Beint í efni
Alviti
154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 154. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

200

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 154. þings

Af málum sem komu fram voru 27 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 80 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

5 af 5 komin fram

  • Frumvarp

    Mannréttindastofnun Íslands

    Samþykkt
    Áætlað: september
    239. mál· Samþykkt· lagt fram 26. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér að koma á laggirnar sjálfstæðri mannréttindastofnun sem uppfyllir Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna. Stofnunin mun starfa á vegum Alþingis og meginhlutverk hennar verður að efla og vernda mannréttindi á Íslandi. Mannréttindastofnun Íslands skal vinna að því að opinberir aðilar og einkaaðilar virði mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins, m.a. með því að vera þeim til ráðgjafar um eflingu og vernd mannréttinda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Seðlabanka Íslands o.fl. (smágreiðslumiðlun)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    662. mál· Samþykkt· lagt fram 5. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður Seðlabanka Íslands veitt heimild til að koma á fót grunninnvið fyrir innlendar smágreiðslur í þágu þjóðaröryggis og hagkvæmni. Gert er ráð fyrir að þessi lausn feli í sér að greiðslur berist milli tveggja innlánsreikninga. Þannig verði hægt að stunda dagleg viðskipti í verslunum, til dæmis, án þess að greiðslur fari fram fyrir milligöngu erlendra aðila eins og nú er.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands o.fl. (smágreiðslumiðlun).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998 (ýmsar breytingar)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    737. mál· Samþykkt· lagt fram 22. feb. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarp til laga um endurskoðun á lögum nr. 58/1998 og tengdum lögum þar sem eftirfarandi atriði verði sérstaklega tekin til skoðunar: Orkunýting í þjóðlendum, almenningar í vötnum, eignarréttur að auðlindum í jörðu, eignarréttindi tengd kolefniseiningum, starfslok óbyggðanefndar o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998 (ýmsar breytingar).

Dómsmálaráðherra

9 af 20 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á vopnalögum, nr. 16/1998 (öflun og varsla skotvopna)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    349. mál· Samþykkt· lagt fram 16. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á vopnalögum til að innleiða reglugerð (ESB) 2017/853 um öflun og vörslu skotvopna þar sem mælt er fyrir um skýrar reglur til að auka rekjanleika skotvopna, reglur um tiltekinn varðveislutíma upplýsinga í skotvopnaskrá og áskilnað um sérstakar ráðstafanir þegar skotvopn eru gerð óvirk. Með frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á lögunum um innflutning á svokölluðum safnvopnum auk frekari breytinga á ákvæðum laganna um skráningu, eftirlit og vörslu skotvopna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á vopnalögum, nr. 16/1998 (öflun og varsla skotvopna).

  • Frumvarp

    Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996 (aðgerðir til að koma í veg fyrir brot)

    Samþykkt
    Áætlað: október· Endurflutt
    707. mál· Samþykkt· lagt fram 14. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að skýra heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar afbrot eða athafnir sem raskað geta öryggi borgaranna o g ríkisins, afbrot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi og afbrot sem framin eru á netinu. Jafnframt er í frumvarpinu kveðið á um meðferð vopna hjá lögreglu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (aðgerðir til að koma í veg fyrir brot).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991 (stafræn miðlun gagna og stafrænar birtingar)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    691. mál· Samþykkt· lagt fram 9. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að ryðja úr vegi hindrunum í gildandi réttarfarslöggjöf fyrir því að í auknum mæli megi mið la gögnum með stafrænum hætti eða birta innan réttarvö rslukerfisins. Það verði gert með því að gera réttarfarslöggjöfina hlutlausa um afhendingarmáta gagna, heimila notkun rafrænna undirskrifta o.s.frv., auk þess að heimila stafræna birtingu ákæra og anna rra skjala sem nú krefjast tiltekins birtingarmáta. Þá er jafnframt lagt til að heimilað verði að senda kröfulýsingu í þrotabú til skiptastjóra á stafrænan hátt sem og að heimildir til þinghalda á fjarfundi verði gerðar varanlegar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991 (stafræn miðlun gagna og stafrænar birtingar).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    722. mál· Samþykkt· lagt fram 20. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að samræma löggjöf og framkvæmd þessara mála við umgjörð annarra Evrópuríkja, einkum Norðurlandanna, og tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns og auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, nr. 108/1999, og lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988 (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    903. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið miðar að því að bregðast við áhættumati ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka, sem tengist aðild Íslands að FATF (Financial Action Task Force). Í áhættumatinu er m.a. bent á að áhætta geti tengst skráðum trú- og lífsskoðunarfélögum, sjóðum og sjálfseignarstofnunum og eru því lagðar til breytingar á lögunum vegna þess.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, nr. 108/1999, og lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988 (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnu n hryðjuve rka, nr. 140/2018 (ýmsar breytingar)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    927. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið kveður á um breytingar á 1) ákvæðum laganna um áhættumat vegna tilmæla FATF um fjármögnun gereyðingarvopna, 2) ákvæðum er varða ábyrgðarmenn innan tilkynningarskyldra aðila, 3) orðalagsbreytingar á ýmsum ákv æðum vegna tilvísunar til brottfallinna laga um kauphallir og á viðurlagaákvæðum þar sem skortir á ákveðin atriði, 4) ákvæðum um raunverulega eigendur og 5) úrræði til handa skrifstofu fjármálagreininga lögreglu ef tilkynningarskyldir aðilar skir rast við a ð afhenda gögn.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnu n hryðjuve rka, nr. 140/2018 (ýmsar breytingar).

