Beint í efni
Alviti
157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 157. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

147

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 157. þings

Af málum sem komu fram var 51 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 64 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

2 af 3 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, og lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011 (rafrænar undirskriftir á vettvangi ríkisráðs, handhafar forsetavalds og aðstoðarmaður forseta)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    314. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í undirbúningi er að kveða á um rafrænar undirskriftir forseta Íslands og ráðherra á vettvangi ríkisráðs. Þá er til athugunar að gera ráð fyrir að rafrænar undirskriftir geti átt sér stað þegar viðkomandi er staddur erlendis. Við það myndi draga úr hlutverki og launagreiðslum til handhafa forsetavalds. Óháð því stendur til að lækka þær greiðslur út frá því sjónarmiði að líta megi á handhafaskyldurnar sem hluta af almennum embættisskyldum. Einnig verður í frumvarpinu gert ráð fyrir þeim möguleika að við forsetaembættið sé starfandi sérstakur aðstoðarmaður forseta, sem ráðinn verði án auglýsingar og láti af störfum eigi síðar en forseti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, og lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011 (rafrænar undirskriftir á vettvangi ríkisráðs, handhafar forsetavalds og aðstoðarmaður forseta).

Atvinnuvegaráðherra

11 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um faggildingu, nr. 24/2006 o.fl. (endurskoðun)

    Samþykkt
    Áætlað: september
    220. mál· Samþykkt· lagt fram 31. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar til að treysta grunn faggildingarstarfsemi og færa löggjöfina til samræmis við viðeigandi Evrópulöggjöf.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um faggildingu, nr. 24/2006 o.fl. (endurskoðun).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (riðuveiki o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    89. mál· Samþykkt· lagt fram 17. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til ýmsar nauðsynlegar breytingar á lögunum til þess að ná fram þeim markmiðum sem fram koma í nýrri landsáætlun um riðuveikilaust Ísland auk nauðsynlegra breytinga sem gera þarf í tengslum við varnir gegn öðrum smitsjúkdómum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (riðuveiki o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    114. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    85/2007 (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi). Með frumvarpinu eru lagðar til þrenns konar breytingar. Í fyrsta lagi er lagt til að hugtakið heimagisting verði endurskilgreint og afmarkað við lögheimili einstaklings og eina aðra fasteign í eigu hans utan þéttbýlis. Í öðru lagi er lagt til að binda þegar útgefin rekstrarleyfi til starfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis til fimm ára í senn. Í þriðja lagi er lagt til að sýslumanni verði heimilt að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum frá ríkisskattstjóra í tengslum við eftirlit sýslumanns með einstaka málum vegna skráningarskyldrar heimagistingar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr.

  • Frumvarp

    Markaðssetningarlaga

    Samþykkt
    Áætlað: október
    234. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög, markaðssetningarlög, í stað laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005. Markmiðið er að ný markaðssetningarlög tryggi virka samkeppni í viðskiptum og öfluga neytendavernd sem tekur m.a. mið af tækniþróun síðustu ár.

    Heiti á skránni: Frumvarp til markaðssetningarlaga.

  • Frumvarp

    Rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

    Samþykkt
    Áætlað: október
    300. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lögð til ný heildstæð lög um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna í neytendamálum til ársins 2030

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    115. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með tillögunni er lögð fram heildstæð stefna í neytendamálum til ársins 2030, ásamt aðgerðaáætlun með skilgreindum aðgerðum.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030.

Dómsmálaráðherra

13 af 18 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    112. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd útlendings þegar viðkomandi hefur framið alvarlegt brot, ítrekað brot eða ógnar öryggi ríkisins. Þá er með frumvarpinu jafnframt felld brott regla 2. mgr. 74. gr. laganna þar sem heimiluð er veiting dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hann sótti um alþjóðlega vernd (18 mánaða regla). Með frumvarpinu er ætlunin að samræma löggjöf og framkvæmd afturköllunar alþjóðlegrar verndar við umgjörð annars staðar á Norðurlöndunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).

  • Frumvarp

    Sýslumann

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    111. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sýslumannsembættin níu verði sameinuð í eitt, með það að meginmarkmiði að bæta þjónustu hins opinbera á öllu landinu. Markmiðinu verður náð með einfaldari stjórnsýslu og jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu, óháð búsetu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um sýslumann.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, o.fl. (upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    103. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða breytingar á sviði sakamálaréttarfars að því er varðar rannsóknarheimildir lögreglu við öflun fjármálaupplýsinga og heimildir til haldlagningar og kyrrsetninga. Hins vegar á sviði refsilaga hvað varðar upptökuákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Til úrlausnar er að breyta viðeigandi löggjöf vegna alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland hefur undirgengist og varða upptöku fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, o.fl. (upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    113. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að heimila kirkjugörðum að innheimta gjald fyrir hluta af starfsemi sinni. Til þess að bregðast við erfiðri stöðu kirkjugarðanna er nauðsynlegt að þeim verði heimilt að innheimta sérstakt gjald til að standa undir þessum rekstri.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr

    Samþykkt
    Áætlað: október
    298. mál· Samþykkt· lagt fram 25. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    85/2011 (rafrænt eftirlit nálgunarbanns). Markmið frumvarpsins er að styrkja réttarstöðu og öryggi brotaþola og þá sérstaklega þeirra sem mega þola heimilisofbeldi og umsáturseinelti. Lagt er til að lögfest verði heimild lögreglu til að ákvarða beitingu rafræns eftirlits með staðsetningarbúnaði (ökklabandi) samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Með rafrænu eftirliti er átt við að manni verði gert að bera staðsetningarbúnað til að nálgunarbann og/eða brottvísun sé virt.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr.

