Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 345. mál

Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019--2023

ÞingsályktunartillagaSamþykktAlþjóðasamningar og utanríkismál

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 2. maí 2019

Alþingi hefur samþykkt tillöguna sem ályktun Alþingis. Hún breytir ekki lögum.

Allur ferillinn

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem ályktun Alþingis.“

Í stuttu máli

Þingsályktunartillaga lýsir vilja Alþingis eða felur ríkisstjórninni verkefni. Hún breytir ekki lögum.

Lagt fram af Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í síðustu atkvæðagreiðslu með skráðum atkvæðum 2. maí 2019 greiddu 47 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
14. nóvember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
3
Umræða í þingsal
34 ræður · 2 klst. 47 mín

Málið á mannamáli

Einföld útskýring er ekki tilbúin fyrir þetta mál. Þegar samantekt Alþingi eða yfirfarin útskýring Alviti liggur fyrir birtist hún hér.

Hvers konar mál er þetta?

Þingsályktunartillaga lýsir vilja Alþingis eða felur ríkisstjórninni verkefni. Hún breytir ekki lögum.

Hvar er hægt að lesa meira?

Þingskjalið sjálft, með greinargerð flutningsmanna, er á vef Alþingi: þskj. 416.

Alviti birtir aðeins útskýringar sem hafa verið yfirfarnar. Þangað til eru staðreyndir úr gögnum Alþingis sýndar óbreyttar.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá
2. maí 2019
Samþykkt47 með · 0 á móti
Atkvæðagreiðsla í málinu „Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019--2023“: till.. →
Eftir þingflokkum
  • S8–0
  • 2310–0
  • M8–0
  • F4–0
  • Sf6–0
  • 436–0
  • V3–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Utanríkismálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. des. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Rauði krossinn á Íslandi, SOS-Barnaþorp, Barnaheill-Save the Children og Hjálparstarf kirkjunnar, Landgræðslan, Landgræðsluskóli HSÞ, Jafnréttisskóli Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 47 mín · 34 ræður
9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 2. maí 2019: 47 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með8 tóku til máls

Sýna 2 í viðbót

39 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-113/2018· Drög að stefnu· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. ágú. 2018 – 13. sep. 2018· 2 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023

Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra haghafa um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-113/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. september 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. desember 2018)

Umsagnir úr samráðsgátt og svör utanríkisráðuneytisins

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Stefán Sólmundur Kristmannsson
    Ég er með tvær athugasemdir við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019-2023. Önnur er um fiskimál en hin um samvirkni mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. 1. Það er mjög miður að fiskimál eru að hverfa sem sjálfstæður málaflokkur úr stefnu íslenskra stjórnvalda í þróunarsamvinnu. Fiskimál hafa frá upphafi verið meginþáttur í þróunarsamvinnu okkar við þjóðir um allan heim og hafa sannað gildi sitt og margt gott hefur af þeim leitt í samstarfslöndum okkar. Að sjálfsögðu eru Íslendingar enn framarlega í sviði fiskimála með margþætta reynslu og sérþekkingu sem ber að nýta áfram í þ… Lesa alla

    Ég er með tvær athugasemdir við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019-2023. Önnur er um fiskimál en hin um samvirkni mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. 1. Það er mjög miður að fiskimál eru að hverfa sem sjálfstæður málaflokkur úr stefnu íslenskra stjórnvalda í þróunarsamvinnu. Fiskimál hafa frá upphafi verið meginþáttur í þróunarsamvinnu okkar við þjóðir um allan heim og hafa sannað gildi sitt og margt gott hefur af þeim leitt í samstarfslöndum okkar. Að sjálfsögðu eru Íslendingar enn framarlega í sviði fiskimála með margþætta reynslu og sérþekkingu sem ber að nýta áfram í þróunarsamvinnu. Fiskimál eru eðlilegur þáttur í fjölmörgum Heimsmarkmiðum SÞ og fiskimál bera með sér einn helsta vaxtarmöguleika í fæðuöryggi miljóna manna, (HeimsMarkmSÞ nr. 1, 2, 3, 5, 8, 9, 13, 14). Í fiskimálum ber augljóslega að stuðla að sjálfbærri nýtingu og verndun jarðar. Orðtakið “sjálfbær nýting sjávarauðlinda” sem er notað í skjali utanríkisráðherra, rúmast vel innan fiskimála en þetta lykilorðtak takmarkar þróunarstarf í fiskimálum almennt til að mæta þörfum meirihluta fátækra fiskimanna álfunnar og útilokar samvinnu við samstarfslönd okkar sem eru landlukt. Til dæmis er góð samsvörun á milli þarfa fiskimanna við Malavívatn og þess sem Ísland hefur fram að færa á sviði fiskimála við vatnið. 2. Ég nefni aðeins tvö atriði sem mæla gegn samvirkni mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Í fyrsta lagi eru tímaskalarnir ekki þeir sömu, það fyrra mánuðir til ár, en það seinna tugur ára eða meir. Í öðru lagi eru forsendurnar alls ólíkar, mannúðaraðstoð þarf að gerast strax í óvissum kringumstæðum en þróunarsamvinnan krefst undirbúnings í góðu samkomulagi og þátttöku heimamanna. Margt fleira mætti taka til.

