefnumótun og sjálfstæða ráðgjöf til ráðherra, efla samræmda stefnu þvert á ráðuneyti, skerpa framtíðarsýn og styrkja umræðu um vísindi og nýsköpun í samfélaginu. Lagt er til að heiti ráðsins verði breytt í Vísinda- og nýsköpunarráð.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð.
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 (fjármálaeftirlitsnefnd)
Áætlað: nóvember541. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að breyta lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 varðandi ákvarðanatöku á sviði fjármálaeftirlits og valdsvið fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 (fjármálaeftirlitsnefnd).
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
Áætlað: nóvember487. mál· Samþykkt· lagt fram 22. nóv. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Tillagan mælir fyrir um endurskoðun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um þjóðaröryggisráð, nr. 98/2016.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland.
Dómsmálaráðherra
8 af 20 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Landamæri
Áætlað: september· Endurflutt212. mál· Samþykkt· lagt fram 27. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að tryggja að landamæraeftirlit og landamæragæsla séu framkvæmd með öruggum og skilvirkum hætti og til samræmis við lög, reglugerðir og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um landamæri.
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991 (kennitöluflakk)
Áætlað: september· Endurflutt277. mál· Samþykkt· lagt fram 7. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að við gjaldþrotaskipti á félagi með takmarkaða ábyrgð geti skiptastjóri krafist þess að lagt verði atvinnurekstrarbann á þann sem komið hefur að stjórnun félagsins á síðust u 18 mánuðum fyrir frestdag ef viðkomandi telst ekki hæfur til að stýra félaginu vegna verulega skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félagsins á umræddu tímabili.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991 (kennitöluflakk).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd)
Áætlað: september· Endurflutt382. mál· Samþykkt· lagt fram 21. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd til að skýra einstaka ákvæði, auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma, án þess þó að skerða réttindi umsækjenda. Þá eru með frumvarpinu lagðar til breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem hljóta dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um meðferð sakamála og lögum um meðferð einkamála o.fl. (ýmsar breytingar)
Áætlað: september· Endurflutt278. mál· Samþykkt· lagt fram 7. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar til að einfalda málsmeðferð.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um meðferð einkamála o.fl. (ýmsar breytingar).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr
Áætlað: október476. mál· Samþykkt· lagt fram 21. nóv. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
90/2018 (einföldun málsmeðferðar, forgangsröðun mála o.fl.). Með frumvarpinu er brugðist við ábendingum sem hafa borist frá Persónuvernd. Lagt er til að meðferð mála verði einfölduð að því leyti að ekki þurfi að ljúka öllum kvörtunarmálum með úrskurði en slík breyting er til þess fallin að draga úr verkefnaálagi hjá Persónuvernd. Þá er jafnframt lagt til að Persónuvernd fái skýra heimild til að forgangsraða málum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr.
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bótafjárhæðir)
Áætlað: mars428. mál· Samþykkt· lagt fram 14. nóv. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lögð til einföldun á meðferð bótakrafna vegna brota á IX. –XIV. kafla laga um meðferð sakamála vegna ólögmætrar handtöku, þvingunarráðstafana og gæsluvarðhalds á þann hátt að settar verði reglur um viðmiðunarfjárhæðir bóta sem ríkislögmaður styðst við við uppgjör slíkra bóta. Samhliða er felld brott skylda til að veita gjafsókn í slíkum bótamálum. Með þessum breytingum er unnt að flýta uppgjöri bóta og fækka dómsmálum vegna ágreinings um bætur. Í frumvarpinu felst hagræðing við meðferð málanna bæði fyrir þolendur og ríkið auk þess sem gera má ráð fyrir lækkun útgjalda hjá ríkissjóði vegna málskostnaðar í þessum málum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (bótafjárhæðir).
