Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 132. mál

Landamæri o.fl.

Farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 6. jún. 2025

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja að lögregla og tollyfirvöld fái og geti unnið nauðsynlegar upplýsingar um farþega og áhöfn, efla farþegagreiningu og laga íslenskar reglur að fyrirhuguðum samningi við Evrópusambandið um afhendingu farþegabókunargagna loftfara.

Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 6. jún. 2025 greiddu 55 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
3. mars 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
62 ræður · 2 klst. 8 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að tryggja að lögregla og tollyfirvöld fái og geti unnið nauðsynlegar upplýsingar um farþega og áhöfn, efla farþegagreiningu og laga íslenskar reglur að fyrirhuguðum samningi við Evrópusambandið um afhendingu farþegabókunargagna loftfara.

Hvað breytist

Lagt er til að hugtakið upplýsingar um farþega og áhöfn taki til upplýsinga sem finna má í farþegabókunargögnum og ferðaskilríkjum farþega og áhafnar. Samkvæmt frumvarpinu yrði flutningsaðilum sem og stjórnendum, eigendum eða umráðamönnum fara skylt að afhenda farþegaupplýsingadeild lögreglu og tollyfirvalda upplýsingarnar. Hlutverk deildarinnar við móttöku, vinnslu og miðlun þeirra yrði jafnframt lögfest.

Gert er ráð fyrir að upplýsingar úr ferðaskilríkjum, svonefndar API-upplýsingar, megi vinna og miðla í þágu landamæravörslu, í löggæslutilgangi eða svo að stjórnvöld geti sinnt lögbundnum hlutverkum sínum. Vinnsla og miðlun farþegabókunargagna loftfara, PNR-gagna, yrði hins vegar aðeins heimil í því skyni að koma í veg fyrir, koma upp um, rannsaka eða saksækja fyrir refsiverð brot sem varðað geta þriggja ára fangelsi eða þyngri refsingu. Ráðherra yrði falið að setja nánari reglur um upplýsingaskylduna og söfnun, vinnslu, miðlun og varðveislu upplýsinganna.

Lagt er til að hámarksrefsing fyrir tiltekin brot gegn tollalögum verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í þrjú ár. Fjárhæðir stjórnvaldssekta vegna brota á skyldu flutningsaðila til að afhenda farþegaupplýsingar yrðu einnig hækkaðar verulega.

Lög sem breytast

Lög um landamæri, nr. 136/2022. Lögreglulög, nr. 90/1996. Tollalög, nr. 88/2005.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Samkvæmt upplýsingasíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eru PNR-gögn upplýsingar sem farþegar láta í té og flugrekendur safna og varðveita. Þau geta meðal annars náð yfir ferðadaga og heildarferðaáætlun farþega eða ferðahóps, auk greiðsluupplýsinga, sætisnúmers og upplýsinga um farangur (framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, „Travel Information“, 17. júní 2025).

Í Evrópusambandinu gildir tilskipun ráðsins 2004/82/EB, svonefnd API-tilskipun, um skyldu flutningsaðila til að miðla farþegaupplýsingum í því skyni að bæta landamæraeftirlit og vinna gegn ólöglegum innflutningi fólks. Ísland var skuldbundið til að innleiða tilskipunina á grundvelli Schengen-samstarfsins. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/681, svonefnd PNR-tilskipun, fjallar um afhendingu og vinnslu farþegabókunargagna í því skyni að koma í veg fyrir, upplýsa, rannsaka og saksækja hryðjuverkabrot og alvarlega brotastarfsemi. Hún bindur Ísland hins vegar hvorki á grundvelli EES-samningsins né Schengen-samstarfsins.