  • #2Arnljótur Bjarki Bergsson
    Um leið og ég fagna því að Utanríkisráðuneytið hafi sett málið í samráðsferli vil ég koma á framfæri nokkrum hugmyndum í tengslum við mögulega þróun á þróunarsamstarfi Íslands til framtíðar. Aukin áhersla á þróunarsamvinnu. Ég tel rétt af Íslands hálfu að styðja markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki veiti sem nemur 0,7% af vergum þjóðartekjum (VÞT) til þróunarsamvinnu og eins að Ísland færist nær því að taka mið af framangreindu markmiði SÞ sé litið til framlaga síðustu ár og stefnu um 0,35% af VÞT árið 2022. Þó framansögð stefnumörkun sé vissulega jákvæð og miði að því að koma Íslandi… Lesa alla

    Um leið og ég fagna því að Utanríkisráðuneytið hafi sett málið í samráðsferli vil ég koma á framfæri nokkrum hugmyndum í tengslum við mögulega þróun á þróunarsamstarfi Íslands til framtíðar. Aukin áhersla á þróunarsamvinnu. Ég tel rétt af Íslands hálfu að styðja markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki veiti sem nemur 0,7% af vergum þjóðartekjum (VÞT) til þróunarsamvinnu og eins að Ísland færist nær því að taka mið af framangreindu markmiði SÞ sé litið til framlaga síðustu ár og stefnu um 0,35% af VÞT árið 2022. Þó framansögð stefnumörkun sé vissulega jákvæð og miði að því að koma Íslandi nær markmiðum SÞ er óljóst hvernig slík getur náðst í fyrirsjáanlegri framtíð án aðkomu atvinnulífsins. Með því að leggja saman krafta getur útkoman orðið magnaðri en ef hver starfar fyrir sig. Þá geta íslensk stjórnvöld unnið að því að Ísland nái markmiðum um umfang þróunarsamvinnu í samstarfi við atvinnulífið. Atvinnulífið hefur hlutverki að gegna við úrlausn þróunarsamstarfsverkefna, þar má hvetja fyrirtæki til að nýta möguleika til framtíðar. Um nokkurt skeið hefur verið á öðrum vettvangi verið stefnt að því að umfang rannsókna og þróunar aukist í 3% af landsframleiðslu (VLF). Með möguleika á skattafrádrætti vegna kostnaðar við rannsókna- og þróunarverkefni virðist af hagtölum að dæma sem rannsókna og þróunarstarfsemi hafi aukist í landinu, einkum með aukinni virkni fyrirtækja á því sviði. Efling Tækniþróunarsjóðs og Rannsóknasjóðs eiga jafnframt þátt í þessari þróun. Svipuð skilaboð má lesa úr fréttum sem berast af auknum umsóknum um skattafrádrátt vegna rannsókna og þróunarverkefna. Vilji stjórnvalda stendur til að auka þennan möguleika fyrirtækja til aukinnar rannsókna og þróunarstarfsemi miða við aðgerðir sem lutu að því að hækka hámörk sem og áform um að afnema sömu hámörk. • Er mögulegt að byggja á fenginni reynslu af aðgerðum til að auka rannsókna og þróunarstarf til að stuðla að aukinni virkni atvinnulífsins með fyrirtækjum í broddi fylkingar í þróunarsamstarfi? • Væri hægt að halda utan um umsvif fyrirtækja á þessu sviði með sama hætti og fyrirtæki telja fram rannsókna og þróunarkostnað? • Er hægt að viðurkenna kostnað fyrirtækja vegna þróunarsamstarfs og halda til haga sannarlegum kostnaði um raunveruleg þróunarsamstarfsverkefni sérstaklega aðgreindum? Ef fyrirtækjum væri gert kleift að telja fram kostnað við þróunarsamvinnu í bókhaldi eins og þau telja fram kostnað í rannsókna og þróunarverkefnum má í það minnsta draga fram hvað fyrirtæki leggja af mörkum á þessu sviði og vonandi stuðla að því að markmið stjórnvalda um 0,35% af þjóðartekjum náist hratt og örugglega. Fyrirtæki gætu talið fram til þróunarsamvinnu sem framlög vörur eða kostnað við þjónustu sem væri liður í að þróa markaði. s.s. vöru og markaðsþróun í nýmarkaðslöndum, sendingar væru t.a.m. afhentar til viðurkenndra samstarfsaðila, eða hjálparsamtaka í ljósi samþættingar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar, slíkt gæti stuðlað að auknum umsvifum Íslendinga á svið þróunarsamvinnu og aukið tækifæri til framtíðar á milliríkjaviðskiptum. Skoða þarf hvernig megi og að hve miklu leiti sé hægt að hvata slíka þróun, aukning í útgjöldum fyrirtækja til rannsókna og þróunar virðast hafa aukist verulega sem hlutfall af VÞT á árunum 2013 til 2016. Verndun jarðarinnar og sjálfbær nýting náttúruauðlinda. Brýnt er að skoða gaumgæfilega hvernig Ísland geti tekið þátt í aðgerðum gegn plastmengun í hafi, rétt eins og að Ísland leggi sitt af mörkum í aðgerðum gegn allri annarri mengun í hafi sem og að sporna gegn og bregðast við til að draga úr áhrifum af súrnun sjávar. Samstarf við fjölþjóðastofnanir Mikilvægt er að byggja á því sambandi sem hefur skapast við stofnanir og stjórnkerfi í þróunarríkjum/nýmarkaðsríkjum við uppbyggingu getu og færni á sviði jafnréttis, jarðhita, landgræðslu og sjávarútvegs í gegnum skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ) á Íslandi, vert væri að kanna hvort auka megi samstarf við fyrirtæki sem starfa á þeim sviðum sem skólarnir kenna sig við, mögulega með aukinni áherslu hagnýt verkefni nemenda HSÞ, í framhaldi af þróun sem unnin hefur verið í það minnsta í sjávarútvegsskólanum. Slíkt má nota