  • Frumvarp

    Brottfararstöð

    Samþykkt
    Áætlað: október
    230. mál· Samþykkt· lagt fram 6. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að vista útlending á brottfararstöð í þeim tilvikum þegar tryggja þarf að útlendingur sé til staðar vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Með frumvarpinu er verið að hverfa frá þeirri framkvæmd núgildandi laga að heimilt sé að handtaka útlendinga í þessari stöðu og færa í gæsluvarðhald. Þá eru einnig lagðar til breytingar á lögum um útlendinga og mælt fyrir um að tiltekinn hópur útlendinga sæti skimun á ytri landamærum, auk umsækjenda um alþjóðlega vernd sem gangast nú þegar undir ákveðnar ráðstafanir við komu til landsins. Með frumvarpinu er verið að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt Schengen-samningnum en Ísland er eina Schengen-ríkið þar sem engin brottfararstöð er til staðar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um brottfararstöð.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    316. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa til ríkisborgara þriðju ríkja færist frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar. Markmiðið er að atvinnu- og dvalarleyfi verði felld í einn og sama farveginn til einföldunar og hagsbóta fyrir umsækjendur og stjórnsýslu. Með þessari breytingu verður framkvæmd atvinnuleyfa hér á landi færð nær þeirri framkvæmd sem tíðkast á Norðurlöndunum. Jafnframt verði með breytingunni hægt að leggja grunn að heildarendurskoðun á fyrirkomulagi atvinnu- og dvalarleyfa hér á landi. Með frumvarpinu verða einnig gerðar breytingar á fyrirkomulagi atvinnuþátttöku námsmanna á grundvelli laganna til að bæta bæði aðgengi námsmanna að vinnumarkaði en að sama skapi skerpa á skilyrðum þeirrar atvinnuþátttöku og stemma stigu við óeðlilegri ásókn sem núgildandi ákvæði laganna hafa skapað. Meðal annars verða gerðar ríkari kröfur við útgáfu dvalarleyfa til atvinnuleitar í kjölfar útskriftar. Þá verður gerð breyting á heimild til fjölskyldusameiningar fyrir aðstandendur námsmanna. Frumvarpið er liður í breytingum sem fyrirhugaðar eru, eins og endurskoðun á dvalarleyfiskafla laganna, hækkun umsóknargjalda dvalarleyfa og heildarendurskoðun reglugerðar um útlendinga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa).

  • Frumvarp

    Breyting á erfðalögum, lögum um aðför, lögum um skipti á dánarbúum o.fl., lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og lögum um nauðungarsölu (stafræn og rafræn málsmeðferð)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    231. mál· Samþykkt· lagt fram 6. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er markmiðið að málsmeðferð verði skilvirkari. Lagt er til að lögfesta heimildir til að nýta stafrænar og rafrænar leiðir við meðferð mála á grundvelli erfðalaga, laga um skipti á dánarbúum, lögum um aðför, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og lög um nauðungarsölu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á erfðalögum, lögum um aðför, lögum um skipti á dánarbúum o.fl., lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og lögum um nauðungarsölu (stafræn og rafræn málsmeðferð).

  • Frumvarp

    Breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    313. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að kveða skýrar á um hvenær grípa megi til hvaða öryggisráðstafana ósakhæfra einstaklinga eða einstaklinga þar sem refsing er ekki talin geta borið árangur. Þá er kveðið á um á hverju slík ákvörðun skuli byggjast. Öryggisráðstafanir eru m.a. fólgnar í vistun einstaklings, til varnar því að hætta verði af. Þá er lögð til heimild til að vista einstaklinga áfram í fangelsi eftir afplánun refsidóms. Þá verði skilyrði að einstaklingurinn hafi gerst sekur um alvarleg afbrot og að taldar séu verulegar líkur á því í ljósi sakaferils og andlegs ástands viðkomandi við lok afplánunar, svo og af undanfarandi breytni viðkomandi, að hann muni drýgja alvarleg brot að lokinni afplánun og sé því hættulegur umhverfi sínu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála (jafnlaunakerfi)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    297. mál· Samþykkt· lagt fram 25. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmiðið með frumvarpinu er að einfalda ferlið í kringum jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana, og draga úr kostnaði við framkvæmd þess. Horft verður til þeirra ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess og reynslu af kerfinu að teknu tilliti til markmiða jafnréttislaga um launajafnrétti milli kynjanna. Verður m.a. horft til tillagna starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri um að létt verði á jafnlaunavottun og stærðarmörk hækkuð. Með því munu færri aðilar falla undir þessa skyldu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála (jafnlaunakerfi).

  • Þingsályktunartillaga

    Framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026– 2029

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    90. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum til fjögurra ára skal lögð fyrir Alþingi, sbr. 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Framkvæmdaáætlunin setur fram stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og lýsir verkefnum sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis. Skýrsla ráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2020–2024 fylgir með tillögunni, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026– 2029.

Félags- og húsnæðismálaráðherra

13 af 16 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (launavísitala)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    155. mál· Samþykkt· lagt fram 4. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til sú breyting að örorku- og ellilífeyrir hækki árlega til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (launavísitala).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (dýrahald)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    107. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um fjöleignarhús sem varða dýrahald þannig að samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi sé ekki nauðsynlegt.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (dýrahald).

