Önnur viðbótarbókun við Evrópusamning um gagnkvæma aðstoð í sakamálum kveður á um að aðildarríki veiti hvert öðru sem víðtækasta aðstoð án tafar. Í henni er m.a. að finna sérstök ákvæði um skýrslutöku með fjarfundabúnaði, tímabundinn flutning frelsissviptra einstaklinga og sameiginlega rannsóknarhópa.
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk. Samkvæmt 190. gr. réttarfarslaganna (Retsplejeloven, LBK nr. 1160 af 05/11/2024) gilda ákvæði laganna um skýrslutöku vitna að beiðni erlendra yfirvalda. Verða skal við beiðni um tiltekið form eða málsmeðferð, þ.m.t. skýrslutöku frá útlöndum með fjarskiptabúnaði, eftir því sem unnt er nema hún sé augljóslega ósamrýmanleg danskri réttarskipan.
Finnland. Samkvæmt 3. gr. laga um alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum (Lag om internationell rättshjälp i straffrättsliga ärenden, 4/1994) er finnska dómsmálaráðuneytið miðlægt stjórnvald samkvæmt lögunum. Í 5. gr. er jafnframt gert ráð fyrir að ráðuneytið, dómstólar, ákæruvald og rannsóknaryfirvöld geti óskað eftir réttaraðstoð erlendis.
Noregur. Í 23. gr. a framsalslaga (Lov om utlevering av lovbrytere m.v. [utleveringsloven], LOV-1975-06-13-39) er mælt fyrir um að verða skuli við erlendum beiðnum um réttaraðstoð eftir því sem unnt er. Beiðni skal þó hafnað ef framkvæmd hennar myndi skerða fullveldi Noregs, stofna öryggi ríkisins í hættu eða brjóta gegn réttarskipan þess eða öðrum mikilvægum hagsmunum.
Svíþjóð. Ákvæði 2. gr. 1. kafla laga um alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum (Lag om internationell rättslig hjälp i brottmål, 2000:562) taka m.a. til skýrslutöku í síma og með fjarfundabúnaði ásamt flutningi frelsissviptra einstaklinga vegna skýrslutöku. Samkvæmt 6. gr. 2. kafla má senda beiðni frá Íslandi beint til þar til bærs saksóknara eða dómstóls.