Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 722. mál

Umræðan um opin landamæri

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að bregðast við hraðri fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd, auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar, tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns og samræma löggjöf við reglur annarra Evrópuríkja, einkum á Norðurlöndum.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 14. jan. 2025

Markmiðið

Að bregðast við hraðri fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd, auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar, tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns og samræma löggjöf við reglur annarra Evrópuríkja, einkum á Norðurlöndum.

Hvað breytist

Lagt er til að nefndarmönnum í kærunefnd útlendingamála verði fækkað úr sjö í þrjá og að skerpt verði á hlutverki nefndarinnar. Einnig er lagt til að umsóknir einstaklinga um alþjóðlega vernd á grundvelli undantekninga í 2. mgr. 36. gr. laganna um sérstök tengsl og sérstakar ástæður verði ekki teknar til efnislegrar meðferðar. Þá er lagt til að aðstandendur útlendinga sem fengið hafa viðbótarvernd eða mannúðarleyfi hér á landi fái ekki rétt til fjölskyldusameiningar fyrr en a.m.k. tveimur árum eftir veitingu viðbótarverndar eða dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða enda hafi sá aðili fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað. Loks er lagt til að gildistími dvalarleyfa þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar skv. 1. mgr. 37. gr., 39. gr., 43. gr. og 45. gr. laganna verði þrjú ár í stað fjögurra ára, að gildistími dvalarleyfis þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laganna, um viðbótarvernd, verði tvö ár í stað fjögurra ára og að gildistími vegna endurnýjunar á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða verði til eins árs í stað tveggja ára.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna umsókna um alþjóðlega vernd lækki og hafi þannig jákvæð fjárhagsáhrif á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. mar. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
16 aðilar
Dómsmálaráðuneytið, Umboðsmaður barna, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Vinnumálastofnun, Lögmannafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna umsókna um alþjóðlega vernd lækki og hafi þannig jákvæð fjárhagsáhrif á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-179/2023· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. okt. 2023 – 16. okt. 2023· 10 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd)

Við framkvæmd gildandi laga um útlendinga hefur komið í ljós að lagfæra, endurskoða og breyta þarf nokkrum ákvæðum laganna varðandi alþjóðlega vernd.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-179/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Nauðsynlegt er að færa lög um útlendinga í samræmi við alþjóðlega sáttmála og mannréttindarsáttmála um flóttamenn sem koma á eigin vegum til Íslands. Að elta það sem fasistar á norðurlöndum eru að gera mun eingöngu leiða til mannréttindarbrota, brota gegn alþjóðalögum og brotum gegn fólki sem kemur til Íslands í leit að vernd gegn hryllilegum aðstæðum í sínu heimalandi. Núverandi lög um útlendinga og þá sérstaklega flóttamenn eru orðin þannig að þau eru núna brot á alþjóðlegum sáttmálum sem Ísland hefur skrifað undir. Enda sett af fólki sem hefur ekkert annað en ranghugmyndir og hatur um út… Lesa alla

