Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 254. mál

Afnám samsköttunar hjóna og sambýlisfólks

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að bæta kjör lánþega og auka sveigjanleika í námslánakerfinu með breytingum á námsstyrkjum, vaxtaviðmiði og endurgreiðslum auk þess að einfalda framkvæmd laga um Menntasjóð námsmanna.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 4 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 9. sep. 2026

Markmiðið

Að bæta kjör lánþega og auka sveigjanleika í námslánakerfinu með breytingum á námsstyrkjum, vaxtaviðmiði og endurgreiðslum auk þess að einfalda framkvæmd laga um Menntasjóð námsmanna.

Hvað breytist

Lagt er til að námsmenn geti fengið hluta námsstyrks fyrr en núgildandi reglur kveða á um. Í stað þess að námsstyrkur komi allur til við námslok gæti lánþegi áunnið sér 20% námsstyrk í lok hverrar annar ef hann stæðist kröfur um námsframvindu og 10% til viðbótar við námslok ef námi yrði lokið innan tilskilins tíma. Námsstyrkur gæti því samtals numið allt að 30% lækkun á höfuðstól námsláns ásamt verðbótum.

Einnig er lagt til að vextir námslána miðist við þriggja ára vegið meðaltal ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa á markaði til fimm ára í stað skammtímaviðmiðs. Lánþegum sem tekið hafa H-lán yrði tímabundið heimilt að óska eftir að skilmálum þeirra yrði breytt til samræmis við nýja vaxtaviðmiðið.

Gert er ráð fyrir að endurgreiðsla námslána hefjist 18 mánuðum eftir námslok í stað 12 mánaða. Jafnframt yrði fleiri lánþegum sem skulda bæði H-lán og eldri námslán heimilt að greiða fyrst af H-láninu í stað þess að greiða af báðum lánum samtímis.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna rýmkunar námsstyrkja rúmist innan áætlaðra fjárveitinga til Menntasjóðs námsmanna. Vaxtakostnaður ríkissjóðs vegna námslána fram að námslokum er áætlaður um 591 milljón kr. á ári en ríkissjóður ber þegar þann kostnað. Rýmkuð heimild til að greiða fyrst af nýrri námslánum er talin geta leitt tímabundið til aukinna afskrifta en fjárhæð þeirra er ekki tilgreind. Aðrar breytingar eru ekki taldar hafa í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Samanburðurinn miðast við hvernig námsaðstoð háskólanema tengist annars vegar námsframvindu og hins vegar námslokum, einkum hvort hluti námsláns geti orðið að styrk þegar tilteknum skilyrðum er fullnægt. Kerfin eru ekki fyllilega sambærileg.

Í Noregi er hluta námsláns breytt í námsstyrk á grundvelli námsframvindu og hluta við námslok. Samkvæmt 77. og 78. gr. reglugerðar um námsaðstoð (forskrift om utdanningsstøtte, FOR-2020-04-15-798) getur allt að 15% af grunnláni háskólanema breyst í námsstyrk á grundvelli lokinna námseininga og allt að 25% til viðbótar þegar prófgráðu er lokið. Þessi skipting tók gildi fyrir námsárið 2025–2026.

Í Finnlandi tengist lækkun námsláns hins vegar námslokum fremur en lokum einstakra anna. Samkvæmt 15. gr. b og c í lögum um námsaðstoð (lag om studiestöd, 65/1994) á námsmaður rétt á námslánauppbót (studielånskompensation), þ.e. að ríkið greiði inn á námslánið ef háskólaprófi er lokið innan tilskilins tíma.

