Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 709. mál

Verndar- og orkunýtingaráætlun

Málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að forgangsraða með tilteknum hætti landsvæðum þannig að ná megi fram tilteknu jafnvægi milli mikilvægra umhverfis-, samfélags- og efnahagslegra þátta við nýtingu vindorku. Að gera leyfisveitingarferli vegna nýtingar vindorku skilvirkara en nú er.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
5 ræður · 24 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að forgangsraða með tilteknum hætti landsvæðum þannig að ná megi fram tilteknu jafnvægi milli mikilvægra umhverfis-, samfélags- og efnahagslegra þátta við nýtingu vindorku. Að gera leyfisveitingarferli vegna nýtingar vindorku skilvirkara en nú er.

Hvað breytist

Lagt er til að sérstaklega verði kveðið á um vindorku í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun til að taka af allan vafa um að virkjunarkostir í vindorku, sem eru yfir 10MW eða meira að uppsettu afli, heyri undir lögin. Jafnframt er lagt til að slíkir virkjunarkostir sæti annarri málsmeðferð samkvæmt lögunum en hefðbundnir virkjunarkostir. Vegna séreðlis vindorkunnar eru því lagðar til talsverðar breytingar á úrvinnslu, meðhöndlun og málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku frá því sem gildir um hina hefðbundnu orkukosti, jarðvarma og vatnsorku, auk breytinga á þeirri aðferðafræði sem gilt hefur um mat á virkjunarkostum í vindorku innan rammaáætlunar.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir viðbótarkostnaði fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að sá óverulegi tímabundni og varanlegi kostnaður sem hlýst af breytingu á lögum um verndar og orkunýtingaráætlun rúmist innan fjárheimilda málefnasviðs 17 Umhverfismál.

Meira úr samantektinni

Skýrsla starfshóps um regluverk í tengslum við starfsemi og framkvæmdir vegna vindorkuvera. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, október 2018.

Skýrsla starfshóps um samspil vindorku og rammaáætlunar (15. janúar 2021).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
24 mín · 5 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir viðbótarkostnaði fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að sá óverulegi tímabundni og varanlegi kostnaður sem hlýst af breytingu á lögum um verndar og orkunýtingaráætlun rúmist innan fjárheimilda málefnasviðs 17 Umhverfismál.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 24 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1188Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 22:04
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd13. apríl 2021 kl. 22:04
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

5 ræður · 24 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 24 mín

Umsagnir og erindi

14 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðkynningOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
OrkustofnunumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Orkuveita Reykjavíkur og orku náttúrunnarumsögnOpna PDF
EM Orka ehf.umsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins og samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)