Beint í efni
Alviti
154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 154. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

200

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 154. þings

Af málum sem komu fram voru 27 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 80 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 46. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing24. okt. 202633 af 1501
157. þing25. okt. 202545 af 1477
154. þing28. okt. 202324 af 2000
153. þing29. okt. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

5 af 5 komin fram

  • Frumvarp

    Almennar sanngirnisbætur

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september
    449. mál· Dagaði uppi· lagt fram 31. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu er mælt fyrir um bætur úr ríkissjóði til þeirra einstaklinga sem orðið hafa fyrir illri meðferð eða ofbeldi vegna háttsemi opinberra aðila hjá stofnunum ríkisins, sveitarfélögum eða af hálfu einkaaðila á grundvelli ákvörðunar eða samnings við opinberan aðila eða samkvæmt opinberu leyfi samkvæmt lögum sem valdið hefur þeim varanlegum skaða sem ekki fæst bættur á annan hátt. Gert er ráð fyrir að sérstök matsnefnd sanngirnisbóta taki við umsóknum, leggi mat á umsóknir og geri tillögu til sanngirnisbótanefndar um greiðslu sanngirnisbóta til einstaklinga sem falla undir gildissvið frumvarpsins. Sanngirnisbótanefnd taki síðan endanlega ákvörðun hverju sinni um greiðslu bóta til einstaklinga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um almennar sanngirnisbætur.

  • Frumvarp

    Rýni á beinum erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: nóvember
    726. mál· Dagaði uppi· lagt fram 20. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu er mælt fyrir um heimildir stjórnvalda til að meta og taka afstöðu til fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi með tilliti til sjónarmiða um þjóðaröryggi, sbr. ábendingar í skýrslu stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir (maí 2021) og löggjöf um þetta efni annars staðar á Norðurlöndum og á Evrópska efnahagssvæðinu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

Dómsmálaráðherra

9 af 20 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (reikningshald Kirkjugarðasjóðs o.fl.)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september· Endurflutt
    316. mál· Dagaði uppi· lagt fram 6. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til breyting á 5. mgr. 40. gr. laganna um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, þess efnis að reikningshald Kirkjugarðasjóðs verði fært frá skrifstofu biskups til kirkjugarðaráðs, sem bera mun ábyrgð á reikningshaldi sjóðsins og því hvernig haldið er utan um fé hans. Jafnframt verði felld brott tvö ákvæði er snúa að Bálfararfélagi Íslands sem hefur verið lagt niður og ekki starfað í um 60 ár.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (reikningshald Kirkjugarðasjóðs o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um aðför, nr. 90/1989, og lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991 (stafræn málsmeðferð)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: nóvember
    926. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að tryggja lagalegan grundvöll stafrænnar málsmeðferðar í málum sem varða innheimtu fjárkrafna, þ.e. fjárnámsmálum og nauðungarsölumálum, sem koma til meðferðar hjá dómstólum og sýslumannsembættum. Í því felst að veita sýslumönnum og dómstólum heimild í lögum til stafrænnar málsmeðferðar og gera mögulegt að sleppa óþarfa fyrirtökum í þessum málum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðför, nr. 90/1989, og lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991 (stafræn málsmeðferð).

  • Frumvarp

    Breyting á lögræðislögum, nr. 71/1997 (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: janúar
    925. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér endurskoðun á lögræðislögum, m.a. í þeim tilgangi að gera ákvæði laganna um nauðungarvistanir skýrari og skerpa á ýmsum reglum um sviptingu lögræðis, um hlutverk lögráðamanna og reglum um eftirlit og heimildir yfirlögráðenda. Með frumvarpinu er m.a. stefnt að því að koma til móts við ábendingar alþjóðlegra eftirlitsaðila, umboðsmanns Alþingis og fagaðila um breytingar á lögunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögræðislögum, nr. 71/1997 (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.).

Fjármála- og efnahagsráðherra

15 af 31 komin fram

  • Frumvarp

    Þjóðarsjóð

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: október· Endurflutt
    881. mál· Dagaði uppi· lagt fram 22. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Sjóðurinn verður eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll. Honum verður falið að annast um uppsöfnun á nánar skilgreindum tekjum rí kissjóðs og úthlutanir verða háðar aðkomu Alþingis í formi þingsályktunartillögu og fjárlagaheimildar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um þjóðarsjóð.

Heilbrigðisráðherra

12 af 13 komin fram

  • Frumvarp

    Sóttvarnalaga (heildarlög)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september· Endurflutt
    867. mál· Dagaði uppi· lagt fram 19. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögunum í kjölfar heildarendurskoðunar á lögunum sem ráðist var í veturinn 2021-2022 með hliðsjón af fenginni reynslu eftir heimsfaraldur SARS- CoV-2-veirunnar. Breytingar frá gildandi lögum varða einkum stjórnsýslu sóttvarna, feril ákvarðana um opinberar sóttvarnaráðstafanir og aukna aðkomu Alþingis að þeim.

    Heiti á skránni: Frumvarp til sóttvarnalaga (heildarlög).

