Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Þingmálaskrá ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fyrir 157. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 157. þings
Af málum sem komu fram var 51 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 64 seinna en áætlað var.
Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga
Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.
- 158. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur · yfirstandandi1% samþykkt · 1 af 1501 samþykkt32 í vinnslu117 ekki komið fram
- 157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur62% samþykkt · 91 af 14791 samþykkt24 dagaði uppi eða fellt32 kom aldrei fram
- 154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur44% samþykkt · 88 af 20088 samþykkt19 dagaði uppi eða fellt93 kom aldrei fram
- 153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur34% samþykkt · 50 af 14950 samþykkt7 dagaði uppi eða fellt92 kom aldrei fram
| Þing | Dagsetning | Lögð fram | Samþykkt |
|---|---|---|---|
| 158. þing | 24. okt. 2026 | 33 af 150 | 1 |
| 157. þing | 25. okt. 2025 | 45 af 147 | 7 |
| 154. þing | 28. okt. 2023 | 24 af 200 | 0 |
| 153. þing | 29. okt. 2022 | 23 af 149 | 0 |
155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Forsætisráðherra
2 af 3 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTAdómstólsins)
Áætlað: september· Endurflutt143. mál· Dagaði uppi· lagt fram 25. sep. 2025Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpi þessu er lagt til að bætt verði við stjórnsýslulög, nr. 37/1993, ákvæði þess efnis að þær sjálfstæðu stjórnsýslunefndir sem fást við úrlausn stjórnsýslukæra geti leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins, eins og lög nr. 21/1994 mæla fyrir um að dómstólar geti gert. Lagt er til að ákvæðið verði hluti af VII. kafla stjórnsýslulaga, sem inniheldur almennar reglur um stjórnsýslukærur og málsmeðferð í kærumálum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTAdómstólsins).
Atvinnuvegaráðherra
11 af 14 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög)
Áætlað: október374. mál· Dagaði uppi· lagt fram 18. des. 2025· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum til að styrkja stöðu frumframleiðenda landbúnaðarvara.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (framleiðendafélög).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (SRD II)
Áætlað: október· EES-innleiðing604. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (SRD II).
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (SRD II).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar (bætt lagaumgjörð)
Áætlað: febrúar530. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem hafa það að markmiði að styrkja lagaumgjörð um lax- og silungsveiði og fiskrækt í ám og vötnum. Frumvarpið tekur m.a. til breytinga á lögum um lax- og silungsveiði, 61/2006, lögum um fiskrækt, nr. 58/2006, og lögum um Fiskræktarsjóð, nr. 72/2008.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar (bætt lagaumgjörð).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Lagareldi
Áætlað: febrúar529. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um lagareldi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um lagareldi.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestir o.fl.)
Áætlað: mars· EES-innleiðing556. mál· Dagaði uppi· lagt fram 17. mar. 2026Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á breytingum á ársreikningatilskipun ESB varðandi stærðarmörk félaga o.fl. Stærðarmörk félaga í lögum um ársreikninga eru þau sömu innan EES og er með frumvarpinu verið að hækka þau til samræmis við nýlegar breytingar innan ESB.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestir o.fl.).