Félags- og vinnumarkaðsráðherra
5 af 12 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um framhaldsfræðslu, nr. 27/2010 (stjórn Fræðslusjóðs)
Áætlað: september136. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Í ljósi þess að lög um framhaldsfræðslu hafa verið flutt undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, þykir nauðsynlegt að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á 11. gr. laga um framhaldsfræðslu. Í umræddu ákvæði er kveðið á um skipun stjórnar Fræðslusjóðs og hvaða aðilar skuli eiga fulltrúa í stjórninni og er fyrirhuguðum breytingum ætlað að tryggja að mennta- og barnamálaráðuneytið eigi fulltrúa í stjórninni.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsfræðslu, nr. 27/2010 (stjórn Fræðslusjóðs).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris)
Áætlað: október435. mál· Samþykkt· lagt fram 15. nóv. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu felast breytingar á tilhögun endurhæfingarlífeyris þar sem lagt er til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Framlagning frumvarpsins er fyrsti áfangi í heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (réttindaávinnsla og breytt uppsetning)
Áætlað: nóvember533. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu felast breytingar sem varða aðallega réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma og ætlaðra tímabila til framtíðar. Auk þess er lögð til breytt röðun á köflum og ákvæðum laga um almannatryggingar en um er að ræða heildarendurröðun og breytingu á númerum lagagreina með það að markmiði að gera lögin aðgengilegri, einfaldari og skýrari yfirlestrar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (réttindaávinnsla og breytt uppsetning).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002 (sérfræðingar utan EES)
Áætlað: nóvember645. mál· Samþykkt· lagt fram 31. jan. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem ætlað er að koma til móts við áherslur í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þess efnis að auka svigrúm og skilvirkni í ráðningu erlendra sérfræðinga og auðvelda íslenskum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum að ráða fólk með sérþekkingu frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002 (sérfræðingar utan EES).
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Aðgerðaáætlun um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk
Áætlað: mars860. mál· Samþykkt· lagt fram 20. mar. 2023Hvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða tillögu til þingsályktunar þar sem fram koma tillögur að forgangsröðun og útfærslu á tímasettum aðgerðum til fjögurra ára. Tillagan er unnin af verkefnastjórn sem hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra f ólk, og að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.
Fjármála- og efnahagsráðherra
9 af 11 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Fjárlaga fyrir árið 2023
Áætlað: september1. mál· Samþykkt· lagt fram 13. sep. 2022 - SamþykktFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023. Frumvarpið felur í sér breytingar sem lagðar eru til grundvallar fjárlagafrumvarpi ársins 2023 sem lagt er fram á sama tíma. Frumvarpið verður samið að höfðu samráði við önnur ráðuneyti
Áætlað: september2. mál· Samþykkt· lagt fram 13. sep. 2022 - SamþykktFrumvarp
Staðfesting ríkisreiknings 2021
Áætlað: september327. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlað - SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða o.fl.)
Áætlað: september· Endurflutt326. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í erlendri mynt verði rýmkaðar og að lífeyrissjóðum verði heimilt að senda upplýsingar til sjóðfélaga með rafrænum hætti.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða o.fl.).
- SamþykktFrumvarp
Greið slureikninga (PAD)
Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing166. mál· Samþykkt· lagt fram 21. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/92/ESB frá 23. júlí 2014 um samanburð gjalda er varða greiðslureikninga, skipti á greiðslureikningum og aðgengi að greiðslureikningum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greið slureikninga (PAD).
- SamþykktFrumvarp
Evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF)
Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing137. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF).
- SamþykktFrumvarp
Peningamarkaðssjóði
Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing328. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1131 frá 14. júní 2017 um peningamarkaðssjóði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um peningamarkaðssjóði.
