Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 700. mál

Breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign

Lágmarkstryggingavernd o.fl.

Hvar er málið statt?

Vísað til ríkisstjórnar.

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Í stuttu máli

Að samræma lífeyrisréttindi milli einstakra hópa starfsmanna á vinnumarkaði, einkum milli almenna vinnumarkaðarins og opinberra starfsmanna.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
32 ræður · 2 klst. 14 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að samræma lífeyrisréttindi milli einstakra hópa starfsmanna á vinnumarkaði, einkum milli almenna vinnumarkaðarins og opinberra starfsmanna.

Hvað breytist

Lagt er til að lögfest verði að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs verði a.m.k. 15,5% af iðgjaldsstofni í stað 12%. Einnig er lagt til að mælt verði fyrir í lögum um sk. tilgreinda séreign þannig að heimilt verði að skipta hinu lögbundna lágmarksiðgjaldi til lífeyrissjóðs þannig að allt að 3,5% geti farið til öflunar réttinda í tilgreindri séreign. Þá er lagt til að sjóðfélögum verði heimiluð skattfrjáls ráðstöfun tilgreindrar séreignar til kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði til viðbótar við gildandi úrræði um ráðstöfun séreignarsparnaðar. Einnig er lagt til að sjóðfélögum sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði í fimm ár frá því að umsókn um ráðstöfun kemur fram verði heimilað að nýta sömu séreignarsparnaðarúrræði og kaupendum fyrstu íbúðar. Lagt er til að lífeyrissjóðum verði heimilt að senda yfirlit og upplýsingar til sjóðfélaga með rafrænum hætti á vefnum Ísland.is. Enn fremur er lagt til að horfið verði frá því að lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum séu verðtryggðar mánaðarlega til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs. Þess í stað er lagt til að lífeyrir verði verðbættur 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs næstliðins árs.

Lög sem breytast

Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007. Lög um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997.

Kostnaður fyrir ríkið

Áætlað er að lögfesting lágmarksmótframlags launagreiðanda í 11,5% muni minnka rekstrarafgang fyrirtækja sem hefur í för með sér 670 milljóna kr. lækkun á tekjum ríkissjóðs af tekjuskatti lögaðila á ársgrundvelli. Gert er ráð fyrir að hækkun mótframlagsins hækki gjaldstofn tryggingagjalds og að hún skili um 440 milljónum kr. á ári í ríkissjóð. Hærra tryggingagjald minnkar rekstrarafgang fyrirtækja með sama hætti og hærra mótframlag í lífeyrissjóð og lækka tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti lögaðila því um sem nemur 70 milljónum kr. á ári. Meðalskattprósenta ellilífeyrisþega var tæp 23% við nýjustu álagningu tekjuskatts einstaklinga fyrir tekjuárið 2019, þ.e. 8,5% til ríkis og 14,44% til sveitarfélaga. Miðað við þær forsendur hefðu verið greiddir 0,7 milljarðar kr. í tekjuskatt til ríkis og 1,1 milljarður kr. til sveitarfélaga í núverandi kerfi af 7,6 milljarða kr. hærri greiðslum til lífeyrisþega. Þar sem tekjuskattskerfið er ólínulegt skiptir höfuðmáli hvernig hækkunin dreifist meðal lífeyrisþeganna. Vegna þess að stjórnvöld hafa engar upplýsingar um tekjudreifingu hópsins sem hefur verið með 8% mótframlag en fer nú í 11,5% er ekki hægt að áætla með vissu hver tekjuáhrif á ríkissjóð verða á ársgrundvelli í framtíðinni en gróflega má áætla að þau verði á bilinu 0,6–1,2 milljarðar kr. ef viðbótarfjárhæðirnar hefðu verið skattlagðar á árinu 2020.