Félags- og vinnumarkaðsráðherra

4 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010 (skilvirkari málsmeðferð og breytingar á skilyrðum)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    27. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felast breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga sem meðal annars er ætlað að skýra málsmeðferð á grundvelli laganna og gera hana skilvirkari.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010 (skilvirkari málsmeðferð og breytingar á skilyrðum).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um þjónustu við fatl að fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimildir)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    772. mál· Samþykkt· lagt fram 6. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felast breytingar á lögum nr. 38/2018 þar sem tekið er mið af tillögum úr skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laganna frá árinu 2022. Lagt er til að bæta við lögin reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna, meðal annars hvað varðar fæðisfé fyrir sta rfsfólk sem matast með notendum, og hvernig útfæra skuli aðstoðarmannakort fyrir fatlað fólk sem veiti aðstoðarmanni viðkomandi ókeypis aðgang hjá hinu opinbera, svo sem á söfn, í sund o.s.f rv.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatl að fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimildir).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um réttindagæsl u fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (ýmsar breytingar)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    922. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að bæta úr ýmsum atriðum laganna í ljósi fenginnar reynslu af framkvæmd þeirra, svo sem að skýra ákvæði um persónulega tal smenn.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindagæsl u fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (ýmsar breytingar).

  • Þingsályktunartillaga

    Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    584. mál· Samþykkt· lagt fram 15. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ályktunin felur í sér stefnu og aðgerðaáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til ársins 2030. Verkefni sem áður voru skilgreind í framkvæmdaáætl un í málefnum fatlaðs fólks verða felld inn í landsáætlun, auk aðgerða sem unnar hafa verið af vinnuhópum undir verkefnastjórn um gerð landsáætlunar og innleiðingu samningsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks.

Fjármála- og efnahagsráðherra

15 af 31 komin fram

  • Frumvarp

    Fjárlaga fyrir árið 2024

    Samþykkt
    Áætlað: september
    1. mál· Samþykkt· lagt fram 12. sep. 2023
  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024

    Samþykkt
    Áætlað: september
    2. mál· Samþykkt· lagt fram 12. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar sem lagðar eru til grundvallar fjárlagafrumvarpi ársins 2024 sem lagt er fram á sama tíma. Frumvarpið verður samið að höfðu samráði við önnur ráðuneyti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024.

  • Frumvarp

    Staðfesting ríkisreiknings 2022

    Samþykkt
    Áætlað: september
    399. mál· Samþykkt· lagt fram 23. okt. 2023· seinna en áætlað
  • Frumvarp

    Veggjöld vegna notkunar bifreiða (gjaldtaka hreinorku- og tengiltvinnbifreiða)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    507. mál· Samþykkt· lagt fram 17. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyrirkomulag gjaldtöku í formi kílómetragjalds vegna notkunar hreinorkubifreiða, þ.m.t. rafmagns- og vetnisbifreiða, og tengiltvinnbifreiða á vegakerfinu. Gert er ráð fyrir að nýtt kerfi taki gildi þann 1. janúar 2024.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um veggjöld vegna notkunar bifreiða (gjaldtaka hreinorku- og tengiltvinnbifreiða).

  • Frumvarp

    Fjáraukalaga fyrir árið 2023

    Samþykkt
    Áætlað: október
    481. mál· Samþykkt· lagt fram 13. nóv. 2023· seinna en áætlað
  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld (gistináttaskattur, barnabætur o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    468. mál· Samþykkt· lagt fram 7. nóv. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Um er að ræða breytingar sem felast m.a. í útvíkkun á gistináttaskatti þannig að hann nái jafnframt til gistinátta í skemmtiferðaskipum sem leggjast að höfn hér á landi. Þá er um að ræða ákvæði sem snúa m.a. að samtímabarnabótum, áfengisgjaldi, heimildum tollgæslu, upplýsingaheimildum skattyfirvalda, breytingum á tollalögum vegna kolefnisjöfnunar yfir landamæri (CBAM), stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki, reiknuðu endurgjaldi o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (gistináttaskattur, barnabætur o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (heimilisfesti o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    918. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á reglum sem snúa að skattalegu heimilisfesti manna í tilefni af nýlegri dómaframkvæmd.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (heimilisfesti o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016 (markviss innkaup, stofnanaumgjörð)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    919. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Endurskoðun tiltekinna ákvæða í núgildandi lögum með það að markmiði að gera innkaup á vegum hins opinbera markvissari í framkvæmd og tryggja samræmi við EE S-rétt. Þá þarf einnig að endurskoða ákvæði laganna um stofnanaumgjörð Ríkiskaupa vegna mögulegrar sameiningar þeirrar stofnunar við FSRE.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016 (markviss innkaup, stofnanaumgjörð).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir og viðbótarlífeyrissparnaður)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    880. mál· Samþykkt· lagt fram 22. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu verður lagt til að valfrelsi einstaklinga í fjárfestingarkostum viðbótarlífeyrissparnaðar verði aukið. Málið á uppruna sinn í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarin nar – græns framboðs.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir og viðbótarlífeyrissparnaður).

  • Frumvarp

    Brottfall ýmissa laga á fjármálamarkaði (úrelt lög)

    Samþykkt
    Áætlað: desember
    913. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður lagt til að felld verði brott ýmis lög á fjármálamarkaði sem eru talin úrelt eða hafa lokið hlutverki sínu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um brottfall ýmissa laga á fjármálamarkaði (úrelt lög).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (lagfæringar)

    Samþykkt
    Áætlað: desember
    915. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til min ni háttar lagfæringar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði, meðal annars til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða sem hafa verið tekna r upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (lagfæringar).

  • Frumvarp

    Meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    920. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum með breyttu fyrirkomulagi þar sem aukin áhersla verður lögð á gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Félagasýslan kemur í stað Bankasýslu ríkisins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum.

