Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 718. mál

Óundirbúinn fyrirspurnatími

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að einfalda einstaklingum að sækja bætur vegna tjóns af völdum heilbrigðisþjónustu og auka tryggingavernd þeirra. Að samræma og einfalda kerfi sjúklingatryggingar og auka skilvirkni í meðferð málanna, bæði á stjórnsýslustigi og hjá dómstólum.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 2 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. júl. 2025

Markmiðið

Að einfalda einstaklingum að sækja bætur vegna tjóns af völdum heilbrigðisþjónustu og auka tryggingavernd þeirra. Að samræma og einfalda kerfi sjúklingatryggingar og auka skilvirkni í meðferð málanna, bæði á stjórnsýslustigi og hjá dómstólum.

Hvað breytist

Lagt er til að falla frá því að aðgreina tjónsatvik af völdum heilbrigðisþjónustu eftir því hvar atvik átti sér stað. Einnig er lagt til að hámarksfjárhæð vegna tjóns verði hækkuð um 50% og að hámark bótafjárhæðar breytist miðað við 1. janúar ár hvert í samræmi við vísitölu neysluverðs. Lagt er til að foreldrar eigi bótarétt vegna andláts fósturs á meðgöngu eða barns undir 18 ára aldri vegna atviks sem fellur undir sjúklingatryggingu. Þá er lagt til að þeir sem gangast undir bólusetningu á Íslandi með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til eigi rétt til bóta vegna tjóns sem hlýst þar af. Loks er lagt til að mál sem heyrir undir sjúkratryggingastofnunina verði ekki borið undir dómstóla fyrr en eftir að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur úrskurðað í málinu nema í þeim málum þar sem sjúkratryggingastofnunin hefur greitt hámarksbætur samkvæmt lögunum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000, og jafnframt verða breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/27/EB frá 31. mars 2004 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB um Bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 8. mar. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Heilbrigðisráðuneytið, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Ríkislögmaður, Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, Félagsráðgjafafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

3 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-83/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. apr. 2023 – 3. maí 2023· 4 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997

Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, sem birt var í samráðsgátt 24. janúar sl. (mál nr. 18/2023).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-83/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. maí 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. september 2024)

Fyrirhugað er að leggja fram frumvarp á 155. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Sigurjón Norberg Kjærnested

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um málið.

  • #2Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

  • #3Geðhjálp

    Sjá viðhengi.

