Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 253. mál

Óundirbúinn fyrirspurnatími

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að tryggja lagastoð fyrir gjaldtöku vegna geymslu líka og styrkja rekstrargrundvöll líkhúsa kirkjugarða. Jafnframt er stefnt að því að unnt verði að taka tillit til sérstakra fjölskylduaðstæðna þegar óskað er eftir að frátekið grafarstæði haldist lengur en 50 ár.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 27. ágú. 2026

Markmiðið

Að tryggja lagastoð fyrir gjaldtöku vegna geymslu líka og styrkja rekstrargrundvöll líkhúsa kirkjugarða. Jafnframt er stefnt að því að unnt verði að taka tillit til sérstakra fjölskylduaðstæðna þegar óskað er eftir að frátekið grafarstæði haldist lengur en 50 ár.

Hvað breytist

Lagt er til að kirkjugarði sem starfrækir líkhús verði heimilt að innheimta gjald fyrir geymslu líka. Gjaldskráin yrði byggð á rekstrarkostnaði líkhússins, m.a. vegna launatengdra gjalda, húsnæðis, rafmagns, viðhalds, ræstinga, búnaðar, öryggiskerfis og trygginga, og þyrfti staðfestingu ráðherra.

Jafnframt er lagt til að kirkjugarðsstjórn geti, þegar eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, tekið frá grafarstæði lengur en í 50 ár. Í greinargerð er sérstaklega nefnt að ákvæðið geti átt við þegar foreldrar missa barn ungt og vilja halda grafarstæði við hlið þess.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Í 12. gr. laga um kirkjubyggingar og kirkjugarða dönsku þjóðkirkjunnar (Bekendtgørelse af lov om folkekirkens kirkebygninger og kirkegårde, LBK nr 1156/2016 af 01/09/2016) segir að í samþykkt hvers kirkjugarðs skuli kveðið á um gjöld fyrir úthlutun grafarstæða, framlengingar afnota og umhirðu. Samkvæmt 13. gr. skal grafarstæði almennt vera friðað í að minnsta kosti 20 ár en í samþykkt kirkjugarðs má kveða á um lengri tíma.

Finnland. Í 29. og 30. gr. 3. kafla kirkjulaga (Kyrkolag, 652/2023) segir að söfnuður úthluti grafarstæði að jafnaði við andlát en stjórn safnaðarins geti af sérstökum ástæðum gert það á öðrum tíma. Afnotin geta gilt í allt að 50 ár og má framlengja þau ef framlengingin torveldar ekki skipulag eða umhirðu grafreitsins. Í 36. gr. sama kafla er söfnuðum gert skylt að innheimta gjöld fyrir úthlutun grafarstæða og þjónustu við greftrun. Samkvæmt 6. gr. laga um greftrun (Begravningslag, 457/2003) mega gjöldin ekki vera hærri en kostnaðurinn við þjónustuna. Við ákvörðun þeirra skal jafnframt beita sömu reglum gagnvart öllum sem eiga rétt á greftrun í grafreit safnaðarins.

Noregur. Í 21. gr. laga um grafreiti, líkbrennslu og útfarir (Lov om gravplasser, kremasjon og gravferd, LOV-1996-06-07-32) segir að sveitarfélag ákveði, að tillögu þess stjórnvalds sem annast grafreitina, gjöld meðal annars vegna notkunar á útfararkapellu, líkbrennslu og umráða yfir grafarstæði. Í 17. gr. reglugerðar um grafreiti (Gravplassforskriften, FOR-1997-01-10-16) segir að kistugrafir geti saman myndað eitt grafarstæði en aðeins megi stofna til slíkra afnota í tengslum við andlát. Sú gröf sem fyrst er tekin í notkun er gjaldfrjáls meðan hún er friðuð.