- SamþykktFrumvarp
Fjáraukalaga fyrir árið 2022
Áætlað: október409. mál· Samþykkt· lagt fram 8. nóv. 2022· seinna en áætlað - SamþykktFrumvarp
Flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar
Áætlað: mars· EES-innleiðing415. mál· Samþykkt· lagt fram 8. nóv. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (e. Sustainable Finance Disclosure Regulation) og 2020/852 um að koma á ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/2088 (e. Sustainable Finance Taxonomy Regulation). Með frumvarpinu er einnig lagt til að framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1253 frá 21. apríl 2021, um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/565 að því er varðar þætti, áhættu og valkosti sem tengjast sjálfbærni og skulu gerðir hluti af tilteknum skipulagskröfum og rekstrarskilyrðum verðbréfafyrirtækja, verði veitt lagagildi með breytingu á lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021. Október. 12.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda). Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur gert athugasemdir við búsetuskilyrði í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi. ESA telur ákvæði laganna um búsetuskilyrði brjóta í bága við 28. og 31. gr. EES-samningsins um staðfesturétt. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Breytingarnar fela það í sér að ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja og Færeyingar verða undanskildir búsetuskilyrðum í lögunum. Október 13. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (kaupréttir, mútubrot o.fl.). Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Um er að ræða ákvæði sem snúa m.a. að kaupum á hlutabréfum samkvæmt kauprétti í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, lengingu heimildar til endurákvörðunar úr sex árum í tíu ár vegna mútubrota o.fl. Nóvember. 14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sértryggð skuldabréf og lögum um fjármálafyrirtæki (sértryggð skuldabréf og markaðsáhætta). Frumvarpinu er ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2162 frá 27. nóvember 2019 um útgáfu sértryggðra skuldabréfa og opinbert eftirlit með sértryggðum skuldabréfum og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2160 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar skuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa. Ákvæðum gerðanna svipar til þess lagaramma sem þegar gildir um sértryggð skuldabréf hér á landi. Frumvarpið felur í sér nokkur nýmæli, þar á meðal um lausafjárkröfur og heimild til að markaðssetja skuldabréf sem evrópsk sértryggð skuldabréf. Þá er gert ráð fyrir því að innleiða með frumvarpinu framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/424 frá 17. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar óhefðbundna staðalaðferð fyrir markaðsáhættu. Nóvember. 15. Frumvarp til laga um breytta gjaldtöku vegna notkunar bifreiða o.fl. (gjaldtaka ökutækja eldsneytis o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp breytt fyrirkomulag gjaldtöku af bifreiðum með gildistöku hinn 1. janúar 2024. Um er að ræða fyrirkomulag þar sem greitt er fyrir notkun vegakerfisins byggt á aflestri á kílómetrastöðu bifreiða. Samhliða er ráðgert að endurskoðun fari fram á þeim lagabálkum sem gilda um skattlagningu eldsneytis, með tilliti til þess að vægi þeirra verði minna. Nóvember. 16. Frumvarp til laga um meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum með breyttu fyrirkomulagi þar sem aukin áhersla verður lögð á gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Nóvember. 17. Frumvarp til laga um flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu. Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrirkomulag gjaldtöku í formi flýti- og umferðargjalda á höfuðborgarsvæðinu með gildistöku hinn 1. janúar 2024. Markmið frumvarpsins er að standa straum af stofnframkvæmdum samgöngumannvirkja, fjármögnun og afleiddum kostnaði slíkrar uppbyggingar. Gjöldunum er ætlað að tryggja nauðsynlega fjármögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að markmiðum Samgöngusáttmála ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verði náð. Nóvember. 18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (barnabætur). Með frumvarpinu verður barnabótakerfið styrkt og útvíkkað með það að markmiði að jafna kjör barnafjölskyldna í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Nóvember. 19. Frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri. Með frumvarpinu er lagt til að felld verði úr gildi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, sem sett voru til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2003/41 frá 3. júní 2003 um sama efni og ný lög sett í þeirra stað. Janúar. 20. Frumvarp til laga um sölu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 frá 20. júní 2019 um að greiða fyrir flutningi sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 345/2013, (ESB) nr. 346/2013 og (ESB) nr. 1286/2014 og innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB með tilliti til flutnings sjóða um sameigin lega fjárfestingu yfir landamæri. Einnig verða lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2011/61/ESB frá 8. júní 2011 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og um breytingu á tilskipunum 2003/31/EB og 2009/65/EB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 1095/2011, sem kveða á um heimildir rekstraraðila með staðfestu í þriðja ríki til markaðssetningar á sérhæfðum sjóðum innan EES og einnig sérreglur varða ndi markaðssetningu sjóða með staðfestu utan EES. Janúar. 21. Frumvarp til laga um högun upplýsingatækni í rekstri ríkisins. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja stefnumótun og framkvæmd upplýsingatæknimála í rekstri ríkisins o.fl. Janúar. 22. Frumvarp til laga um verðbréfun (STS). