Beint í efni
Alviti
Þingmál148. þing · 93. mál

Afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár

EES-reglur

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 23. mar. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að auka gagnsæi í afleiðuviðskiptum, draga úr kerfisáhættu, sem getur stafað af slíkum viðskiptum, og stuðla að fjármálastöðugleika.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 23. mar. 2018 greiddu 50 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
22. janúar 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
9
Umræða í þingsal
22 ræður · 1 klst. 9 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. mar. 2018

Markmiðið

Að auka gagnsæi í afleiðuviðskiptum, draga úr kerfisáhættu, sem getur stafað af slíkum viðskiptum, og stuðla að fjármálastöðugleika.

Hvað breytist

Með samþykkt frumvarpsins yrði reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC (over-the-counter)-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár (European Market Infrastructure Regulation, EMIR) innleidd í íslensk lög. Lagt er til að tilkynnt skuli um afleiðusamninga til afleiðuviðskiptaskrár, sem er nýr starfsleyfisskyldur aðili á fjármálamarkaði sem safnar saman og viðheldur gögnum um afleiður. Einnig er lagt til að stöðustofna skuli tiltekna OTC-afleiðusamninga hjá miðlægum mótaðila, þ.e. þá samninga sem eru afleiðusamningar sem ekki eru með viðskipti á skipulegum verðbréfamarkaði. Með stöðustofnun er átt við ferlið við að stofna stöður, þ.m.t. útreikning á hreinni skuldbindingu, og við að tryggja að fjármálagerningar, reiðufé, eða hvort tveggja, sé til staðar til að tryggja áhættuskuldbindingar sem leiðir af stöðunum. Miðlægur mótaðili er nýr starfsleyfisskyldur aðili á fjármálamarkaði sem stillir sér upp á milli aðila og verður nýr kaupandi gagnvart hverjum seljanda og öfugt. Hann gerir kröfur um tryggingar til að lágmarka áhættu við uppgjör og kemur þannig í veg fyrir keðjuverkun vanskila á markaði. Að auki eru gerðar nýjar kröfur um áhættustýringu vegna allra tvíhliða OTC-afleiðna sem ekki eru stöðustofnaðar miðlægt. Enn fremur myndi samþykkt frumvarpsins skapa umgjörð um starfsemi miðlægra mótaðila og afleiðuviðskiptaskráningar.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög, en með gildistöku laganna verða breytingar á lögum um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum, nr. 90/1999.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að verkefni Fjármálaeftirlitsins muni aukast sem nemur ½–1 stöðugildi miðað við núverandi aðstæður eða sem samsvarar 8–16 milljónum kr. á ársgrundvelli.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
23. mar. 2018
Samþykkt50 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S12–0
  • 239–0
  • F7–0
  • M5–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • Flf3–0
  • V3–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 22. feb. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Persónuvernd, Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsins, Kauphöll Íslands hf., Fjármálaeftirlitið o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 9 mín · 22 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að verkefni Fjármálaeftirlitsins muni aukast sem nemur ½–1 stöðugildi miðað við núverandi aðstæður eða sem samsvarar 8–16 milljónum kr. á ársgrundvelli.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 23. mars 2018: 50 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með4 tóku til máls

46 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    21 ræða · 1 klst. 3 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 22. febrúar 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 6 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 0 á móti
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
160Stjórnarfrumvarp22. jan. 2018Bjarni BenediktssonLesaPDF
549Nál. með brtt.16. mar. 2018Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +6LesaPDF
600Frumvarp eftir 2. umræðu28. mar. 2018—LesaPDF
635Lög (samhlj.)23. mar. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

12 alls · 9 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

22 ræður · 1 klst. 9 mín
  • 1. umræða: 21 ræða · 3 ræðumenn · 1 klst. 3 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 6 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 8. feb. 2018, frestur 22. feb. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Kauphöll Íslands hf.umsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)