Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 22. mál

Kynrænt sjálfræði

Ódæmigerð kyneinkenni

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 18. des. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja réttindi barna og standa vörð um líkamlega friðhelgi þeirra.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 18. des. 2020 greiddu 51 atkvæði með og 9 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. október 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
10
Umræða í þingsal
110 ræður · 7 klst.

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. jan. 2021

Markmiðið

Að tryggja réttindi barna og standa vörð um líkamlega friðhelgi þeirra.

Hvað breytist

Lagt er til að meginreglan verði sú að varanlegar breytingar á kyneinkennum barns yngri en 16 ára sem fæðist með ódæmigerð kyneinkenni skuli einungis gerðar í samræmi við vilja barnsins. Sé barn sökum ungs aldurs ófært um að veita slíkt samþykki eða af öðrum sökum ófært um að gefa til kynna vilja sinn skal þó heimilt að breyta kyneinkennum þess varanlega ef heilsufarslegar ástæður krefjast þess og þá einungis að undangengnu ítarlegu mati á nauðsyn breytinganna og afleiðingum þeirra til skemmri og lengri tíma. Lagt er til að kveðið verði á um ítarlega málsmeðferð að því er varðar ákvörðun um varanlegar breytingar og m.a. er lagt til að mælt verði fyrir um að ráðherra skipi nýtt teymi um börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Ályktun þings Evrópuráðsins nr. 2191 um mannréttindi intersex fólks (2017).

Ályktun Evrópuþingsins frá 14. febrúar 2019 um réttindi intersex fólks.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Steinunn Þóra Árnadóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
18. des. 2020
Samþykkt51 með · 9 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Kynrænt sjálfræði“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 238–0
  • M0–9
  • F8–0
  • Sf8–0
  • 436–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. okt. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
Læknafélag Íslands, UNICEF á Íslandi, Human Rights Watch, Barnaverndarstofa, Barnaheill o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 klst. · 110 ræður
19 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 18. desember 2020: 51 með, 9 á móti.

Greiddu atkvæði með13 tóku til máls

Sýna 7 í viðbót

38 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti5 tóku til máls

4 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-144/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 28. ágú. 2020· 5 umsagnir

Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni)

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að fjalla um málefni barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal um heilbrigðisþjónustu við þau, og gera tillögur um úrbætur. Frumvarpið byggist á tillögu starfshópsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-144/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júní 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 18. desember 2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laganna er fjallað um umsagnir í samráðsgáttinni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálp um tillögu til breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni) og önnur frumvörp sem eru til kynningar í samráðsgátt samhliða þeim breytingatillögum. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Árið 2016 fullgilti íslenska ríkið samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hefur þar með sku… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálp um tillögu til breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni) og önnur frumvörp sem eru til kynningar í samráðsgátt samhliða þeim breytingatillögum. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Árið 2016 fullgilti íslenska ríkið samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hefur þar með skuldbundið sig til að fylgja öllum ákvæðum hans. Þá er það sérstaklega áréttað í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar að samningurinn verði innleiddur. Með vísan til þeirra lagabreytinga sem til umsagnar eru benda Landssamtökin Þroskahjálp á eftirfarandi greinar í samningi Sameinuð þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks: 7. gr. Fötluð börn. 1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 2. Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja miðað við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika. 12. gr. Réttarstaða til jafns við aðra. 1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk eigi rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum. 2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti gerhæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins. 3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir gerhæfi sitt. 4. Aðildarríkin skulu tryggja að allar ráðstafanir, sem varða nýtingu gerhæfis, feli í sér viðeigandi og árangursríkar verndarráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Þessar verndarráðstafanir skulu tryggja að með ráðstöfunum, sem varða nýtingu gerhæfis, séu réttindi, vilji og séróskir viðkomandi einstaklings virt, slíkar ráðstafanir leiði ekki til hagsmunaárekstra eða hafi ótilhlýðileg áhrif, þær séu til samræmis við og sniðnar að aðstæðum viðkomandi einstaklings, gildi í sem skemmstan tíma og séu endurskoðaðar reglulega af til þess bæru, sjálfstæðu og hlutlausu yfirvaldi eða stofnun á sviði dómsmála. Verndarráðstafanirnar skulu vera í samræmi við þau áhrif sem fyrrnefndar ráðstafanir hafa á réttindi og hagsmuni viðkom¬andi einstaklings. 5. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir, samkvæmt ákvæð¬um þessarar greinar, til þess að tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til þess að eiga eða erfa eignir, að stýra eigin fjármálum og hafa jafnan aðgang að bankalánum, veðlánum og annars konar lánafyrirgreiðslu, jafnframt því að tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt eignum sínum eftir geðþótta. Landssamtökin Þroskahjálp styðja að þessar breytingar verði gerðar á lögum. Samtökin vilja sérstaklega koma eftirfarandi á framfæri varðandi breytingarnar og með vísan til ofangreindra greina í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks: • Lagabreytingarnar taki fullt tillit til sjálfsákvörðunarréttar og gerhæfis fatlaðs fólks. • Sérstaklega verði hugað að því að fatlað fólk almennt, og sérstaklega fólk með þroskahömlun njóti allra þeirra réttinda sem lögin kveða á um til jafns við aðra og fái nauðsynlegan stuðning til að nýta sér þau réttindi sín, eins og kveðið er á um í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir vilja og áhuga á að eiga samráð við hlutaðeigandi stjórnvöld til þess að tryggja hagsmuni og sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks til jafns við aðra í þeim lagabreytingum sem um ræðir. Virðingarfyllst, Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.