Dómsmálaráðherra
13 af 18 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Almannavarnir
Áætlað: október287. mál· Dagaði uppi· lagt fram 21. nóv. 2025· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um almannavarnir sem koma í stað gildandi laga um almannavarnir, nr. 82/2008. Eitt meginmarkmið þess er að auka vægi fyrirbyggjandi aðgerða í þeim tilgangi að efla viðbúnað og áfallaþol í samfélaginu. Grunnur að góðu almannavarnakerfi er áfallaþolið samfélag þar sem öll svið samfélagsins eru í stakk búin til að takast á við fjölbreyttar áskoranir með samhæfðum hætti. Þá er markmið frumvarpsins að skyldur og ábyrgð allra sem vinna að almannavörnum, þ.m.t. ríkis, sveitarfélaga og viðbragðsaðila, verði gerðar skýrari hvort sem um er að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir, aðgerðir sem gripið er til á hættustundu eða við endurreisn. Í frumvarpinu er endurreisn einnig gefið aukið vægi með það að markmiði að endurspegla mikilvægi þess í heildarskipulagi almannavarna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um almannavarnir.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (verndarsamkomulag ESB)
Áætlað: janúar603. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um útlendinga vegna innleiðingar á Schengen-skuldbindingum Íslands í tengslum við svokallað verndarsamkomulag Evrópusambandsins sem tekur gildi á sama tíma á öllu Schengen-svæðinu í júní 2026. Innleiða þarf hluta svokallaðrar AMMR-reglugerðar (e. regulation on asylum and migration management) sem leysir Dyflinnarreglugerðina af hólmi. Þá þarf að uppfæra fingrafaragagnagrunn Eurodac og innleiða ákvæði svokallaðrar krísureglugerðar (e. regulation addressing situations of crisis and force majeure in the field of migration and asylum) sem veitir heimildir til að víkja frá ákvæðum AMMR-reglugerðarinnar í krísuástandi. Þá verður einnig metið hvort aðrar gerðir verði jafnframt felldar inn í lög um útlendinga svo innlent regluverk samræmist reglum nágrannaríkja.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (verndarsamkomulag ESB).
Félags- og húsnæðismálaráðherra
13 af 16 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÞingsályktunartillaga
Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026– 2029
Áætlað: mars597. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda er lögð fram til fjögurra ára í senn á grundvelli 7. gr. laga um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, og nær gildandi áætlun til ársloka 2025. Verkefni áætlunarinnar miða almennt að því að ná fram markmiðum fyrrnefndra laga og stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026– 2029.
Fjármála- og efnahagsráðherra
21 af 24 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (erlendar fjárfestingar í nýsköpun)
Áætlað: september· Endurflutt173. mál· Dagaði uppi· lagt fram 9. okt. 2025· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í frumvarpinu verður lögð til breyting á lögum um tekjuskatt með það að markmiði að einfalda regluverk þegar kemur að erlendri fjárfestingu í íslenskum félögum og þá einkum til að auðvelda fjármögnun í nýsköpun.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (erlendar fjárfestingar í nýsköpun).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja
Áætlað: nóvember· EES-innleiðing587. mál· Dagaði uppi· lagt fram 26. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2019/2033 og tilskipun (ESB) 2019/2034 sem fjalla um verðbréfafyrirtæki. Með gerðunum er regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum í megindráttum skilið frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Aðskilnaðinum er ætlað að gera regluverkinu kleift að taka betur mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.
Heilbrigðisráðherra
9 af 11 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á ýmsum lögum (viðbrögð við lyfjaskorti)
Áætlað: janúar537. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lyfjalögum, nr. 100/2020, sem teljast nauðsynlegar miðað við þá reynslu sem komin er síðan lögin tóku gildi. Frumvarpið felur m.a. í sér heimildir fyrir Lyfjastofnun til að bregðast við lyfjaskorti og lágmarka áhrif hans á sjúklinga, breytingar á ákvæðum er varða undanþágulyf, ákvæði um lyfjafræðilega þjónustu í lyfjabúðum, ákvæði sem heimilar lyfjafræðingum að ávísa bóluefnum, viðurlagaákvæði og breytingar á framkvæmd ákvarðana um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjum. Frumvarpið felur einnig í sér breytingar á lögum um dýralyf, nr. 14/2022, og lögum um lækningatæki, nr. 132/2020.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (viðbrögð við lyfjaskorti).
