Beint í efni
Alviti
Þingmál145. þing · 606. mál

Menningarminjar o.fl.

Þjóðminjastofnun

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 14. mar. 2016

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 145. þingi. (Beið 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Sameining stofnana til að efla fagumhverfi og stjórnsýslu á málefnasviðinu.

Lagt fram af Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
14. mars 2016
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
136 ræður · 5 klst. 37 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. mar. 2016

Markmiðið

Sameining stofnana til að efla fagumhverfi og stjórnsýslu á málefnasviðinu.

Hvað breytist

Lagt er til að Þjóðminjasafn Íslands og Minjastofnun Íslands verði sameinuð í eina stofnun, Þjóðminjastofnun. Þjóðminjasafnið verði áfram til sem höfuðsafn og að um það gildi sérlög. Verkefni sem lúta að friðlýsingu húsa og mannvirkja og afnámi slíkrar friðlýsingar færast til ráðherra, sem og verkefni Minjastofnunar Íslands.

Skýrar er kveðið á um hvaða skilyrði sé heimilt að setja fyrir veitingu leyfa til fornleifarannsókna og mælt fyrir um menntunarkröfur til þeirra sem stjórna leyfisskyldum fornleifarannsóknum. Einnig er kveðið á um skil fyrri rannsókna áður en ný rannsóknaleyfi eru veitt.

Lög sem breytast

Lög um menningarminjar, nr. 80/2012. Lög um Þjóðminjasafn íslands, nr. 140/2011. Lög um verndrsvæði í byggð, nr. 87/2015. Lög um skil menningarverðmæta til annarra landa, nr. 57/2011. Lög um mannvirki, nr. 160/2010. Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.

Kostnaður fyrir ríkið

Talið er að ávinningur í sameinuðum rekstri gæti numið 4,1% af samanlögðum rekstrarútgjöldum fyrir árið 2015 eða alls 47,0 milljónum króna á ársgrundvelli.

Meira úr samantektinni

Þjóðminjasafn Íslands.

Minjastofnun Íslands.

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins 22. maí 2013.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Umræða í þingsal
5 klst. 37 mín · 136 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Talið er að ávinningur í sameinuðum rekstri gæti numið 4,1% af samanlögðum rekstrarútgjöldum fyrir árið 2015 eða alls 47,0 milljónum króna á ársgrundvelli.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 7 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    136 ræður · 5 klst. 37 mín

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
986Stjórnarfrumvarp14. mar. 2016Sigmundur Davíð GunnlaugssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

136 ræður · 5 klst. 37 mín
  • 1. umræða: 136 ræður · 15 ræðumenn · 5 klst. 37 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Unnur Brá KonráðsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Frosti SigurjónssonFramsóknarflokkur22 mín
Helgi HjörvarSamfylkingin34 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur58 mín
Ólína Kjerúlf ÞorvarðardóttirSamfylkingin620 mín
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka729 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka727 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonFramsóknarflokkur720 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin1015 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka1132 mín
Guðmundur SteingrímssonUtan þingflokka1234 mín
Brynhildur PétursdóttirUtan þingflokka1231 mín
Björn Valur GíslasonUtan þingflokka1437 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka1624 mín
Valgerður BjarnadóttirSamfylkingin2352 mín

Umsagnir og erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Engar umsagnir hafa borist.

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.