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/E B, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012. Febrúar. 23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir og lögum um lánasýslu ríkisins (endurskoðun). Með frumvarpinu er stefnt að því endurskoða lagaákvæði um lánaumsýslu ríkissjóðs og ríkisábyrgðir. Undir lánaumsýslu falla m.a. tekin lán ríkissjóðs, endurlán, ábyrgðir, afleiður, áhættustýring og sjóðsstýring. Meginmarkmið frumvarpsins er að samræma löggjöfina gildandi lögum um opinber fjármál og stefnu í lánamálum. Febrúar. 24. Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins. Með frumvarpinu er umgjörð opinberra fjárfestinga gerð skýrari ásamt því að ráðast í heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001. Megintilgangur frumvarpsins er að ná fram aukinni gæðatryggingu í fjárfestingum ríkisins ásamt því að tryggja samræmda málsmeðferð við ólíkar tegundir fjárfestinga. Mars. 25. Frumvarp til laga um samevrópska séreignarafurð (PEPP). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 1238/2019 frá 20. júní 2019 um samevrópska einstaklingsbundna lífeyrisvöru (e. Pan- European Personal Pension Product, PEPP) í íslenskan rétt. Um er að ræða nýja valfrjálsa tegund séreignarafurðar sem neytendum innan EES mun standa til boða og er ætlað að auka val neytenda við sparnað til starfsloka. Höfuðstólinn verður mögulegt að flytja á milli EES-ríkjanna. Afurðinni er ekki ætlað að koma í stað þeirra lífeyriskerfa sem fyrir eru. Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til afleiddar breytingar á öðrum lögum svo sem lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, hvað valfrjálsan lífeyrissparnað varðar og fjárfestingarleiðir vegna hans. Mars. 26. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018 (afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2099 frá 23. október 2019 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (EMIR 2.2) verði veitt lagagildi hér á landi með breytingu á lögum nr. 15/2018 um sama efni. Frumvarpið felur í sér breytingar á eftirliti með miðlægum mótaðilum en engir slíkir eru starfandi hérlendis. Mars. 27. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (BRRD II). Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/879 frá 20. maí 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2014/59/ESB að því er varðar tapþol og endurfjármögnunargetu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og tilskipun (EB) 98/26/EB. Frumvarpið kveður á um heildarendurskoðun á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja en veigamestu breytingarnar varða IV. kafla laganna sem fjallar um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar. Mars. 28. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (stafræn viðskipti yfir landamæri). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í tengslum við skattlagningu tekna vegna stafrænna viðskipta yfir landamæri. Mars. 29. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (eftirlitsheimildir, uppgjörstímabil o.fl.). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt með það að markmiði að styrkja eftirlitsheimildir Skattsins og sporna þannig gegn skattundanskotum og misnotkun á virðisaukaskattskerfinu. Þá eru einnig lagðar til breytingar á uppgjörstímabilum virðisaukaskatts. Mars. 30. Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2024- 2028. Samkvæmt 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal ráðherra leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Fjármálaáætlunin skal byggð á fjármálastefnu skv. 4. gr. og skilyrðum hennar skv. 7. gr.laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
Heilbrigðisráðherra
3 af 9 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (bótaréttur vegna bólusetningar við apabólu)
Áætlað: september211. mál· Samþykkt· lagt fram 24. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að bætt verði bráðabirgðaákvæði við lögin þess efnis að gildissvið þeirra verði rýmkað með það að markmiði að treysta skaðabótaréttarlega stöðu þeirra sem kunna að verða fyrir líkamstjóni við eða í kjölfar bólusetningar hér á landi á árunum 2022- 2023 gegn apabólu þegar notast er við bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (bótaréttur vegna bólusetningar við apabólu).
Innviðaráðherra
8 af 19 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (skráningarskylda húsaleigusamninga og hækkun leigufjárhæðar)
Áætlað: september· Endurflutt272. mál· Samþykkt· lagt fram 7. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið hefur það annars vegar að markmiði að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með skráningarskyldu leigusamninga og breytinga á leigufjárhæð í opinberan gagnagrunn (húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar) og hins vegar að bæta brunavarnir í íbúðarhúsnæði með úttekt og skráningu niðurstöðu ástandsskoðunar í leigusamning.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (skráningarskylda húsaleigusamninga og hækkun leigufjárhæðar).
- SamþykktFrumvarp
Breyting u á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða)
Áætlað: september· Endurflutt144. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að tryggja afhendingaröryggi raforku með því að einfalda skipulags- og leyfisveitingarferli framkvæmda í flutningskerfi raforku. Með breytingunum er heimilt að vinna sérstakt raflínuskipulag sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og markar stefnu fyrir tiltekna framkvæmd í flutningskerfi raforku. Enn fremur er ráðherra heimilt að skipa raflínunefnd til að annast gerð raflínuskipulags, veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda á flutningskerfi raforku og hafa eftirlit með framkvæmd raflínuskipulagsins og þeim framkvæmdum sem nefndirnar veita leyfi fyrir.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breyting u á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða).