Með ákvörðun ráðsins (ESB) 2024/947 var framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heimilað að hefja viðræður við Ísland um samning um afhendingu PNR-gagna. Frumvarpinu er ekki ætlað að innleiða PNR-tilskipunina sem slíka heldur efni fyrirhugaðs samnings. Efnistök samningsins eru þó einkum sótt til tilskipunarinnar og taka tillögur frumvarpsins því að hluta mið af sambærilegum reglum hennar, meðal annars um farþegaupplýsingadeild og afmörkun heimildar til vinnslu PNR-gagna.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Samkvæmt 1. tl. 10. gr. laga um söfnun, notkun og varðveislu upplýsinga um flugfarþega (Lov om indsamling, anvendelse og opbevaring af oplysninger om flypassagerer (PNR-loven), LOV nr 1706 af 27/12/2018) er PNR-einingunni heimilt að vinna PNR-gögn til að meta farþega fyrir fram og bera kennsl á þá sem kanna þarf nánar vegna hugsanlegra tengsla við hryðjuverk eða alvarlega brotastarfsemi. Með alvarlegri brotastarfsemi er átt við brot sem talin eru upp í 2. viðauka laganna og geta varðað þriggja ára fangelsi eða þyngri refsingu.

Finnland. Í 7. tl. 3. gr. laga um notkun upplýsinga um flugfarþega til að sporna við hryðjuverkum og alvarlegri brotastarfsemi (Lag om användning av flygpassageraruppgifter för bekämpning av terroristbrott och grov brottslighet, 657/2019) er alvarleg brotastarfsemi afmörkuð við þau brot sem talin eru upp í II. viðauka PNR-tilskipunarinnar og hámarksrefsing við þeim er að minnsta kosti þriggja ára fangelsi. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. er farþegaupplýsingadeildinni heimilt að vinna PNR-gögn til að bera kennsl á einstaklinga sem kunna að eiga aðild að hryðjuverkabrotum eða slíkri brotastarfsemi.

Noregur. Samkvæmt gr. 60-1 reglugerðar um vinnslu upplýsinga hjá lögreglu og ákæruvaldi (Forskrift om behandling av opplysninger i politiet og påtalemyndigheten (politiregisterforskriften), FOR-2013-09-20-1097) er markmið vinnslu í PNR-skránni að stuðla að því að koma í veg fyrir, upplýsa og rannsaka hryðjuverk og alvarlega brotastarfsemi og saksækja vegna slíkra brota. Í 3. tl. gr. 60-4 er alvarleg brotastarfsemi skilgreind sem brot sem geta varðað þriggja ára fangelsi eða þyngri refsingu.

Svíþjóð. Samkvæmt 5. gr. 1. kafla laga um farþegaupplýsingar í þágu afbrotavarna (Lag om flygpassageraruppgifter i brottsbekämpningen, 2018:1180) má að meginstefnu aðeins vinna PNR-gögn í því skyni að fyrirbyggja, upplýsa, rannsaka eða saksækja hryðjuverkabrot eða aðra alvarlega brotastarfsemi. Í 1. gr. sama kafla er önnur alvarleg brotastarfsemi afmörkuð við brot sem talin eru upp í II. viðauka PNR-tilskipunarinnar og geta varðað þriggja ára fangelsi eða þyngri refsingu í Svíþjóð eða öðrum aðildarríkjum.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Lokaatkvæðagreiðsla
6. jún. 2025
Samþykkt55 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Landamæri o.fl.“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • Sf15–0
  • S13–0
  • V8–0
  • Flf10–0
  • M6–0
  • F3–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 21. mar. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæsla Íslands, Lögreglan á Suðurnesjum, Persónuvernd · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 8 mín · 62 ræður
20 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 6. júní 2025: 55 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með20 tóku til máls

Sýna 14 í viðbót

35 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-24/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 7. feb. 2025 – 21. feb. 2025· 5 umsagnir

Frumvarp um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld)

Breytingar á lögum er varða móttöku og vinnslu upplýsinga um farþega og áhöfn af hálfu lögreglu og tollyfirvalda í löggæslutilgangi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-24/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Lögregluyfirvöld ýkja hættuna á glæpum til þess að afla sér aukinna valdheimilda. Þetta er þekkt og ekki eingöngu bundið við Íslands. Það er einnig ljóst að íslensk lögregluyfirvöld munu nota þetta í rasískum tilgangi til þess að neita fólki inngöngu inn í Ísland, þó svo að það hafi rétt á því vegna þess að viðkomandi er ríkisborgari ESB ríkis. Það eru dæmi um slíkt nú þegar (https://www.visir.is/g/20232479349d/rumenskri-konu-visad-ur-landi-i-annad-sinn-a-rumum-manudi). Þetta mál sem frétt vísir.is fjallar um og er frá árinu 2023 sýnir hvernig brotið er á rétti borgara frá EES/ESB ríkjum ef lö… Lesa alla

