Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 147. mál

Tjónabætur til bænda

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að lagfæra tæknilega annmarka sem komið hafa í ljós við framkvæmd laga um skipulag haf- og strandsvæða, skýra hlutverk svæðisráða og Skipulagsstofnunar og tryggja fjármögnun strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa á meðan heildarendurskoðun laganna stendur yfir.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að lagfæra tæknilega annmarka sem komið hafa í ljós við framkvæmd laga um skipulag haf- og strandsvæða, skýra hlutverk svæðisráða og Skipulagsstofnunar og tryggja fjármögnun strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa á meðan heildarendurskoðun laganna stendur yfir.

Hvað breytist

Lagt er til að skipunartími svæðisráðs falli ekki niður þegar strandsvæðisskipulag tekur gildi. Ráðherra skipaði áfram átta fulltrúa en tilnefningar ráðherra tækju mið af þeim málaflokkum sem þeir fara með hverju sinni. Ráðherra gæti jafnframt skipt út fulltrúum og varafulltrúum að beiðni tilnefningaraðila. Upptalning á ráðgefandi fagstofnunum yrði felld úr lögunum.

Leyfisveitanda yrði skylt að leita ráðgefandi álits Skipulagsstofnunar ef vafi léki á því hvort framkvæmd eða starfsemi samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi. Stofnunin gæti einnig veitt slíkt álit að eigin frumkvæði og óskað eftir umsögn svæðisráðs. Þá skyldi taka mið af öðrum áætlunum og stefnumörkun við gerð strandsvæðisskipulags auk þess sem kveðið yrði á um nýtingarflokka og skilgreiningu þeirra í reglugerð.

Loks er lagt til að kostnaður við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa verði greiddur úr Skipulagssjóði líkt og vegna Vestfjarða og Austfjarða.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Áætlaður heildarkostnaður við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa er um 135 milljónir kr. og er gert ráð fyrir að hann dreifist á þrjú til fjögur ár. Hækka þarf fjárveitingu til Skipulagssjóðs vegna þessa en áætlað er að viðbótarfjárveitingin rúmist innan tekna af skipulagsgjaldi.

Meira úr samantektinni

Í Strandsvæðisskipulagssjá eru birtir staðfestir skipulagsuppdrættir fyrir Vestfirði og Austfirði. Þar er einnig að finna upplýsingar um útgefin leyfi utan netlaga (Strandsvæðisskipulagssjá).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Í 9. og 14. gr. hafskipulagslaganna (Bekendtgørelse af lov om maritim fysisk planlægning, LBK nr 400 af 06/04/2020) er kveðið á um eina heildstæða hafskipulagsáætlun fyrir dönsk hafsvæði. Stjórnvöld mega að jafnaði ekki samþykkja áætlanir eða veita leyfi sem stangast á við hana.

Finnland. Samkvæmt 67. gr. b í 8. kafla a svæðisskipulagslaganna (Lag om områdesanvändning, 132/1999) er landshlutasamtökum sveitarfélaga á strandsvæðum falið að vinna og samþykkja samræmdar hafskipulagsáætlanir fyrir landhelgi og efnahagslögsögu.

Noregur. Skipulags- og byggingarlögin (Lov om planlegging og byggesaksbehandling (plan- og bygningsloven), LOV-2008-06-27-71, sjá einkum gr. 1-2 og 11-7) gilda um hafsvæði allt að einni sjómílu utan grunnlína. Samkvæmt gr. 11-7 geta skipulagsáætlanir sveitarfélaga kveðið á um nýtingu og vernd sjávar, vatnasvæða og strandbelta, m.a. í þágu siglinga, fiskveiða, fiskeldis, náttúru og útivistar.

Svíþjóð. Í 10. gr. 4. kafla umhverfislaganna (Miljöbalk, 1998:808) er kveðið á um hafskipulagsáætlanir fyrir Helsingjabotn, Eystrasalt og Västerhavet (m.a. Skagerrak og Kattegat) sem eru leiðbeinandi fyrir stjórnvöld og sveitarfélög við skipulag og afgreiðslu mála er varða nýtingu hafsvæða.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Jónína Björk Óskarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. mar. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
12 aðilar
Fjórðungssamband Vestfirðinga, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Þingeyjarsveit, Landhelgisgæsla Íslands, Skipulagsstofnun o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Áætlaður heildarkostnaður við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa er um 135 milljónir kr. og er gert ráð fyrir að hann dreifist á þrjú til fjögur ár. Hækka þarf fjárveitingu til Skipulagssjóðs vegna þessa en áætlað er að viðbótarfjárveitingin rúmist innan tekna af skipulagsgjaldi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

3 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-132/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.)

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, með síðari breytingum (skipan svæðisráða o.fl.)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-132/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. október 2023)

Frumvarp kynnt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-181/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. okt. 2023 – 14. okt. 2023· 4 umsagnir

Breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018

Með frumvarpinu er lagt til að uppfæra fyrirkomulag á skipan svæðisráða, skýra ákvæði um skipunartíma þess og hlutverks Skipulagsstofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-181/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. október 2025)

Sjá mál nr. S-190/2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-190/2024· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. sep. 2024 – 11. okt. 2024· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.)

Lagðar eru til breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða sem varða tilnefningu fulltrúa ráðuneyta í svæðisráð og skýrari ákvæði um skipunartíma svæðisráða og hlutverk Skipulagsstofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-190/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. október 2025)

Á 156. löggjafarþingi 2025 varð að lögum frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.), lög nr. 29/2025, en félags- og húsnæðismálaráðherra hafði tekið við málaflokknum af innviðaráðherra í desember 2024. Frumvarpið var að stærstum hluta efnislega sambærilegt þeim frumvarpsdrögum sem hér voru kynnt til samráðs í september 2024. Sjá nánar í greinargerð frumvarpsins: https://www.althingi.is/altext/156/s/0152.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. mars 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 6 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín

Umsagnir og erindi

13 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. mar. 2025, frestur 27. mar. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjórðungssamband VestfirðingakynningOpna PDF
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
ÞingeyjarsveitumsögnOpna PDF
Landhelgisgæsla ÍslandsumsögnOpna PDF
SkipulagsstofnunumsögnOpna PDF
SamgöngustofaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Hafnasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtök eigenda sjávarjarðaumsögnOpna PDF
Fjórðungssamband VestfirðingaumsögnOpna PDF
Minjastofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
FjarðabyggðumsögnOpna PDF
ÍsafjarðarbærumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.