Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 625. mál

Stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda

Hvar er málið statt?

Samþykkt sem lög frá Alþingi.

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Í stuttu máli

Að stuðla að skilvirkri opinberri þjónustu, auka gagnsæi við meðferð mála og hagkvæmni í stjórnsýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og lögaðila. Að meginboðleið stjórnvalda við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
22. mars 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
18 ræður · 57 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að stuðla að skilvirkri opinberri þjónustu, auka gagnsæi við meðferð mála og hagkvæmni í stjórnsýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og lögaðila. Að meginboðleið stjórnvalda við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað.

Hvað breytist

Lagt er til að starfrækt verði stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og gert er ráð fyrir þeirri meginreglu að stjórnvöld sendi gögn til einstaklinga og lögaðila með rafrænum hætti í pósthólfið. Frumvarpið tekur til allra gagna, þ.m.t. tilkynninga, ákvarðana og ákvaða sem viðtakandi er bundinn af, m.t.t. kærufrests og efni gagnanna að öðru leyti. Sú aðferð að senda gögnin rafrænt myndi hafa sömu réttaráhrif og þegar gögn berast með bréfpósti eða öðrum hætti. Gert er ráð fyrir að einstaklingar sem hafa fengið útgefna kennitölu samkvæmt lögum um skráningu einstaklinga og lögaðilar sem skráðir eru með kennitölu í fyrirtækjaskrá eigi hver sitt pósthólf sem að jafnaði þeir einir hafa aðgang að.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að breytt fyrirkomulag við birtingar hafi í för með sér hagræðingu fyrir ríkissjóð á bilinu 300–700 milljónir kr. á ári.

Meira úr samantektinni

Island.is.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 14. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
16 aðilar
Persónuvernd, Umboðsmaður barna, Sýslumannafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Hrafn Sveinbjarnarson og Þorsteinn Tryggvi Másson o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
57 mín · 18 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að breytt fyrirkomulag við birtingar hafi í för með sér hagræðingu fyrir ríkissjóð á bilinu 300–700 milljónir kr. á ári.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. júní 2021: 55 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með5 tóku til máls

50 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    6 ræður · 20 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 14. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    12 ræður · 38 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  13. Þingskjal
  14. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1082Stjórnarfrumvarp22. mar. 2021Bjarni BenediktssonLesaPDF
1607Nál. með brtt.3. jún. 2021Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +7LesaPDF
1774Frumvarp eftir 2. umræðu1. júl. 2021—LesaPDF
1815Lög (samhlj.)13. jún. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur26. mars 2021 kl. 14:32
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd26. mars 2021 kl. 14:32
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:44
    Grein / þingskjal
    1. gr.
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:45
    Breytingartillaga
    1--3
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:45
    Grein / þingskjal
    2.--10. gr., svo breytt,
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. júní 2021 kl. 14:45
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. júní 2021 kl. 00:10
    Lokaatkvæðagreiðsla um frumvarp
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

18 ræður · 57 mín
  • 1. umræða: 6 ræður · 2 ræðumenn · 20 mín
  • 2. umræða: 12 ræður · 5 ræðumenn · 38 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Kolbeinn Óttarsson ProppéUtan þingflokka46 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur316 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur416 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka312 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn48 mín

Umsagnir og erindi

16 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 30. mar. 2021, frestur 14. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Sýslumannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Hrafn Sveinbjarnarson og Þorsteinn Tryggvi MássonumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Creditinfo Lánstraust hfumsögnOpna PDF
Bragi Leifur HaukssonumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
BlindrafélagiðumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Guðbjörn JónssonumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Þjóðskjalasafn ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

  • 15. mál (150. þing, ekki í Alviti enn)skylt

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)