Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 714. mál

Ávana- og fíkniefni

Afglæpavæðing neysluskammta

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 12. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að afglæpavæða vörslu neysluskammta af ávana- og fíkniefnum til eigin nota.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
50 ræður · 3 klst. 1 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að afglæpavæða vörslu neysluskammta af ávana- og fíkniefnum til eigin nota.

Hvað breytist

Lagt er til að varsla ávana- og fíkniefna sem teljast til eigin nota verði heimiluð. Þá er lagt til að ráðherra skuli í reglugerð kveða á um hvaða magn ávana- og fíkniefna getur talist til eigin nota.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis.

Afglæpavæðing fíkniefna. Úttekt rannsókna- og upplýsingaþjónustu Alþingis, 22. janúar 2019.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ólafur Þór Gunnarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
28 aðilar
Lögreglan á Suðurnesjum, Bindindissamtökin IOGT, Alexander Kristófer Gústafsson, Gunnhildur Guðjónsdóttir, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
3 klst. 1 mín · 50 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 5 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-15/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jan. 2021 – 31. jan. 2021· 25 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (afglæpavæðing neysluskammta)

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 31. janúar 2021.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-15/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)

Unnið var að frumvarpi sem var kynnt á Samráðsgátt og var það mál nr. 52/2021. Að því samráði loknu var mælt fyrir frumvarpinu á Alþingi á 151. löggjafarþingi en var ekki samþykkt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Kristján Loftur Bjarnason

    Þar sem ég er kunnugur þessum málaflokk þá sýnist mér þetta ekki vera nógu vel unnið þar sem það vantar inní þetta akstur undir áhrifum og eins og allir vita er að sum efni eru lengur ap fara úr blóði og þvagi eitthvað þarf því að skoða fleyri lög en auðvitað á að hætta að framleiða glæpamenn.

  • #2Hildur Friðriksdóttir
    Í þessari umsögn er ekki verið að andmæla frumvarpinu í heild, fremur er varpað fram sjónarhorni/ áhyggjuefni til umhugsunar. Hjarðhegðun er mikil meðal Íslendinga, meðal annars vegna fámennis þjóðarinnar og auðveldra samskipta meðal borgaranna. Það sem er í tísku meðal ungmenna fer eins og eldur í sinu um samfélag þeirra. Elstu nemendur framhaldsskóla og elstu þátttakendur í íþróttastarfi eru 18 ára og eldri. Með einhverjum hætti þyrfti að vernda skóla- og íþróttastarf fyrir því að neysluskammtar séu leyfilegir innan þessara veggja sem og á skemmtunum á vegum skóla og íþróttastarfs. Undanskil… Lesa alla

    Í þessari umsögn er ekki verið að andmæla frumvarpinu í heild, fremur er varpað fram sjónarhorni/ áhyggjuefni til umhugsunar. Hjarðhegðun er mikil meðal Íslendinga, meðal annars vegna fámennis þjóðarinnar og auðveldra samskipta meðal borgaranna. Það sem er í tísku meðal ungmenna fer eins og eldur í sinu um samfélag þeirra. Elstu nemendur framhaldsskóla og elstu þátttakendur í íþróttastarfi eru 18 ára og eldri. Með einhverjum hætti þyrfti að vernda skóla- og íþróttastarf fyrir því að neysluskammtar séu leyfilegir innan þessara veggja sem og á skemmtunum á vegum skóla og íþróttastarfs. Undanskilja þyrfti leyfi fyrir að bera á sér og neyta fíkniefna á þessum stöðum á sama hátt og reykingar og áfengisneysla eru ekki leyfð þar (þó ekki sé óleyfilegt að hafa vindlinga, veip og slíkt í fórum sínum).

  • #3Björg Jóna Sveinsdóttir
    Lög 64/1974 eru góð og skýr. Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. Er hlynt hugmyndafræðinni sem hér kemur fram nema því að nota orðið "heimilt sé (að nota það) hafa í vörslu sinni takmarkað magn" margt ungmenni og fólk myndi fagna þannig orðalagi með afleiðingum sem ekki er gott heilsumarkmið. Hafa áfram: Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. En í eins stuttu máli og hægt er að bæta við: Ekki verður gerð refsing fyrir að hafa í fórum sínum takmarkað magn... enda sé ljóst að ekki til sölu eða dreifingar. Mér finnst að lögin eigi einnig að taka á fíkniefninu Alkóhóli í einhverr… Lesa alla

    Lög 64/1974 eru góð og skýr. Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. Er hlynt hugmyndafræðinni sem hér kemur fram nema því að nota orðið "heimilt sé (að nota það) hafa í vörslu sinni takmarkað magn" margt ungmenni og fólk myndi fagna þannig orðalagi með afleiðingum sem ekki er gott heilsumarkmið. Hafa áfram: Varsla og meðferð fíkiniefna er óheimil. En í eins stuttu máli og hægt er að bæta við: Ekki verður gerð refsing fyrir að hafa í fórum sínum takmarkað magn... enda sé ljóst að ekki til sölu eða dreifingar. Mér finnst að lögin eigi einnig að taka á fíkniefninu Alkóhóli í einhverri mynd. Það að gera það ekki er meðvirkni með þannig fíkn.