  • #4Sveinn Rúnar Hauksson
    Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 Undirritaður er stjórnarmaður í Landsamtökunum Geðhjálp og hefur verið fulltrúi þeirra í nefndum og vinnuhópum sem varða þennan málaflokk og einkum það sem snýr að mannréttindum fólks með fatlanir og geðrænar áskoranir. Það er markmið Geðhjálpar að virðing fyrir rétti hvers og eins einkenni samskipti notenda og veitenda geðheilbrigðisþjónustu og að við megum sem fyrst sjá á bak nauðung og þvingunum. Ofbeldi á hvergi heima í heilbrigðisþjónustu. Þessi afstaða Geðhjálpar á sér stuðning og grunn í alþjóðlegum mannrétti… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 Undirritaður er stjórnarmaður í Landsamtökunum Geðhjálp og hefur verið fulltrúi þeirra í nefndum og vinnuhópum sem varða þennan málaflokk og einkum það sem snýr að mannréttindum fólks með fatlanir og geðrænar áskoranir. Það er markmið Geðhjálpar að virðing fyrir rétti hvers og eins einkenni samskipti notenda og veitenda geðheilbrigðisþjónustu og að við megum sem fyrst sjá á bak nauðung og þvingunum. Ofbeldi á hvergi heima í heilbrigðisþjónustu. Þessi afstaða Geðhjálpar á sér stuðning og grunn í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og lögum, ekki síst í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem nú er unnið að því að lögleiða. Ég hef tekið að mér að bæta nokkrum orðum við umsögn Geðhjálpar um frumvarp til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga sem þegar er komin fram og þá einkum til að árétta tvö atriði. Annað varðar Sérfræðiteymið, hitt varðar flutning og breytingu á 28. grein Lögræðislaganna. Undirritaður tók fyrir hönd Geðhjálpar þátt í vinnu hóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem í voru fulltrúar ÖBÍ, Þroskahjálpar, Hugarafls og Landssamtaka eldri borgara auk Geðhjálpar. Hópurinn ræddi og lagði fram tillögur sem urðu uppistaða að frumvarpi til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga. Hópurinn naut allan tímann góðrar stjórnar Sigurðar Kára Árnason sem þá var yfirlögfræðingur en nú skrifstofustjóri í Heilbrigðisráðuneytinu. Sigurður leiddi starfið af lipurð og festu, allir nutu virðingar og gátu komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Sérfræðiteymið Að mati okkar flestra ef ekki allra, var Sérfræðiteymið mikilvægasti áfanginn sem náðist í þessari vinnu og við settum nöfn okkar undir frumvarpið. Þótt allir næðu ekki öllu sínu fram, þar á meðal undirritaður, þá var Sérfræðiteymið mjög mikilsverður áfangi í að afnema alræðisvald geðlækna. Í fyrri úrgáfu frumvarpsins var gert var ráð fyrir að nauðung ætti sér ekki stað án þess að málið væri lagt undir Sérfræðiteymi. Auk geðlækna skyldu vera í því lögfræðingur með sérþekkingu á mannréttindamálum og hvað sem mestu skipti, í 7 manna teymi ,skyldu vera þrír fulltrúar notenda sem sjálfir hefðu orðið fyrir beitingu nauðungar. Orðrétt sagði í frumvarpinu: „Ráðherra skipar allt að sjö einstaklinga til fjögurra ára í senn í sérfræðiteymi um beitingu nauðungar. Hann skipar formann úr hópi þeirra. Sérfræðiteymið skal skipað a.m.k. einum sérfræðilækni, einum lögfræðingi sem hefur þekkingu á mannréttindamálum og þremur fulltrúum sem skulu tilnefndir af notendaráði heilbrigðisþjónustu skv. lögum um heilbrigðisþjónustu og hafa kynnst beitingu nauðungar af eigin raun.“ Eftir að fjórir yfirlæknar geðdeildar, ásamt lögfræðingi Landspítalans höfðu skilað umsögn, sem og stjórn Geðlæknafélagsins, þar sem þung áhersla var lögð á að ákvarðanavaldið lægi áfram hjá geðlæknum einum, áttu sér stað fundarhöld í ráðuneytinu með yfirlæknum geðsviðs Landspítalans og út úr því kom gjörbreytt mynd af Sérfræðiteyminu. Alræðisvald geðlækna er varðveitt í nýrri útgáfu frumvarpsins, þeirri sem nú liggur fyrir. Í huggunarskyni er talað um að styrkja eftirlitshlutverk teymisins. 28. grein Lögræðislaga 28. grein Lögræðislaganna hefur lengi verið helsti ásteytingarsteinn okkar sem reynt höfum að halda fram rétti einstaklingsins og vísað til mannréttinda. Í greininni segir: „Vakthafandi læknir getur þó tekið ákvörðun um að nauðungarvistaður maður skuli sæta þvingaðri lyfjagjöf eða annarri þvingaðri meðferð ef hann er sjálfum sér eða öðrum hættulegur eða ef lífi hans eða heilsu er annars stefnt í voða.“ Undirritaður hefur löngum sett fram kröfu um að 28. greinin hverfi, hún sé eitt af því sem geri Lögræðislögin að ólögum. Nú er þessari grein smokrað inn í Lögin um réttindi sjúklinga sem eru mikil vonbrigði, ekki síst með með breyttu orðalagi. Í stað þess að gera það að skilyrði að um lífshættulegt ástand sé að ræða, er sett loðið orðalag um „viðurkennd læknisfræðisleg sjónarmið“. Augljóst er að um það má lengi deila um hvað séu viðurkennd sjónarmið og orðalag sem þetta er mjög teygjanlegt. Slíkt eykur enn hættuna á gerræðislegum geðþóttaákvörðunum vakthafandi geðlækna og yfirlækna. Við sem reynsluna höfum af slíku þykir nóg komið, þótt ekki sé verið að opna enn frekar á nauðung. Þessi 28. grein Lögræðislaganna sem á nú að koma breytt inn í 27. grein Laga um réttindi sjúklinga minnir okkur á nauðsyn þess að hafa varnagla í geðheilbrigðisþjónustunni, óháðan aðila. Þetta hlutverk gæti Sérfæðiteymið staðið vörð um, einsog það var hugsað og sett fram í fyrri útgáfu ráðuneytins sem vinnuhópurinn setti nafn sitt við í lok janúar 2023. Undirheiti Laga um réttindi sjúklinga er beiting nauðungar, um það snúast þessi lög. Í ljósi þess væri kannski eðlilegra að kalla þau Lög um réttleysi sjúklinga. Það er þó von mín og ég held flestallra að niðurstaða þessarar umræðu og lagabreytingar ýti ekki enn frekar undir réttleysi okkar sem glímum við geðrænar áskoranir. Við verðum að tryggja jafnrétti og mannréttindi þessa viðkvæma hóps. Ég hef þegar tilkynnt ráðuneytinu, að ég dragi til baka stuðning við frumvarpið einsog það lítur nú út eftir meðferð geðlæknanna. Í umsögn landsamtakanna Geðhjálpar sem komin er fram má ljóst vera að samtökin hafna frumvarpinu í núverandi mynd. Virðingarfyllst, Sveinn Rúnar Hauksson Stjórnarmaður í Geðhjálp

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-136/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. júl. 2023 – 7. ágú. 2023· 0 umsagnir

Breyting á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-136/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)

Engar umsagnir bárust og var unnið að frumvarpi um málið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-177/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. sep. 2023 – 27. okt. 2023· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-177/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2023)

Unnið var úr umsögnum og gerðar viðeigandi breytingar á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Sverrir Ómar Guðnason

    Góðan daginn er þá verið að tala um að lögin taki ekki gildi fyrr en 2025 og bætur greiddar eftir það?

  • #2Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir

    Lyfjafræðingafélag Íslands vill að skoðað verði að sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði vegna kaupa á lyfi sem afhent er af lyfja­fræð­ingi í neyðartilfelli. Lyfjafræðingar geta tekið ríkari þátt í að dreifa álagi í heilbrigðiskerfinu. Þá sé mikilvægur þáttur að lyf þeirra sem eru afgreidd í neyð séu líka niðurgreidd eins og þau sem komi frá læknum. Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands

  • #3Samtök fjármálafyrirtækja

    Góðan dag. Viðfest er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja. Virðingarfyllst, Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur

  • #4SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja um drög að frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu.

  • #5ÖBÍ - réttindasamtök

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. mars 2024
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    1 ræða · 2 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 2 mín
  • Umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 2 mín

Umsagnir og erindi

9 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 23. feb. 2024, frestur 8. mar. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustuumsögnOpna PDF
RíkislögmaðurumsögnOpna PDF
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendurumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Krabbameinsfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Sjúkratryggingar ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Samtök heilbrigðisfyrirtækjaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.