  • Frumvarp

    Innviði á markaði fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DLT)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar· EES-innleiðing
    914. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2022/858, um tilraunaregluverk fyrir innviði á markaði fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni, og breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020, og lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021. Með reglugerðinni er komið á skipulagi til reynslu fyrir innviði sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DLT), það er markaðstorg fjármálagerninga, uppgjörskerfi og kerfi sem gegna hlutverki bæði viðskipta- og uppgjörskerfa. Þá er hugtakið DLT-fjármálagerningur skilgreint í henni, það er fjármálagerningur sem gefinn er út, skráður, fluttur og varðveittur á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni. Kröfur í tilskipunum og reglugerðum sem þegar eru í gildi (MiFID II, MiFIR og CSDR) eru lagaðar að sérstöku eðli áskorana sem tengjast framþróun tækni. Markmið reglugerðarinnar er meðal annars að fylla upp í tómarúm í gildandi samevrópsku regluverki. Um tímabundið reynslutímabil er að ræða samkvæmt reglugerðinni, að hámarki sex ár.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um innviði á markaði fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DLT).

  • Þingsályktunartillaga

    Fjármálaáætlun fyrir árin 2025 -2029

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    1035. mál· Samþykkt· lagt fram 16. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Samkvæmt 5. gr. laga um opinber fjá rmál, nr. 123/2015, skal ráðherra leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Fjármálaáætlunin skal byggð á fjármálastefnu skv. 4. gr. og skilyrðum hennar skv. 7. gr. laganna.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 -2029.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

7 af 9 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjarskipti, lögum um íslensk landshöfuðlén og lögum um Fjarskiptastofu (fjarskiptanet, skráning, eftirlit o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    205. mál· Samþykkt· lagt fram 19. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu er lögð til breyting á fjarskiptalögum með því að kveðið verði á um opinn aðgang að fjarskiptanetum sem notið hafa ríkisaðstoðar og um verðlagningu fyrir aðgang að slíkum netum. Þá er lögð til breyting á lögum um íslensk landshöfuðlén, með því að lögfesta lágmarksskráningarupplýsingar um ábyrgðaraðila tiltekinna léna, sem þörf er á í tengslum við rannsókn mála hjá lögreglu og öðrum stjórnvöldum. Að síðustu er lögð til breyting á lögum um Fjarskiptastofu með því að lögfesta sérstaka þagnarskyldu Fjarskiptastofu og netöryggis sveitar um viðkvæm öryggisgögn með sama hætti og gildir samkvæmt fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um íslensk landshöfuðlén og lögum um Fjarskiptastofu (fjarskiptanet, skráning, eftirlit o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (mjög verðmæt gagnasöfn)

    Samþykkt
    Áætlað: október· EES-innleiðing
    35. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Stafræn þróun hefur verið afar hröð undanfarin ár og hefur hún opnað á nýjar leiðir til aðgangs að upplýsingum og til hagnýtingar upplýsinga. Með frumvarpinu er tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1024, um opin gögn og endurno t upplýsinga frá hinu opinbera, innleidd.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (mjög verðmæt gagnasöfn).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um háskóla, nr. 63/2006 (ECTS -einingar, örnám og styttri námsleiðir)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    24. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felst breyting sem heimilar háskólum að meta örnám eða styttri námsl eiðir til ECTSeininga ásamt því að viðmið um lágmarkseiningafjölda til diplómaprófs hækka úr 30 ECTSeiningum í 60 einingar, til að uppfylla skuldbindingar Íslands á grundve lli Bologna-samstarfsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um háskóla, nr. 63/2006 (ECTS -einingar, örnám og styttri námsleiðir).

  • Frumvarp

    Kríu, nýsköpunarsjóð (sam eining sjóða)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    911. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að sameina krafta nýsköpunarsjóða á vegum ráðuneytisins þannig að úr verði nýr og öflugur fjárfestingar- og styrktarsjóður sem h afi skýra áherslu á stuðning við sprotafyrirtæki á fyrstu stigum sem og áherslu á og markmið um að styðja nýskapandi lausnir við samfélagslegum áskorunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Kríu, nýsköpunarsjóð (sam eining sjóða).

  • Frumvarp

    Ramma um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga á Evrópska efnahagssvæðinu (frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar· EES-innleiðing
    912. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1807 um ramma um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga í Evrópusambandinu innleidd. Frumvarpið kveður á um frjálst flæði gagna, annarra en persónuupplýsinga, innan Evrópska efnahagssvæðisins, með því að takmarka heimildir til þess að krefjast staðbindingar gagna, þ.e. þegar krafist er að gögn séu staðsett innan ákveðins landsvæðis. Þá er tryggt aðgengi lögmætra yfirvalda að gögnum sem geymd eru innan annars aðildarríkis.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um ramma um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga á Evrópska efnahagssvæðinu (frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 153/2020 (endurskoðun)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    935. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í ákvæði til bráðabirgða VIII við lög um Menntasjóð námsmanna segir að endurskoða skuli lögin innan þriggja ára frá því að þau komu til framkvæmda og að ráðherra skuli kynna niðurstöður endurskoðunarinnar eigi síðar en á haustþingi 2023. Umrædd lög komu til framkvæmda 1. júlí 2020. Í því ljósi og í framhaldi af skýrslu ráðherra um Menntasjóðinn verður lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjóðinn með vísan til niðurstaðna skýrslunnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 153/2020 (endurskoðun).

