Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni)
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að fjalla um málefni barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal um heilbrigðisþjónustu við þau, og gera tillögur um úrbætur. Frumvarpið byggist á tillögu starfshópsins.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-144/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júní 2021)
Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 18. desember 2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laganna er fjallað um umsagnir í samráðsgáttinni.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Þroskahjálp,landssamtök
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálp um tillögu til breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni) og önnur frumvörp sem eru til kynningar í samráðsgátt samhliða þeim breytingatillögum. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Árið 2016 fullgilti íslenska ríkið samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hefur þar með sku… Lesa alla
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálp um tillögu til breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni) og önnur frumvörp sem eru til kynningar í samráðsgátt samhliða þeim breytingatillögum. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Árið 2016 fullgilti íslenska ríkið samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hefur þar með skuldbundið sig til að fylgja öllum ákvæðum hans. Þá er það sérstaklega áréttað í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar að samningurinn verði innleiddur. Með vísan til þeirra lagabreytinga sem til umsagnar eru benda Landssamtökin Þroskahjálp á eftirfarandi greinar í samningi Sameinuð þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks: 7. gr. Fötluð börn. 1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 2. Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja miðað við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika. 12. gr. Réttarstaða til jafns við aðra. 1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk eigi rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum. 2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti gerhæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins. 3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir gerhæfi sitt. 4. Aðildarríkin skulu tryggja að allar ráðstafanir, sem varða nýtingu gerhæfis, feli í sér viðeigandi og árangursríkar verndarráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Þessar verndarráðstafanir skulu tryggja að með ráðstöfunum, sem varða nýtingu gerhæfis, séu réttindi, vilji og séróskir viðkomandi einstaklings virt, slíkar ráðstafanir leiði ekki til hagsmunaárekstra eða hafi ótilhlýðileg áhrif, þær séu til samræmis við og sniðnar að aðstæðum viðkomandi einstaklings, gildi í sem skemmstan tíma og séu endurskoðaðar reglulega af til þess bæru, sjálfstæðu og hlutlausu yfirvaldi eða stofnun á sviði dómsmála. Verndarráðstafanirnar skulu vera í samræmi við þau áhrif sem fyrrnefndar ráðstafanir hafa á réttindi og hagsmuni viðkom¬andi einstaklings. 5. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir, samkvæmt ákvæð¬um þessarar greinar, til þess að tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til þess að eiga eða erfa eignir, að stýra eigin fjármálum og hafa jafnan aðgang að bankalánum, veðlánum og annars konar lánafyrirgreiðslu, jafnframt því að tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt eignum sínum eftir geðþótta. Landssamtökin Þroskahjálp styðja að þessar breytingar verði gerðar á lögum. Samtökin vilja sérstaklega koma eftirfarandi á framfæri varðandi breytingarnar og með vísan til ofangreindra greina í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks: • Lagabreytingarnar taki fullt tillit til sjálfsákvörðunarréttar og gerhæfis fatlaðs fólks. • Sérstaklega verði hugað að því að fatlað fólk almennt, og sérstaklega fólk með þroskahömlun njóti allra þeirra réttinda sem lögin kveða á um til jafns við aðra og fái nauðsynlegan stuðning til að nýta sér þau réttindi sín, eins og kveðið er á um í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir vilja og áhuga á að eiga samráð við hlutaðeigandi stjórnvöld til þess að tryggja hagsmuni og sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks til jafns við aðra í þeim lagabreytingum sem um ræðir. Virðingarfyllst, Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.
- #2Trans Ísland, félag transgender fólks á Íslandi
Góðan dag, Umsögn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, má finna í viðhengi. F. h. Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Formaður
- #3Intersex-Ísland, félag intersex fólks á Íslandi
Í Viðhengi er umsögn Intersex Íslands. Fh Intersex Íslands Kitty Anderson Formaður
- #4Samtökin '78,félag hinsegin fólks á Íslandi
Til þess er málið varðar. Umsögn Samtakanna '78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, má finna hér í viðhengi. F. h. Samtakanna '78 Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður
- #5Þóra Jónsdóttir
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (ódæmigerð kyneinkenni) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni með þá viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Jafnframt fagna samtökin því að aðgerðir til óafturkræfra breytinga á kyneinkennum skuli ekki gerðar nema í samræmi við vilja barnsins þegar barn hefur öðlast færni og þroska til að taka sl… Lesa alla
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (ódæmigerð kyneinkenni) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni með þá viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Jafnframt fagna samtökin því að aðgerðir til óafturkræfra breytinga á kyneinkennum skuli ekki gerðar nema í samræmi við vilja barnsins þegar barn hefur öðlast færni og þroska til að taka slíka ákvörðun, nema heilsufarslegar ástæður krefjist þess, að undangengnu ítarlegu mati á nauðsyn breytinganna og afleiðingum þeirra til skemmri og lengri tíma. Barnaheill styðja við efni draganna í þeirri mynd sem þau nú eru og telja stigið heillaskref í átt að aukinni virðingu gagnvart mannréttindum barna. Í ljósi áðurgerðra umsagna Barnaheilla um tengd mál og við frumvarp það sem varð að lögum um kynrænt sjálfræði er gleðiefni að sjá að tekið hefur verið fullt tillit til þeirra við vinnslu málsins og sjónarmið þau sem Barnaheill áður komu á framfæri um rétt barns til að taka þátt í og hafa áhrif á ákvarðanir sem þau varða eru að því er virðist að fullu innifalin í frumvarpsdrögunum. Barnaheill hvetja til þess að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi sem fyrst til samþykktar. Barnaheill vinna að bættum mannréttindum barna og hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.