Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 585. mál

Óundirbúinn fyrirspurnatími

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að einfalda stofnanakerfi með öflugri vinnustöðum, bættri þjónustu, eflingu þekkingar- og lærdómssamfélags og fjölgun starfa á landsbyggðinni.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
16 ræður · 27 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 30. júl. 2025

Markmiðið

Að einfalda stofnanakerfi með öflugri vinnustöðum, bættri þjónustu, eflingu þekkingar- og lærdómssamfélags og fjölgun starfa á landsbyggðinni.

Hvað breytist

Lagt er til að komið verði á fót nýrri Umhverfis- og orkustofnun sem taki við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar. Samhliða er lagt til að Orkustofnun verði lögð niður.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Orkustofnun, nr. 87/2003. Jafnframt verða breytingar á 43 öðrum lögum.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Vilhjálmur Árnason

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 12. feb. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
11 aðilar
Kjara- og mannauðssýsla ríkisins, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Orkustofnun, Landsvirkjun, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
27 mín · 16 ræður
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 1 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-103/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. maí 2023 – 13. jún. 2023· 20 umsagnir

Sameining stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Áformað er að vinna frumvörp til laga um Loftslagsstofnun, Náttúruverndar- og minjastofnun og Náttúruvísindastofnun í tilefni af sameiningaráformum sem varða 10 stofnanir ráðuneytisins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-103/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. júní 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 20 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. september 2023)

Viðbrögð við umsögnum er að finna í drögum að frumvarpi til laga um Loftslagsstofnun, frumvarpi til laga um Náttúruverndar- og minjastofnun og frumvarpi til laga um breyt. á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands, og náttúrustofur (sameining NÍ, LMÍ og Ramý).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (20)
  • #1Skagafjörður
    Á 51. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 7. júní 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr. 103/2023, Sameining stofnana Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar lýsir yfir að það er jákvætt fyrir sameiningu stofnana sem heyra undir ráðuneytið og sérstaklega með þá fyrirætlan að styrkja stofnanirnar og fjölga störfum á landsbyggðinni. Byggðarráð bendir í því samhengi á mikil tækifæri í eflingu starfsemi sem heyrir nú undir Minjastofnun en hið fallega og sögufræga hús Villa Nova á Sauðárkróki var fært Minjastofnun að gjöf fyrir nokkrum… Lesa alla

    Á 51. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 7. júní 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr. 103/2023, Sameining stofnana Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar lýsir yfir að það er jákvætt fyrir sameiningu stofnana sem heyra undir ráðuneytið og sérstaklega með þá fyrirætlan að styrkja stofnanirnar og fjölga störfum á landsbyggðinni. Byggðarráð bendir í því samhengi á mikil tækifæri í eflingu starfsemi sem heyrir nú undir Minjastofnun en hið fallega og sögufræga hús Villa Nova á Sauðárkróki var fært Minjastofnun að gjöf fyrir nokkrum árum en stofnunin fyrirhugaði samhliða að efla starfsemi sína í Skagafirði. Sú fyrirætlan hefur ekki gengið eftir en starfsemi Minjastofnunar á Norðurlandi vestra er eigi að síður í húsinu og nóg pláss til að bæta þar við starfsmönnum. Einnig má benda á að um 20% af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands er í Skagafirði, mikil þekking á fornu handverki og byggingarlagi og því einboðið að byggja upp fagþekkingu á þessu sviði í Skagafirði. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Fljótsdalshreppur
    „Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur kynnt áform um sameiningu stofnana á verksviði ráðuneytisins. Meðal annars er gert ráð fyrir að ný náttúruverndar- og minjastofnun verði til með samruna Vatnajökulsþjóðgarðs og annarra stofnana sem fara með náttúruvernd og minjavörslu. Ný stofnun mun ekki hafa skipaða stjórn, er reiknað með að hverjum þjóðgarði verði áfram stýrt af svæðisbundinni stjórn og að svæðisráð starfi áfram á vettvangi Vatnajökulsþjóðgarðs. Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps tekur jákvætt í þessi áform en miklu skiptir hvernig þau verða útfærð í lagafrumvarpi. Vatnajökulsþjóð… Lesa alla