  • Þingsályktunartillaga

    Stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    234. mál· Samþykkt· lagt fram 21. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillagan byggir á sýn háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis um að lykillinn að bættum lífsgæðum og fleiri tækifærum sé að hugvit verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Hugvitið, sem er okkar dýrmætasta en um leið vannýttasta auðlind, verði að virkja betur og þannig megi koma í veg fyrir of miklar sveiflur í hagkerfinu og einsleitni starfa. Draga eigi úr því að þekking flæði frá Íslandi og út í heim og jafnframt stuðla að því að þeir sem leiti til landsins séu í auknum mæli sérfræðingar sem skapi ný og spennandi störf. Með aðgerðum sem kynntar eru í tillögunni er ætlunin að leysa úr læðingi þá krafta sem myndast við sameiningu málaflokkanna og þær nýju hugmyndir sem verða til í suðupotti háskóla, vísinda, rannsókna, hugverka, iðnaðar, fjarskipta, upplýsingasamfélags og nýsköpunar.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi.

Heilbrigðisráðherra

12 af 13 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 (innihaldsefni, rekjanleiki, umbúðir tóbaksvara o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    226. mál· Samþykkt· lagt fram 20. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að gerð verði breyting á lögunum til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að innleiddar verði reglur tilskipunarinnar um umbúðir tóbaksvara, rekjanleika og skráningu þeirra og tilkynningar um nýjar vörur. Jafnframt verður lagt til að innleiddar verði reglur um jurtavörur til reykinga og takmarkanir á einkennandi bragði og tilteknum aukaefnum í tóbaksvörum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 (innihaldsefni, rekjanleiki, umbúðir tóbaksvara o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, og lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    225. mál· Samþykkt· lagt fram 20. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að festa í lög um heilbrigðisþjónustu ákvæði um hlutlæga refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rekstraraðila sem veita heilbrigðisþjónustu til að tryggja betur öryggi sjúklinga, styrkja öryggismenningu og skapa heilbrigðisstarfsfólki betri starfsskilyrði. Þannig væri hægt að sækja til saka stofnunina (lögaðilann) þegar margir samverkandi þættir eða röð atvika eru orsök alvarlegs atviks. Markmiðið er að fækka þeim málum sem fara til lögreglu. Með frumvarpinu eru ákvæði um rannsókn alvarlegra atvika ítarlegri. Lagt er til að réttindi sjúklinga, eða eftir atvikum aðstandenda, á upplýsingum um framgang rannsóknar verði lögfestur. Einnig eru lagðar til breytingar á ferli kvartana til embættis landlæknis, til að auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma, í þágu öryggis og gæða heilbrigðisþjónustu. Auk þess eru skyldur heilbrigðisstofnana til innra eftirlits áréttaðar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, og lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (samþykki Persónuverndar)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    905. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 13. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði en umrætt ákvæði fjallar um umfjöllun Persónuverndar á vísindarannsóknum á heilbrigðissviði. Lagt er til í frumvarpinu að ráðherra setji reglugerð um umsóknir sem skylt er að senda til umfjöllunar hjá Persónuvernd. Með þessari breytingu er unnt að undanskilja tilteknar vísindarannsóknir sem siðanefnd er skylt að senda til Persónuverndar. Það myndi almennt stytta málsmeðferðartíma siðanefnda og einfalda málsmeðferð.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (samþykki Persónuverndar).

  • Frumvarp

    Sjúklingatryggingu (heildarlög)

    Samþykkt
    Áætlað: desember
    718. mál· Samþykkt· lagt fram 19. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um sjúklingatryggingu sem fela m.a. í sér að afgreiðsla mála mun fara fram hjá Sjúkratryggingum Íslands, óháð því hvort atvik hafi orðið á heilbrigðisstofnun í eigu hins opinbera eða hjá einkaaðila. Enn fremur verður lagt til að hámarksbætur í hverju tjóni verði hækkaðar og að sjaldgæfar og alvarlegar aukaverkanir vegna bólusetninga sem heilbrigðisyfirvöld hvetja til verði bættar. Með frumvarpinu verður eytt þeirri óvissu sem uppi hefur verið um forræði Sjúkratrygginga Íslands á gagnaöflun og málsmeðferð auk þess sem málin verða ekki borin undir dómstóla fyrr en eftir að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur úrskurðað í málinu. Að öðrum kosti skal einstaklingur höfða almennt skaðabótamál.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um sjúklingatryggingu (heildarlög).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (umsýsluumboð)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    906. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til heimild til handa sérfræðilæknum til að veita þriðja aðila umsýsluumboð til aðgangs að stafrænum heilbrigðisgáttum fyrir hönd einstaklings 16 ára og eldri sem er ófær um að veita slíkt umboð sjálfur með rafrænum skilríkjum, vegna vitsmunalegra, geðrænna og/eða líkamlegra skerðinga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (umsýsluumboð).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (fjarheilbrigðisþjónusta)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    728. mál· Samþykkt· lagt fram 21. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að nýtt ákvæði verði sett í lög um heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að skýra og samræma hugtakanotkun um fjarheilbrigðisþjónustu og mismunandi þætti hennar til að stuðla að sameiginlegum skilningi á eðli, eiginleikum og nýtingarmöguleikum fjarheilbrigðisþjónustu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (fjarheilbrigðisþjónusta).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    904. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða ákvæði um eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum gerð ítarlegri. Meðal annars verður lagt til að lögfesta heimildir embættis landlæknis fyrir vinnslu viðkvæmra upplýsinga í eftirlitsmálum, tilkynningarskyldu heilbrigðisstofnana og annarra stjórnvalda á brotum heilbrigðisstarfsmanna og rýmka tímafrest embættis landlæknis í málum þegar heilbrigðisstarfsmaður er sviptur starfsleyfi eða ávísunarrétti tímabundið. Þá verði ákvæði laganna um faglegar kröfur til rekstrar heilbrigðisþjónustu gerð skýrari.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum o.fl.).

