Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 440. mál

Fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra

Aukið gagnsæi í stjórnmálum, framlög, birting ársreikninga o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 14. des. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka sem og að auka gagnsæi í stjórnmálum.

Flutt af Katrín Jakobsdóttir (Vg) ásamt 7 öðrum þingmönnum. Í lokaatkvæðagreiðslu 14. des. 2018 greiddu 59 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
6. desember 2018
Tegund
Lagafrumvarp
Atkvæðagreiðslur með skrá
10
Umræða í þingsal
9 ræður · 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 29. jan. 2019

Markmiðið

Að tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka sem og að auka gagnsæi í stjórnmálum.

Hvað breytist

Lagt er til að stjórnmálasamtökum, kjörnum fulltrúum þeirra og frambjóðendum, sem og frambjóðendum í persónukjöri, verði bannað að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra. Einnig er lagt til að stjórnmálasamtök sem fulltrúa eiga á Alþingi skuli eiga rétt á 12 milljóna kr. grunnrekstrarframlagi óháð stærð þeirra. Gert er ráð fyrir að skilyrði fyrir greiðslu kosningastyrks úr ríkissjóði verði rýmkuð þannig að nægjanlegt sé að stjórnmálasamtök bjóði fram í þremur kjördæmum til að þau geti sótt um slíkan styrk. Að auki er gert ráð fyrir að almennt fjárframlag úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka, sem skiptist á milli stjórnmálasamtaka í samræmi við atkvæðamagn, verði árlega endurskoðað með hliðsjón af breytingum á vísitölum verðlags og launa. Lagt er til að hámarksfjárhæð framlags frá einstaklingum og lögaðilum til stjórnmálasamtaka verði hækkuð úr 400.000 kr. í 550.000 kr., sem samsvarar þeim launa- og verðlagsbreytingum sem orðið hafa. Jafnframt er gert ráð fyrir samtals 100.000 kr. svigrúmi umfram þessa fjárhæð þegar um er að ræða framlög sem stjórnmálafélögum innan stjórnmálasamtaka er heimilt að afla frá einstaklingum og lögaðilum. Að auki er lagt til að fjárhæðarmörk framlaga sem einstaklingum er heimilt að leggja stjórnmálasamtökum til án þess að nöfn þeirra séu birt verði hækkuð úr 200.000 kr. í 300.000 kr. í samræmi við sjónarmið um almenna hækkun fjárhæðarmarka í lögunum í samræmi við launa- og verðlagsbreytingar.

Lög sem breytast

Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006.

Kostnaður fyrir ríkið

Átta stjórnmálasamtök náðu kjöri til Alþingis í kosningunum í október 2017 og því mun árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna grunnrekstrarframlags til þeirra nema 96 milljónum kr. á yfirstandandi kjörtímabili. Kostnaðarauki ríkissjóðs vegna fjárstyrks til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu mun ráðast af fjölda framboða í öllum kjördæmum í hverjum alþingiskosningum en ef hann verður sá sami og í síðustu kosningum, þ.e.a.s. níu, þá mun kostnaður ríkissjóðs nema að hámarki 45 milljónum kr. Ákveði löggjafinn að hækka almenna framlagið til stjórnmálaflokka m.t.t. vísitöluhækkunar eins og gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, þar sem vægi neysluverðs- og launavísitölu vegur jafnt, mun það koma til með að fela í sér viðbótarkostnað fyrir ríkissjóð ár hvert.

Meira úr samantektinni

Ísland. Alþingiskosningar 28. október 2017. Úttektarskýrsla kosningasérfræðinga ODIHR. Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofa ÖSE, 2. mars 2018.

Löggjöf á Norðurlöndum og í Bretlandi

Bretland

Representation of the People Act 1983.

Political Parties, Elections and Referendums Act 2000.

Electoral Administration Act 2006.

Political Parties and Elections Act 2009.

Transparency of Lobbying, Non-Party Campaigning and Trade Union Administration Act 2014.

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om økonomisk støtte til politiske partier m.v. (partistøtteloven) LBK nr 973 af 11/08/2017.

Bekendtgørelse af lov om private bidrag til politiske partier og offentliggørelse af politiske partiers regnskaber (partiregnskabsloven) LBK nr 974 af 11/08/2017.

Finnland

Partilag 10.1.1969/10.

Lag om kandidaters valfinansiering 24.4.2009/273.

Noregur

Lov om visse forhold vedrørende de politiske partiene (partiloven) LOV-2005-06-17-102.

Svíþjóð

Lag om om statligt stöd till politiska partier (1972:625).

Lag om insyn i finansiering av partier (2018:90).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Framsögumaður nefndar: Helga Vala Helgadóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
14. des. 2018
Samþykkt59 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • 239–0
  • F7–0
  • M6–0
  • Sf7–0
  • 436–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Samband íslenskra sveitarfélaga · allar umsagnir
Umræða í þingsal
31 mín · 9 ræður
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Átta stjórnmálasamtök náðu kjöri til Alþingis í kosningunum í október 2017 og því mun árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna grunnrekstrarframlags til þeirra nema 96 milljónum kr. á yfirstandandi kjörtímabili. Kostnaðarauki ríkissjóðs vegna fjárstyrks til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu mun ráðast af fjölda framboða í öllum kjördæmum í hverjum alþingiskosningum en ef hann verður sá sami og í síðustu kosningum, þ.e.a.s. níu, þá mun kostnaður ríkissjóðs nema að hámarki 45 milljónum kr. Ákveði löggjafinn að hækka almenna framlagið til stjórnmálaflokka m.t.t. vísitöluhækkunar eins og gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, þar sem vægi neysluverðs- og launavísitölu vegur jafnt, mun það koma til með að fela í sér viðbótarkostnað fyrir ríkissjóð ár hvert.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 14. desember 2018: 59 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með6 tóku til máls

53 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 42 með, 0 á móti
  3. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 23 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 8 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 61 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 61 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
612Frumvarp6. des. 2018Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson +6LesaPDF
682Nál. með brtt.12. des. 2018Helga Vala Helgadóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir +6LesaPDF
757Frumvarp eftir 2. umræðu2. jan. 2019—LesaPDF
777Lög (samhlj.)14. des. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

13 alls · 10 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

9 ræður · 31 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 4 ræðumenn · 23 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 4 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

1 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samband íslenskra sveitarfélagabókunOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.