Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 131. mál

Framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum

Einföldun málsmeðferðar

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 6. jún. 2025

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að einfalda og hraða málsmeðferð framsalsmála og alþjóðlegra réttarbeiðna, gera lögin skýrari og samræma þau þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands.

Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 6. jún. 2025 greiddu 52 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
3. mars 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
20 ræður · 49 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að einfalda og hraða málsmeðferð framsalsmála og alþjóðlegra réttarbeiðna, gera lögin skýrari og samræma þau þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands.

Hvað breytist

Lagt er til að ríkissaksóknari verði miðlægt stjórnvald vegna réttarbeiðna, taki við beiðnum erlendis frá, sjái um framkvæmd þeirra og komi beiðnum íslenskra löggæsluyfirvalda til erlendra yfirvalda eða alþjóðastofnana. Jafnframt yrði kveðið skýrar á um form, málshraða og framkvæmd réttarbeiðna, m.a. skýrslutökur með fjarfundabúnaði og afhendingu gagna.

Lögð er til skýr heimild til að taka yfir saksókn frá erlendum yfirvöldum og óska eftir yfirtöku saksóknar erlendis, óháð því hvort samningur sé fyrir hendi. Ríkissaksóknari fengi ákvörðunarvald um slíkar beiðnir. Einnig yrði sett ákvæði um tímabundinn flutning frelsissviptra einstaklinga, sendingu málsskjala, sameiginlega rannsóknarhópa og ábyrgð erlendra opinberra starfsmanna.

Framsalsákvæðum yrði endurraðað í samræmi við málsmeðferð framsalsmála. Beiðnir færu almennt milli dómsmálaráðuneyta, ríkissaksóknari færi með málin fyrir dómi og sá sem framsalsbeiðni beinist að gæti krafist úrskurðar héraðsdóms um lögmæti ákvörðunar. Meginreglum um skilyrði framsals yrði ekki breytt efnislega.

Lög sem breytast

Lög um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984. Lög um framkvæmd Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn, nr. 43/2001. Lög um alþjóðlega samvinnu um fullnustu refsidóma, nr. 56/1993.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Önnur viðbótarbókun við Evrópusamning um gagnkvæma aðstoð í sakamálum kveður á um að aðildarríki veiti hvert öðru sem víðtækasta aðstoð án tafar. Í henni er m.a. að finna sérstök ákvæði um skýrslutöku með fjarfundabúnaði, tímabundinn flutning frelsissviptra einstaklinga og sameiginlega rannsóknarhópa.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Samkvæmt 190. gr. réttarfarslaganna (Retsplejeloven, LBK nr. 1160 af 05/11/2024) gilda ákvæði laganna um skýrslutöku vitna að beiðni erlendra yfirvalda. Verða skal við beiðni um tiltekið form eða málsmeðferð, þ.m.t. skýrslutöku frá útlöndum með fjarskiptabúnaði, eftir því sem unnt er nema hún sé augljóslega ósamrýmanleg danskri réttarskipan.

Finnland. Samkvæmt 3. gr. laga um alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum (Lag om internationell rättshjälp i straffrättsliga ärenden, 4/1994) er finnska dómsmálaráðuneytið miðlægt stjórnvald samkvæmt lögunum. Í 5. gr. er jafnframt gert ráð fyrir að ráðuneytið, dómstólar, ákæruvald og rannsóknaryfirvöld geti óskað eftir réttaraðstoð erlendis.

Noregur. Í 23. gr. a framsalslaga (Lov om utlevering av lovbrytere m.v. [utleveringsloven], LOV-1975-06-13-39) er mælt fyrir um að verða skuli við erlendum beiðnum um réttaraðstoð eftir því sem unnt er. Beiðni skal þó hafnað ef framkvæmd hennar myndi skerða fullveldi Noregs, stofna öryggi ríkisins í hættu eða brjóta gegn réttarskipan þess eða öðrum mikilvægum hagsmunum.