- Dagaði uppi eða felltÞingsályktunartillaga
Landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma og einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu
Áætlað: janúar566. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með vísan til áherslna vinnuhóps sem lagðar voru fram í skýrslu um sjaldgæfa sjúkdóma og starfshóps um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu verður lögð fram tillaga til þingsályktunar um landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma og stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu. Áætluninni er ætlað að vera leiðbeinandi um þjónustu til þeirra sem falla undir skilmerki um sjaldgæfa sjúkdóma og aðstandendur þeirra og innleiða stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma og einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu.
Innviðaráðherra
10 af 14 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um fjarskipti og lögum um Fjarskiptastofu (gildissvið laga um fjarskipti og helgunarsvæði sæstrengja)
Áætlað: október601. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að gildissviðsákvæði laga um fjarskipti verði bætt vegna framtíðartækni sem koma skal, þá þarf að skerpa á helgunarsvæði sæstrengja í lögum og skýra orðalag í því samhengi. Þá er lagt til að bætt verði inn heimild í lög um Fjarskiptastofnun til að innheimta auðlindagjald fyrir úthlutun á tíðni 40,5-43,5 GHz fyrir jarðbundin fjarskiptakerfi sem veita þráðlausar breiðbands fjarskiptaþjónustur í Evrópusambandinu skv. framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/1983.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti og lögum um Fjarskiptastofu (gildissvið laga um fjarskipti og helgunarsvæði sæstrengja).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (endurskoðun almennra reglna)
Áætlað: október505. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í þingsályktun nr. 2/154 um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 er lagt til í aðgerð tvö í aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028, að ákveðnir kaflar sveitarstjórnarlaga verði endurskoðaðir til að fylgja eftir framþróun í starfsemi sveitarfélaga og til að tryggja að ákvæði laganna séu skýr og aðgengileg. Lagðar verða til breytingar á almennum reglum sem varða stjórnsýslu sveitarfélaga, íbúasamráð, samvinnu sveitarfélaga, fjármál og reikningsskil sveitarfélaga, starfshætti kjörinna fulltrúa, eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga, atvinnuþátttöku sveitarfélaga o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (endurskoðun almennra reglna).
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Leiðarmerki og öryggi siglinga
Áætlað: október570. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar frá fyrri lögum til að tryggja öryggi siglinga þar sem staðsetning mannvirkja á hafi, s.s. fiskeldiskvía, sæstrengja, neðansjávarleiðsla og annarra hafstöðva, hefur aukist til muna. Koma þarf í veg fyrir að þessi þróun dagi úr öryggi siglinga. Þær stofnanir sem bera ábyrgð á öryggi siglinga á hafinu umhverfis Ísland, Vegagerðin, Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands, hafa kallað eftir þessum breytingum og fært rök fyrir mikilvægi þeirra. Aðrar breytingar sem stefnt er að með frumvarpinu snúa m.a. að uppfærslu skilgreininga í samræmi við skilgreiningar Alþjóðastofnunar um leiðarmerki á sjó, ábyrgð og heimildir Vegagerðarinnar og Samgöngustofu varðandi leiðarmerki skýrð og heimild ráðherra til að setja reglugerðir tryggð, m.a. um umferð tiltekinna tegunda skipa á ákveðnum svæðum og notkun tiltekinna veiðarfæra og akkerislegu. Aðkoma Samgöngustofu og Vegagerðarinnar að gerð strandsvæðisskipulags vegna ábyrgðarhlutverks stofnananna varðandi öryggi siglinga er tryggð.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Netöryggisstofnun Evrópu og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja
Áætlað: febrúar· EES-innleiðing571. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/881 um Netöryggisstofnun Evrópu (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja og niðurfellingu á reglugerð (ESB) 526/2013, sem birt er í EES -viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Netöryggisstofnun Evrópu og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
9 af 12 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og tungu