  • Frumvarp

    Lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    106. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

  • Frumvarp

    Breyting á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    108. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á húsaleigulögum þess efnis að skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði almenn í stað þess að hún taki eingöngu til þeirra sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum um tekjuskatt. Með því fást áreiðanlegri og heildstæðari upplýsingar um leigumarkaðinn og einstaka hluta hans, lengd leigusamninga, þróun húsaleigu, búsetu í óviðunandi húsnæði o.fl., sem nauðsynlegar eru til að undirbyggja frekari stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda í málaflokknum sem og eftirlit með svartri leigustarfsemi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris og aldursviðbót)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    269. mál· Samþykkt· lagt fram 18. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til hækkun á frítekjumarki ellilífeyris þannig að frítekjumark ellilífeyris hækki í áföngum á næstu fjórum árum og verði 60.000 krónur á mánuði. Með frumvarpinu er einnig lögð til sú breyting að aldursviðbót falli ekki niður þegar örorkulífeyrisþegi nær ellilífeyrisaldri. Aldursviðbótin fylgi þeim sem eiga engin eða takmörkuð atvinnutengd réttindi til ellilífeyris. Jafnframt verða lagðar til nokkrar breytingar í tengslum við innleiðingu á nýju örorkulífeyriskerfi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris og aldursviðbót).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    236. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpi þessu er lagt til að einstaklingar sem fá greiddan örorku- eða endurhæfingarlífeyri fái tiltekna eingreiðslu í desember sem skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega og teljast þannig skattfrjáls. Auk þess verði kveðið á um að eingreiðslan leiði ekki til skerðingar annarra greiðslna. Gert er ráð fyrir sambærilegri greiðslu til tekjulágra ellilífeyrisþega.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi (fyrirkomulag greiðslna)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    286. mál· Samþykkt· lagt fram 20. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpi þessu er lagt til að breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra í fæðingarorlofskerfinu skv. lögum um fæðingar- og foreldraorlof, miði ekki lengur við fæðingardag barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur heldur nái slíkar breytingar til allra foreldra sem eiga ónýttan rétt innan kerfisins er breytingarnar taka gildi. Gert er ráð fyrir að sambærilegar breytingar verði gerðar á lögum um sorgarleyfi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi (fyrirkomulag greiðslna).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

    Samþykkt
    Áætlað: október
    256. mál· Samþykkt· lagt fram 14. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sameina starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þannig að úr verði öflug stofnun húsnæðis -, mannvirkja- og skipulagsmála. Breytingin er liður í að tryggja öflugri og skilvirkari stjórnsýslu skipulags -, mannvirkja- og húsnæðismála.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006 (stytting bótatímabils o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    312. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Gert er ráð fyrir að hámarkslengd þess tímabils sem atvinnuleysistryggingar eru greiddar verði stytt. Jafnframt er gert ráð fyrir að lágmarksskilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta verði breytt. Þá er gert ráð fyrir að gerðar verði breytingar í því skyni að einfalda stjórnsýslu atvinnuleysistrygginga sem og aðrar breytingar í ljósi reynslunnar við framkvæmd gildandi laga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006 (stytting bótatímabils o.fl.)

  • Frumvarp

    Öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    305. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn. Með frumvarpinu verður komið á lagaumgjörð þegar einstaklingar hafa verið dæmdir eða úrskurðaðir til að sæta öryggisráðstöfunum. Markmið frumvarpsins er að skýra framkvæmd og ábyrgð þeirra opinberu aðila sem koma að málum og bæta réttarstöðu þeirra einstaklinga sem í hlut eiga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um húsnæðismál og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (hlutdeildarlán og hlutdeildarlánasjóður)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    306. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi hlutdeildarlána til að húsnæðisstuðningskerfið stuðli enn frekar að auknu framboði íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Hlutdeildarlán verði fest í sessi sem varanlegt úrræði fyrir fyrstu kaupendur og framkvæmdin gerð skilvirkari. Einnig er lagt til að stofnaður verði sérstakur Hlutdeildarlánasjóður sem hafi það hlutverk að fjármagna hlutdeildarlán.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (hlutdeildarlán og hlutdeildarlánasjóður).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (fyrirkomulag stofnframlaga)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    510. mál· Samþykkt· lagt fram 3. mar. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi almennra íbúða til að húsnæðisstuðningskerfið stuðli enn frekar að auknu framboði leiguíbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Jafnframt verði framkvæmd úthlutunar stofnframlaga endurskoðuð til að einfalda ferla og auka skilvirkni.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (fyrirkomulag stofnframlaga).

Fjármála- og efnahagsráðherra

21 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Fjárlaga fyrir árið 2026

    Samþykkt
    Áætlað: september
    1. mál· Samþykkt· lagt fram 9. sep. 2025
  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026

    Samþykkt
    Áætlað: september
    2. mál· Samþykkt· lagt fram 9. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar sem lagðar eru til grundvallar fjárlagafrumvarpi ársins 2026 sem lagt er fram á sama tíma. Það er samið að höfðu samráði við önnur ráðuneyti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

  • Frumvarp

    Staðfesting ríkisreiknings 2024

    Samþykkt
    Áætlað: september
    146. mál· Samþykkt· lagt fram 25. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Skv. 58. gr. laga um opinber fjármál á ráðherra að leggja fram frumvarp á Alþingi til staðfestingar ríkisreikningi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2024.

  • Frumvarp

    Kílómetragjald á ökutæki

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    144. mál· Samþykkt· lagt fram 25. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði upp gjaldtaka í formi kílómetragjalds vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu. Jafnframt er lagt til að almennt og sérstakt vörugjald af eldsneyti verði fellt niður og lög um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004, og lög um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023, verði felld brott. Þá er lögð til hækkun á kolefnisgjaldi í lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    148. mál· Samþykkt· lagt fram 25. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á ákvæðum tollalaga, nr. 88/2005, og lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019, er varða skyldu til að tilkynna tollyfirvöldum um flutning á reiðufé og handhafabréfum, þ.m.t. ferðatékkum, til og frá landinu og beitingu viðurlaga þegar aðilar sinna ekki tilkynningarskyldunni. Einnig er um að ræða breytingar á heimildum tollyfirvalda til að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum og heimild tollyfirvalda til að beita lögaðila viðurlögum vegna brota á 172. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Þá er um að ræða breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, lögum um virðisaukaskatt og tollalögum í kjölfar álita umboðsmanns Alþingis til að tryggja málskotsrétt til yfirskattanefndar þegar ríkisskattstjóri synjar beiðni um endurupptöku eða synjar um breytingu á fyrri ákvörðun sinni. Jafnframt er lagt til að ákvæði til bráðabirgða í lögum um tekjuskatt, um að styrk ir Loftslag- og orkusjóðs til einstaklinga utan rekstrar til kaupa á hreinorkubifreiðum teljist ekki til skattskyldra tekna, verði framlengt til lok a árs 2027. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, þess efnis að viðbótarhúsnæðisstuðningur til tekju- og eignaminni Grindvíkinga sem veittur er vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025 á grundvelli laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grinda víkurbæ, nr. 40/2024, teljist ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt fyrrnefndum lögum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (CRR III)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    190. mál· Samþykkt· lagt fram 17. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið innleiðir reglugerð (ESB) 2024/1623, sem breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir. Breytingunum er að miklu leyti ætlað að gera eiginfjárkröfur til lánastofnana áhættunæmari til að endurspegla betur áhættu sem þær standa frammi fyrir án þess að auka verulega heildareiginfjárkröfur til þeirra. Einnig er áformað að innleiða reglugerð (ESB) 2025/1215 sem lækkar krö fu um hlutfall stöðugrar fjármögnunar lánastofnana vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf og gerð sem er enn á tillögustigi hjá Evrópusambandinu sem frestar tilteknum breytingum á kröfum um eigið fé til að bregðast við markaðsáhættu til janúar 2027. að hluta.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (CRR III).