- SamþykktFrumvarp
Leigubifreiðaakstur
Áætlað: september· Endurflutt167. mál· Samþykkt· lagt fram 21. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér nýja heildarlöggjöf um leigubifreiðaakstur hér á landi. Markmið frumvarpsins er að tryggja örugga og góða þjónustu og auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur.
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr
Áætlað: september· EES-innleiðing279. mál· Samþykkt· lagt fram 7. okt. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
28/2018 (EES-reglur). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildissviði laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017, svo tryggja megi lagastoð til innleiðingar EES -gerðar er varðar flutninga á vegum. Gerðin sem um ræðir er reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. Einnig er stefnt að því að gera breytingar á tilteknum ákvæðum laganna er varða leyfisveitingar til einföldunar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr.
- SamþykktFrumvarp
Breyting á hafnalögum, nr. 61/2003 (EES-reglur)
Áætlað: október· Endurflutt· EES-innleiðing712. mál· Samþykkt· lagt fram 8. feb. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið er liður í að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/352 frá 15. febrúar 2017 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir. Frumvarpið er að hluta til efnislega samhljóða frumvarpi sem ráðherra mælti fyrir á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (EES-reglur).
- SamþykktFrumvarp
Stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála
Áætlað: nóvember735. mál· Samþykkt· lagt fram 20. feb. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að taka næsta skref í samhæfingu áætlana á málefnasviði innviðaráðuneytisins en fyrsta skrefið var tekið með lögum nr. 53/2018. Í innviðaráðuneytinu eru fimm meginsvið sem leggja grunn að innviðum og þjónustu í samfélaginu: sveitarstjórnarmál, byggðamál, samgöngumál, skipulagsmál og húsnæðismál. Þessi svið mynda eina heild þar sem starfsemi eins hefur mikil áhrif á hin. Með því að samræma og samhæfa stefnur og áætlanir á þessum sviðum gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumörkunarinnar, enda verði tekið mið af tengdum málefnum og horft lengra en til sérstakra verkefna einstakra málaflokka.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Matvælaráðherra
6 af 12 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum vegna gjaldskrár Matvælastofnunar (gjaldskrárheimildir)
Áætlað: október540. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að samræma gjaldskrárheimildir Matvælastofnunar á milli lagabálka og jafnframt að setja inn gjaldskrárheimildir þar sem þær skortir en Matvælastofnun sinnir opinberu eftirliti. Að auki er mælt fyrir um heimildarákvæði í lög um fóður, áburð og sáðvöru sem varðar lyfjablandað fóður, þar sem ábyrgð á lyfjablönduðu fóðri er færð frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna gjaldskrár Matvælastofnunar (gjaldskrárheimildir).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (aflvísar o.fl.)
Áætlað: nóvember538. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands er mælt fyrir um skilyrði sem varða heimildir smærri togskipa til veiða innan 12 mílna beltis fiskveiðilandhelginnar, m.a. um hámarkslengd og vélarafl. Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á þessum reglum hvað varðar svonefnda aflvísa í því skyni að greiða fyrir orkuskiptum og þá sérstaklega notkun tvíorkuskipa í fiskveiðum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (aflvísar o.fl.).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (rafvæðing smábáta)
Áætlað: nóvember539. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að með bráðabirgðaákvæði verði þeim fiskiskipum heimilt á fiskveiðiárinu 2022/2023 sem knúin eru rafmagni sem aðalaflgjafaað landa 750 kg í þorskígildum talið af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð á strandveiðum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (rafvæðing smábáta).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu)
Áætlað: nóvember596. mál· Samþykkt· lagt fram 16. jan. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að breytt verði ákvæðum laga sem varða tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks (gullkarfa og grálúðu) jafnframt því að sett verði hámarksviðmiðun um flutninga vannýtts aflamarks til veiða á deilistofnum, milli ára.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (svæðaskipting strandveiða)
Áætlað: febrúar537. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði að nýju upp svæðis- og kvótaskipting strandveiða sem miði við fjögur svæði með hliðsjón af veiðanleika botnfisks á hverju svæði um sig.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (svæðaskipting strandveiða).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (veiðistjórn grásleppu)
Áætlað: febrúar490. mál· Samþykkt· lagt fram 23. nóv. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lögð til markvissari veiðistjórnun á grásleppu. Horft er til þeirra sjónarmiða sem komið hafa fram um veiðistjórn grásleppu undanfarin ár, þ.m.t. um skiptingu milli svæða og aðgerðir sem sporni gegn samþjöppun.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (veiðistjórn grásleppu).