    Nauðsynlegt er að færa lög um útlendinga í samræmi við alþjóðlega sáttmála og mannréttindarsáttmála um flóttamenn sem koma á eigin vegum til Íslands. Að elta það sem fasistar á norðurlöndum eru að gera mun eingöngu leiða til mannréttindarbrota, brota gegn alþjóðalögum og brotum gegn fólki sem kemur til Íslands í leit að vernd gegn hryllilegum aðstæðum í sínu heimalandi. Núverandi lög um útlendinga og þá sérstaklega flóttamenn eru orðin þannig að þau eru núna brot á alþjóðlegum sáttmálum sem Ísland hefur skrifað undir. Enda sett af fólki sem hefur ekkert annað en ranghugmyndir og hatur um útlendinga að markaði sínu og í þeirri umræðu sem þetta fólk hefur tekið á opinberum vettvangi. Fyrrverandi dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson var þar eitt versta dæmið sem komið hefur fram á Íslandi á síðustu áratugum og það sem hann gerði var ekkert annað en fasismi klæddur í jakkaföt. Þessu hefur núverandi dómsmálarherra haldið áfram með skömm og mannréttindarbrotum á flóttafólki sem kemur til Íslands á eigin vegum. Talað er um mikinn fjölda, samt þegar skjölin eru skoðuð. Þá sést að hérna er um að ræða innan við 10.000 manns, sem verður að teljast mjög lítið þegar í heiminum eru um 60 milljónir á flótta af ýmsum ástæðum. Þetta kemur ekki á óvart, enda er Ísland afskekkt land sem erfitt er að komast til og sjaldan sá staður sem flóttamenn vilja koma til en eru oft stöðvaðir á leið sinni til Kanada eða Bandaríkjanna þegar millilent er á Íslandi. Flóttamenn sitja því oft fastir á Íslandi og komast hvergi og er oft vísað frá Íslandi í kjölfarið. Sú hugmyndafræði sem dómsmálaráðuneyti Íslands sýnir af sér hérna er hugmyndafræði fasisma og slíkt er hvergi og á hvergi að vera ásættanlegt. Misnotkun íslenskra stjórnvalda á dyflinarreglugerðinni er eitthvað sem þarf að stöðva, enda er það þannig að þó eitthvað sé heimilt er það ekki skylda. Dómsmálaráðherra, þingmenn sjálfstæðisflokksins, þingmenn miðflokksins, þingmenn VG og fleiri hafa stöðugt farið með rangfærslur og lygar í umræðum um þennan málaflokk. Eingöngu til þess að ná sér í atkvæði með því að blása til hræðslu í þjóðfélaginu í garð flóttamanna. Þessi lagasetning ber þess merki að haldið sé áfram á þeirri ógæfuvegferð af hálfu íslenskra stjórnvalda. Þær breytingar sem eru boðaðar hérna auka ennþá á mannréttindarbrot íslenskra stjórnvalda gagnvart flóttafólki sem kemur til Íslands á eigin vegum. Slíkt getur ekki og á aldrei að vera samþykkt með neinum hætti. Íslensk stjórnvöld hafa sýnt fram á vilja til þess að ljúga til um þennan málaflokk og þetta hefur sést ítrekað á undanförnum árum. Þetta kemur núna fram í þessari lagasetningu og eldri lagasetningum. Lagasetningar byggðar á lygum og blekkingum eru ekki og geta aldrei verið góð lög til að fara eftir.

  • #2Kristinn Hannesson
    Það þykir í mínum augum vafamál hvers vegna dómsmálaráðherra vill herða þessa löggjöf frekar þegar hún virðist ekki eiga við í vissum tilvikum. Heilu hópunum er veitt flýtimeðferð eftir geðþótta yfirvalda með pennastriki á meðan öðrum er hent úr landi. Ber þar helst að nefna Afgani sem sendir voru úr landi og Úkraínu- og Venesúelamenn sem fengu flýtimeðferð. Einnig þykir mér einkennilegt að alltaf fái þeir flýtimeðferð sem búa í löndum þar sem Bandarísk stjórnvöld reka vopnaðar pólítískar hreyfingar lengst hægramegin á pólitíska rófinu, spurning hvort þar sé verið að þjónusta erlendar leyniþjó… Lesa alla

    Það þykir í mínum augum vafamál hvers vegna dómsmálaráðherra vill herða þessa löggjöf frekar þegar hún virðist ekki eiga við í vissum tilvikum. Heilu hópunum er veitt flýtimeðferð eftir geðþótta yfirvalda með pennastriki á meðan öðrum er hent úr landi. Ber þar helst að nefna Afgani sem sendir voru úr landi og Úkraínu- og Venesúelamenn sem fengu flýtimeðferð. Einnig þykir mér einkennilegt að alltaf fái þeir flýtimeðferð sem búa í löndum þar sem Bandarísk stjórnvöld reka vopnaðar pólítískar hreyfingar lengst hægramegin á pólitíska rófinu, spurning hvort þar sé verið að þjónusta erlendar leyniþjónustur, flytja inn kjósendur eða hví verra skaða þjóðaröryggi með því að flytja inn svefnsellur í anda Gladio-verkefnis Norður-Atlantshafsbandalagsins. Hvernig sem því fer virðist herðing gegn almennum umsækjendum en losaraskapur gagnvart þessum útvöldu pólitísks eðlis og árás á hlutleysi flóttamannamóttöku á Íslandi.

