Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 215. mál

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar

Sérstök umræðaStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að bæta rétt fjölburaforeldra og foreldra sem glíma við alvarleg veikindi vegna meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns og styrkja fæðingarorlofskerfið.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Sérstök umræða
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
14 ræður · 35 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að bæta rétt fjölburaforeldra og foreldra sem glíma við alvarleg veikindi vegna meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns og styrkja fæðingarorlofskerfið.

Hvað breytist

Lagt er til að sameiginlegur réttur foreldra til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks vegna fjölburafæðingar lengist úr þremur mánuðum í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt. Hið sama gilti þegar fleiri en eitt barn eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur samtímis.

Einnig er lagt til að heimilt verði að lengja fæðingarorlof eða greiðslu fæðingarstyrks um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldris sem rekja má til meðgöngu eða gera það ófært um að annast barn sitt. Þá yrði heimilt, með samþykki ríkisstjórnarinnar, að hækka fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi á öðrum tíma en við áramót.

Lög sem breytast

Lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Lög um sorgarleyfi, nr. 77/2022.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs verði 115–185 milljónir kr. Viðbótarkostnaður á árinu 2025 er áætlaður 70–90 milljónir kr. og kostnaður Vinnumálastofnunar vegna breytinga á tölvukerfi er áætlaður um 500 þúsund kr.

Meira úr samantektinni

Samkvæmt OECD bjóða flest aðildarríki upp á launað fæðingarorlof sem foreldrar geta skipt með sér en sá hluti var að meðaltali 26,6 vikur í apríl 2024. Jafnframt bendir stofnunin á að í reynd nýti mæður þennan sameiginlega rétt oftast (OECD – Paid leave for fathers).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Hvort foreldri um sig á rétt á 13 vikna viðbótarorlofi ef tvö eða fleiri börn fæðast lifandi í sömu fæðingu (Bekendtgørelse af lov om ret til orlov og dagpenge ved barsel (barselsloven), LBK nr 114 af 29/01/2025, sjá einkum gr. 14 a).

Finnland. Þegar fleiri en eitt barn fæðist eða er ættleitt samtímis lengist réttur til greiðslna um 84 daga fyrir hvert barn umfram eitt (Sjukförsäkringslag, 1224/2004, sjá einkum 6. gr. í 9. kafla).

Noregur. Við tvíburafæðingu eða samtímis ættleiðingu tveggja barna lengist greiðslutímabilið um 85 daga (17 vikur) ef 100% greiðsluhlutfall er valið (Lov om folketrygd (folketrygdloven), LOV-1997-02-28-19, sjá einkum gr. 14-9).

Svíþjóð. Við fjölburafæðingu lengist réttur til greiðslna um allt að 180 daga fyrir hvert barn umfram eitt (Socialförsäkringsbalk, 2010:110, sjá einkum 12. gr. í 12. kafla).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Kristján Þórður Snæbjarnarson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 10. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BHM, BSRB · allar umsagnir
Umræða í þingsal
35 mín · 14 ræður
12 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs verði 115–185 milljónir kr. Viðbótarkostnaður á árinu 2025 er áætlaður 70–90 milljónir kr. og kostnaður Vinnumálastofnunar vegna breytinga á tölvukerfi er áætlaður um 500 þúsund kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 6 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-18/2025· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. feb. 2025 – 18. feb. 2025· 4 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. apríl 2025)

Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 4. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 18. febrúar til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust fjórar umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Birta Sif Arnardóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Félags atvinnurekenda.

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. Sambandsins, Valgerður Rún

  • #3Alþýðusamband Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands vegna áforma um breytingar á fæðingarorlofslögum.

  • #4Andrea Sigurðardóttir
    Hjálögð er umsögn mín um áform um lagasetningu en ég sakna þess að ekki sé á dagskrá að rétta hlut barna einstæðra mæðra. Inngangur umsagnarinnar er svo hljóðandi: Í þeim tilfellum er barn fæðist utan sambúðar eða hjónabands er það enn svo, hvort sem fólki líkar betur eða verr, að það er einkum móðir sem tekur mesta eða alla ábyrgð á umönnun barns í frumbernsku. Orlofsréttur einstæðra mæðra takmarkast við 6 mánuði og þær geta ekki fengið nema 6 vikur af rétti föður þrátt fyrir að faðir ákveði að taka ekki þátt í umönnun barns á fyrsta ári lífs þess. Börn einstæðra mæðra njóta ekki forgangs… Lesa alla

