Áform til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda)
Áformað er að leggja til breytingar á búsetuskilyrðum stjórnenda í lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi þannig að komið verði til móts við athugasemdir frá ESA.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-113/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)
Ein umsögn barst. Arion banki gerði athugasemd við að áformin geri ekki ráð fyrir sams konar undanþágu frá búsetuskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í lífeyrissjóðum. Telur bankinn að slík breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sé bæði sanngjörn og eðlileg. Þegar litið er til sérstöðu lífeyrissjóðanna sem vörsluaðila mikilla fjármuna í eigu almennings og þeirra tafa sem breytingar á lögum nr. 129/1997 gætu haft á frumvarpið þykir ekki heppilegt að leggja til slíkar breytingar á þeim lögum að svo stöddu.
- 04072022_Áform um lagasetningu_lög um vátryggingastarfsemi og fjármálafyrirtæki_Búsetuskilyrði.docx
- 04072022_Mat á áhrifum_lög um vátryggingastarfsemi og fjármálafyrirtæki_Búsetuskilyrði.docx
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Arion banki hf.
Meðfylgjandi er umsögn Arion banka hf.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.