  • #3Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

  • #4Öryrkjabandalag Íslands

    Umsögn ÖBÍ um áform um breytingar á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd)

  • #5UN Women Ísland

    Meðfylgjandi er umsögn UN Women á Íslandi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-236/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. nóv. 2023 – 1. des. 2023· 16 umsagnir

Útlendingalög (alþjóðleg vernd)

Dómsmálaráðuneytið óskar umsagna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-236/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Lagabreytingar sem skerða réttindi fólks sem sækir um vernd á Íslandi eru alltaf og verða alltaf í andstöðu við alþjóðlega sáttmála Sameinuðu Þjóðanna, Mannréttinda Sáttmála Evrópu og fleiri alþjóðlega samninga og sáttmála. Þessi öfga-hægri stefna í þessum málaflokki til þess að draga athyglina frá stórfelldri vanhæfni í sjálfstæðisflokknum og allri ríkisstjórninni er til háborinnar skammar og ætti ekki að líðast í íslenskum stjórnmálum. Ef fólk ræður ekki við það starf sem það hefur valið sér, þá ætti það að finna sér eitthvað annað að gera en ekki taka út vanhæfnina á varnarlausu fólki se… Lesa alla

    Lagabreytingar sem skerða réttindi fólks sem sækir um vernd á Íslandi eru alltaf og verða alltaf í andstöðu við alþjóðlega sáttmála Sameinuðu Þjóðanna, Mannréttinda Sáttmála Evrópu og fleiri alþjóðlega samninga og sáttmála. Þessi öfga-hægri stefna í þessum málaflokki til þess að draga athyglina frá stórfelldri vanhæfni í sjálfstæðisflokknum og allri ríkisstjórninni er til háborinnar skammar og ætti ekki að líðast í íslenskum stjórnmálum. Ef fólk ræður ekki við það starf sem það hefur valið sér, þá ætti það að finna sér eitthvað annað að gera en ekki taka út vanhæfnina á varnarlausu fólki sem er að flýja ofsóknir morðóðra stjórnvalda í alræðisríkjum, þar sem mótmæli og að segja frá skoðunum sem eru stjórnvöldum eru alltaf dauðadómur eða ávísun á áreiti sem varir allt lífið. Síðan er allt fólki að sem er að flýja ýmis stríð sem eru núna í heiminum. Verndun mannlífs ætti að vera helsta markmið allra laga og það er ekki markmiðið hérna. Útlendingalög eins og þau eru í dag á Íslandi hafa það að markmiði að valda þjáningum og koma illa fram við fólk sem er nú þegar réttindalaust með öllu. Slíkt á aldrei að líða. Dómsmálaráðherra ætti að gera íslendingum þann greiða og segja sig frá embætti án tafar.

  • #2Benedikt Páll Jónsson

    Ég tel að þessi breyting sé löngu tímabær og skýrari rammi gerir öllum gott.

  • #3Andri Eiríksson

    Það er mikil þörf á þessum breytingum. Þótt það sé kaldrifjað og birtist þeim sem lengst sitja til vinstri sem eintóm illmennska, þá er kominn tími til að grisja mun þéttar úr þeim fjölda sem hingað vill koma.

  • #4Svavar Kjarrval Lúthersson

    Þar sem kaflinn um samræmi við stjórnarskrár og alþjóðlegar skuldbindingar minnast ekki á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þá vil ég minna á 11. gr., 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 18. gr. og fleiri greinar sem við gætu átt eftir atvikum. Frumvarpsvinnan ætti að fara fram í samstarfi við samtök fatlaðs fólks, sbr. 1. mgr. 32. gr. samningsins.

  • #5Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um útlendingalög (alþjóðleg vernd)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. mars 2024
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

23 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. mar. 2024, frestur 20. mar. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðbréfOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðannaupplýsingarOpna PDF
VinnumálastofnunumsögnOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Lögmannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Kærunefnd útlendingamálaumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Claudia & Partners Legal ServicesumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
FTA - félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega verndumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
UN Women ÍslandumsögnOpna PDF
UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.