Innviðaráðherra

16 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á skipulagslögum, nr. 123/2012 (hagkvæmar íbúðir)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    183. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að tryggja framboð hagkvæms húsnæðis með því að lögfesta heimild sveitarfélaga til að skilyrða notkun lands til uppbyggingar hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði, óháð eignarhaldi lóða. Breytingin er í samræmi við aðgerðaáætlun rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum sem var undirrituð 12. júlí 2022.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2012 (hagkvæmar íbúðir).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003 (skipulag o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    180. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lögð til ákvæði um fyrirkomulag framsals verkefna frá Vegagerðinni til Landhelgisgæslu Íslands og Neyðarlínunnar ohf., tilkynningarskyldu farþegaskipa, stjórnvaldssektir o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003 (skipulag o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019 (úrbætur á póstmarkaði)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    181. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er í fyrsta lagi áformað að setja lagastoð fyrir innleiðingu framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1263 um netverslun yfir landamæri. Einnig er áformað að breyta 1. málslið 5. mgr. 27. gr. póstþjónustulaganna, nr. 98/2019, í því skyni að greiða fyrir aukinni notkun bréfakassasamstæð na auk þess sem áformað er að gera lagfæringar á texta laganna þar sem láðist að afmá orðið „Pó st- og fjarskiptastofnun“ úr lögunum að fullu þegar stjórnsýsla og eftirlit með póstmálum var færð til Byggðastofnunar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019 (úrbætur á póstmarkaði).

  • Frumvarp

    Breyting á umferðarlögum, nr. 77/2019 (EES-mál)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    400. mál· Samþykkt· lagt fram 23. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að tryggja lagastoð til innleiðingar EES-gerða sem varða koltvísýringslosun ákveðinna ökutækja, skýrslugjöf þar um, gerð og búnað ökutækja, markaðseftirlit, aksturs- og hvíldartíma ökumanna, endurmenntun atvinnubílstjóra o.fl. Frumvarpið er að hluta til efnislega samhljóða frumvarpi sem ráðherra lagði fram á 153. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (EES-mál).

  • Frumvarp

    Breyting á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda)

    Samþykkt
    Áætlað: september
    754. mál· Samþykkt· lagt fram 4. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið hefur það að markmiði að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningarskyldu leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Frumvarpinu er enn fremur ætlað að auka húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að langtímaleigu með styrkingu forgangsréttar leigjanda til áframhaldandi leigu við lok leigusamnings. Enn fremur er því ætlað að tryggja fyrirsjáanleika og sanngirni um breytingar á leigufjárhæð, jafnt á samningstíma sem og við framlengingu eða endurnýjun leigusamnings.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (breytingar á úthlutunarreglum)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    450. mál· Samþykkt· lagt fram 31. okt. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagðar verða til breytingar á úthlutunarreglum laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, sem fjalla um stuðning við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn. Breytingarnar hafa það markmið að auka vægi styrkveitinga til minni framleiðenda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (breytingar á úthlutunarreglum).

  • Frumvarp

    Breyting á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    830. mál· Samþykkt· lagt fram 18. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lögð til ákvæði um eldisgjald, heimild til rafrænnar vöktunar, afmörkun hafnarsvæða á sjó, stjórnsýslukærur o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á umferðarlögum, nr. 77/2019 (smáfarartæki o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember· Endurflutt
    923. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem ætlað er að taka mið af sérkennum smá farartækja og þeim áskorunum sem fylgt hafa aukinni notkun þeirra. Einnig eru breytingar lagðar til varðandi notkun stöðureita og lögunum til skýringar. Frumvarpið er að hlut a til efnislega samhljóða frumvarpi sem ráðherra lagði fram á 153. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (smáfarartæki o.fl.).

  • Frumvarp

    L aga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, og lögum um brunavarnir, nr. 75/2000 (öryggisskráning í húsnæði, fjöldatakmörkun lögheimilis í íbúðarhúsnæði og aðgangur að húsnæði til eftirlits)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    542. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Breytingar á grundvelli tillagna starfshóps um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu. Frumvarpið felur í sér endurskoðun á heimildum til fjöldaskráningar lögheimilis/aðseturs í íbúðarhúsnæði, tímabundna aðsetursskráningu og búsetu í atvinnuhúsnæði sem uppfyllir kröfur um öryggi. Enn fremur er lögð til rýmkun á reglum um húsnæðisstuðning í formi húsnæðisbóta sem hvata til að skrá rétta búsetu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til l aga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, og lögum um brunavarnir, nr. 75/2000 (öryggisskráning í húsnæði, fjöldatakmörkun lögheimilis í íbúðarhúsnæði og aðgangur að húsnæði til eftirlits).

  • Frumvarp

    Breyting á skipulagslögum, nr. 123/2012 (tímabundnar uppbyggingarheimildir)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    628. mál· Samþykkt· lagt fram 26. jan. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið laganna er að tímabinda uppbyggingarheimildir á grundvelli samþykkts deiliskipulags til að auka heimildir sveitarfélaga til að þrýsta á uppbyggingu lóða sem hefur verið úthlutað.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2012 (tímabundnar uppbyggingarheimildir).

  • Þingsályktunartillaga

    Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024- 2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028

    Samþykkt
    Áætlað: september
    182. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í sveitarstjórnarlögum er kveðið á um að ráðherra sveitarstjórnarmála skuli að minnsta kosti á þriggja ára fresti leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára í senn. Í áætluninni skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára á þessu sviði. Hinn 29. janúar 2020 var gildandi áætlun samþykkt fyrir árin 2019 - 2033 og aðgerðaáætlun fyrir 2019-2023.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024- 2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

  • Þingsályktunartillaga

    Húsnæðisstefnu fyrir árin 2024 -2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 -2028

    Samþykkt
    Áætlað: október
    509. mál· Samþykkt· lagt fram 20. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu er lögð fram í samræmi við ákvæði laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála. Með henni er sett fram opinber stefna í húsnæ ðismálum til fimmtán ára, ásamt fimm ára aðgerðaáætlun.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024 -2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 -2028.

