Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 103. mál

Ummæli utanríkismálafulltrúa Evrópusambandsins og hagsmunir Íslands í varnarmálum

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að innleiða reglur EES-réttar um meðalhófsmat áður en settar eru nýjar reglur eða gildandi reglum breytt sem takmarka aðgang að lögvernduðum starfsgreinum eða iðkun þeirra og stuðla þannig að því að slíkar takmarkanir gangi ekki lengra en nauðsyn krefur.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 8. sep. 2026

Markmiðið

Að innleiða reglur EES-réttar um meðalhófsmat áður en settar eru nýjar reglur eða gildandi reglum breytt sem takmarka aðgang að lögvernduðum starfsgreinum eða iðkun þeirra og stuðla þannig að því að slíkar takmarkanir gangi ekki lengra en nauðsyn krefur.

Hvað breytist

Lagt er til að áður en settar eru nýjar reglur eða gildandi reglum breytt um störf þar sem sérstök menntun eða starfshæfni er skilyrði fyrir aðgangi að starfi eða iðkun þess skuli hlutaðeigandi ráðherra meta hvort takmörkunin sé réttlætanleg með vísan til almannahagsmuna, til þess fallin að ná markmiði sínu og gangi ekki lengra en nauðsyn krefur. Gert er ráð fyrir að rökstuðningur fyrir matinu verði skráður í sameiginlegan evrópskan gagnagrunn yfir lögverndaðar starfsgreinar.

Frumvarpið felur ekki í sér skyldu til að endurskoða gildandi reglur um lögverndun starfa sem ekki standa til breytinga. Þá er lagt til að ráðherra verði veitt heimild til að setja nánari reglur um framkvæmd matsins, upplýsingaskipti og skráningu upplýsinga.

Lög sem breytast

Lög um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2021, þar sem tilskipun (ESB) 2018/958 var tekin upp í EES-samninginn, tók gildi 1. febrúar 2023 og sama dag rann út frestur EFTA-ríkjanna til að innleiða tilskipunina. Hinn 5. desember 2024 komst EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu í máli E-9/24 (Eftirlitsstofnun EFTA gegn Íslandi) að íslenska ríkið hefði ekki uppfyllt skyldur sínar með því að hafa ekki innleitt tilskipunina innan tilskilins frests.

Löggjöf á Norðurlöndum

Á hinum fjórum Norðurlöndunum gilda reglur um meðalhófsmat áður en settar eru nýjar eða breyttar kröfur um lögvernduð störf. Útfærslan er þó mismunandi og hér er einkum litið til skyldunnar til að framkvæma slíkt mat en síður til þess hvaða stjórnvaldi verkefnið er falið.

Í Danmörku var tilskipunin innleidd með lögum um breytingu á lögum um viðurkenningu á tiltekinni náms- og starfshæfni (lov om ændring af lov om anerkendelse af visse uddannelses- og erhvervsmæssige kvalifikationer, LOV nr 884 af 16/06/2020). Með lögunum var kveðið á um að reglur um meðalhófsmat tækju til nýrrar eða breyttrar reglusetningar um störf og að tilskipun (ESB) 2018/958 gilti í Danmörku, sbr. 3. og 5. tölul. 1. gr. breytingarlaganna.

Í Finnlandi var í 1. og 3. gr. reglugerðar um meðalhófsmat áður en reglur um starfsgreinar eru samþykktar (Statsrådets förordning om proportionalitetsprövning före antagandet av reglering av yrken, 376/2020) kveðið á um að því stjórnvaldi sem undirbýr reglusetningu af þessu tagi beri að framkvæma meðalhófsmat áður en nýjar reglur eru settar eða gildandi reglum breytt.

Í Noregi er í greinum 10-1 til 10-3 í reglugerð um viðurkenningu á starfsréttindum (forskrift om godkjenning av yrkeskvalifikasjoner, FOR-2017-12-22-2384) kveðið á um að ábyrgt stjórnvald skuli framkvæma meðalhófsmat áður en settar eru nýjar eða breyttar reglur sem takmarka aðgang að eða iðkun þeirra starfa sem ákvæðin taka til. Reglurnar tóku gildi 1. desember 2023.

Í Svíþjóð gildir reglugerð um meðalhófsmat við nýjar eða breyttar kröfur um starfsréttindi (förordning om proportionalitetsprövning vid nya eller ändrade krav på yrkeskvalifikationer, 2020:757) um stjórnvöld sem heyra undir ríkisstjórnina. Samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar ber stjórnvaldi sem undirbýr drög að stjórnvaldsfyrirmælum sem fela í sér nýjar eða breyttar kröfur um lögverndað starf að framkvæma svonefnt innra markaðspróf. Það felur meðal annars í sér að sýna fram á að þær ráðstafanir sem lagðar eru til séu til þess fallnar að ná markmiði sem varðar almannahagsmuni og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði.

Munurinn milli ríkjanna liggur því einkum í gildissviði reglnanna og því hvernig skyldan til meðalhófsmats er útfærð.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Guðmundur Ari Sigurjónsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 4. mar. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Bandalag háskólamanna (BHM), Félag iðn- og tæknigreina, Viðskiptaráð Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 4. mars 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 18. feb. 2025, frestur 4. mar. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Félag íslenskra hjúkrunarfræðingaumsögnOpna PDF
Bandalag háskólamanna (BHM)umsögnOpna PDF
Félag iðn- og tæknigreinaumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.