Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)
Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-3/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 27. janúar 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. febrúar 2019)
Tekið var tillit til þeirra umsagna sem bárust við vinnslu frumvarpsins. Áætlað er að drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými) verði birt til umsagnar á Samráðsgáttinni seinni hluta febrúarmánaðar 2019.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Halldór Vilberg Ómarsson
Mikilvægara er að veita þessu fjármagni frekar í að hjálpa ungu fólki með geðrænan vanda og eða fíknivanda. Þegar sá málaflokkur er kominn á betri stað en hann er á í dag mætti skoða þann valkost að opna neyslurými.
- #2Birna Björg Gunnarsdóttir
ef ég skil þetta rétt er verið að tala um gras eða er þetta alment ég er flogaveik og ég vil að það sé allavega opnað fyrir þann hluta læknisfræðilega ég er ekki búin að móta mér skoðun varðandi hinn hlutann
- #4Rauði krossinn á Íslandi
- #5Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.