Menningar- og viðskiptaráðherra
6 af 21 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breytinguá lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga (hluthafafundir o.fl.)
Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing227. mál· Samþykkt· lagt fram 27. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða skráð félög og lúta að deili á hluthöfum, hlutverki milliliða í sendingu upplýsinga frá félagi til hluthafa o.fl. á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á t ilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytinguá lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga (hluthafafundir o.fl.).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019 (skipti eða slit tiltekinna skráningarskyldra aðila)
Áætlað: september· Endurflutt226. mál· Samþykkt· lagt fram 27. sep. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði tvö ný ákvæði til bráðabirgða við lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, er varða slit skráningarskyldra aðila sem sinna ekki skráningarskyldu samkvæmt lögunum. Frumvarpið er liður í að ljúka aðgerðum á sviði varna gegn peningaþvætti á fjármögnun hryðjuverka.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019 (skipti eða slit tiltekinna skráningarskyldra aðila).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (styrkir til einkarekinna fjölmiðla)
Áætlað: október543. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið framlengir styrki til einkarekinna fjölmiðla og lagðar eru til breytingar á gildandi fyrirkomulagi sem er ætlað að auka fyrirsjáanleika styrkjanna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (styrkir til einkarekinna fjölmiðla).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist,nr. 110/2016 (framlenging á gildistíma)
Áætlað: október442. mál· Samþykkt· lagt fram 15. nóv. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér framlengingu á gildistíma laganna auk endurskoðunar á ýmsum þáttum í ljósi reynslu undanfarinna ára af beitingu laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist,nr. 110/2016 (framlenging á gildistíma).
- SamþykktFrumvarp
Tónlistarmiðstöð
Áætlað: október542. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um stuðningsumhverfi tónlistargeirans sem felur í sér stofnun Tónlistarmiðstöðvar og breytts tónlistarsjóðs. Frumvarpið felur í sér brottfall sérlaga um Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónlistarsjóð sem fjallað er um í sérstökum köflum laganna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um tónlistarmiðstöð.
Mennta- og barnamálaráðherra
1 af 7 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, nr. 45/2019 (hlutverk og meðferð upplýsinga)
Áætlað: október· Endurflutt597. mál· Samþykkt· lagt fram 16. jan. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að aðlaga ákvæði laganna að þeim breytingum sem orðið hafa á starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs frá því hann tók til starfa. Einnig eru lagðar til breytingar sem tengjast heimildum til vinnslu og miðlunar persónuupplýsinga, þ.m.t. viðkvæmra persónuupplýsinga sem og aðgangi að gögnum. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að samræma ákvæði laganna við ákvæði íþróttalaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, nr. 45/2019 (hlutverk og meðferð upplýsinga).
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
3 af 17 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs)
Áætlað: október· EES-innleiðing390. mál· Samþykkt· lagt fram 26. okt. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VI. kafla A laganna sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu sem eru nauðsynlegar til að samræma orðalag laganna við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2009/31/EB frá 23. apríl 2009 um geymslu koltvísýrings í jörðu ogum breytingu á tilskipun ráðsins 85/337/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB, 2001/80/EB, 2004/35/EB, 2006/12/EB, 2008/1/EB og reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og til að tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunarinnar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (aldursfriðun o.fl.)
Áætlað: október429. mál· Samþykkt· lagt fram 14. nóv. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um menningarminjar sem fjalla um 100 ára regluna, þ.e. friðun fornminja sem eru 100 ára og eldri.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (aldursfriðun o.fl.).
- SamþykktFrumvarp
Frumvarptil laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (samningar um raforkukaup)
Áætlað: desember536. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði á fót kerfi sem felur í sér að sölufyrirtæki raforku sjái um að koma á samningum við notendur um raforkukaup. T il skoðunar er að setja notendur í þrautavaraviðskipti þegar nauðsynlegt er vegna tæknilegra eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Heiti á skránni: Frumvarptil laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (samningar um raforkukaup).