    „Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur kynnt áform um sameiningu stofnana á verksviði ráðuneytisins. Meðal annars er gert ráð fyrir að ný náttúruverndar- og minjastofnun verði til með samruna Vatnajökulsþjóðgarðs og annarra stofnana sem fara með náttúruvernd og minjavörslu. Ný stofnun mun ekki hafa skipaða stjórn, er reiknað með að hverjum þjóðgarði verði áfram stýrt af svæðisbundinni stjórn og að svæðisráð starfi áfram á vettvangi Vatnajökulsþjóðgarðs. Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps tekur jákvætt í þessi áform en miklu skiptir hvernig þau verða útfærð í lagafrumvarpi. Vatnajökulsþjóðgarður býr við dreifistýrt skipulag sem reynst hefur vel í seinni tíð og tryggir aðkomu nærsamfélaga að stjórnun og vernd þjóðgarðsins. Nýta ber öll tækifæri sem skapast samhliða stofnanasameiningu til þess efla byggðir umhverfis þjóðgarðinn m.a. með störfum í nærsamfélagi."

  • #3Magnús Jónsson
    Umsögn um fyrirhugaða sameiningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Fyrir liggja áform stjórnvalda um að ráðast í meiriháttar uppstokkun á stofunum sem heyra undir nýlega stofnað umhverfis,-orku- og loftslagsráðuneyti. Ýmislegt er jákvætt í þessum hugmyndum og telur undirritaður t.d. að stofnun nýrrar Náttúruverndar- og minjastofnunar vera til bóta. Sömuleiðis má segja að sameining Umhverfisstofnunar og hluta Orkustofnunar geti átt rétt á sér þó nafnið Loftslagstofnun sé beinlínis villandi. Eðlilegra væri að þessi stofnun héti Umhverfistofnun enda stjórnsýsla orkumála að s… Lesa alla

