Beint í efni
Alviti
Þingmál154. þing · 754. mál

Efnahagsstjórn og kjarasamningar

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda, einkum varðandi langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 8 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. sep. 2024

Markmiðið

Að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda, einkum varðandi langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð.

Hvað breytist

Lagt er til að koma á almennri skráningu leigusamninga sem gerðir eru um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar í opinberan gagnagrunn, svokallaða leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Einnig er lagt til að efla kærunefnd húsamála til að tryggja að aðilar leigusamnings hafi aðgang að virku réttarúrræði til úrlausnar á ágreiningi sem upp kann að koma í lögskiptum þeirra.

Lög sem breytast

Húsaleigulög, nr. 36/1994. Lög um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019. Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998. Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Áfangaskýrsla um endurskoðun á húsaleigulögum. Innviðaráðuneytið, 14. desember 2022.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 3 umsagnabeiðnir · frestur 25. mar. 2024
Sendu inn umsögn eða erindi
22 aðilar
Innviðaráðuneytið, VR, Árni Páll Hafþórsson, Sara Bryndís Þórsdóttir, Heimstaden o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
8 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum kostnaði fyrir ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-133/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 13. júl. 2023 – 21. ágú. 2023· 4 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (leiguskrá, forgangsréttur og fyrirsjáanleiki leiguverðs).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-133/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-140/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. júl. 2023 – 21. ágú. 2023· 18 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (tillögur starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga)

Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar tillögur starfshóps innviðaráðherra um breytingar á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-140/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 18 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (18)
  • #1Jakob Helgi Þórðarson
    Í tilliti til núverandi stöðu á leigumarkaði (ritað í Júlí 2023) þá tel ég, sem leigjandi á leigumarkaði, ríka ástæðu til að hindra bindingu á leiguverði við vísitölur. Mjög algengt er að leiguverð á Íslandi séu nú bundin við vísitölu neysluverðs, sem leiðir til þess að leiguverð uppfærist og breytist mánaðarlega. Slíkt er jafnan tekið fram í auglýsingum fyrir leiguhúsnæði, og því er auðvelt að sjá að meirihluti leigusamninga kemur þróast í þessa átt í framtíðinni. Leigjendur eru í dræmri stöðu á núverandi leigumarkaði á Íslandi til að mótmæla slíkum tengingum við vísitölur, þar sem frambo… Lesa alla

    Í tilliti til núverandi stöðu á leigumarkaði (ritað í Júlí 2023) þá tel ég, sem leigjandi á leigumarkaði, ríka ástæðu til að hindra bindingu á leiguverði við vísitölur. Mjög algengt er að leiguverð á Íslandi séu nú bundin við vísitölu neysluverðs, sem leiðir til þess að leiguverð uppfærist og breytist mánaðarlega. Slíkt er jafnan tekið fram í auglýsingum fyrir leiguhúsnæði, og því er auðvelt að sjá að meirihluti leigusamninga kemur þróast í þessa átt í framtíðinni. Leigjendur eru í dræmri stöðu á núverandi leigumarkaði á Íslandi til að mótmæla slíkum tengingum við vísitölur, þar sem framboð á leiguhúsnæði er verulega á skjön við eftirspurn. Í slíkum aðstæðum leigumarkaðs er hæglega séð að mótmæli leigjanda gagnvart slíkum ákvæðum leigusala, varðandi bindingu leiguverðs við vísitölur, valdi því að leigusali hafi hafsjó annara leigjanda til að velja úr, í stað þess að koma til móts við leigjanda sem sýnir mótmæli. Leigjendur hafa því ekki annara kosta völ en að sættast við óréttmæt ákvæði í leigusamningum, ellegar fái þeir ekki kost á húsnæði á leigumarkaði. Ég tel því ástæðu til að taka skýrar fram í yrðingu 37. Gr., 4mgr., að breyting á leiguverði á tímabundnum samningum nær sömuleiðis til bindinga á leiguverði við vísitölu neysluverðs (eða annara vísitala).