Svíþjóð. Í 5. og 6. gr. 7. kafla laga um greftrun (Begravningslag, 1990:1144) segir að veita megi rétt til grafarstæðis í 15–50 ár eða án tímamarka. Ótímabundinn réttur gildir þó aðeins meðan grafarstæðið er hluti af almennum grafreit en sé gildistími ekki ákveðinn gildir rétturinn í 25 ár. Samkvæmt 1. gr. 9. kafla greiða allir sem eiga lögheimili í Svíþjóð lögbundið gjald vegna útfararstarfsemi. Sá sem ber ábyrgð á rekstri almennra grafreita á viðkomandi svæði skal samkvæmt 6. gr. sama kafla sjá dánarbúi þess sem þar átti lögheimili fyrir grafarstæði í 25 ár, greftrun og frágangi grafar, tilteknum flutningum fram að greftrun, líkbrennslu, aðstöðu til líkgeymslu og kveðjustundar ásamt húsnæði fyrir útfararathöfn án trúarlegra tákna. Dánarbúið greiðir ekki sérstaklega fyrir þessa þjónustu en samkvæmt 9. gr. sama kafla er þó heimilt að innheimta sérstakt gjald þegar réttur til grafarstæðis er endurnýjaður án þess að ný greftrun fari fram.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 15. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Kirkjugarðasamband Íslands, Kirkjugarðaráð, Sorgarmiðstöð · allar umsagnir
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-33/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. feb. 2025 – 2. mar. 2025· 4 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa)

Lögð er til breyting á lögum til að bregðast við alvarlegri rekstrarstöðu á mikilvægum innviðum svo kirkjugörðum verði gert heimilt að innheimta gjald til að standa undir kostnaði af rekstri líkhúsa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Birgitta Jeanne Sigursteinsdóttir
    Fyrst þið ætlið að breyta lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Í fyrsta lagi: "25. gr. Kirkjugarðsstjórn er heimilt að úthluta allt að þremur grafarstæðum til sömu fjölskyldu, enda sé eftir því leitað við greftrun þess er fyrst fellur frá. Réttur til grafarstæðanna helst í 50 ár." - hér er ekki gert ráð fyrir foreldum sem missa ung börn. Ég er sjálf með frátekið leiði við hlið dóttur minnar sem lést 2022 tæplega tveggja ára gömul. Þá var ég 32 ára. Þetta þýðir að þegar/ef ég verð 82 ára missi ég réttinn á stæðinu. Réttinn til að fá að hvíla við h… Lesa alla

    Fyrst þið ætlið að breyta lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Í fyrsta lagi: "25. gr. Kirkjugarðsstjórn er heimilt að úthluta allt að þremur grafarstæðum til sömu fjölskyldu, enda sé eftir því leitað við greftrun þess er fyrst fellur frá. Réttur til grafarstæðanna helst í 50 ár." - hér er ekki gert ráð fyrir foreldum sem missa ung börn. Ég er sjálf með frátekið leiði við hlið dóttur minnar sem lést 2022 tæplega tveggja ára gömul. Þá var ég 32 ára. Þetta þýðir að þegar/ef ég verð 82 ára missi ég réttinn á stæðinu. Réttinn til að fá að hvíla við hlið dóttur minnar. Fyrir mér er þetta mjög mikilvægt og þýðir í raun að ég má ekki verða yfir 81 árs gömul. Það er samfélagslegt tabú að tala um andlát barna og aldrei gert ráð fyrir okkur syrgjandi foreldrum í kerfinu. Hér mætti setja einhversskonar undanþágu til að tryggja að foreldrar haldi réttinum til grafarstæða við hlið barna sinna. Í öðru lagi: "7.gr Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum sem skylt er að varðveita í kirkjugarði eða löggiltum grafreit... ...Sýslumaður getur heimilað] 1) að ösku verði dreift yfir öræfi eða sjó, enda liggi fyrir ótvíræð ósk hins látna þar að lútandi. Óheimilt er að dreifa ösku á fleiri en einn stað sem og að merkja dreifingarstað. Sömuleiðis er óheimilt að geyma duftker fram að ráðstöfun þess annars staðar en í líkhúsi." - nú tíðkast það í flestum öðrum löndum að fólk geti fengið amk hluta af öskunni með sér heim. Slíkt fyrirkomulag veitir mörgum syrgjendum ró. Einnig er algengt í dag í öðrum löndum að aska ástvina sé notuð í persónulega muni eins og hring, hálsmen eða jafnvel blandað við blek til að gera húðflúr. Það er ekki okkar að dæma hvað syrgjendur kjósa að gera við ösku til að finna nálægð við látinn ástvin. En eftirspurnin eftir slíkum persónulegum munum er þó slík að það er augljóst að þetta er mörgum mikilvægur hluti af sorgarferli. Ég hef einnig heyrt af því að á Íslandi sé fólk í laumi að opna kerin, taka ösku og líma svo kerin aftur saman áður en þau fara í jörð. Þetta gerir fólk því þörfin fyrir að hafa ösku ástvinar hjá sér er til staðar sama hvað lögin segja. Lögin eiga að þjóna fólkinu en ekki öfugt og því vil ég biðla til ykkar að endurskoða þetta bann við því að aska (þó ekki nema væri örlítill hluti) sé afhent fjölskyldumeðlimum.