  • Þingsályktunartillaga

    Landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    535. mál· Samþykkt· lagt fram 24. nóv. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillaga til þingsályktunar um skipulagsstefnu er lögð fram á grundvelli skipulagslaga. Í henni er mótuð opinber stefna í skipulagsmálum, einkum þegar kemur að landsskipulagi. Stefnumótunin miðar við fimmtán ár og enn fremur er lögð fram aðgerðaáætlun til fimm ára.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Matvælaráðherra

5 af 13 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    505. mál· Samþykkt· lagt fram 14. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem heimila fyrirtækjum í meirihlutaeigu framleiðenda að eiga með sér samstarf um afmarkaða þætti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (aukaafurðir)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    483. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar vegna reglna um aukaafurðir dýra.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (aukaafurðir).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    467. mál· Samþykkt· lagt fram 7. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið mælir fyrir breytingu á 13. gr. laga nr. 79/1997 þar sem ráðherra verði heimilt að veita aðilum skilyrt, takmörkuð og tímabundin leyfi til veiða til að prófa nýjan vinnslu- og veiðarfærabúnað í skipum. Heimild þessi er háð þeim skilyrðum að aflanum sé skilað til viðurkennds uppboðsmarkaðs á Íslandi fyrir sjávarafurðir og andvirði hans renni til sjóðs, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum. Þá verði heimild til að taka sérstakt gjald fyrir afla, sem rennur í ríkissjóð. Slíkar tilraunir eða rannsóknir skulu að jafnaði fara fram undir eftirliti Hafrannsóknastofnunar, Landhelgisgæslunnar eða Fiskistofu. Verði því ekki viðkomið að hafa sérstakan eftirlitsmann um borð í skipi því er heimild fær samkvæmt þessari grein skal heimildin veitt með því skilyrði að Hafrannsóknastofnun fái nákvæmar upplýsingar um niðurstöður þessara tilrauna eða rannsókna. Heimilt er að ákveða að leyfishafi skuli greiða allan kostnað sem leiðir af veru eftirlitsmanns um borð í skipi samkvæmt þessari grein. Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins og gjaldskrá.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998 (eftirlit)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    847. mál· Samþykkt· lagt fram 19. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar til að styrkja samtímaeftirlit stofnunarinnar, einkum með að geta óskað eftir upplýsingum frá Skattinum um útflutningsverð afurða. Þannig getur stofnunin verið fljótari að úrskurða í málum, viðhaft áhættumiðað eftirlit og byggt ákvar ðanir á samtímaupplýsingum. Verðlagsstofa mun gera tillögur um breytingar á lögunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998 (eftirlit).

Menningar- og viðskiptaráðherra

12 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hljóð- og myndmiðlunarþjónusta)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    32. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsin s og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á tilskipun 2010/13/ESB um samræ mingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hljóð- og myndmiðlunarþjónusta).

  • Frumvarp

    Breyting á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (skilyrtir styrkir til sjónvarpsþáttagerða)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    486. mál· Samþykkt· lagt fram 13. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið byggist að meginhluta á kvikmyndastefnu til ársins 2030 sem var kynnt 6. október 2020 á vef Stjórnarráðsins. Þar er kallað eftir breyttu fyrirkomulagi í sjóðakerfi kvikmyndagerðar til að koma til móts við nýja tíma sem einkennast af hröðu þróunar- og fjármögnunarferli verkefna. Með frumvarpinu er einnig skerpt á fáum atriðum er varða Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Meginefni frumvarpsins er að kveða skýrt á um heimild Kvikmyndasjóðs til að veita skilyrta styrki til sjónvarpsþáttagerða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (skilyrtir styrkir til sjónvarpsþáttagerða).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um endurskoðendur og lögum um ársreikninga (upplýsingar um hluthafa, siðareglur endurskoðenda, innleiðing, o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    184. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í samræmi við ábendingar og athugasemdir haghafa og innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/56/ESB um breytingu á tilskipun 2006/43/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og lögum um ársreikninga (upplýsingar um hluthafa, siðareglur endurskoðenda, innleiðing, o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003 (innleiðing)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    627. mál· Samþykkt· lagt fram 30. jan. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á ákvæðum tilskipana og re glugerða (ESB) um samtengingakerfi skráa EES-ríkjanna. Annars vegar er um að ræða upplýsingar í fyrirtækjaskrám EES-ríkjanna (BRIS – Business Registers Interconnection System) og hins vegar upplýsingar í skrám um raunverulega eigendur í EES-ríkjunum (BORIS – Beneficial Ownership Registers Interconnection System).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003 (innleiðing).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    938. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagt er til að sett verði gjaldskrárheimild fyrir vissa þjónustu um skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga sem er hluti af verkefnum Þjóðskjalasafns gagnvart sveitarfélögum s.s. ráðgjöf um skjalahald þeirra og eftirlit með því og miðlun gagna sveitarfélaga. Einnig er lagt til að veitt verði heimild til að taka gjald vegna kostnaðar sem fellur til vegna vinnu sérfræðinga Þjóðskjalasafns við yfirfærslu safnkosts og verkefna héraðsskjalasafns sem ákveðið hefur verið að leggja niður eða hefur fallið í vanhirðu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    690. mál· Samþykkt· lagt fram 9. feb. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    85/2007 (heimagisting). Með frumvarpinu er stefnt að því að færa sveitarfélögum vald til að ákveða nánari útfærslu heimildar til heimagistingar innan marka 90 daga heimildarinnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009 (endurskoðun)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    937. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér þrepaskipta fjölgun mánaðarlegra starfslauna sem koma til úthlutunar, fjölgun sjóða sem listamannalaun eru veitt úr, breytingar á fyrirkomulagi heiðu rslauna listamanna og almenna endurskoðun laganna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009 (endurskoðun).