til að tengjast hagaðilum í heimalandi nemendanna t.d. með virku samstarfi alþjóðlegum þróunarverkefnum sem koma að heimsmarkmiðum nr. 4, 9, 14, 15 og 17. Aukin virkni HSÞ getur dregið að athygli fleiri aðila en þeirra sem fram að þessu hafa sótt skóla HSÞ á Íslandi slíkt gæti dregið nýja fjármögnunaraðila að náminu og þar með stuðlað að stærra, fjölbreyttara og mögulega sterkara tengslaneti þeirra sem námið stunda. Eins má reyna að auka samskipti milli skóla HSÞ hér á landi til að virkja tengslamyndun. Með samstarfi við alþjóðastofnanir í Róm, sem stjórnvöld ætla að eiga nána samvinnu við, má tengja sérfræðiþekkingu Íslendinga á þeim sviðum matvælaframleiðslu hvar Íslendingar standa framarlega, svo sem við landgræðslu, nýtingu jarðvarma til matvælaframleiðslu og í sjávarútvegi með reglulegri miðlun starfsmanns þróunarsamvinnu í Róm til Íslenskra hagaðila um framvindu mála, slíkt mætti e.t.v. gera með á vettvangi „bakhóps hér á landi“. Þar má líta til þess verklags sem þróunarsamvinnuskrifstofa hefur komið á um samstarf Íslands og Alþjóðabankans á sviði jarðvarma og sjávarútvegs, enda er Alþjóðabankinn meðal þeirra fjölþjóðastofnana sem lögð er áhersla á. Eins má kanna hvort mögulegt sé að auka líkur á jákvæðum afrakstri þróunarsamvinnu með aðkomu að Hnattræna umhverfisbótasjóðnum (GEF) með sérfræðiþekkingu sem liðkað getur til fyrir heildrænum lausnum á sviði umhverfismála, sem aukið geta líkur á að heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun náist. Vera má að slík aðkoma Íslands geti fylgt fordæmum annarrar þátttöku Íslands í rannsókna og þróunarsamstarfi Evrópu ríkja. Til að stuðla að sjálfbærum vexti þeirra eininga hér á landi sem styðja við skóla HSÞ á Íslandi, þyrftu samningar HSÞ að byggja á samskiptum fyrirtækis við fyrirtæki (HSÞ), hvort sem umsjón með námsbrautum, stundakennslu eða leiðsögn í tengslum við verkefna vinnu er að ræða. Þannig má byggja upp teymi sem koma að og efla þróunarsamstarf til frambúðar, þar má horfa til verklags sem Þróunarsamvinnuskrifstofa Utanríkisráðuneytisins viðhafði í tengslum við samstarf við Alþjóðabankann á sviði fiskimála. Vera má að það komi fyrir vegna gengisáhrifa eða annarra þátta að taxtar hjá þeim einingum sem búa yfir sérfræðiþekkingu séu hærri en það sem fæst greitt fyrir hverja unna vinnustund í tengslum við þróunarsamvinnu, mismuninn mætti e.t.v. telja fram sem framlag þeirra sem halda á sérfræðiþekkingunni til þróunarsamvinnu. Hugleiða má eftir því sem skilningur á mikilvægi ábyrgra og sjálfbærrar auðlindanýtingar vex fiskur um hrygg í sjávarútvegi, í kjölfar siðareglna Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ um ábyrgar fiskveiðar (e. Code of Conduct) og Hafnríkisráðstafanir (e. Port State Measures) sömu stofnunar gegn ólöglegum, ótilkynntum og stjórnlausum fiskveiðum (e. IUU) þá þarf að beina athyglinni að því að gera sem mest verðmæti úr því sem fæst úr sjó, til að lágmarka álag á villta stofna og byggja undir sjálfbærni, en slíkt getur dregið úr veiðiálagi og stuðlað ennfrekar að sjálfbærni, þannig væri hægt að kanna hvort sjávarútvegsskóli HSÞ geti aukið samstarf sitt við Matís enn frekar. Uppbygging félagslegra innviða Meðan að unnið er að því að auka aðgengi fólks að heilnæmu vatni sbr. Heimsmarkmið nr. 6, er mikilvægt að stuðla jafnframt að bættu aðgengi að heilnæmum og öruggum matvælum sbr. heimsmarkmið 2. Aðrir samstarfsaðilar Eins mikilvægt og það er að draga íslenskt atvinnulíf sterkar inn í þróunarsamvinnu, þá er ekki síður mikilvægt að stuðla að öflugu atvinnulífi í samstarfslöndum Íslands. Í anda heimsmarkmiða nr. 14, 15, 11, 12, 13, 2, 1, 9 og 17 má jafnframt vinna með nýmarkaðsríkjum að uppsetningu ramma fyrir sjálfbæra auðlindanýtingu með hagnýtingu fyrirliggjandi aðgengilegra lausna með áherslu á verðmætasköpun. Kanna mætti hvort undirbúa ætti skipulagða viðtöku nemenda frá mikilvægum nýmarkaðssvæðum, s.s. Nígeríu, inn í HSÞ til að styrkja mannauð þess lands sem við eigum í viðskiptum við með fjölgun nemenda við íslenska háskóla s.s. meistaranemenda Háskóla Íslands, Landbúnaðar Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, og doktorsnemenda, HÍ, HR og HA í samræmi við Heimsmarkmið nr. 4. Þannig mætti virkja fleiri einingar háskólasamfélagsins til meiri þátttöku í þróunarsamvinnu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Fyrri umræða
    27 ræður · 1 klst. 41 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. desember 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    Síðari umræða
    7 ræður · 1 klst. 5 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  11. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
416Stjórnartillaga14. nóv. 2018Guðlaugur Þór ÞórðarsonLesaPDF
1208Nál. með brtt.27. mar. 2019Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson +7LesaPDF
1424Þál. í heild2. maí 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