Svíþjóð. Ákvæði 2. gr. 1. kafla laga um alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum (Lag om internationell rättslig hjälp i brottmål, 2000:562) taka m.a. til skýrslutöku í síma og með fjarfundabúnaði ásamt flutningi frelsissviptra einstaklinga vegna skýrslutöku. Samkvæmt 6. gr. 2. kafla má senda beiðni frá Íslandi beint til þar til bærs saksóknara eða dómstóls.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Lokaatkvæðagreiðsla
6. jún. 2025
Samþykkt52 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • Sf15–0
  • S13–0
  • V7–0
  • Flf10–0
  • M4–0
  • F3–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 21. mar. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Dómsmálaráðuneytið, Afstaða, félag fanga á Íslandi, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Ríkissaksóknari · allar umsagnir
Umræða í þingsal
49 mín · 20 ræður
9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 6. júní 2025: 52 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með8 tóku til máls

Sýna 2 í viðbót

44 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-125/2024· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. jún. 2024 – 14. ágú. 2024· 0 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum (einföldun málsmeðferðar)

Áformað er að lagfæra lagatilvísanir og orðalag í lögunum, auk þess að einfalda málsmeðferð framsalsmála og réttarbeiðna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-125/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. ágúst 2026)

Engar umsagnir bárust

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-207/2024· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2024 – 25. okt. 2024· 1 umsögn

Einföldun málsmeðferðar laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum

Frumvarpinu er ætlað að einfalda málsmeðferð, gera lögin skilvirkari og samræma orðalag við önnur lög, auk þess að endurspegla þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna alþjóðlegrar réttaraðstoðar

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-207/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. ágúst 2026)

Ein umsögn barst í gegnum gáttina frá einstaklingi sem taldi rétt að gera breytingar á 2. gr. frumvarpsins til að heimila þjóðaratkvæðagreiðslur um framsal íslenskra ríkisborgara. Öllum lögregluembættum landsins var boðið að senda inn umsagnir um frumvarpsdrögin. Umsagnir bárust frá lögreglunni á Norðurlandi eystra, héraðssaksóknara og ríkissaksóknara. Fundað var með ríkissaksóknara og sendisaksóknara Íslands hjá Eurojust í kjölfar umsagnar frá embættinu auk þess sem fundað var með lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Viggó Einar Viðarsson
    a. (2. gr.) Íslenskir ríkisborgarar. Ekki má framselja íslenska ríkisborgara. Hér þarf að gera breytingu og opna fyrir að þingmenn,ráðherra sé hægt að framselja hafi þau með gjörðum sínum eða lagasetningu valdið erlendu ríki tjóni. Slíkt framsal á að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu svo þjóðin eigi tækifæri á að losna undan því tjóni og ábyrgðum sem viðkomandi hefur skapað og myndu annars lenda á þjóðinni. Jafnframt þarf að vera valmöguleiki á að þjóðin geti óskað eftir atkvæðagreiðslu um framsal íslenskra ríkisborgara hafi þeir valdið landi og þjóð skaða á erlendri grundu eins og hinir alræmdu… Lesa alla

    a. (2. gr.) Íslenskir ríkisborgarar. Ekki má framselja íslenska ríkisborgara. Hér þarf að gera breytingu og opna fyrir að þingmenn,ráðherra sé hægt að framselja hafi þau með gjörðum sínum eða lagasetningu valdið erlendu ríki tjóni. Slíkt framsal á að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu svo þjóðin eigi tækifæri á að losna undan því tjóni og ábyrgðum sem viðkomandi hefur skapað og myndu annars lenda á þjóðinni. Jafnframt þarf að vera valmöguleiki á að þjóðin geti óskað eftir atkvæðagreiðslu um framsal íslenskra ríkisborgara hafi þeir valdið landi og þjóð skaða á erlendri grundu eins og hinir alræmdu útrásavíkingar gerðu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    2 ræður · 11 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 21. mars 2025
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    15 ræður · 36 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Þingskjal
  14. Umræða
    3. umræða
    3 ræður · 2 mín
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  16. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
132Stjórnarfrumvarp3. mar. 2025Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirLesaPDF
373Nál. með brtt.9. apr. 2025Guðrún Hafsteinsdóttir, Grímur Grímsson +5LesaPDF
614Frumvarp eftir 2. umræðu2. jún. 2025—LesaPDF
670Lög í heild6. jún. 2025—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

20 ræður · 49 mín
  • 1. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 11 mín
  • 2. umræða: 15 ræður · 5 ræðumenn · 36 mín
  • 3. umræða: 3 ræður · 3 ræðumenn · 2 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Snorri MássonMiðflokkurinn11 mín
Grímur GrímssonViðreisn13 mín
Rósa GuðbjartsdóttirSjálfstæðisflokkur23 mín
Jón Pétur ZimsenSjálfstæðisflokkur13 mín
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn24 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn29 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn510 mín
Guðmundur Ari SigurjónssonSamfylkingin515 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 7. mar. 2025, frestur 21. mar. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Afstaða, félag fanga á ÍslandiumsögnOpna PDF
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
RíkissaksóknariumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.