  • #2Kirkjugarðasjóður

    Meðfylgjandi er umsögn kirkjugarðaráðs vegna breytinga á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 (líkhús)

  • #3Sorgarmiðstöð, félagasamtök
    Í samþykktum Sorgarmiðstöðvar segir m.a. að Sorgarmiðstöð skuli standa vörð um hagsmuni syrgjenda og beita sér fyrir úrbótum í réttindamálum þeirra. Á þeim grunni tekur Sorgarmiðstöð afstöðu til frumvarpsins. Í umræddu frumvarpi er „Lagt til að þeim kirkjugörðum sem komið hafa sér upp líkhúsi verði heimilt að innheimta gjald sem leggst á dánarbú eða aðstandendur látinna fyrir geymslu líka til að standa undir kostnaði sem hlýst af geymslu þeirra.Eðlilega þurfa þeir kirkjugarðar sem koma sér upp líkhúsi að hafa eftirlit og umsjón með rekstrinum. Ákveðin aðstaða, tæki og áhöld þurfa jafnframt að… Lesa alla

    Í samþykktum Sorgarmiðstöðvar segir m.a. að Sorgarmiðstöð skuli standa vörð um hagsmuni syrgjenda og beita sér fyrir úrbótum í réttindamálum þeirra. Á þeim grunni tekur Sorgarmiðstöð afstöðu til frumvarpsins. Í umræddu frumvarpi er „Lagt til að þeim kirkjugörðum sem komið hafa sér upp líkhúsi verði heimilt að innheimta gjald sem leggst á dánarbú eða aðstandendur látinna fyrir geymslu líka til að standa undir kostnaði sem hlýst af geymslu þeirra.Eðlilega þurfa þeir kirkjugarðar sem koma sér upp líkhúsi að hafa eftirlit og umsjón með rekstrinum. Ákveðin aðstaða, tæki og áhöld þurfa jafnframt að vera til staðar. Þykir rétt að kirkjugörðum sé heimilt að taka gjald fyrir þann kostnað sem hlýst af rekstri líkhúsa og umsjón og eftirliti með þeim. Það gjald sem kirkjugarður innheimtir fyrir geymslu líka rennur óskipt til reksturs líkhússins.“ Við lestur greinargerðarinnar sem fylgir frumvarpinu verður ekki annað séð en að kirkjugarðar sem reka líkhús fái lagalega heimild til að reikna inn í væntanlegt líkhúsgjald allan kostnað sem hlýst af rekstri líkhússins og því muni gjaldinu í raun ætlað að standa alfarið undir rekstri viðkomandi líkhúss. Hér er því opnað fyrir möguleika á víðtækari gjaldtöku en sem nemur þjónustu við geymslu líka. Verður ekki annað ráðið af orðalaginu en að í raun sé um skattlagningu á dánarbúum að ræða til reksturs líkhúsa, en ekki þjónustugjald fyrir að geyma lík um tiltekinn tíma. Sorgarmiðstöð skorar á dómsmálaráðherra að falla frá umræddu frumvarpi en tryggja þess í stað tímabundið framlag úr ríkissjóði til þeirra kirkjugarða sem reka fullbúin líkhús. Jafnframt verði flýtt heildarendurskoðun laga nr. 36/1993 og endurskoðun samkomulags ríkis og kirkjugarðaráðs frá 2005 um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða m.a. til líkgeymslu og reksturs líkhúsa. Sorgarmiðstöð vill líka árétta að kostnaður vegna útfarar reynist mörgum aðstandendum afar þungur, svo ekki er á bætandi og skattlagning þar á ofan vegna reksturs líkhúsa kemur ekki til greina. Sorgarmiðstöð leggur til að frumvarpið verði dregið til baka. Virðingarfyllst Kristín Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar

  • #4Minjastofnun Íslands

    Góðan dag. Viðfest er umsögn Minjastofnunar Íslands. Með kveðju, Gísli Óskarsson Sviðsstjóri lögfræðisviðs

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 15. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 1. apr. 2025, frestur 15. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Kirkjugarðasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
KirkjugarðaráðumsögnOpna PDF
SorgarmiðstöðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.