Meira úr samantektinni

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings lífskjarasamningum aðila vinnumarkaðarins. Forsætisráðuneytið, 3. apríl 2019.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Brynjar Níelsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 28. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
33 aðilar
Öryrkjabandalag Íslands, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Almenni lífeyrissjóðurinn, Frjálsí lífeyrissjóðurinn og Íslensk lífeyrissjóðurinn, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Almenni lífeyrissjóðurinn o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 14 mín · 32 ræður
9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Áætlað er að lögfesting lágmarksmótframlags launagreiðanda í 11,5% muni minnka rekstrarafgang fyrirtækja sem hefur í för með sér 670 milljóna kr. lækkun á tekjum ríkissjóðs af tekjuskatti lögaðila á ársgrundvelli. Gert er ráð fyrir að hækkun mótframlagsins hækki gjaldstofn tryggingagjalds og að hún skili um 440 milljónum kr. á ári í ríkissjóð. Hærra tryggingagjald minnkar rekstrarafgang fyrirtækja með sama hætti og hærra mótframlag í lífeyrissjóð og lækka tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti lögaðila því um sem nemur 70 milljónum kr. á ári. Meðalskattprósenta ellilífeyrisþega var tæp 23% við nýjustu álagningu tekjuskatts einstaklinga fyrir tekjuárið 2019, þ.e. 8,5% til ríkis og 14,44% til sveitarfélaga. Miðað við þær forsendur hefðu verið greiddir 0,7 milljarðar kr. í tekjuskatt til ríkis og 1,1 milljarður kr. til sveitarfélaga í núverandi kerfi af 7,6 milljarða kr. hærri greiðslum til lífeyrisþega. Þar sem tekjuskattskerfið er ólínulegt skiptir höfuðmáli hvernig hækkunin dreifist meðal lífeyrisþeganna. Vegna þess að stjórnvöld hafa engar upplýsingar um tekjudreifingu hópsins sem hefur verið með 8% mótframlag en fer nú í 11,5% er ekki hægt að áætla með vissu hver tekjuáhrif á ríkissjóð verða á ársgrundvelli í framtíðinni en gróflega má áætla að þau verði á bilinu 0,6–1,2 milljarðar kr. ef viðbótarfjárhæðirnar hefðu verið skattlagðar á árinu 2020.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Málið hefur ekki verið afgreitt í heild. Atkvæðin eru úr síðustu atkvæðagreiðslu um það 13. júní 2021: 46 með, 0 á móti, 9 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með6 tóku til máls

40 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá2 tóku til máls

7 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    30 ræður · 2 klst. 10 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 28. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 4 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti

Þingskjöl

2 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1179Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Bjarni BenediktssonLesaPDF
1751Nál. með frávt.12. jún. 2021Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +7LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

3 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 18:41
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd13. apríl 2021 kl. 18:41
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. júní 2021 kl. 00:21
    Tillaga um að vísa máli til ríkisstjórnarinnar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

32 ræður · 2 klst. 14 mín
  • 1. umræða: 30 ræður · 8 ræðumenn · 2 klst. 10 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 4 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn23 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin313 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur935 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur13 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka420 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka23 mín
Ólafur ÍsleifssonMiðflokkurinn725 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn115 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins317 mín

Umsagnir og erindi

35 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 28. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Frjálsi lífeyrissjóðurinnkynningOpna PDF
Almenni lífeyrissjóðurinn, Frjálsí lífeyrissjóðurinn og Íslensk lífeyrissjóðurinnviðbótarumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
Almenni lífeyrissjóðurinnupplýsingarOpna PDF
Landssamband eldri borgaraumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
Eftirlaunasjóður FíA (EFÍA)umsögnOpna PDF
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenniumsögnOpna PDF
Arion banki hf.umsögnOpna PDF
Bandalag háskólamannaumsögnOpna PDF
Frjálsi lífeyrissjóðurinnumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Lífsverk lífeyrissjóðurumsögnOpna PDF
Kennarasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustuumsögnOpna PDF
Félagið femínísk fjármálumsögnOpna PDF
VRumsögnOpna PDF
Sjúkraliðafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Starfsmannafélag Dala- og SnæfellsnessýsluumsögnOpna PDF
Almenni lífeyrissjóðurinnumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtök lífeyrissjóðaumsögnOpna PDF
Starfsmannafélag HafnarfjarðarumsögnOpna PDF
Íslenski lífeyrissjóðurinnumsögnOpna PDF
Sjómannasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Lífeyrissjóður bankamannaumsögnOpna PDF
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Verkalýðsfélag AkranessumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)