    Umsögn um fyrirhugaða sameiningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Fyrir liggja áform stjórnvalda um að ráðast í meiriháttar uppstokkun á stofunum sem heyra undir nýlega stofnað umhverfis,-orku- og loftslagsráðuneyti. Ýmislegt er jákvætt í þessum hugmyndum og telur undirritaður t.d. að stofnun nýrrar Náttúruverndar- og minjastofnunar vera til bóta. Sömuleiðis má segja að sameining Umhverfisstofnunar og hluta Orkustofnunar geti átt rétt á sér þó nafnið Loftslagstofnun sé beinlínis villandi. Eðlilegra væri að þessi stofnun héti Umhverfistofnun enda stjórnsýsla orkumála að stórum hluta umhverfismál í breiðri merkingu þess orðs. Öðru máli gegnir með fyrirhugaða stofnun svokallaðrar Náttúru¬vísinda¬stofnunar þar sem tillaga er um að sameina Náttúrufræðistofnun Íslands, Veðurstofu Íslands, RAMÝ, Landmælingar Íslands og ÍSOR. Í stuttu máli telur undirritaður þessa tillögu fráleita af ýmsum ástæðum. Í eðli sínu eru þessar stofnanir gerólíkar. Undirritaður starfaði á Veðurstofunni í tæplega 30 ár og þekki því vel til þeirrar stofnunar og starfsemi hennar, þótt okkuð sé liðið síðan ég lét af störfum þar. Meginhlutverk Veðurstofu Íslands er víðfeðmt og að stærstum hluta er það frábrugðið nánast öllum öðrum stofnunum: • Meginverkefni Veðurstofu Íslands er gagnaöflun og rauntímavöktun á veðri, ofanflóðum, jarðskjálftum, eldgosum, vatnsflóðum og sjávarflóðum, gerð ýmissa spáa allt að viku fram í tímann og miðlun viðvarana, þegar hætta er talin stafa af atburðum á þessum sviðum. • Veðurstofan er mikilvægur hlekkur í almannavörnum landsins og oft sá aðili sem fyrst er leitað til þegar öryggi landsmanna og/eða rekstri samfélagsins og innviðum þess er ógnað af hinni ólífrænu náttúru. • Veðurstofa Íslands er líklega eina stofnunin í heiminum sem vaktar og varar við flestum eða öllum tegundum náttúruvár. Alþjóðlega er það talið til fyrirmyndar. • Starfsemi Veðurstofu Íslands á nánast ekkert sameiginlegt með vöktun á hinu lífræna ríki lands, vatns/hafs og lofts. • Starfsemi Veðurstofunnar fer fram allan sólarhringinn, alla daga ársins og stór hluti starfsmanna Veðurstofunnar starfar í vaktavinnu og/eða er á bakvöktum. Samlegðaráhrif við aðrar stofnanir yrðu því lítil svo ólík sem starfsemi Veðurstofunnar er við starfsemi „dagvinnustofnana“. • Gagnaöflun, úrvinnsla og rannsóknir stofnunarinnar miðast fyrst og fremst við að sinna ofangreindum hlutverkum, bæta öryggisvöktun og spágerð auk þess að vinna hættumat fyrir helstu tegundir hérlendra náttúruhamfara. • Gagnastefna Veðurstofunnar er í meginatriðum þannig að gögn sem hún aflar eiga að vera öllum opin og án greiðslu nema um sé að ræða kostnað við afhendingu gagnanna. Þessi stefna er gjörólík stefnu stofnunar eins og ÍSOR sem rekin er á viðskiptalegum grundvelli. • Á Veðurstofunni er rekin alþjóðleg ofurtölva í eigu erlendra veðurstofa sem sér m.a. um að reikna veðurspár mörgum sinnum á sólarhring fyrir allt N-Atlandshaf frá Skandinavíu og vestasta hluta Evrópu í austri til Grænlands/A-Kanada í vestri. Vöktun Veðurstofunnar á veðri, eldgosum og loftborinni náttúruvá (aska, eiturloftegundir) tekur því ekki bara til Íslands heldur margra annarra landa og auk þess til eins stærsta flugstjórnarsvæðis heimsins, skv. samningi Íslands og Alþjóðaflugmálastofnunarinnar ICAO. • Veðurstofan er virkur þátttakandi í tveimur stórum evrópskum veðurstofnunum sem flestar veðurstofur Evrópu stýra og reka sameiginlega. Um er að ræða Veðurgervihnattastofnun Evrópu EUMETSAT og Veðurspáreiknimiðstöð Evrópu ECMWF. • Undirritaður þekkir engin dæmi um að orkurannsóknir séu stundaðar á veðurstofum í Evrópu. • Veðurstofa Íslands er eitt