  • Þingsályktunartillaga

    Tillaga til þingsályktu nar um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023–2026

    Samþykkt
    Áætlað: október
    511. mál· Samþykkt· lagt fram 29. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Áætlunin inniheldur 18 aðgerðir sem mótaðar eru í samstarfi fimm ráðuneyta en markmið þeirra er að forgangsraða verkefnum stjórnvalda þegar kemu r að verndun og þróun tungumálsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktu nar um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023–2026.

  • Þingsályktunartillaga

    Málstefnu íslensks táknmáls

    Samþykkt
    Áætlað: október
    37. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í þingsályktunartillögu um málstefnu um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu. Málstefna um íslenskt táknmál miðar að því að skilgreina markmið og aðgerðir fyrir dulin og sýnileg ferli sem varða bæði viðhorf og hegðun til jafns við stöðu og form íslenska táknmálsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls.

  • Þingsályktunartillaga

    Ferðamálastefnu til 2030 og aðgerðaáætlun hennar (ste fnumótun og aðgerðaáætlun)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    1036. mál· Samþykkt· lagt fram 15. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Áætlunin byggir á Framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 og verður byggð á starfi sjö vinnuhópa á sviði ferðamála.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um ferðamálastefnu til 2030 og aðgerðaáætlun hennar (ste fnumótun og aðgerðaáætlun).

Mennta- og barnamálaráðherra

7 af 13 komin fram

  • Frumvarp

    Mennta- og skólaþjónustustofu

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    238. mál· Samþykkt· lagt fram 26. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér heildarlög um nýja þjónustu- og þekkingarmiðstöð á sviði fræðslu- og menntamála á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    240. mál· Samþykkt· lagt fram 26. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að samræma löggjöf við ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna og réttindi barna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (endurgreiðslur)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    629. mál· Samþykkt· lagt fram 26. jan. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér aðlögun reglna um endurgreiðslur ríkissjóðs til barnaverndarþjónusta sveitarfélaga vegna fylgdarlausra barna og barna sem eru hér á landi án dvalarleyfis. Markmið breytinganna er að skýra gildandi reglur og samræma þær breytingum sem hafa orðið á barnaverndarþjónustu við fylgdarlaus börn.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (endurgreiðslur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, o.fl

    Samþykkt
    Áætlað: október
    497. mál· Samþykkt· lagt fram 13. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    (reglugerðarheimildir). Frumvarpið felur í sér breytingar á reglugerðarheimildum í IV. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og barnaverndarlögum, nr. 80/2002. Markmið breytinganna er að skýra ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra þegar kemur að reglugerðum sem varða gæði þjónustu sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, o.fl.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003 (nemendur með alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    934. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér að nemendur með alþjóðleg a vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða njóti sama réttar til námsstyrkja og íslenskir ríkisborgarar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003 (nemendur með alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða).

  • Frumvarp

    Skák

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    931. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um skák. Í frumvarpinu munu felast nýjar reglur um stuðning hins opinbera við skák og afreksfólk í skák sem koma í stað gildandi reglna. Samhliða verði lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990, og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, felld úr gildi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um skák.

  • Þingsályktunartillaga

    Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2026

    Samþykkt
    Áætlað: september
    241. mál· Samþykkt· lagt fram 26. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar er lögð fram skv. 5. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Í áætluninni verða settar fram tillögur um áherslur stjórnvalda í málaflokknum og lagðar til helstu aðgerðir og framkvæmdir á málefnasviðinu næstu ár.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2026.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

11 af 28 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    689. mál· Samþykkt· lagt fram 9. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VI. kafla A laganna sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu sem eru nauðsynlegar til að samræma orðalag laganna við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2009/31/EB frá 23. apríl 2009 um geymslu koltvísýrings í jörðu og um breytingu á tilskipun ráðsins 85/337/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB, 2001/80/EB, 2004/35/EB, 2006/12/EB, 2008/1/EB og reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og til að tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunarinnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).

  • Frumvarp

    Breyting lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003, og raforkulögum, nr

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    29. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    65/2003 (Raforkueftirlitið). Með frumvarpinu er lagt til að útfæra nánar ákvæði raforkulaga og laga um Orkustofnun í ljósi athugasemda Eftir litsstofnunar EFTA og krafna tilskipunar 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyr ir raforku og um niðurfellingu tilskipunar 2003/54/EB gagnvart sjálfstæðu raforkueftirliti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003, og raforkulögum, nr.

  • Frumvarp

    Brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997

    Samþykkt
    Áætlað: október
    832. mál· Samþykkt· lagt fram 18. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í tengslum við endurskoðun á stofnanaskipulagi umhverfis -, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem hófst í júní 2022, hefur ráðuneytið unnið að greiningu á sér stöðu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar (SVS). Horft var til ábendinga í stjórnsýsluúttekt Ríkisendur skoðunar á fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni stofnana ríkisins, sem fram koma í skýrslu til Alþingis frá desember 2021. Þar kemur fram að Ríkisendurskoðun t elur ástæðu fyrir stjórnvöld að endurskoða rekstrarform SVS og bendir á að með hliðsjón af hlutverki stofnunarinnar væri eðlilegra að hún heyrði beint undir Háskólann á Akureyri (HA). Samstaða er um samruna SVS og HA og er því í frumvarpi þessu lagt til brottfall á lögum nr. 81/1997, um stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.