    Hjálögð er umsögn mín um áform um lagasetningu en ég sakna þess að ekki sé á dagskrá að rétta hlut barna einstæðra mæðra. Inngangur umsagnarinnar er svo hljóðandi: Í þeim tilfellum er barn fæðist utan sambúðar eða hjónabands er það enn svo, hvort sem fólki líkar betur eða verr, að það er einkum móðir sem tekur mesta eða alla ábyrgð á umönnun barns í frumbernsku. Orlofsréttur einstæðra mæðra takmarkast við 6 mánuði og þær geta ekki fengið nema 6 vikur af rétti föður þrátt fyrir að faðir ákveði að taka ekki þátt í umönnun barns á fyrsta ári lífs þess. Börn einstæðra mæðra njóta ekki forgangs til dagvistunarpláss þrátt fyrir að brúa þurfi lengra bil milli dagvistunar og loka orlofs en meðal sambýlinga og hjóna. Líkt og nánar verður rakið í umsögn þessari bitnar þessi takmörkun á orlofsrétti einstæðs foreldris á samvistum barns við foreldra á fyrsta ári lífs þess, auk þess að setja atvinnu og fjárhag móður í svo mikið uppnám að kalla mætti fátæktrargildru. Allt kemur þetta að endingu niður á hagsmunum barna einstæðra mæðra og er til þess fallið að skekkja stöðu þeirra enn frekar við börn sambýlisfólks og hjóna. 2 gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna tryggir réttindi allra barna án mismununar og 3. gr. sáttmálans kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar ráðstafanir eru gerðar varðandi börn. Ljóst er því að núverandi fyrirkomulag stangast á við Barnasáttmálann sem hefur verið innleiddur í íslensk lög. Í Danmörku og Noregi fá einstæðar mæður sem fara einar með forsjá barns allan orlofsréttinn, þar með talið allan rétt sem faðir hefði annars átt. Þá féll nýverið dómur á æðsta dómsstigi á Spáni sem lagði bann við mismunun barna sem fæðast í fjölskyldu einstæðs foreldris. Í kjölfarið féll dómur á lægra dómsstigi sem úrskurðaði að einstæðir foreldrar ættu rétt á orlofi til jafns við sambúðarfólk og hjón, því annað væri mismunun á börnum einstæðra.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-36/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2025 – 5. mar. 2025· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-36/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. apríl 2025)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025). Alls bárust fjórar umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á efni frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 24. mars. 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Helena Sveinborg Jónsdóttir

    Hæhæ, frábært að sjá þessar breytingar. Mig langaði að hvetja ykkur til að láta lögin gilda einnig um þau sem eru enn í fæðingarorlofi þegar lögin taka gildi. Svo 5. gr. yrði breytt þannig að hún ætti líka við um þá foreldra sem eru í orlofi nú þegar. Það eru ekki margir fjölburaforeldrar í orlofi sem stendur og því ætti þetta ekki að muna um mjög fyrir ríkissjóð en getur haft gríðarlega góð áhrif á þær fjölskyldur sem rétt missa af lögunum.

  • #2BSRB

    Meðfylgjandi er umsögn BSRB.

  • #3Bandalag háskólamanna

    Góðan dag. Sjá meðfylgjandi umsögn Bandalags háskólamanna (BHM). Með kveðju, Ingvar Sverrisson

  • #4W.O.M.E.N - Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 10. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    14 ræður · 35 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

14 ræður · 35 mín
  • Umræða: 14 ræður · 12 ræðumenn · 35 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur27 mín
Jóhann Friðrik FriðrikssonFramsóknarflokkur12 mín
Elín Íris FanndalFlokkur fólksins12 mín
Kolbrún Áslaugar BaldursdóttirFlokkur fólksins12 mín
Ingibjörg DavíðsdóttirMiðflokkurinn12 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn12 mín
Rósa GuðbjartsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Sigmundur Ernir RúnarssonSamfylkingin12 mín
Eydís ÁsbjörnsdóttirSamfylkingin12 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn28 mín
Sandra SigurðardóttirViðreisn12 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 27. mar. 2025, frestur 10. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Félags- og húsnæðismálaráðuneytiminnisblaðOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)umsögnOpna PDF
BHMumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.