  • #2Öryrkjabandalag Íslands

    Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum

  • #3Sigurður Eyberg Jóhannesson
    Góðan dag, Kapp er best með forsjá. Hér væri ráð að gæta þess að þrengja ekki svo að réttindum leigusala að þeir sjái sér ekki hag í að halda áfram að reka húsnæði á leigumarkaði. Það myndi vinna gegn markmiðinu um að auka framboð húsnæðis á leigumarkaði. Leigusamningar eru samningar tveggja aðila á frjálsum markaði og það er ekki augljóst að mikil íhlutun yfirvalda sé til bóta. Hugsanlega eru aðrar leiðir betri til að styrkja stöðu þeirra sem verst standa. Þá er öll orðræða í þá átt að leigusalar séu gróðrapungar afar ósmekkleg og líklegast í langflestum tilfellum ósanngjörn (hér er auðvit… Lesa alla

    Góðan dag, Kapp er best með forsjá. Hér væri ráð að gæta þess að þrengja ekki svo að réttindum leigusala að þeir sjái sér ekki hag í að halda áfram að reka húsnæði á leigumarkaði. Það myndi vinna gegn markmiðinu um að auka framboð húsnæðis á leigumarkaði. Leigusamningar eru samningar tveggja aðila á frjálsum markaði og það er ekki augljóst að mikil íhlutun yfirvalda sé til bóta. Hugsanlega eru aðrar leiðir betri til að styrkja stöðu þeirra sem verst standa. Þá er öll orðræða í þá átt að leigusalar séu gróðrapungar afar ósmekkleg og líklegast í langflestum tilfellum ósanngjörn (hér er auðvitað ekki átt við frumvarpið heldur þá orðræðu sem oft er notuð til réttlætingar slíkri lagasetningu). Oftast er um að ræða venjulegt fólk sem með dugnaði hefur komið sér upp auka húsnæðiseiningu til fjárfestingar, tekjuöflunar á leigumarkaði, fyrir afkomandur sína o.s.frv. Það hlýtur að vera þessu fólki í sjálfsvald sett hvaða verð þeir vilja fá fyrir eignir sínar - er það ekki eðlilegur hluti af frelsi þeirra til að fara með sínar eigur? Þeir sem hafa verið í stöðu leigusala þekkja líka sumir á eigin skinni og aðrir sem betur fer aðeins að afspurn að það þarf ekki nema einn slæman leigjanda til að þurrka út tekjur ársins - og jafnvel til margra ára. Í þessu samhengi er líka rétt að minnast þess að eignarrétturinn er friðhelgur skv. stjórnarskrá en í 72. gr. segir: "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir." Hér má velta fyrir sér hvort um eignaupptöku sé að ræða af hálfu yfirvalda ef þessi lög taka gildi? Stjórnarskráin leyfir slíkt ef almannahagsmunir kalla á - og það má sjálfsagt færa rök fyrir því að slæm staða leigjenda á markaði séu slíkir almannahagsmunir - en þá ættu yfirvöld að bæta leigusölum tjón þeirra. Er reiknað með því að slíkt verði gert? Það er hæpið. Hér þarf því að gæta þess að yfirvöld opni ekki á málsóknir frá leigusölum sem telja sig hlunnfarna. Markmiðin eru göfug hér en ekki er víst að löggjöf sé rétta leiðin að markmiðunum. Kapp er best með forsjá. bk Sigurður E. Jóhannesson

  • #4Hagstofa Íslands

    Sjá meðfylgjandi skrá

  • #5Sigurður Orri Hafþórsson

    Góðan dag. Sjá má umsögn Húseigendafélagsins í viðhengi. F.h. Húseigendafélagsins, Sigurður Orri Hafþórsson.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 25. mars 2024
    3 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 8 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 8 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

24 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 3 umsagnabeiðnir 11. mar. 2024, frestur 25. mar. 2024.

Hver sendiTegundBarstSkjal
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
VRumsögnOpna PDF
Árni Páll HafþórssonumsögnOpna PDF
Sara Bryndís ÞórsdóttirumsögnOpna PDF
HeimstadenumsögnOpna PDF
BSRB, Bandalag háskólamanna og Kennarasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Kærunefnd húsamálaumsögnOpna PDF
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Húsnæðis- og mannvirkjastofnunumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Sveinn Óskar SigurðssonumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsbústaðir hf.umsögnOpna PDF
Alma íbúðafélag hf.umsögnOpna PDF
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
HúseigendafélagiðumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Byggingafélag námsmanna ses.umsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.