  • Frumvarp

    Verðbréfun (STS)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    100. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2017/2402, um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun o.fl. Verðbréfun getur verið mikilvægt tæki fyrir fjármagns-, lausafjár- og áhættustýringu aðila á fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi. Með frumvarpinu verður komið á styrkri lagaumgjörð er miðar að því að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Með frumvarpinu verða jafnframt lagðar til breytingar á öðrum lögum sem varða verðbréfun og varfærniskröfur til aðila að slíkum viðskiptum, til samræmis við breytingar á gildandi EES-gerðum með reglugerð (ESB) 2017/2402 og tengdum gerðum, þar á meðal lögum um fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóði, vátryggingastarfsemi, lánshæfismatsfyrirtæki, rekstraraðila sérhæfðra sjóða, peningamarkaðssjóði og afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár. Þá er gert ráð fyrir að kröfur reglugerðarinnar um áreiðanleikakönnun gildi um innlenda lífeyrissjóði sem fjárfesta í verðbréfaðri stöðu. Er það gert með hagsmuni sjóðfélaga í huga og lagt til að ákvæðum um þær kröfur sem ná til lífeyrissjóða verði komið fyrir í lögum um lífeyrissjóði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um verðbréfun (STS).

  • Frumvarp

    Starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    101. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun (ESB) 2016/2341, um starfstengda eftirlaunasjóði. Með frumvarpinu verður lagt til að felld verði úr gildi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, sem sett voru til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2003/41 um sama efni, og ný lög sett í þeirra stað. Um er að ræða endurútgáfu á eldri tilskipun um sama efni, það er tilskipun 2003/41/EB, um starfsemi og eftirlit með lögaðilum sem sjá um starfstengd eftirlaun.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II).

  • Frumvarp

    Stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    99. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2022/2554 um stafrænt áfallaþol fjármálageirans, og tengdri tilskipun (ESB) 2022/2556. Með því er ætlunin að setja samræmdar kröfur um viðbúnað og áhættustýringu á fjármálamarkaði, með áherslu á stærð, áhættusnið og starfsemi aðila, þar með talið aðkeypta tækniþjónustu og tilkynningar um alvarleg atvik. Lögð er áhersla á innbrotsprófanir til að auka áfallaþol og miðlun upplýsinga um ógnir. Með DORAreglugerðinni er sameiginlegu eftirliti evrópska fjármálaeftirlitskerfisins komið á gagnvart stærstu tækniþjónustuveitendum, sem útnefndir verða sem mikilvægir á sameiginlegum innri markaði fjármálaþjónustu. Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á gildandi lögum á fjármálamarkaði, sem þegar víkja að einhverju marki að stafrænum viðnámsþrótti. Þá er gert ráð fyrir að meginkröfur reglugerðarinnar gildi um innlenda lífeyrissjóði. Er það gert með hagsmuni sjóðfélaga í huga og lagt er til að ákvæðum um þær kröfur verði komið fyrir í lögum um lífeyrissjóði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA).

  • Frumvarp

    Markaði fyrir sýndareignir (MiCA)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    228. mál· Samþykkt· lagt fram 6. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð (ESB) 2023/1114, um markaði fyrir sýndareignir. Í reglugerðinni er kveðið á um samevrópskar reglur um útgáfu, almennt útboð og leyfi til viðskipta með sýndareignir ásamt reglum til að koma í veg fyrir markaðsmisnotkun og innherjaviðskipti með sýndareignir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um markaði fyrir sýndareignir (MiCA).

  • Frumvarp

    Aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki

    Samþykkt
    Áætlað: október· EES-innleiðing
    264. mál· Samþykkt· lagt fram 18. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að innleiða tilskipun (ESB) 2016/2102 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki. Tilskipunin mælir fyrir um samræmdar lágmarksreglur um aðgengi að opinberum vefjum, einkum með tilliti til fatlaðs fólks. Gildissvið hennar er afmarkað við vefi og smáforrit opinberra aðila. Meginreglan er sú að ríkin tryggi að slíkir vefir og forrit séu aðgengileg með því að gera þau skynjanleg, skýr og skiljanleg, nothæf og trygg. Kröfurnar eru sambærilegar og leitast var við að uppfylla með aðgengisstefnu fyrir opinbera vefi sem ríkisstjórn Íslands samþykkti í maí 2012. Samkvæmt tilskipuninni skulu stjórnvöld fylgjast með því að opinberir vefir uppfylli lágmarksaðgengiskröfur og tryggja borgurum rétt til að leita til úrlausnaraðila um hvort þær séu uppfylltar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki.

