Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 726. mál

Staðfesting kosningar

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að gera stjórnvöldum kleift að koma í veg fyrir að erlendir aðilar öðlist eignarhlut, yfirráð eða veruleg áhrif yfir rekstraraðilum eða fasteignum hér á landi með þeim hætti að það ógni þjóðaröryggi eða allsherjarreglu.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 1 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. ágú. 2024

Markmiðið

Að gera stjórnvöldum kleift að koma í veg fyrir að erlendir aðilar öðlist eignarhlut, yfirráð eða veruleg áhrif yfir rekstraraðilum eða fasteignum hér á landi með þeim hætti að það ógni þjóðaröryggi eða allsherjarreglu.

Hvað breytist

Lagt er til að stjórnvöld fái heimildir til að meta og taka afstöðu til fjárfestinga erlendra aðila í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi með tilliti til sjónarmiða um þjóðaröryggi.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs geti numið 5-10 milljónum kr. á ársgrundvelli.

Meira úr samantektinni

Skýrsla stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir. Forsætisráðuneytið, maí 2021.

Erlend löggjöf

Bretland

National Security and Investment Act 2021.

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om screening af visse udenlandske direkte investeringer m.v. i Danmark (investeringsscreeningsloven) LBK nr 1256 af 27/10/2023.

Evrópusambandið

Regulation (EU) 2019/452 of the European Parliament and of the Council of 19 March 2019 establishing a framework for the screening of foreign direct investments into the Union.

Finnland

Lag om tillsyn över utlänningars företagsköp 13.4.2012/172.

Noregur

Lov om nasjonal sikkerhet (sikkerhetsloven) LOV-1998-03-20-10.

Svíþjóð

Lag om granskning av utländska direktinvesteringar (2023:560).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Teitur Björn Einarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 28. mar. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Arion banki hf., Forsætisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SVÞ og VÍ, Landvernd, HS Orka hf o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs geti numið 5-10 milljónum kr. á ársgrundvelli.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-102/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. jún. 2022 – 10. júl. 2022· 4 umsagnir

Rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

Setning heildarlaga um rýni á beinum erlendum fjárfestingum einkum á sérlega viðkvæmum sviðum með tilliti til þess hvort þær samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-102/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. júlí 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. október 2022)

Sjá meðfylgjandi skjal þar sem athugasemdir eru reifaðar og við þeim brugðist.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Egill Másson
    Góðan daginn. Umsögn mín lýtur sérstaklega að íþyngjandi áhrifum á sprotafyrirtæki í djúptækni. Undir greininni "Sérlega viðkvæmir geirar og starfsemi" er töluliður 4 sérlega víðtækur. 4. Fyrirtæki sem starfa við framleiðslu eða þróun á mikilvægri tækni, annarri en fellur undir aðra töluliði þessa ákvæðis. Í textanum fyrir neðan kemur fram: "Undir 4. tölul. getur t.d. fallið gervigreind, þróuð þjarkatækni og drónatækni, þrívíddarprentun til framleiðslu íhluta til iðnaðarnota, hálfleiðarar, kjarnorkutækni, skammtatækni, nanótækni, líftækni, flug- og geimtækni, tækni til varðve… Lesa alla

    Góðan daginn. Umsögn mín lýtur sérstaklega að íþyngjandi áhrifum á sprotafyrirtæki í djúptækni. Undir greininni "Sérlega viðkvæmir geirar og starfsemi" er töluliður 4 sérlega víðtækur. 4. Fyrirtæki sem starfa við framleiðslu eða þróun á mikilvægri tækni, annarri en fellur undir aðra töluliði þessa ákvæðis. Í textanum fyrir neðan kemur fram: "Undir 4. tölul. getur t.d. fallið gervigreind, þróuð þjarkatækni og drónatækni, þrívíddarprentun til framleiðslu íhluta til iðnaðarnota, hálfleiðarar, kjarnorkutækni, skammtatækni, nanótækni, líftækni, flug- og geimtækni, tækni til varðveislu orku til iðnaðarnota, til orkuumbreytingar og orkuflutninga, tækni tengd umhverfisvernd og aðgerðum gegn loftslagsbreytingum, o.fl. " Flestir þessara þátta lúta að því sem kalla mætti djúptækni. Sprotafyrirtæki sem vinna að vörum sem byggja á djúptækni reyna gjarnan að sækja fjármagn til sérhæfðra erlendra fjárfestingasjóða sem hafa djúpa sérþekkingu og víðtækt tengslanet á afmörkuðu sviði. Það er afar mikilvægt en ekki auðvelt að sækja erlent fjármagn til slíkra fyrirtækja og ég vil vara við því að setja upp hindranir á þeirri vegferð. Slíkar hindranir koma sérlega illa við sprotafyrirtæki sem hafa takmarkaða umgjörð til að fást við flókin regluverk. Ég vil því mælast til að skilgreiningin verði þrengd eða þessi töluliður felldur niður þannig að lögin takmarkist við tækni sem varðar þjóðaröryggi. Til vara verði tekið sérstakt tillit til sprotafyrirtækja.

  • #2HS Orka hf.

    Meðfylgjandi er umsögn HS Orku hf.

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samorku. Bestu kveðjur.

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Viðhengd er umsögn Viðskiptaráðs Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-197/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. okt. 2022 – 1. nóv. 2022· 11 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

Með frumvarpinu eru lögð til heildarlög um fjárfestingarýni vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-197/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. nóvember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    1 ræða · 1 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 28. mars 2024
    2 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 1 mín
  • Umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

9 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 7. mar. 2024, frestur 28. mar. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Arion banki hf.umsögnOpna PDF
ForsætisráðuneytiðathugasemdOpna PDF
ForsætisráðuneytiðathugasemdOpna PDF
ForsætisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SVÞ og VÍumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
HS Orka hfumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.