  • #4Birgir Örn Guðjónsson
    Ég hef starfað sem lögreglumaður í hart nær tvo áratugi og þessi málaflokkur er mér afar hugleikinn. Ég er hef kynnt mér þessi mál vel og hef m.a. verið í tengslum við Pompidou group of the council of Europe og haldið fyrirlestur á ráðstefnu um þessi málefni á þeirra vegum með fulltrúum lögregluliða víðsvegar úr heiminum. Ég hef einnig unnið mikið í forvörnum í lögreglunni og leitt ákveðin stefnumótandi verkefni á þeirra vegum. Ég er sömuleiðis meðlimur í LEAP sem eru alheimssamtök lögreglumanna sem berjast fyrir mannúðlegri nálgun í fíkniefnamálum. Þessi skoðun mín og sýn er mín persónulega s… Lesa alla

    Ég hef starfað sem lögreglumaður í hart nær tvo áratugi og þessi málaflokkur er mér afar hugleikinn. Ég er hef kynnt mér þessi mál vel og hef m.a. verið í tengslum við Pompidou group of the council of Europe og haldið fyrirlestur á ráðstefnu um þessi málefni á þeirra vegum með fulltrúum lögregluliða víðsvegar úr heiminum. Ég hef einnig unnið mikið í forvörnum í lögreglunni og leitt ákveðin stefnumótandi verkefni á þeirra vegum. Ég er sömuleiðis meðlimur í LEAP sem eru alheimssamtök lögreglumanna sem berjast fyrir mannúðlegri nálgun í fíkniefnamálum. Þessi skoðun mín og sýn er mín persónulega sýn á þessum málaflokki. Sú stefna sem verið hefur við líði síðustu áratugi er viðkemur glæpavæðingu ákveðinna vímuefna er ekki aðeins tímaskekkja, heldur beinlínis skaðleg fyrir bæði einstaklinga og samfélagið í heild. Það hjálpar ekki á neinn hátt að merkja þann sem afbrotamann sem notar eða hefur ánetjast vímuefnum. Þvert á móti eru þá auknar líkur á jaðarsetningu og auknum félagslegum vandamálum. Bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og fjölskyldu hans. Ein afleiðing þeirrar jaðarsetningar er aukin hætta á að viðkomandi vilji ekki opinbera vanda sinn og leita sér aðstoðar. Afglæpavæðing er síðan ekki á neinn hátt samþykki eða „normalisering“ á vímuefnum eins og sumir virðast óttast. Síður en svo. Ekki frekar en t.d. að það sé normalisering á sígarettum að þær séu ekki ólöglegar. Forvarnir þar sem unnið er markvisst að minni eftirspurn eftir vímuefnum, sem og fræðsla um hugsanlega skaðsemi mismundandi efna er mjög mikilvæg í þessu ferli. Sú orka og það fjármagn sem hefur farið í baráttuna gegn vímuefnum hefur því miður engu skilað. Þar tala allar tölur og rannsóknir sínu máli. Sífellt fleiri þjóðir eru að vakna upp og átta sig á þeirri staðreynd. Það er löngu kominn tími til að breyta um aðferð. Það skref sem hér um ræðir er bæði mannúðlegri nálgun og mun líklegri til árangurs.

  • #5Jón Viðar Gunnarsson

    Löngu tímabært að þjóðfélag okkar viðurkenni vanda fíkniefnaneyslu og bregðist við henni sem þeim sjúkdómi sem hún oft á tíðum er . Það er fræðsla og aftur fræðsla sem þarf að stórefla og er eina raunverulega forvörnin sem er í boði gegn þessari vá.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-52/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 16 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-52/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)

Að loknu samráði var mælt fyrir frumvarpinu á Alþingi en það náði ekki fram að ganga á 151. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Gunnar Smári Helgason

    Mikilvægt og gott skref í baráttunni gegn fíkniefnaglæpum.