  • Frumvarp

    Fjáraukalaga IV fyrir árið 2025

    Samþykkt
    Áætlað: október
    299. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ef þess gerist þörf er skv. 26. gr. laga um opinber fjármál heimilt að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til fjáraukalaga IV fyrir árið 2025.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna launaviðmiðs tiltekinna starfa samkvæmt sérákvæðum í lögum (laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    632. mál· Samþykkt· lagt fram 22. apr. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er, í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 39/2023, ætlað að setja skýr, hlutlæg og afdráttarlaus viðmið launabreytinga fyrir tiltekin störf þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna. Með frumvarpinu verður eytt óvissu og ófyrirsjáanleika að því er varðar hvernig og við hvaða aðstæður breyting verður á launum samkvæmt því fyrirkomulagi sem sett var á fót með lögum nr. 79/2019, um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, nr. 130/2016. Frumvarpið verður unnið af starfshópi forsætisráðherra með þátttöku fulltrúa tilnefndra af fjármála- og efnahagsráðherra, ASÍ, SA og sameiginlega af BSRB, BHM og KÍ.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna launaviðmiðs tiltekinna starfa samkvæmt sérákvæðum í lögum (laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr

    Samþykkt
    Áætlað: október· EES-innleiðing
    147. mál· Samþykkt· lagt fram 25. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    115/2022 (ELTIF). Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2023/606 sem breytir reglugerð (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Helstu breytingarnar varða kröfur í tengslum við fjárfestingarstefnur og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og einnig varðandi hæfar fjárfestingareignir, um samsetningu eignasafna og lántökur.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tollar, skilagjald o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    257. mál· Samþykkt· lagt fram 14. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld ásamt uppfærslum og breytingum á tilvísunum í skattalögum o.fl. Um er að ræða breytingar sem tengjast m.a. tollfrjálsri verslun og skilum á áfengis-, tóbaks-, nikótín- og skilagjaldi. Jafnframt eru lagðar til breytingar á barnabótum sem m.a. tengjast útgöngusamningi við Bretland.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tollar, skilagjald o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framkvæmd, umgjörð og skilyrði)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    296. mál· Samþykkt· lagt fram 25. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Starfshópur vinnur að heildstæðri endurskoðun á lögunum, þ.e. að kortleggja og gera samanburð á sambærilegum stuðningskerfum erlendis, framkvæmd á Íslandi, alþjóðlegum straumum og stefnum, mati á árangi af stuðningnum, mælingum á efnahagslegum ávinningi, kortlagningu á stuðningskerfi og tillögum að breytingum. Gert er ráð fyrir að frumvarpið hafi að geyma a.m.k. fyrstu tillögur að breytingum frá starfshópnum, sem m.a. er ætlað að slá á útgjaldavöxt síðustu ára.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framkvæmd, umgjörð og skilyrði).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    567. mál· Samþykkt· lagt fram 23. mar. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar sem varða fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Efni þess er afrakstur samráðs hagaðila um málið.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (uppgjörstímabil)

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    607. mál· Samþykkt· lagt fram 11. apr. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér endurskoðun uppgjörstímabila og gjalddaga virðisaukaskatts og uppgjör virðisaukaskatts í tolli. Þá eru gjalddagar annarra aðflutningsgjalda samræmdir. Frumvarpið felur í sér bætta lausafjárstýringu ríkissjóðs til að draga úr vaxtakostnaði, einfaldari framkvæmd skattálagningar og dregur úr möguleikum á undanskotum auk þess að stuðla að því að stjórnvöld fái betri samtímagögn um veltu í hagkerfinu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (uppgjörstímabil).

  • Þingsályktunartillaga

    Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031

    Samþykkt
    Áætlað: mars
    577. mál· Samþykkt· lagt fram 26. mar. 2026

Heilbrigðisráðherra

9 af 11 komin fram

  • Frumvarp

    Sóttvarnalaga

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    80. mál· Samþykkt· lagt fram 15. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar í kjölfar heildarendurskoðunar á sóttvarnalögum sem ráðist var í veturinn 2021–2023 með hliðsjón af fenginni reynslu af heimsfaraldri SARS-CoV-2veirunnar. Breytingar frá gildandi lögum varða einkum stjórnsýslu sóttvarna, feril ákvarðana um opinberar sóttvarnaráðstafanir og aukna aðkomu Alþingis að þeim.

    Heiti á skránni: Frumvarp til sóttvarnalaga.

  • Frumvarp

    Breyting á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES-reglur)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    70. mál· Samþykkt· lagt fram 12. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki í samræmi við skuldbindingar Íslands skv. 7. gr. EESsamningsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES-reglur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    69. mál· Samþykkt· lagt fram 12. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um sjúkraskrár sem ætlað er að stuðla að hagræðingu og skilvirkni í heilbrigðisþjónustu. Lagt er til að heimilt verði að taka gjald fyrir vinnu við yfirferð og afritun sjúkraskrárgagna, að heilbrigðisstarfsmönnum verði heimill aðgangur að sjúkraskrá við stofnun miðlægra lyfjakorta og þá eru lagðar til tilteknar breytingar í því skyni að skýra hlutverk eftirlitsaðila með meðferð sjúkraskráa.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015 (sjúkrahjálp)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    174. mál· Samþykkt· lagt fram 9. okt. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði um svonefnda sjúkrahjálp verði felld brott úr lögum um slysatryggingar almannatrygginga. Sjúkrahjálp felur í sér fullar greiðslur fyrir t.d. lyf, sjúkraþjálfun og hjálpartæki vegna slyss sem veldur óvinnufærni í a.m.k. 10 daga en lagt er til að um greiðslur vegna slíkrar aðstoðar fari samkvæmt almennri greiðsluþátttöku sjúkratryggðra.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015 (sjúkrahjálp).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 (ýmsar breytingar)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    328. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að veita Sjúkratryggingum Íslands fullnægjandi heimildir til að sinna lögbundnum skyldum sínum sem kostnaðargreinanda heilbrigðisþjónustu og umsjónaraðila sjúkratrygginga. Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar, svo sem að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins, takmarka greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES ásamt því að stjórn Sjúkratrygginga verði lögð niður. Þá eru lagðar til breytingar á gjaldtökuheimildum, svo sem vegna sjúkraþjálfunar, fjarheilbrigðisþjónustu og ófrjósemisaðgerða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 (ýmsar breytingar).