Áætlað: október318. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. des. 2025· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér að sett verði ný heildarlög sem miða að því að innlendum og erlendum streymisveitum, með staðfestu innan EES og starfsemi á íslenskum fjölmiðlamarkaði, verði gert að greiða tiltekið hlutfall af heildartekjum af starfsemi þeirra á Íslandi, svokallað menningarframlag. Menningarframlag verði í formi skatts af heildartekjum streymisveitna af sölu áskrifta á Íslandi að frádregnum kostnaði við beina fjárfestingu í framleiðslu á innlendu efni. Tilgangurinn er að auka fjárfestingu í innlendri sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu og jafna samkeppnisumhverfi innlendra fjölmiðla gagnvart erlendum streymisveitum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og tungu.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (EES-reglur, tilskipun um höfundarrétt á stafrænum markaði og tilskipun um netútsendingar og endurvarp)
Áætlað: mars· EES-innleiðing599. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Um er að ræða innleiðingu á tilskipun (ESB) 2019/790 Evrópuþingsins og ráðsins frá 17. apríl 2019 um höfundarrétt og skyld réttindi á stafrænum innri markaði („DSM tilskipunin“ - Directive on copyright and related rights in the Digital Single Market) og tilskipun (ESB) 2 019/789 um höfundarrétt og skyld réttindi sem tengist ákveðnum netútsendingum og endurútsendingum sjónvarps- og útvarpsdagskráa („netútsendingatilskipunin“). Tilskipanirnar verða innleiddar með breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972. Tilskipanirnar voru teknar upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar þann 8. desember 2023. Sú ákvörðun hefur þó ekki tekið gildi þar sem Ísland hefur ekki aflétt stjórnskipulegum fyrirvara en ríki hafa almennt sex mánuði til þess frá upptöku gerða í EES-samninginn.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (EES-reglur, tilskipun um höfundarrétt á stafrænum markaði og tilskipun um netútsendingar og endurvarp).
Mennta- og barnamálaráðherra
4 af 7 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Barnavernd
Áætlað: nóvember580. mál· Dagaði uppi· lagt fram 24. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um barnavernd. Breytingar frá eldri barnaverndarlögum felast meðal annars í nýjum ákvæðum um meðferð barnaverndarmála, þvingunarráðstafanir í úrræðum barnaverndaryfirvalda og fylgdarlaus börn. Þá felur frumvarpið í sér endurskoðun reglna um stuðningsúrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra á vegum barnaverndar- og félagsþjónustu. Með frumvarpinu eru jafnframt boðaðar nauðsynlegar lagabreytingar vegna þjónustu við börn með flóknar og fjölþættar stuðningsþarfir.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um barnavernd.
- Dagaði uppi eða felltÞingsályktunartillaga
Stefna og framkvæmdaáætlun um farsæld barna
Áætlað: nóvember579. mál· Dagaði uppi· lagt fram 24. mar. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Samkvæmt 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar laga, nr. 86/2021, skal mennta- og barnamálaráðherra leggja fram, sem tillögu til þingsályktunar, stefnu og framkvæmdaáætlun um verkefni ríkisins sem varða farsæld barna til fjögurra ára.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
15 af 20 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Loftslagsmál
Áætlað: október595. mál· Dagaði uppi· lagt fram 1. apr. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, þ.m.t. stjórnsýslu loftslagsmála.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um loftslagsmál.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr
Áætlað: nóvember499. mál· Dagaði uppi· lagt fram 26. feb. 2026· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
49/1997 (nýting eigna á hættusvæðum o.fl.). Með frumvarpinu verður mælt fyrir um nauðsynlegar breytingar á lögunum til að skýra og styrkja framkvæmd þeirra í ljósi reynslunnar, styrkja umgjörð ofanflóðavarna og sporna gegn dvöl fólks utan leyfilegs nýtingartíma í húseignum á hættusvæðum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr.
Utanríkisráðherra
8 af 8 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35)
Áætlað: september· Endurflutt3. mál· Dagaði uppi· lagt fram 10. sep. 2025Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að gera nauðsynlegar breytingar til þess að bæta innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn og tryggja fulla virkni hans hér á landi í þágu einstaklinga og lögaðila.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35).
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
- Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)