    Lögregluyfirvöld ýkja hættuna á glæpum til þess að afla sér aukinna valdheimilda. Þetta er þekkt og ekki eingöngu bundið við Íslands. Það er einnig ljóst að íslensk lögregluyfirvöld munu nota þetta í rasískum tilgangi til þess að neita fólki inngöngu inn í Ísland, þó svo að það hafi rétt á því vegna þess að viðkomandi er ríkisborgari ESB ríkis. Það eru dæmi um slíkt nú þegar (https://www.visir.is/g/20232479349d/rumenskri-konu-visad-ur-landi-i-annad-sinn-a-rumum-manudi). Þetta mál sem frétt vísir.is fjallar um og er frá árinu 2023 sýnir hvernig brotið er á rétti borgara frá EES/ESB ríkjum ef lögreglan hefur uppi alvarlegar ranghugmyndir um þetta fólk. Að veita lögreglunni frekari heimildir í þessu er því gjörsamlega ástæðulaust og án tilefnis. Það hefur einnig sýnt sig að svona aðgerðir einfaldlega stöðva ekki það sem lögreglan segir að þetta muni stöðva. Glæpamenn finna alltaf leiðir og þeir eru ekkert alltaf í kerfum Schengen eða lögregluyfirvalda í Evrópu. Lögreglan á Íslandi hefur einnig í dag aðgang að gagnagrunnum Schengen um glæpamenn og það ætti að duga til þess að koma í veg fyrir glæpi á Íslandi.

  • #2Karl Alvarsson
    Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt stjórnvalda Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld) Vil koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025. Það formlega orð eða hugtak sem í daglegu tali er notað um flugvél skv. ákvæðum laga nr. 80/2022 um loftferðir er loftfar. Það orð er skýrt þannig í 23. tl. 3. gr. laganna sem, Loftfar: Sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins, anna… Lesa alla

    Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt stjórnvalda Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld) Vil koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025. Það formlega orð eða hugtak sem í daglegu tali er notað um flugvél skv. ákvæðum laga nr. 80/2022 um loftferðir er loftfar. Það orð er skýrt þannig í 23. tl. 3. gr. laganna sem, Loftfar: Sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins, annarra en loftpúðaáhrifa við yfirborð jarðar. Loftfar er það orð sem notað í loftferðalögum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Flugfar er hinsvegar ferð með loftfari milli áfangastaða. Í frumvarpsdrögunum er í I. kafla og greinargerð vísað réttilega til „loftfars“ á 11 stöðum í textanum en í 7. gr. III. kafla er vísað til „einkaflugfars“ sem er ambögulet orð sem samræmist ekki réttri hugtakanotkun. Hugsanlega mætti nota orðið „einkaloftfar“ en réttara væri að vísa til loftfars í almannaflugi sem skýrt er svo í 1. tl. 3. greinar laga um loftferðir, Almannaflug: Borgaralegt flug loftfars annað en flutningaflug, og sérstök starfræksla í ábataskyni, hvort sem er reglubundið eða óreglubundið. Til frekari skýringa er Flutningaflug: Starfræksla loftfars sem felur í sér flutninga á farþegum, vörum eða pósti gegn greiðslu eða annars konar gjaldi, skv. 15. tl. sömu greinar. Þannig er loftfar í almannaflugi ekki starfrækt í ábataskyni. Af tollalögum nr. 88/2005 má sjá að flugfar er víða notað í lagatextanum eða á 16 stöðum. Lagt er til að frumvarpstextanum í samráðsgáttinni verði breytt til samræmis við rétta orðanotkun. Jafnframt er lagt til að bætt verði við III. kafla lagfæringu á orðanotkuninni í tollalögum þannig að í stað flugfars í komi loftfar í réttri mynd í 5. tl. 1.gr., 8. tl. 1.gr., 9. tl. 1. mgr. 7. gr., 2. og 4. mgr. 51. gr., 2.tl.1. mgr. 98. gr., 1. mgr. 155. gr., 1. og 2. tl. 1. mgr. og 2. mgr. 195. gr., og í XVI. ákvæði til bráðabirgða. Jafnframt verði herflugfari í 1. mgr. 68. gr. og fyrirsögn og í 2. mgr. 195. gr. breytt í herloftfar í réttri mynd. Þá verði tekin upp orðskýring á hugtakinu loftfar í stað flugfars í 10. tl. 1. gr. tollalaga Mikilvægt er að stjórnvöld samræmi orða- eða hugtakanotkun í lögum og reglum sér í lagi þar sem reynir á beitingu viðurlaga við brot á þeim.