  • Frumvarp

    Brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    238. mál· Samþykkt· lagt fram 11. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að lög nr. 42/2007 verði felld brott, en frumvarpið er liður í því að færa þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar til heilsugæslu og sérhæfðrar þverfaglegrar þjónustueiningar. Samhliða því verður stöðin lögð niður.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    319. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindi sjúklinga sem fela meðal annars í sér meginreglu um bann við beitingu nauðungar en einnig undanþágur frá meginreglunni þegar brýna nauðsyn ber til að uppfylltum skilyrðum sem skilgreind eru í frumvarpinu. Enn fremur eru með frumvarpinu lagðar til skýrari málsmeðferðarreglur en nú gilda sem fylgja þarf við og í kjölfar slíkra inngripa, þ.m.t. skráningarskyldu tilvika, kæruheimildir og rétt til að bera slík mál undir dómstóla.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar).

Innviðaráðherra

10 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi og starfsumhverfi)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    84. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að felld verði brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu. Þá eru lagðar til breytingar sem lúta að skyldum leigubifreiðastöðva varðandi upplýsingaöflun, varðveislu gagna og að tryggja sanngjarna og gagnsæja verðlagningu og farveg fyrir kvartanir neytenda yfir verði og gæðum þjónustu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi og starfsumhverfi).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    105. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Endurskoða þarf lögin með hliðsjón af forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa)

    Samþykkt
    Áætlað: september
    86. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnun nýrra björgunarskipa. Lagt er til að setja í lög heimild fyrir ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa).

  • Frumvarp

    Breyting á skipalögum, nr. 66/2021 (EES-reglur)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    330. mál· Samþykkt· lagt fram 3. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar ESB nr. 391/2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og eftirlit og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á skipalögum, nr. 66/2021 (EES-reglur).

  • Þingsályktunartillaga

    Borgarstefnu fyrir árin 2025-2040

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    85. mál· Samþykkt· lagt fram 16. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Borgarstefna er mótuð á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Borgarstefna hefur það að markmiði að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Með borgarstefnu er hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar skilgreint og stuðlað að aukinni alþjóðlegri samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins og landsins alls. Þá er skilgreint hlutverk Akureyrar og uppbygging hennar sem svæðisborgar sem geti boðið upp á aukna fjölbreytni í þjónustu, menningu og atvinnutækifærum.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040.

  • Þingsályktunartillaga

    Samgönguáætlun 2026–2040

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    322. mál· Samþykkt· lagt fram 3. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillaga til þingsályktunar um samgöngustefnu til fimmtán ára ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Samgönguáætlun mun m.a. byggja á þeirri stefnumótunarvinnu sem unnin hefur verið undanfarin ár ásamt niðurstöðum samráðs við hagaðila. Í áætluninni birtist forgangsröðun framkvæmda, áherslur, aðgerðir, markmið og mælikvarðar fyrir allar greinar samgangna.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2026–2040.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

9 af 12 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    49. mál· Samþykkt· lagt fram 10. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er mælt fyrir um stuðning til einkarekinna fjölmiðla út árið 2025 samkvæmt sambærilegu fyrirkomulagi og verið hefur undanfarin ár, sbr. X. kafla B fjölmiðlalaga, nr. 38/2011, sem féll úr gildi 1. janúar 2025. Með frumvarpinu er jafnframt stigið fyrsta skrefið að endurskoðun fyrirkomulags stuðningsins þar sem þak hans er lækkað.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (endurskoðun)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    47. mál· Samþykkt· lagt fram 12. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til frekari breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna í framhaldi af frumvarpi sem var samþykkt á 154. löggjafarþingi. Breytingarnar byggjast á skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sem lögð var fram á Alþingi í desember 2023 og frekari greiningum í samráði við hagsmunaaðila.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (endurskoðun).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010 (meðalhófsprófun, EES-reglur)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    48. mál· Samþykkt· lagt fram 10. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun lögverndaðra starfsgreina innleidd. Frumvarpið kveður á um að framkvæma skuli meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina og þegar skilyrði fyrir lögverndun eru endurskoðuð.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010 (meðalhófsprófun, EES-reglur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging, viðbrögð við úttekt ESA o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    263. mál· Samþykkt· lagt fram 18. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður lagt til að framlengja endurgreiðslukerfið tímabundið um þrjú ár. Í frumvarpinu verður lögð áhersla á framleiðslu barnaefnis, sem sökum eðlis framleiðslu og dreifingar á undir högg að sækja. Lagt er til að setja skýrari mörk um hvenær hægt sé að sækja um vilyrði og útborgun til að auka fyrirsjáanleika í fjármögnun kerfisins. Í frumvarpinu verður skilgrein dur með skýrari hætti heildarframleiðslukostnað ur og framleiðslukostnað ur m.t.t. kostnaðar sem fellur til innan EES. Að auki verður frumvarpinu ætlað að bregðast v ið athugasemdum frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sem fram komu við nýafstaðna úttekt á kerfinu um að nefnd um endurgreiðslur skuli gæta þess að umsóknir uppfylli skilyrði ákvæða 54. gr. reglugerðar (ESB) nr. 651/2014 um almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu, þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og að nefndin teljist vera „veitingarvald“ í skilningi reglugerðar (ESB) nr. 651/2014 um almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging, viðbrögð við úttekt ESA o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    320. mál· Samþykkt· lagt fram 2. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    3/2003, o.fl. (sameining samkeppnissjóða). Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur unnið að kortlagningu á umhverfi sjóða á vegum ráðuneytisins síðustu misseri. Hægt er að auka árangur og skilvirkni opinberra samkeppnissjóða á Íslandi með því, til að mynda, að fækka og sameina samkeppnissjóði hins opinbera og samræma betur stjórnskipan og umsýslu sjóðanna. Átta samkeppnissjóðir eru starfræktir á vegum ráðuneytisins. Með frumvarpi þessu er stefnt að fjórum meginsjóðum; rannsóknasjóður, innviðasjóður, nýsköpunarsjóður og áherslusjóður. Þá er stefnt að því að skerpa á hlutverki Rannís sem víðtækrar u msýslu- og þjónustustofnunar opinberra samkeppnissjóða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða og skólagjöld nemenda utan EES -svæðis)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    309. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagðar eru til tvenns konar breytingar á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Í fyrsta lagi er lagt til að gerðar verði breytingar á II. kafla laganna um stjórnsýslu og stjórnskipulag opinberra háskóla til samræmis við þau áform að Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands starfi saman undir merkjum háskólasamstæðu sem lýtur sameiginlegri yfirstjórn. Í öðru lagi er lagt til að opinberum háskólum og einkareknum háskólum sem fá óskert fjárframlag skv. 3. mgr. 3. gr. reglna um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024 verði veitt heimil d til innheimtu skólagjalda af nemendum sem ekki fylgir framlag samkvæmt reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024. Breytingunni er ætlað að fylgja eftir fyrirhuguðum breytingum á fyrrnefndum reglum um að fjármagn fylgi aðeins nemendum með ríkisfang frá landi innan EES -svæðisins eða einstökum námsleiðum samkvæmt ákvörðun ráðherra.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða og skólagjöld nemenda utan EES -svæðis).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (endurskoðaður stuðningur við einkarekna fjölmiðla)