5 alls · 3 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur3. desember 2018 kl. 18:52
    Tillaga gengur til síðari umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ utanríkismálanefnd3. desember 2018 kl. 18:52
    Tillaga gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt2. maí 2019 kl. 13:37
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019--2023“.
    1--3
    • SSjálfstæðisflokkur:8 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt2. maí 2019 kl. 13:38
    Atkvæðagreiðsla í málinu „Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019--2023“: tillgr..
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:8 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt2. maí 2019 kl. 13:38
    Atkvæðagreiðsla í málinu „Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019--2023“: till..
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:8 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

34 ræður · 2 klst. 47 mín
  • Fyrri umræða: 27 ræður · 6 ræðumenn · 1 klst. 41 mín
  • Síðari umræða: 7 ræður · 6 ræðumenn · 1 klst. 5 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur1239 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn434 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka421 mín
Logi EinarssonSamfylkingin420 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka314 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka38 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka212 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn19 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur18 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Utanríkismálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. des. 2018, frestur 27. des. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Rauði krossinn á Íslandi, SOS-Barnaþorp, Barnaheill-Save the Children og Hjálparstarf kirkjunnarumsögnOpna PDF
LandgræðslanumsögnOpna PDF
Landgræðsluskóli HSÞumsögnOpna PDF
Jafnréttisskóli Sameinuðu þjóðanna á ÍslandiumsögnOpna PDF
Félagsvísindasvið Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.