Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 451. mál

Lýsing verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 24. feb. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja fjárfestavernd með fullnægjandi og samræmdri upplýsingagjöf við almenn útboð verðbréfa og við töku þeirra til viðskipta á skipulegum markaði.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 24. feb. 2020 greiddu 48 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
4. desember 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
2 ræður · 8 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 10. mar. 2020

Markmiðið

Að tryggja fjárfestavernd með fullnægjandi og samræmdri upplýsingagjöf við almenn útboð verðbréfa og við töku þeirra til viðskipta á skipulegum markaði.

Hvað breytist

Með samþykkt frumvarpsins yrðu sett ný heildarlög um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og innleidd reglugerð ESB nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á tilskipun nr. 2003/71/EB. Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðarinnar og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, s.s. um gildissvið, hvernig eftirlit fari fram, um heimildir eftirlitsaðila til upplýsingaöflunar, aðfararhæfi ákvarðana Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins, viðurlagaákvæði, kæru til lögreglu og heimild ráðherra til að setja reglugerðir og Seðlabanka Íslands til að setja reglur.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
24. feb. 2020
Samþykkt48 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Lýsing verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S13–0
  • 238–0
  • M6–0
  • F6–0
  • Sf5–0
  • 434–0
  • V3–0
  • Flf2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 13. jan. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
2 aðilar
Seðlabanki Íslands, Kauphöll Íslands hf. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
8 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á afkomu ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 24. febrúar 2020: 48 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

46 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 13. janúar 2020
    1 beiðni um umsögn
  3. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 5 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 3 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 40 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 40 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 40 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Þingskjal
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  15. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
627Stjórnarfrumvarp4. des. 2019Bjarni BenediktssonLesaPDF
920Nál. með brtt.6. feb. 2020Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +5LesaPDF
991Frumvarp eftir 2. umræðu24. feb. 2020—LesaPDF
1006Lög (samhlj.)24. feb. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 8 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 5 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 3 mín

Umsagnir og erindi

2 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 17. des. 2019, frestur 13. jan. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
Kauphöll Íslands hf.umsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)