  • #2Patrekur Örn Pálmason

    Afglæpavæðing er eina lausnin. Fólk inn í heilbrigðiskerfið í staðin fyrir lögreglustöðvar. Ísland gæti grætt fleiri milljarða á hampi, cbd og thc framleiðslu, en fyrir drullandi álver og aðra stóriðju .. það er árið 2021.... Lögsetja , skattleggja og hætta þessum f%%%%% fordómum! ps hættið að reykja krakk ...... og spice

  • #3Brynjólfur Tómasson

    Finnst að skilgreina þurfi hvaða efni eru leyfileg. Það gæti verið gert í reglugerð þeirri sem skilgreinir skammtastærðir. Trúi ekki að leyfa eigi kaup og vörslu á stórhættulegum efnum.

  • #4Mike Vestmar Bjarnason

    þetta er löglegur iðnaður útum allan heim og það er staðreynd ! Stríðið við Fíkniefni er löngu úrelt einsvo stríðið við áfengi í gamla daga. við erum ekki í gamla daga við erum í 2021! í dag og í gær er enginn árangur við stríð við fíkniefni búið að nást nema að það sé meira framboð og glæpir tengt ólöglegri starfsemi. byrjum að borga skatta frá þessari iðju og hættum að skapa okkur glæpafólk

  • #5Aðalsteinn Gunnarsson
    Aðalsteinn Gunnarsson Reykjavík 26. febrúar 2021 Vímuefni eru með helstu hindrunum sjálfbærrar þróunar mannkyns. Þau hafa neikvæð áhrif á allar stoðir samfélagsins (umhverfi, efnahagur og samfélag) og snerta við öllum hliðum samfélagsins. Vímuefni stefna mannauði í voða, grafa undan hagvexti, veikja innviði samfélagsins og eru gríðarlegt byrði á heilbrigðiskerfinu. Þetta frumvarp opnar gáttir fyrir aukið magn og úrval vímuefna og ýtir undir aukna neyslu vegna aukins framboðs. Ég er þess vegna alfarið á móti auknu aðgengi að vímuefnum og hvet þig Svandís Svavarsdóttir að leggja ekki… Lesa alla

    Aðalsteinn Gunnarsson Reykjavík 26. febrúar 2021 Vímuefni eru með helstu hindrunum sjálfbærrar þróunar mannkyns. Þau hafa neikvæð áhrif á allar stoðir samfélagsins (umhverfi, efnahagur og samfélag) og snerta við öllum hliðum samfélagsins. Vímuefni stefna mannauði í voða, grafa undan hagvexti, veikja innviði samfélagsins og eru gríðarlegt byrði á heilbrigðiskerfinu. Þetta frumvarp opnar gáttir fyrir aukið magn og úrval vímuefna og ýtir undir aukna neyslu vegna aukins framboðs. Ég er þess vegna alfarið á móti auknu aðgengi að vímuefnum og hvet þig Svandís Svavarsdóttir að leggja ekki fram þetta frumvarp eða önnur í þessa átt.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    50 ræður · 3 klst. 1 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1193Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Svandís SvavarsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. apríl 2021 kl. 19:18
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd12. apríl 2021 kl. 19:18
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

50 ræður · 3 klst. 1 mín
  • 1. umræða: 50 ræður · 11 ræðumenn · 3 klst. 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur24 mín
Sigurður Páll JónssonMiðflokkurinn726 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn425 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn725 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn315 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn19 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn19 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka718 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka716 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka25 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka931 mín

Umsagnir og erindi

29 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Lögreglan á SuðurnesjumumsögnOpna PDF
Bindindissamtökin IOGTumsögnOpna PDF
Alexander Kristófer GústafssonumsögnOpna PDF
Gunnhildur GuðjónsdóttirumsögnOpna PDF
Hallfríður G HólmgrímsdóttirumsögnOpna PDF
Valborg Anna ÓlafsdóttirumsögnOpna PDF
Tómas Jakob SigurðssonumsögnOpna PDF
Lögreglustjórafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Lögreglan á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
Inga G. VífilsdóttirumsögnOpna PDF
Alexander Már BaldurssonumsögnOpna PDF
Brynjólfur Þorkell BrynjólfssonumsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
Úrsúla Karen BaldursdóttirumsögnOpna PDF
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Linda JónsdóttirumsögnOpna PDF
Bindindissamtökin IOGTumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Snarrótin, samtök um borgaraleg réttindiumsögnOpna PDF
Það er vonumsögnOpna PDF
Æskan - barnahreyfing IOGTumsögnOpna PDF
FRÆ - Fræðsla og forvarnirumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
RíkislögreglustjóriumsögnOpna PDF
Læknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
Guðbjörn JónssonumsögnOpna PDF
Sigurður R. GuðmundssonumsögnOpna PDF
Afstaða, félag fanga á ÍslandiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.