Beint í efni
Alviti
Þingmál145. þing · 229. mál

Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni

Heildarlög

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 20. okt. 2015

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 145. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að stuðla að vandaðri framkvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni.

Lagt fram af Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
13. október 2015
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
45 ræður · 3 klst. 16 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. okt. 2016

Markmiðið

Að stuðla að vandaðri framkvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni.

Hvað breytist

Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni verður heimiluð. Sérstök nefnd mun veita leyfi til staðgöngumæðrunar. Sett eru skilyrði sem staðgöngumóðir þarf að uppfylla og kveðið á um skilyrði fyrir væntanlega foreldra. Óheimilt verður að nota kynfrumur staðgöngumóður og skylt verður að nota kynfrumu frá að minnsta kosti öðru væntanlegra foreldra. Barni er tryggður réttur til að þekkja uppruna sinn.

Lög sem breytast

Lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna nr. 55/1996. Barnalög nr. 76/2003. Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 4 milljónir króna árið 2017 en um 3,5 milljónir króna á ári eftir það.

Meira úr samantektinni

Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun. Heilbrigðisráðuneytið, 5. febrúar 2010.

Hrefna Friðriksdóttir. Ættleiðingar á Íslandi : í þágu hagsmuna barns. Innanríkisráðuneytið, mars 2011.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af adoptionsloven LBK nr 1084 af 07/10/2014.

Grein 33: Formidling af surrogatmoderskab.

Bekendtgørelse af lov om assisteret reproduktion i forbindelse med behandling, diagnostik og forskning m.v. LBK nr 93 af 19/01/2015.

Sjá kafla 3 gr. 13.

Noregur

Lov om humanmedisinsk bruk av bioteknologi m.m. (bioteknologiloven). LOV-2003-12-05-100.

Midlertidig lov om overføring av foreldreskap for barn i Norge født av surrogatmor i utlandet mv. LOV-2013-03-08-9 Lögin gilda til 31. desember 2015.

Lov om norsk statsborgerskap (statsborgerloven) LOV-2005-06-10-51.

Kafli 2, gr. 5a.

Svíþjóð

Lag (2006:351) om genetisk integritet m.m.

Sjá 6. kap. Insemination og 7. kap. Befruktning utanför kroppen.

Finnland

Lag om assisterad befruktning 22.12.2006/1237.

Sjá 2. kafla 8. gr. lið 6.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Unnur Brá Konráðsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 3 umsagnabeiðnir
Sendu inn umsögn eða erindi
23 aðilar
Vísindasiðanefnd, Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, Barnaheill, Persónuvernd, Læknafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
3 klst. 16 mín · 45 ræður
13 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 4 milljónir króna árið 2017 en um 3,5 milljónir króna á ári eftir það.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 7 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    45 ræður · 3 klst. 16 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar
    3 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
245Stjórnarfrumvarp13. okt. 2015Kristján Þór JúlíussonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur20. október 2015 kl. 17:32
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd20. október 2015 kl. 17:32
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

45 ræður · 3 klst. 16 mín
  • 1. umræða: 45 ræður · 13 ræðumenn · 3 klst. 16 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka115 mín
Fjóla Hrund BjörnsdóttirFramsóknarflokkur21 mín
Jóhanna María SigmundsdóttirFramsóknarflokkur58 mín
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka320 mín
Katrín JúlíusdóttirSamfylkingin49 mín
Kristján L. MöllerSamfylkingin420 mín
Kristján Þór JúlíussonSjálfstæðisflokkur314 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka524 mín
Páll Valur BjörnssonUtan þingflokka415 mín
Sigríður Ingibjörg IngadóttirSamfylkingin724 mín
Steingrímur J. SigfússonUtan þingflokka217 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka316 mín
Valgerður BjarnadóttirSamfylkingin213 mín

Umsagnir og erindi

23 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 3 umsagnabeiðnir 23. okt. 2015.

Hver sendiTegundBarstSkjal
VísindasiðanefndumsögnOpna PDF
Siðfræðistofnun Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Læknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
JafnréttisstofaumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Jónína Einarsdóttir prófessor í þróunarfræðumumsögnOpna PDF
Guðmundur Pálsson sérfræðingurumsögnOpna PDF
Hvítasunnukirkjan FíladelfíaumsögnOpna PDF
Tilvera, samtök um ófrjósemiumsögnOpna PDF
RIKK - Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Sálfræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Staðganga - stuðningsfélagumsögnOpna PDF
Félag íslenskra hjúkrunarfræðingaumsögnOpna PDF
Bahá´í samfélagiðumsögnOpna PDF
LandlæknisembættiðumsögnOpna PDF
Samtökin '78umsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF
Óháði söfnuðurinnumsögnOpna PDF

Tengd mál

  • 4. mál (140. þing, ekki í Alviti enn)skylt
  • 671. mál (144. þing, ekki í Alviti enn)tengt

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)