þekktasta „stofnanaheiti“ Íslands sem hefur átt nána samleið með þjóðinni í meira en öld. Að henda því er sögulegt og menningarlegt skemmdarverk sem myndi trúlega vekja innlenda og alþjóðlega forundran. Þegar litið er á þessar fimm stofnanir sem hér er ætlunin að sameina í eina, þá blasir fyrst við að Veðurstofa Íslands er mun stærri stærri en hinar fjórar til samans. Er hún raunar með stærri stofnunum ríkisins með meira en 200 starfsmenn í um 150 stöðugildum. Ávinningurinn af því að leggja niður Veðurstofuna sem sjálfstæða stofnun hlýtur því að vera afar takmarkaður. Í þessu sambandi er vert að benda á, að í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2021 um sameiningu stofnana er í engu minnst á að setja á laggirnar stóra Náttúruvísindastofnun. Þvert á móti er þar að finna tvær tillögur sem varða Veðurstofuna beint: 1. Flutningur á einstökum verkefnum frá Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun til Veðurstofu Íslands. 2. Samstarf Veðurstofu Íslands og ÍSOR. Auk þess er talað um samþættingu á upplýsingartækni- og gagnagrunnsmálum og gerð samstarfsnets um rannsóknir á vöktun á náttúru Íslands. Undir allar þessar tillögur er tekið og er trúlega verið að vísa annars vegar í vöktun, rannsóknir og hættumatsgerð á skriðuföllum sem af sögulegum ástæðum er að hluta unnið hjá Náttúru¬fræði-stofnun Íslands. Hins vegar er svo vöktun á loftmengun og viðvaranir um hana sem er að hluta til á verksviði Umhverfisstofnunar en Veðurstofan hefur einnig á sinni könnu. Gæti hún auðveldlega tekið að fullu við þessum verkefnum. Hvað snertir ÍSOR er að mati undirritaðs fráleitt að fara sameina B-hluta ríkisfyrirtæki sem starfar á samkeppnismarkaði með hagnað að markmiði og A-hluta stofnun eins og Veðurstofa Íslands er. Ef einhver sameining gagnvart ÍSOR á að eiga sér stað væri nærtækara að sameina það rannsóknastarfsemi Landsvirkjunar enda eru orkufyrirtækin í landinu aðalviðskiptavinir ÍSOR. Hins vegar er eðlilegt að samstarf sé milli Veðurstofunnar og ÍSOR um nýtingu gagna og jafnvel mælitæki, hvort sem um er að ræða mælingu á vindhraða, vatnsrennsli, jarðhreyfingar eða önnur jarðeðlisfræðileg gögn sem Veðurstofan aflar. Vert að benda á að á Veðurstofunni er rekin ein öflugasta reiknitölva á landinu með gríðarlega vinnslugetu auk þess sem stofnunin hefur í um 16 ár haldið úti víðtækum, „sívinnandi“ og verðlaunuðum upplýsingavef www.vedur.is. Eru fáir ef nokkrir hérlendir vefir meira notaðir af almenningi í landinu ef frá eru taldir vefir fjölmiðla og fjármálastofnana. Vefsetur hinna stofnananna fjögurra eru í engu sambærilegir að eðli og notkun. Hins vegar eru mörg tækifæri til samstarfs og jafnvel samþáttunar á upplýsingatækni og rekstri gagnagrunna innan umhverfisgeirans í samvinnu við Veðurstofuna. Að lokum er það skoðun undirritaðs að fyrrnefnd sameiningarnálgun sé að grunni til afar takmörkuð. Sameining stofnana yfir ráðuneyti er hér ekki nefnd á nafn og vekur það furðu. Til dæmis er það umhugsunarvert að gagnöflun og rannsóknir á og í hafinu umhverfis Ísland sé ekki hluti af sambærilegri vöktun á náttúru Íslands. Mikil skörun ætti að geta verið milli öflunar gagna, úrvinnslu og rannsókna á vegum Hafrannsóknunarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar gæti að áliti undirritaðs komið til greina einhvers konar sameining enda yrði veiðiráðgjöfin skilin frá rannsóknahluta Hafró. Margir, m.a. fyrrverandi starfsmenn Hafrannsóknstofnunar, hafa bent á að gagnaöflun og rannsóknum sé þar allt of lítið sinnt og að veiðiráðgjöfin, sem byggð er fyrst og fremst á tölfræði, sé alls ráðandi í allri starfsemi stofnunarinnar. Magnús Jónsson Fv. veðurstofustjóri