  • Frumvarp

    Náttúruverndar- og minjastofnun

    Samþykkt
    Áætlað: október
    831. mál· Samþykkt· lagt fram 18. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á s tofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfsstöðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auka stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjónustu og samfélagslegan ávinning. Í frumvarpinu er lögð til sameining Vatnajökulsþjóðgarðs, Þingvallaþjóðgarðs, Minjastofnunar Íslands og náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Auk nýrra laga er lagt til að breytingar verði gerðar á þeim lögum þar sem viðkomandi stofnanir eru tilgreindar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Náttúruverndar- og minjastofnun.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn

    Samþykkt
    Áætlað: október
    479. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á stofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfss töðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auka stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjónustu og samfélagslegan ávinning. Í sameiningarvinnu nni hefur m.a. verið lagt upp með að til verði ný Náttúruvísind astofnun með sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Veðurstofu Íslands, Íslenskra orkurannsókna (Ísor), Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Frekari greiningar þur fti við á stöðu Ísor sökum sérstöðu þeirrar stofnunar, en hún e r B-hluta stofnun og starfar á samkeppnisgrundvelli. Í greiningarvinnunni komu í ljós atriði sem fela í sér tilteknar áskoranir og þurfa frekari greiningar við. Í ljósi þessa var ákveðið að fyrsta skrefið yrði að leggja til sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn þar sem mikil samlegð er með verkefnum þessara stofnana og ríkur vilji til sameiningar. Í frumvarpinu verða lagðar til b reytingar á þeim lögum sem viðkoma umræddum stofnunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    924. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um úrvinnslugjald til að ná þeim markmiðum sem að var stefnt með lögum nr. 103/2021 um að skapa sem fyrst skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis á Íslandi. Stefnt er að því að skýra álagningu úrvinnslugj alds á ökutæki, uppfæra viðauka við lögin um umbúðir og bregðast við vanda innflytjenda með heimild til ákvörðunar úrvinnslugjalds á umb úðir þegar upplýsingar um meginsöluumbúð liggja ekki fyrir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (EES-innleiðing, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    543. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður innleiddur hluti gerða úr „Fit for 55“, loftslags- og orkulöggjafarpakka ESB. Gerðirnar sem um ræðir eru breytingar á tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Annars vegar tilskipun ESB 2023/958 (flugstarfsemi) og hins vegar tilskipun 2023/959 (staðbundinn iðnaður, sjóflutningar og byggingar, vegasamgöngur og smærri iðnaður).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (EES-innleiðing, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna leyfisveitinga Orkustofnunar (þjónustugjöld)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    898. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Helstu lagabálkar auðlindanýtingar sem Orkustofnun starfar eftir eru lög nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög), lög nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög), raforkulög nr. 65/2003 og vatnalög nr. 15/1923. Í ákvæðum laganna er lítið fjallað um málsmeðferð eða ferli leyfisveitinga. Þá eru ákvæði um gjaldtöku ýmist ófullnægjandi eða þeim ekki fyrir að fara. Brýnt er að tryggð verði heimild stofnunarinnar til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna leyfisveitinga Orkustofnunar (þjónustugjöld).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna sameininga stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis (samræming málsmeðferðarreglna, valdheimilda og annarra reglna)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar
    942. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er til samræmis við frumvörp sem fyrirhugað er að leggja fram á þinginu vegna stofnanasameininga ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að þörfin á lagabreytingum verði einna helst í tengslum við nýja Náttúruverndar- og minjastofnun. Mismunandi reglur gilda að sumu leyti í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum auk þess sem samræma þarf málsmeðferðarreglur og valdheimildir stofnana samkvæmt þessum lögum. Einnig er þörf á að skoða málsmeðferðarreglur og valdheimildir Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar í tilefni af frumvarpi um nýja Loftslagsstofnun.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameininga stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis (samræming málsmeðferðarreglna, valdheimilda og annarra reglna).

Utanríkisráðherra

4 af 6 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum (bókun 35)

    Samþykkt
    Áætlað: október· Endurflutt
    1076. mál· Samþykkt· lagt fram 23. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að gera nauðsynlegar breytingar til þess að breyta innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn og tryggja fulla virkni hans hér á landi í þágu einstaklinga og lögaðila.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum (bókun 35).

  • Þingsályktunartillaga

    Þróunarsamvinnustefnu

    Samþykkt
    Áætlað: október
    484. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Samkvæmt 5. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, með síðari breytingum, skal utanríkisráðherra leggja fram tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fimmta hvert ár. Þingsályktunartillagan felur í sér stefnu stjórnvalda í málaflokknum tímabilið 2024-2028 sem taka mun við af núgildandi stefnu sem rennur út í lok árs 2023.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um þróunarsamvinnustefnu.

  • Þingsályktunartillaga

    Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið), ákvörðunar sameiginlegu EESnefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr

    Samþykkt
    Áætlað: október
    383. mál· Samþykkt· lagt fram 18. okt. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    17/2023 frá 3. febrúar 2023 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EESsamninginn og ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2023 frá 17. mars 2023 um breytingu á V. viðauka (Frjáls för launþega) og VIII. viðauka (Staðfesturéttur) við EESsamninginn. 1) Ákvörðun nr. 190/2022: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1024 frá 20. júní 2019 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. 2) Ákvörðun nr. 191/2022: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB. 3) Ákvörðun nr. 17/2023: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/369 frá 1. mars 2021 um að koma á nauðsynlegum tækniforskriftum og verklagsreglum fyrir samtengingarkerfi miðlægra skráa sem um getur í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849. 4) Ákvörðun nr. 50/2023: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1157 frá 20. júní 2019 um að efla öryggi kennivottorða borgara Sambandsins og dvalarskjala sem gefin eru út til handa borgurum Sambandsins og aðstandendum þeirra sem nýta sér réttinn til frjálsrar farar.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið), ákvörðunar sameiginlegu EESnefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.

  • Þingsályktunartillaga

    Fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu

    Samþykkt
    Áætlað: október
    558. mál· Samþykkt· lagt fram 7. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)