Utanríkisráðherra
5 af 11 komin fram
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr
Áætlað: febrúar974. mál· Samþykkt· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
93/2008 (frystingfjármuna, skráning á lista yfir þvingunaraðgerðir o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að við lögin verði bætt ákvæðum þannig að lögbæru stjórnvaldi verði í ákveðnum tilfellum heimilt að leita eftir sérfræðimati á þjónustu eða hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu þegar sótt er um útflutningsleyfi og gjaldtökuheimild vegna slíks mats. Jafnframt er lagt til að bætt verði inn reglugerðarheimild þannig að unnt verði að setja reglugerð um framkvæmd laganna með hliðsjón af framkvæmd þeirra undanfarin ár. Samhliða eru lögin endurskoðuð með hliðsjón af nýrri reglugerð Evrópusambandsins sem kemur á fót stjórnkerfi Evrópusambandsins um eftirlit með útflutningi, miðlun, tæknilegri aðstoð og flutningi hluta sem hafa tvíþætt notagildi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr.
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Tillaga til til þingsályktunar um staðfestingu rammasamnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar
Áætlað: september528. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með rammasamningnum eru lagðar til þær breytingar á núverandi samningsframkvæmd að horfið verði frá gerð árlegs bréfskiptasamnings Íslands og Færeyja um fiskveiðar í lögsögu ríkjanna, sem lagður hefur verið fyrir Alþingi. Þess í stað verði heimilt að semja um þessi fiskveiðiréttindi, sem og önnur skyld atriði, á samráðsfundum ríkjanna sem haldnir verði á grundvelli heimildar í rammasamningnum.
Heiti á skránni: Tillaga til til þingsályktunar um staðfestingu rammasamnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar.
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2022 um br eytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn, ákvörðunar sameiginlegu EESnefndarinnar nr. 138/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EESsamninginn og ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin
Áætlað: október434. mál· Samþykkt· lagt fram 15. nóv. 2022· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
1) Ákvörðun nr. 151/2022: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 frá 27. nóvember 2019 um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/852 frá 18. júní 2020 um að koma á fót ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/2088. 2) Ákvörðun nr. 138/2022: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255 frá 21. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 231/2013 að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþátta sem rekstraraðilar sérhæfðra sjóða eiga að taka tillit til; framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1256 frá 21. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar samþættingu áhættu tengda sjálfbærni í stjórnkerfum vátrygginga- og endurtryggingafélaga; framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1257 frá 21. apríl 2021 um breytingar á framseldum reglugerðum (ESB) 2017/2358 og (ESB) 2017/2359 að því er varðar samþættingu sjálfbærniþátta, sjálfbærniáhættu og óska um sjálfbærni við kröfur um afurðaeftirlit og - stýringu fyrir vátryggingafélög og dreifingaraðila vátrygginga og við reglur um viðskiptahætti og fjárfestingarráðgjöf fyrir vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir og framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1270 frá 21. apríl 2021 um breytingu á tilskipun 2010/43/ESB að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþætti sem taka á tillit til í tengslum við verðbréfasjóði (UCITS).
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2022 um br eytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn, ákvörðunar sameiginlegu EESnefndarinnar nr. 138/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EESsamninginn og ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin.
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021, nr. 54/2021, nr. 385/2021 og nr. 146/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn
Áætlað: október280. mál· Samþykkt· lagt fram 7. okt. 2022Hvað stendur í þingmálaskránni?
Ákvörðun nr. 53/2021: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB með tilliti til flutnings sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 frá 20. júní 2019 um að um að greiða fyrir flutningi sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 345/2013, (ESB) nr. 346/2013 og (ESB) nr. 1286/2014. 2) Ákvörðun nr. 54/ 2021: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. dese mber 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri (endurútgefin). 3) Ákvörðun nr. 385/2021: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 frá 25.nóvember 2015 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og um endurnotkun og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 og framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/463 frá 30. janúar 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 að því er varðar skrána yfir aðila sem njóta undanþágu. 4) Ákvörðun nr. 146/2022: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/27 frá 27. september 2021 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 236/2012 að því er varðar breytingar á viðkomandi viðmiðunarmörkum fyrir tilkynninguna um mikilvægar hreinar skortstöður í hlutabréfum.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021, nr. 54/2021, nr. 385/2021 og nr. 146/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
- SamþykktÞingsályktunartillaga
Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EESsamninginn
Áætlað: febrúar738. mál· Samþykkt· lagt fram 20. feb. 2023Hvað stendur í þingmálaskránni?
1) Ákvörðun nr. 69/2021: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd. 2) Ákvörðun nr. 70/2021: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EESsamninginn.
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
- Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)