  • #2Trans Ísland, félag transgender fólks á Íslandi

    Góðan dag, Umsögn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, má finna í viðhengi. F. h. Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Formaður

  • #3Intersex-Ísland, félag intersex fólks á Íslandi

    Í Viðhengi er umsögn Intersex Íslands. Fh Intersex Íslands Kitty Anderson Formaður

  • #4Samtökin '78,félag hinsegin fólks á Íslandi

    Til þess er málið varðar. Umsögn Samtakanna '78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, má finna hér í viðhengi. F. h. Samtakanna '78 Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður

  • #5Þóra Jónsdóttir
    Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (ódæmigerð kyneinkenni) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni með þá viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Jafnframt fagna samtökin því að aðgerðir til óafturkræfra breytinga á kyneinkennum skuli ekki gerðar nema í samræmi við vilja barnsins þegar barn hefur öðlast færni og þroska til að taka sl… Lesa alla

    Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (ódæmigerð kyneinkenni) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni með þá viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Jafnframt fagna samtökin því að aðgerðir til óafturkræfra breytinga á kyneinkennum skuli ekki gerðar nema í samræmi við vilja barnsins þegar barn hefur öðlast færni og þroska til að taka slíka ákvörðun, nema heilsufarslegar ástæður krefjist þess, að undangengnu ítarlegu mati á nauðsyn breytinganna og afleiðingum þeirra til skemmri og lengri tíma. Barnaheill styðja við efni draganna í þeirri mynd sem þau nú eru og telja stigið heillaskref í átt að aukinni virðingu gagnvart mannréttindum barna. Í ljósi áðurgerðra umsagna Barnaheilla um tengd mál og við frumvarp það sem varð að lögum um kynrænt sjálfræði er gleðiefni að sjá að tekið hefur verið fullt tillit til þeirra við vinnslu málsins og sjónarmið þau sem Barnaheill áður komu á framfæri um rétt barns til að taka þátt í og hafa áhrif á ákvarðanir sem þau varða eru að því er virðist að fullu innifalin í frumvarpsdrögunum. Barnaheill hvetja til þess að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi sem fyrst til samþykktar. Barnaheill vinna að bættum mannréttindum barna og hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 24 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. október 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    68 ræður · 4 klst. 38 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 8 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 8 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 8 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 8 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 8 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 8 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 8 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 8 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  17. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal
  20. Umræða
    3. umræða
    37 ræður · 1 klst. 58 mín
  21. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 9 með, 52 á móti
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 9 á móti
  23. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
22Stjórnarfrumvarp5. okt. 2020Katrín JakobsdóttirLesaPDF
564Nál. með brtt.11. des. 2020Páll Magnússon, Steinunn Þóra Árnadóttir +6LesaPDF
604Frumvarp eftir 2. umræðu16. des. 2020—LesaPDF
631Breytingartillaga16. des. 2020Þorsteinn B SæmundssonLesaPDF
721Lög (samhlj.)18. des. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

14 alls · 10 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. október 2020 kl. 16:39
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd13. október 2020 kl. 16:39
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:41
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:42
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    2.--3. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:42
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:42
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    4. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:43
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    5.--10. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:43
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:43
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    11. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:44
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    12. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. desember 2020 kl. 14:44
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd15. desember 2020 kl. 14:44
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Fellt18. desember 2020 kl. 16:28
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Kynrænt sjálfræði“.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 8 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 8 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 8 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 6 á móti
    • VViðreisn:0 með · 4 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 2 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 1 á móti
  • Samþykkt18. desember 2020 kl. 16:37
    Að samþykkja frumvarpið „Kynrænt sjálfræði“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 9 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

110 ræður · 7 klst.
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 24 mín
  • 2. umræða: 68 ræður · 18 ræðumenn · 4 klst. 38 mín
  • 3. umræða: 37 ræður · 11 ræðumenn · 1 klst. 58 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn111 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin18 mín
Birgir ÁrmannssonSjálfstæðisflokkur11 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin11 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka11 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur24 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka22 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn315 mín
Páll MagnússonSjálfstæðisflokkur33 mín
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka421 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn522 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins513 mín
Silja Dögg GunnarsdóttirFramsóknarflokkur817 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn943 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn1048 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka1026 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn121 klst. 2 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn161 klst. 22 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka1639 mín

Umsagnir og erindi

14 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. okt. 2020, frestur 29. okt. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Læknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
Human Rights WatchumsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Samtökin 78umsögnOpna PDF
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Trans Ísland, félag trans fólks á ÍslandiumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Intersex ÍslandumsögnOpna PDF
Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.