  • #4Jón Gunnar Ottósson
    Umsögn um fyrirhugaða sameiningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Vísað er til kynningar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á fyrirhugaðri sameiningu stofnana ráðuneytisins á samráðsvettvangi stjórnarráðsins (UMH23030093, UMH23030077 og UMH23020098). Gert er ráð fyrir meiriháttar uppstokkun á stofnunum, þeim fækkað úr tíu í þrjár með það að leiðarljósi „að bæta þjónustu, auka skilvirkni og auðvelda stafræna þróun ríkisins“. Margt er gott að sjá í þessum tillögum ráðuneytisins og þar á meðal gamlar tillögur og hugmyndir um sameiningar sem ekki hafa náð fram að gan… Lesa alla

    Umsögn um fyrirhugaða sameiningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Vísað er til kynningar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á fyrirhugaðri sameiningu stofnana ráðuneytisins á samráðsvettvangi stjórnarráðsins (UMH23030093, UMH23030077 og UMH23020098). Gert er ráð fyrir meiriháttar uppstokkun á stofnunum, þeim fækkað úr tíu í þrjár með það að leiðarljósi „að bæta þjónustu, auka skilvirkni og auðvelda stafræna þróun ríkisins“. Margt er gott að sjá í þessum tillögum ráðuneytisins og þar á meðal gamlar tillögur og hugmyndir um sameiningar sem ekki hafa náð fram að ganga, s.s. sameining Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Undirritaður telur jákvætt að stofna nýja Náttúruverndar- og minjastofnun með sameiningu Vatnajökulsþjóðgarðs, þjóðgarðsins á Þingvöllum, náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar. Hann telur hins vegar að ganga hefði átt lengra og yfir ráðuneytamúra og setja „þjóðskóga“ Skógræktarinnar og umsjón Landgræðslunnar með vernduðum svæðum með í þennan pakka. Búa þannig til „Landverndar- og minjastofnun Íslands“. Undirritaður er líka sammála því að rétt sé að færa hluta af starfsemi Orkustofnunar til Umhverfisstofnunar, en telur ekki rétt að búa til nýtt nafn á afraksturinn, „Loftslagsstofnun“. Nafnið „Umhverfisstofnun“ ætti að halda sér enda er stjórnsýsla orkumála umhverfismál. Tillagan um stofnun Náttúruvísindastofnunar með sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ), Veðurstofu Íslands, Landmælinga Íslands og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) tel ég hins vegar fráleita og hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér nái hún fram að ganga. Um er að ræða gerólíkar stofnanir með ólík hlutverk samkvæmt lögum sem stangast á. Að sameina þær í eina stofnun undir einni stjórn mun draga úr mikilvægi þeirra sem eftirlitsaðila, ráðgjafa og umsagnaraðila um mál er varða vernd og nýtingu íslenskrar náttúru. Vítin eru til að varast. Þegar Umhverfisstofnun var sett á koppinn með sameiningu Hollustuverndar og Náttúruverndar ríkisins (áður Náttúruverndarráðs) þá rættist það sem margir óttuðust. Náttúruverndin lét undan síga og mengunarmálin fengu allan forgang. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur það meginhlutverk í dag skv. lögum að skrásetja náttúru landsins, vakta hana, meta og ráðleggja um meðferð hennar hvað varðar framkvæmdir og aðrar athafnir sem áhrif geta haft. Álitsgerðir og umsagnir er stór hluti af þessu hlutverki. Verði stofnunin sameinuð Veðurstofunni og ÍSOR verður þetta mikilvæga hlutverk ótrúverðugra, sérstaklega ef forstaða nýrrar stofnunar kemur úr þeirra ranni. Sameiningin mun líka verða til þess að dregið verður enn frekar úr rannsóknum og vöktun á íslenskri náttúru og þar er ekki úr háum söðli að detta. Þar eru einnig víti til að varast. Gangi þessi tillaga ráðuneytisins eftir mun það þýða endanlegan dauðdaga yfir faglegri náttúruvernd á Íslandi til framtíðar. Sameining Náttúrufræðistofnunar Íslands og ÍSOR er fráleit. Annarsvegar er um að ræða A-hluta stofnun ríkisins, sem aflar gagna um náttúru landsins og birtir gögn opnum öllum sem á þurfa á að halda án greiðslu og hins vegar B-hluta stofnun (ÍSOR) sem rekin er á viðskiptalegum grundvelli og veitir ekki aðgang að neinum gögnum án greiðslu. Að mati undirritaðs ætti ÍSOR að sameinast rannsóknastarfi Landsvirkjunar með áherslu á þá verktakavinnu sem þar er stunduð frekar en að sameinast A-hluta fyrirtækjum eins og Náttúrufræðistofnun eða Veðurstofunni. Hvers vegna er ekki horft yfir „ráðuneytamúra“? Undirritaður er ekki á móti sameiningum sem leitt geta til stærðarhagkvæmni, auka skilvirkni og auðvelda stafræna þróun ríkisins. Skilur hins vegar ekki hvers vegna ekki er horft yfir ráðuneytismúrana og tengja saman þær stofnanir sem hafa sambærileg hlutverk. Hvað með að bakka með aðskilnað Náttúrufræðistofnunar og sýningarhlutverks stofnunarinnar? Sameina aftur Náttúrufræðistofnun og Náttúruminjasafn Íslands? Samlegðaráhrifin eru augljós. Hvað með náttúrustofurnar, sem eru sveitarfélaganna, en reknar að stærstum hluta af ríkinu? Ættu þær ekki að vera hluti af þessari nýju öflugu náttúruvísinda- og náttúruverndarstofnun? Veðurstofan sinnir sambærilegu hlutverki og Náttúrufræðistofnun, en á öðrum vettvangi. Vaktar og varar við flestum eða öllum tegundum náttúruvár. Vaktar lofthjúpinn og setur fram veðurspár. Er mikilvægur hluti af almannavörnum landsins. Stofnanamenning þessara tveggja stofnana er ólík og vandséð hverju sameining þeirra muni skila. Þær geta rekið saman gagnagrunna ef það þykir fýsilegt, en án samruna og sameiginlegrar stjórnar. Reynsla fortíðar og stofnanaminni er mikilvægara en margur telur. Í samráðsgáttinni er ekki mikill efnislegur rökstuðningur fyrir framsettum tillögum um stofnanabreytingar. Ég áskil mér rétt til að koma með fleiri athugasemdir við fyrirhugaðar stofnanabreytingar þegar drög að frumvörpum koma fram. Selfossi, 12. júní 2023 Jón Gunnar Ottósson, fyrrverandi forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands

  • #5Félag fornleifafræðinga

    Kæra Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Í viðhengi er umsögn Félags fornleifafræðinga. Bestu kveðjur, Gylfi Helgason, f.h. Félag fornleifafræðinga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 12. febrúar 2024
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    16 ræður · 27 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

16 ræður · 27 mín
  • Umræða: 16 ræður · 7 ræðumenn · 27 mín

Umsagnir og erindi

13 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 29. jan. 2024, frestur 12. feb. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Kjara- og mannauðssýsla ríkisinsminnisblaðOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðkynningOpna PDF
OrkustofnunumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Félag íslenskra náttúrufræðingaumsögnOpna PDF
Samband sveitarfélaga á AusturlandiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.