Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (afglæpavæðing neysluskammta)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 31. janúar 2021.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-15/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)
Unnið var að frumvarpi sem var kynnt á Samráðsgátt og var það mál nr. 52/2021. Að því samráði loknu var mælt fyrir frumvarpinu á Alþingi á 151. löggjafarþingi en var ekki samþykkt.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
- #1Kristján Loftur Bjarnason
Þar sem ég er kunnugur þessum málaflokk þá sýnist mér þetta ekki vera nógu vel unnið þar sem það vantar inní þetta akstur undir áhrifum og eins og allir vita er að sum efni eru lengur ap fara úr blóði og þvagi eitthvað þarf því að skoða fleyri lög en auðvitað á að hætta að framleiða glæpamenn.
- #2Hildur Friðriksdóttir
Í þessari umsögn er ekki verið að andmæla frumvarpinu í heild, fremur er varpað fram sjónarhorni/ áhyggjuefni til umhugsunar. Hjarðhegðun er mikil meðal Íslendinga, meðal annars vegna fámennis þjóðarinnar og auðveldra samskipta meðal borgaranna. Það sem er í tísku meðal ungmenna fer eins og eldur í sinu um samfélag þeirra. Elstu nemendur framhaldsskóla og elstu þátttakendur í íþróttastarfi eru 18 ára og eldri. Með einhverjum hætti þyrfti að vernda skóla- og íþróttastarf fyrir því að neysluskammtar séu leyfilegir innan þessara veggja sem og á skemmtunum á vegum skóla og íþróttastarfs. Undanskil… Lesa alla
Í þessari umsögn er ekki verið að andmæla frumvarpinu í heild, fremur er varpað fram sjónarhorni/ áhyggjuefni til umhugsunar. Hjarðhegðun er mikil meðal Íslendinga, meðal annars vegna fámennis þjóðarinnar og auðveldra samskipta meðal borgaranna. Það sem er í tísku meðal ungmenna fer eins og eldur í sinu um samfélag þeirra. Elstu nemendur framhaldsskóla og elstu þátttakendur í íþróttastarfi eru 18 ára og eldri. Með einhverjum hætti þyrfti að vernda skóla- og íþróttastarf fyrir því að neysluskammtar séu leyfilegir innan þessara veggja sem og á skemmtunum á vegum skóla og íþróttastarfs. Undanskilja þyrfti leyfi fyrir að bera á sér og neyta fíkniefna á þessum stöðum á sama hátt og reykingar og áfengisneysla eru ekki leyfð þar (þó ekki sé óleyfilegt að hafa vindlinga, veip og slíkt í fórum sínum).
- #3Björg Jóna Sveinsdóttir
Lög 64/1974 eru góð og skýr. Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. Er hlynt hugmyndafræðinni sem hér kemur fram nema því að nota orðið "heimilt sé (að nota það) hafa í vörslu sinni takmarkað magn" margt ungmenni og fólk myndi fagna þannig orðalagi með afleiðingum sem ekki er gott heilsumarkmið. Hafa áfram: Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. En í eins stuttu máli og hægt er að bæta við: Ekki verður gerð refsing fyrir að hafa í fórum sínum takmarkað magn... enda sé ljóst að ekki til sölu eða dreifingar. Mér finnst að lögin eigi einnig að taka á fíkniefninu Alkóhóli í einhverr… Lesa alla
Lög 64/1974 eru góð og skýr. Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. Er hlynt hugmyndafræðinni sem hér kemur fram nema því að nota orðið "heimilt sé (að nota það) hafa í vörslu sinni takmarkað magn" margt ungmenni og fólk myndi fagna þannig orðalagi með afleiðingum sem ekki er gott heilsumarkmið. Hafa áfram: Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. En í eins stuttu máli og hægt er að bæta við: Ekki verður gerð refsing fyrir að hafa í fórum sínum takmarkað magn... enda sé ljóst að ekki til sölu eða dreifingar. Mér finnst að lögin eigi einnig að taka á fíkniefninu Alkóhóli í einhverri mynd. Það að gera það ekki er meðvirkni með þannig fíkn.
- #4Birgir Örn Guðjónsson
Ég hef starfað sem lögreglumaður í hart nær tvo áratugi og þessi málaflokkur er mér afar hugleikinn. Ég er hef kynnt mér þessi mál vel og hef m.a. verið í tengslum við Pompidou group of the council of Europe og haldið fyrirlestur á ráðstefnu um þessi málefni á þeirra vegum með fulltrúum lögregluliða víðsvegar úr heiminum. Ég hef einnig unnið mikið í forvörnum í lögreglunni og leitt ákveðin stefnumótandi verkefni á þeirra vegum. Ég er sömuleiðis meðlimur í LEAP sem eru alheimssamtök lögreglumanna sem berjast fyrir mannúðlegri nálgun í fíkniefnamálum. Þessi skoðun mín og sýn er mín persónulega s… Lesa alla
Ég hef starfað sem lögreglumaður í hart nær tvo áratugi og þessi málaflokkur er mér afar hugleikinn. Ég er hef kynnt mér þessi mál vel og hef m.a. verið í tengslum við Pompidou group of the council of Europe og haldið fyrirlestur á ráðstefnu um þessi málefni á þeirra vegum með fulltrúum lögregluliða víðsvegar úr heiminum. Ég hef einnig unnið mikið í forvörnum í lögreglunni og leitt ákveðin stefnumótandi verkefni á þeirra vegum. Ég er sömuleiðis meðlimur í LEAP sem eru alheimssamtök lögreglumanna sem berjast fyrir mannúðlegri nálgun í fíkniefnamálum. Þessi skoðun mín og sýn er mín persónulega sýn á þessum málaflokki. Sú stefna sem verið hefur við líði síðustu áratugi er viðkemur glæpavæðingu ákveðinna vímuefna er ekki aðeins tímaskekkja, heldur beinlínis skaðleg fyrir bæði einstaklinga og samfélagið í heild. Það hjálpar ekki á neinn hátt að merkja þann sem afbrotamann sem notar eða hefur ánetjast vímuefnum. Þvert á móti eru þá auknar líkur á jaðarsetningu og auknum félagslegum vandamálum. Bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og fjölskyldu hans. Ein afleiðing þeirrar jaðarsetningar er aukin hætta á að viðkomandi vilji ekki opinbera vanda sinn og leita sér aðstoðar. Afglæpavæðing er síðan ekki á neinn hátt samþykki eða „normalisering“ á vímuefnum eins og sumir virðast óttast. Síður en svo. Ekki frekar en t.d. að það sé normalisering á sígarettum að þær séu ekki ólöglegar. Forvarnir þar sem unnið er markvisst að minni eftirspurn eftir vímuefnum, sem og fræðsla um hugsanlega skaðsemi mismundandi efna er mjög mikilvæg í þessu ferli. Sú orka og það fjármagn sem hefur farið í baráttuna gegn vímuefnum hefur því miður engu skilað. Þar tala allar tölur og rannsóknir sínu máli. Sífellt fleiri þjóðir eru að vakna upp og átta sig á þeirri staðreynd. Það er löngu kominn tími til að breyta um aðferð. Það skref sem hér um ræðir er bæði mannúðlegri nálgun og mun líklegri til árangurs.
- #5Jón Viðar Gunnarsson
Löngu tímabært að þjóðfélag okkar viðurkenni vanda fíkniefnaneyslu og bregðist við henni sem þeim sjúkdómi sem hún oft á tíðum er . Það er fræðsla og aftur fræðsla sem þarf að stórefla og er eina raunverulega forvörnin sem er í boði gegn þessari vá.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.