  • Frumvarp

    Breyting á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (upplýsingar um birgðastöðu)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september· Endurflutt
    224. mál· Dagaði uppi· lagt fram 20. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður lagt til að gerð verði breyting á lögum til að setja lagastoð fyrir upplýsingasöfnun og upplýsingagjöf um birgðir allra lyfja, þ.m.t. undanþágulyfja sbr. 12. gr. lyfjalaga og mikilvægra lækningatækja hér á landi frá öllum aðilum sem halda þessar birgðir. Frumvarp þetta er m.a. liður í innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki og fyrsta viðbragð heilbrigðisráðherra við skýrslu starfshóps um neyðarbirgðir sem forsætisráðuneytið gaf út í ágúst 2022.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (upplýsingar um birgðastöðu).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: október
    1105. mál· Dagaði uppi· lagt fram 8. maí 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindi sjúklinga sem fela meðal annars í sér meginreglu um bann við beitingu nauðungar en einnig undanþág ur frá meginreglunni þegar brýna nauðsyn ber til að beita nauðung að uppfylltum skilyrðum sem skilgreind eru í frumvarpinu. Enn fremur eru með frumvarpinu lagðar til strangari málsmeðferðarreglur en nú gilda sem fylgja þarf við og í kjölfar slíkra inngripa, þ.m.t. skráningarskyldu tilvika, kæruheimildir og rétt til að bera mál undir dómstóla.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (heilbrigðisskrár o.fl.)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: nóvember
    907. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu verður lagt til að settur verði nýr kafli í lög um landlækni og lýðheilsu þar sem kveðið verður með ítarlegum hætti á um þær heilbrigðisskrár sem landlæknir skal setja, skipuleggja og halda. Þörf er á að uppfæra núgildandi ákvæði um heilbrigðisskrár í takt við breyttar aðstæður í heilbrigðiskerfinu og þær skrár sem haldnar eru, svo sem meðferðartengdar heilbrigðisskrár og gæðaskrár og veita skipulagningu slíkra skráa fullnægjandi lagastoð, svo sem m.t.t. persónuverndar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (heilbrigðisskrár o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 (ýmsar breytingar)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: mars
    908. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Breytingunum er m.a. ætlað að lögfesta atriði er varða vinnslu persónuupplýsinga og breyta orðalagi sem á ekki lengur við gildandi framkvæmd, svo sem varðandi réttindagreiðslur. Þá verða lagðar til breytingar á ákvæðum kaflans sem varða aðgerðir Sjúkratrygginga Íslands vegna vanefnda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008 (ýmsar breytingar).

Innviðaráðherra

16 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september
    478. mál· Dagaði uppi· lagt fram 9. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að ræða þar sem reglur um starfsemi sjóðsins verða fluttar úr lögum um tekjustofna sveitarfélaga í ný heildarlög. Einnig verður lögð til sú breyting að nokkur af helstu framlögum sjóðsins verða sameinuð í eitt framlag. Hlutverk sjóðsins verði áfram að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþága frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september· Endurflutt
    314. mál· Dagaði uppi· lagt fram 6. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er liður í samhæfingu aðgerða stjórnvalda vegna málefna umsækjenda um alþjóðlega vernd og hefur að markmiði að bregðast við bráðavanda í húsnæðismálum þess hóps. Frumvarpinu er ætlað að greiða fyrir því að stjórnvöld geti nýtt húsnæði sem er þegar fyrir hendi á húsnæðismarkaði en sem ekki hefur verið ætlað til búsetu undir tímabundin búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd án þess að afla þurfi byggingarleyfis fyrir breyttri notkun húsnæðisins til búsetu eða ráðast í breytingar á aðal- eða deiliskipulagi hlutaðeigandi sveitarfélags, enda uppfylli húsnæðið nánar skilgreind skilyrði um öryggi, brunavarnir og hollustuhætti sem og um gæði nærumhverfis.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþága frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi.

  • Þingsályktunartillaga

    Samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: september
    315. mál· Dagaði uppi· lagt fram 6. okt. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Fimmtán ára stefnumótandi samgönguáætlun ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Matvælaráðherra

5 af 13 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna lagareldis (stefnumótun í lagareldi)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar
    930. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða stefnumótun lagareldis, m.a. á lögum um fiskeldi, nr. 71/2008, lögum um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, nr. 89/2019, og lögum um varnir gegn fiskisjúkdómum, nr. 60/2006.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lagareldis (stefnumótun í lagareldi).

Menningar- og viðskiptaráðherra

12 af 24 komin fram

  • Frumvarp

    Markaðssetningarlaga

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar· EES-innleiðing
    1077. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laga um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, nr. 141/2001, laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, laga um Neytendastofu, nr. 62/2005, og laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 20/2020. Markmið endurskoðunarinnar er að tryggja góða neytendavernd, tryggja bætt samræmi við EES-rétt, auka skýrleika og létta reglubyrði. Frumvarpið felur einnig í sér innleiðingu á hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd (tilskipun um nútímavæðingu).

    Heiti á skránni: Frumvarp til markaðssetningarlaga.

  • Þingsályktunartillaga

    Uppbyggingu á söguslóðum

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar
    941. mál· Dagaði uppi· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillögunni er ætlað að styðja við framþróun og eflin gu íslenskra sögustaða sem mikilvægra áfangastaða ferðamanna sem og gildi þeirra fyrir íslenskan menningararf.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um uppbyggingu á söguslóðum.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

11 af 28 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi)

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar
    348. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. okt. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða tillögur starfshópa sem fjallað hafa um orkuöryggi útfærðar með frekari hætti. Gerðar verða tillögur um skyldur aðila á raforkumarkaði sem og almenn og sértæk úrræði í þágu raforkuöryggis almennings.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi).

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: janúar
    899. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í 39. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, með síðari breytingum, segir að ráðherra skuli á fjögurra ára fresti leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Með þessum hætti getur Alþingi lagt fram ákveðnar meginreglur og viðmið sem taka ber mið af við gerð kerfisáætlunar á hverjum tíma, enda er í raforkulögum kveðið á um að flutningsfyrirtækið skuli taka tillit til hennar. Kerfisáætlunin er annars vegar langtímaáætlun til tíu ára og hins vegar framkvæmdaáætlun til þriggja ára. Í tillögu að uppfærðri þingsályktun verður tekið mið af stöðu verkefna sem tilgreind eru í núgildandi þingsályktun sem og orkustefnu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)