Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 146. mál

Uppbygging fangelsis á Stóra-Hrauni

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum með því að auka rétt foreldra til sorgarleyfis og sorgarstyrks, einkum vegna makamissis, andvanafæðingar og fósturláts.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum með því að auka rétt foreldra til sorgarleyfis og sorgarstyrks, einkum vegna makamissis, andvanafæðingar og fósturláts.

Hvað breytist

Lagt er til að foreldri sem missir hjúskapar- eða sambúðarmaka öðlist rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að sex mánuði. Réttur vegna andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu yrði lengdur úr þremur mánuðum í sex og réttur vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu úr tveimur mánuðum í þrjá.

Við andvanafæðingu eða barnsmissi, þegar barnið er yngra en 24 mánaða, gæti foreldri óskað eftir að greiðslur yrðu reiknaðar út frá viðmiðunartímabili samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Tími sem foreldri fær greiðslur í sorgarleyfi, eða hefði átt rétt á þeim, teldust til þátttöku á innlendum vinnumarkaði við mat á síðari rétti.

Lagt er til að réttur stofnist ekki hafi foreldri með refsiverðu broti valdið barnsmissi eða makamissi og að þegar greiddar fjárhæðir verði endurkræfar. Jafnframt yrði ekki unnt að fá samtímis greiðslur vegna fleiri en eins atburðar sem veiti rétt samkvæmt lögunum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um 380–400 milljónir kr. Viðbótarkostnaður á árinu 2025 er áætlaður um 50 milljónir kr. og kostnaður Vinnumálastofnunar vegna uppfærslu hugbúnaðarlausna um þrjár til fimm milljónir kr.

Meira úr samantektinni

Á árunum 2009–2018 misstu árlega að meðaltali 101 barn foreldri sitt hér á landi samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Tölurnar ná til barna 17 ára og yngri sem áttu lögheimili á Íslandi í upphafi hvers viðmiðunarárs (Hagstofa Íslands, „Börn sem missa foreldri“).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Samkvæmt 13. gr. fæðingarorlofslaganna (Bekendtgørelse af lov om ret til orlov og dagpenge ved barsel (barselsloven), LBK nr 114 af 29/01/2025) á hvort foreldri um sig rétt á 26 vikna orlofi ef barn fæðist andvana eða deyr fyrir 18 ára aldur. Foreldri sem uppfyllir almenn skilyrði laganna fær greiðslur meðan á orlofinu stendur, sbr. 20. gr. Deyi annað foreldrið eftir fæðingu eða ættleiðingu barns fær hitt foreldrið það sem ónýtt er af orlofi eða greiðslum, sbr. 2. mgr. 21. gr. c.

Finnland. Falli annað þeirra foreldra sem rétt eiga á greiðslum frá, eða þau bæði, fær sá sem annast barnið og tryggður er samkvæmt lögunum þá daga sem eftir standa af greiðsluréttinum, sbr. 5. gr. 9. kafla sjúkratryggingalaganna (Sjukförsäkringslag, 1224/2004). Fæðist barn andvana eftir að meðganga hefur staðið í að minnsta kosti 154 daga eða deyi það fyrir tveggja ára aldur getur hvort foreldri um sig fengið greiðslur í allt að fjórar vikur (24 greiðsludaga) frá fæðingu eða andláti barnsins, þó aldrei fleiri daga en eftir standa af réttinum, sbr. 5. mgr. 8. gr. sama kafla.

Noregur. Foreldri sem verður eitt um umönnun barns getur fengið þær greiðslur sem eftir eru vegna fæðingar eða ættleiðingar þess, sbr. 15. gr. 14. kafla almannatryggingalaganna (Lov om folketrygd (folketrygdloven), LOV-1997-02-28-19). Deyi barn áður en greiðslutímabili lýkur má halda greiðslum áfram í allt að sex vikur (30 greiðsludaga), þó ekki lengur en rétturinn endist, sbr. 9. gr. 14. kafla.

Svíþjóð. Deyi annað tveggja foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barns fer hitt foreldrið eitt með forsjána, sbr. 9. gr. 6. kafla foreldralaganna (Föräldrabalk, 1949:381). Foreldri sem fer eitt með forsjá á rétt á greiðslum allt það tímabil sem lögin mæla fyrir um, sbr. 14. gr. 12. kafla almannatryggingalaganna (Socialförsäkringsbalk, 2010:110). Deyi barn yngra en 18 ára á hvort foreldri um sig rétt á greiðslum í allt að tíu daga vegna fjarveru frá vinnu í tengslum við andlát barnsins. Dagana má nýta frá deginum eftir andlátið og til og með 90. degi eftir það, sbr. 31. gr. e og 31. gr. f í 13. kafla sömu laga.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Jónína Björk Óskarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 26. mar. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinurekenda, Landssamtökin Þroskahjálp, Starfsgreinasamband Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um 380–400 milljónir kr. Viðbótarkostnaður á árinu 2025 er áætlaður um 50 milljónir kr. og kostnaður Vinnumálastofnunar vegna uppfærslu hugbúnaðarlausna um þrjár til fimm milljónir kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-184/2024· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2024 – 2. okt. 2024· 8 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-184/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. desember 2024)

Alls bárust átta umsagnir um frumvarpið. Ráðuneytið þakkar fyrir veittar umsagnir. Frumvarpið verður ekki lagt fram á 155. löggjafarþingi þar sem þingfundum hefur verið frestað og þinginu lokið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Björg Maggý Pétursdóttir
    Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið… Lesa alla

    Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið í lögum um sorgarleyfi að lögin séu ætluð til að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Í lögum um fæðingarorlof kemur fram að greiðslur fæðingarorlofs falli niður sama dag barn fellur frá. Mikið ósamræmi er á útreikningum milli sorgarleyfis og fæðingarorlofs og getur fólk lent í því að töluverð lækkun verði á greiðslum ef fólk missir barn meðan á fæðingarorlofi stendur þar sem tekið er mið á útreikningi úr frá 80% meðaltekna samkvæmt skrám skattayfirvalda miðað við 6 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveim mánuðum fyrir dánardag barns. En við útreikning vegna fæðingarorlofs samkvæmt vinnumálastofnun er tekið mið af 80% af meðaltekjum miðavið 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Því lækka foreldrar umtalsvert í greiðslum við það eitt að færast úr fæðingarorlofi yfir í sorgarleyfi. Foreldrar ættu í raun að halda sömu greiðslum án þess að þurfa að óska eftir því sérstaklega þar sem fólk í þessari stöðu hefur oft ekki burði í sorginni til að vinna í umsóknum. Einnig mætti bæta inn í lögin rétt til greiðslna vegna sálfræðiviðtala eða annarskonar aðstoðar til að vinna sig úr sorginni með það að leiðarljósi eins og sagt er í lögunum að fólki eigi farsæla endurkomu á vinnumarkaðinn og til að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Virðingafyllst, Björg Maggý Pétursdóttir

  • #2Starfsgreinasamband Íslands
    Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda e… Lesa alla

    Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda endurkomu þeirra á vinnumarkað þegar að því kemur.

  • #3Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

  • #4Birta Sif Arnardóttir

    Umsögn Félags atvinnurekenda er í viðhengi.

  • #5Sorgarmiðstöð, félagasamtök

    Umsögn Sorgarmiðstöðvar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 26. mars 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 6 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 12. mar. 2025, frestur 26. mar. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Félags- og húsnæðismálaráðuneytiminnisblaðOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Félag atvinurekendaumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Starfsgreinasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
BHMumsögnOpna PDF
SorgarmiðstöðumsögnOpna PDF
Gleym mér ei styrktarfélagumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.