  • #3Karl Alvarsson

    Undirritaður vill koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025.

  • #4Persónuvernd

    Með fylgir umsögn Persónuverndar.

  • #5Hjálmtýr Guðmundsson

    Mætti kannski standa "er skylt" í stað "heimilt". Löngu tímabært.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    11 ræður · 21 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 21. mars 2025
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    31 ræða · 1 klst. 27 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Umræða
    3. umræða
    20 ræður · 20 mín
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  15. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
133Stjórnarfrumvarp3. mar. 2025Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirLesaPDF
371Nál. með brtt.9. apr. 2025Guðrún Hafsteinsdóttir, Grímur Grímsson +5LesaPDF
613Frumvarp eftir 2. umræðu2. jún. 2025—LesaPDF
671Lög í heild6. jún. 2025—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur6. mars 2025 kl. 17:37
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd6. mars 2025 kl. 17:37
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt2. júní 2025 kl. 15:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Landamæri o.fl.“.
    1. gr.
    • SfSamfylkingin:14 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • VViðreisn:10 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
  • Samþykkt2. júní 2025 kl. 15:56
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Landamæri o.fl.“.
    1--2
    • SfSamfylkingin:14 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:10 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
  • Samþykkt2. júní 2025 kl. 15:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Landamæri o.fl.“.
    2.--10. gr., svo breytt,
    • SfSamfylkingin:14 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • VViðreisn:10 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur2. júní 2025 kl. 15:57
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt6. júní 2025 kl. 13:45
    Að samþykkja frumvarpið „Landamæri o.fl.“ sem lög.
    • SfSamfylkingin:15 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • VViðreisn:8 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

62 ræður · 2 klst. 8 mín
  • 1. umræða: 11 ræður · 5 ræðumenn · 21 mín
  • 2. umræða: 31 ræða · 10 ræðumenn · 1 klst. 27 mín
  • 3. umræða: 20 ræður · 18 ræðumenn · 20 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Rósa GuðbjartsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur11 mín
Snorri MássonMiðflokkurinn11 mín
Hildur SverrisdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Þorgrímur SigmundssonMiðflokkurinn11 mín
Njáll Trausti FriðbertssonSjálfstæðisflokkur11 mín
Nanna Margrét GunnlaugsdóttirMiðflokkurinn11 mín
Jens Garðar HelgasonSjálfstæðisflokkur11 mín
Guðrún HafsteinsdóttirSjálfstæðisflokkur27 mín
Grímur GrímssonViðreisn24 mín
Víðir ReynissonSamfylkingin24 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur35 mín
Vilhjálmur ÁrnasonSjálfstæðisflokkur35 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur35 mín
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur44 mín
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn520 mín
Guðmundur Ari SigurjónssonSamfylkingin515 mín
Jón Pétur ZimsenSjálfstæðisflokkur514 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn510 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn1427 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 7. mar. 2025, frestur 21. mar. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
RíkislögreglustjóriumsögnOpna PDF
Landhelgisgæsla ÍslandsumsögnOpna PDF
Lögreglan á SuðurnesjumumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.