    Samþykkt
    Áætlað: janúar
    600. mál· Samþykkt· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að stuðningur til einkarekinna fjölmiðla verði festur í sessi með því að taka aftur upp í fjölmiðlalög, nr. 38/2011, ákvæði er mæla fyrir um stuðninginn auk þess sem gerðar verði viðeigandi breytingar með hliðsjón af vinnu við endurskoðun stuðningsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (endurskoðaður stuðningur við einkarekna fjölmiðla).

Mennta- og barnamálaráðherra

4 af 7 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (staðfestingar námsbrauta o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    154. mál· Samþykkt· lagt fram 4. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða ýmis ákvæði laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, tekin til endurskoðunar. Lagt er til að gera breytingar á reglum um staðfestingar námsbrauta, aðlaga ákvæði laganna að breytingum á fyrirkomulagi vinnustaðanáms o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (staðfestingar námsbrauta o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (snjalltæki)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    232. mál· Samþykkt· lagt fram 6. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að styrkja heimildir mennta- og barnamálaráðherra til að samræma reglur um notkun snjalltækja í grunnskólum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (snjalltæki).

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

15 af 20 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi með raforku)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    191. mál· Samþykkt· lagt fram 17. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru gerðar tillögur að breytingum á raforkulögum í tengslum við rekstur skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku. Tilgangur þess er að mæla fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum og eftirlit með rekstri skipulegs viðskiptavettvangs með raforku til að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði raforku. Kveðið er á um bann við markaðssvikum og ólögmætum innherjaviðskiptum. Einnig er fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga, skráningu markaðsaðila og tilkynningarskyld viðskipti. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi með raforku).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-reglur, móttaka úrgangs í höfnum)

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    179. mál· Samþykkt· lagt fram 14. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttöku úrgangs frá skipum, sem breytir tilskipun (ESB) 2010/65 og fellir úr gildi tilskipun (ESB) 2000/59. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar um sama efni sem hefur verið innleidd hér á landi. Gera þarf nokkrar breytingar á lögunum vegna innleiðingar á tilskipuninni.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-reglur, móttaka úrgangs í höfnum).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (stefna um öflun raforku og aukin skilvirkni rammaáætlunar)

    Samþykkt
    Áætlað: október· Endurflutt
    229. mál· Samþykkt· lagt fram 6. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að einfalda regluverk, auka skilvirkni og skýra betur ferli rammaáætlunar (verndar- og orkunýtingaráætlunar). Er m.a. byggt á tillögum starfshóps frá nóvember 2024 um endurskoðun á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Þá er lagt til að bundið sé í lög að ráðherra leggi fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun stjórnvalda um öflun raforku til næstu tíu ára og að hún sé höfð til hliðsjónar við flokkun virkjunarkosta í rammaáætlun. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (stefna um öflun raforku og aukin skilvirkni rammaáætlunar).

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála

    Samþykkt
    Áætlað: október· Endurflutt
    265. mál· Samþykkt· lagt fram 18. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem varða málsmeðferð og leyfisveitingar Umhverfis- og orkustofnunar. Markmiðið er að einfalda, stytta og samræma málsmeðferð stofnunarinnar og innleiða hugmyndafræði um einn viðkomustað (e. one-stop shop). Frumvarpinu er einnig ætlað að kveða á um samræmingu málsmeðferðarreglna í lögum, valdheimilda og annarra reglna vegna nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar sem tók til starfa 1. janúar 2025. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (takmörkun vindorkunýtingar o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    565. mál· Samþykkt· lagt fram 19. mar. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu er markaður rammi um hagnýtingu vindorku til raforkuframleiðslu innan verndar- og orkunýtingaráætlunar auk breytinga til innleiðingar stefnu stjórnvalda um raforkuöflun. Þá eru lagðar til frekari breytingar á lögunum til að tryggja betri virkni áætlunarinnar og samspil löggjafar um verndar- og orkunýtingaráætlun við náttúruverndarlög.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (takmörkun vindorkunýtingar o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (viðaukar o.fl.)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    308. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að gera nauðsynlegar uppfærslur á viðaukum við lögin sem lúta að úrvinnslugjaldi, m.a. til að tryggja samræmi við gildandi tollskrá og til að ná betur utan um flutningsumbúðir í þeim tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum flutningsumbúðum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (viðaukar o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr

    Samþykkt
    Áætlað: október· Endurflutt· EES-innleiðing
    192. mál· Samþykkt· lagt fram 17. okt. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    96/2023 (ETS). Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, til þess að tryggja rétta innleiðingu á m.a. tilskipun (ESB) 2023/959. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    596. mál· Samþykkt· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    98/2004 (jöfnunargjald). Með frumvarpinu er mælt fyrir um ýmsar breytingar sem miða að því að jafna til fulls dreifikostnað raforku um allt land og draga úr kostnaði ríkisins vegna jöfnunar. Jöfnunargjald er hækkað og lagt að hluta á stórnotendur raforku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um matvæli (eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    582. mál· Samþykkt· lagt fram 24. mar. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að fylgja eftir tillögum stýrihóps sem skilaði niðurstöðum í maí 2025. Hlutverk stýrihópsins var að koma með tillögu að nýju fyrirkomulagi eftirlits á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um matvæli (eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um náttúruvernd, lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og lögum um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (landtaka skemmtiferðaskipa, gjaldtaka o.fl. vegna Náttúruverndarstofnunar og bætt skilvirkni)

    Samþykkt
    Áætlað: febrúar· Endurflutt
    581. mál· Samþykkt· lagt fram 24. mar. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að takmarka með almennum hætti alla landtöku skemmtiferðaskipa á friðlýstum svæðum í umsjón ríkisins nema slíkt sé sérstaklega heimilað. Einnig er mælt fyrir um nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum til að samræma þau ákvæði sem gilda um gjaldtöku, málsmeðferð, þvingunarúrræði, kæruleiðir og eftirlit í tilefni af stofnun Náttúruverndarstofnunar. Auk þess eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi landsáætlunar til einföldunar. að hluta.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og lögum um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (landtaka skemmtiferðaskipa, gjaldtaka o.fl. vegna Náttúruverndarstofnunar og bætt skilvirkni).

  • Þingsályktunartillaga

    Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    102. mál· Samþykkt· lagt fram 18. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skal samkvæmt lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, gefa út náttúruminjaskrá á fimm ára fresti og birta með aug lýsingu í Stjórnartíðindum. Áður en náttúruminjaskrá er gefin út skal ráðherra leggja fram þingsályktun um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Á framkvæmdaáætlun eru skráðar þær náttúruminjar sem Alþingi ákveður að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun næstu fimm árin.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár.

  • Þingsályktunartillaga

    Breyting á verndar- og orkunýtingaráætlun (endurmatskostir)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember· Endurflutt
    307. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillagan er lögð fram í samræmi við 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Um er að ræða virkjunarkosti sem Alþingi óskaði eftir endurmati á í júní 2022. með breytingum.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um breytingu á verndar- og orkunýtingaráætlun (endurmatskostir).

  • Þingsályktunartillaga

    Verndar- og orkunýtingaráætlun (nýir kostir)

    Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    237. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillagan er lögð fram í samræmi við 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Lagt fram af settum ráðherra.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um verndar- og orkunýtingaráætlun (nýir kostir).

Utanríkisráðherra

8 af 8 komin fram

  • Frumvarp

    Verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja

    Samþykkt
    Áætlað: september
    210. mál· Samþykkt· lagt fram 21. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að gera nauðsynlegar breytingar til þess að Ísland geti fullgilt nýjan samning undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni utan lögsögu ríkja.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

  • Frumvarp

    Vegabréfsáritanir

    Samþykkt
    Áætlað: september· Endurflutt
    79. mál· Samþykkt· lagt fram 15. sep. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að einfalda stjórnsýslu við útgáfu vegabréfsáritana til að auka hagkvæmni og afkastagetu á því sviði svo íslensk stjórnvöld geti sjálf annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir í auknum mæli.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vegabréfsáritanir.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979 (mörk landgrunns)

    Samþykkt
    Áætlað: október
    315. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að uppfæra hnit vegna afmörkunar landgrunns Íslands í samræmi við niðurstöðu landsgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um Ægisdjúp og Reykjaneshrygg.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979 (mörk landgrunns).

  • Þingsályktunartillaga

    Fullgildingu uppfærðs fríverslunarsamnings milli EFTAríkjanna og Úkraínu, fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu og fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Kósóvó

    Samþykkt
    Áætlað: september
    156. mál· Samþykkt· lagt fram 6. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Fullgilding þjóðréttarsamnings.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu uppfærðs fríverslunarsamnings milli EFTAríkjanna og Úkraínu, fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu og fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Kósóvó.

  • Þingsályktunartillaga

    Varnar- og öryggisstefnu

    Samþykkt
    Áætlað: september
    215. mál· Samþykkt· lagt fram 23. okt. 2025· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum, draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað og getu, ásamt tillögum að umbótum á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um varnar- og öryggisstefnu.

  • Þingsályktunartillaga

    Fullgildingu samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun

    Samþykkt
    Áætlað: október
    219. mál· Samþykkt· lagt fram 31. okt. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Fullgilding þjóðréttarsamnings.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

  • Þingsályktunartillaga

    Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr

    Samþykkt
    Áætlað: október
    218. mál· Samþykkt· lagt fram 31. okt. 2025
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    71/2024, nr. 70/2025 og nr. 118/2025. Ákvörðun nr. 71/2024: Reglugerð (ESB) 2019/1238 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð. Ákvörðun nr. 70/2025: Reglugerð (ESB) 2019/2033 og tilskipun (ESB) 2019/2034 sem varða starfsemi verðbréfafyrirtækja. Ákvörðun nr. 118/2025: Reglugerð (ESB) 2023/606 sem breytir reglugerð (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Aflétting stjórnskipulegs fyrirvara.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)