Í Svíþjóð og Danmörku eru styrkir og lán á hinn bóginn aðskildir þættir námsaðstoðar. Í Svíþjóð skiptist námsaðstoðin (studiemedel) í námsstyrk (studiebidrag) og námslán (studielån), samkvæmt 1. gr. 3. kafla laga um námsaðstoð (studiestödslag, 1999:1395). Fyrri námsárangur er jafnframt metinn þegar tekin er ákvörðun um áframhaldandi rétt til námsaðstoðar samkvæmt 7. gr. sama kafla. Í Danmörku eru styrkur (stipendium), námslán (studielån) og sérstakt lokanámslán (slutlån) aðskildar tegundir námsaðstoðar samkvæmt 7. gr. laga um námsaðstoð (bekendtgørelse af lov om statens uddannelsesstøtte (SU-loven), LBK nr 395 af 13/04/23).

Samanburðurinn sýnir að í Noregi er hluti stuðningsins tengdur námsframvindu og annar hluti námslokum þótt hlutföll og skilyrði séu önnur en í frumvarpinu. Í Finnlandi tengist lækkun námsláns námslokum en í Svíþjóð og Danmörku eru styrkir og lán aðskildir þættir námsaðstoðar frá upphafi.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Guðmundur Ari Sigurjónsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 23. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
ÖBÍ réttindasamtök, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Landssamtök íslenskra stúdenta, BHM, Samband íslenskra námsmanna erlendis o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
4 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna rýmkunar námsstyrkja rúmist innan áætlaðra fjárveitinga til Menntasjóðs námsmanna. Vaxtakostnaður ríkissjóðs vegna námslána fram að námslokum er áætlaður um 591 milljón kr. á ári en ríkissjóður ber þegar þann kostnað. Rýmkuð heimild til að greiða fyrst af nýrri námslánum er talin geta leitt tímabundið til aukinna afskrifta en fjárhæð þeirra er ekki tilgreind. Aðrar breytingar eru ekki taldar hafa í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-45/2025· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2025 – 7. mar. 2025· 7 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-45/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. júlí 2026)

Frumvarpið varð að lögum á 157. löggjafarþingi Alþingis, lög nr. 70/2025

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Samband íslenskra námsmanna erl

    Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur)

  • #2Bandalag háskólamanna

    Hjálagt er umsögn BHM um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir, endurgreiðslur), nr. 60/2020, mál nr. S-45/2025. Fyrir hönd BHM, Björg Kjartansdóttir framkvæmdastjóri BHM

  • #3Landssamtök íslenskra stúdenta

    Umsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) um drög að frumvarpi til breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur).

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins í máli nr. S-45/2025.

  • #5Guðbergur Egill Eyjólfsson
    Umsögn 56. löggjafarþing 2025–2026. 7. mars 2025 Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur), mál nr. S-45/2025. Ég vil benda á ákveðna ósanngirni sem fellst í lögum um Menntasjóð námmsmanna nr. 60/2020 varðandi niðurfellingu lána til einstaklinga sem orðið hafa fyrir það miklum áföllum, andlegum eða/og líkamlegum, að geta ekki nýtt menntun sína sér og sínum til framfærslu. Sjóðnum er heimilt að fella… Lesa alla

    Umsögn 56. löggjafarþing 2025–2026. 7. mars 2025 Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur), mál nr. S-45/2025. Ég vil benda á ákveðna ósanngirni sem fellst í lögum um Menntasjóð námmsmanna nr. 60/2020 varðandi niðurfellingu lána til einstaklinga sem orðið hafa fyrir það miklum áföllum, andlegum eða/og líkamlegum, að geta ekki nýtt menntun sína sér og sínum til framfærslu. Sjóðnum er heimilt að fella niður námslán skv 20. Gr. Laga um Menntasjóðinn nr. 60/2020 en það á aðeins við um námslán sem tekin hafa verið eftir gildistöku þeirra laga en ekki námslána sem tekin voru í tíð eldri laga nr. 21/1992 og eiga ákvæði þeirra laga enn við um þau lán þótt lögin hafi verið felld úr gildi. Vil ég þá benda á þá ósanngirni að þeir sem á engann hátt geta nýtt sér þá menntun sem þeir hafa aflað sér, vegna áfalla sem þeir hafa orðið fyrir, og þar af leiðandi ekki greitt námslán sem fengin voru til að afla menntunarinnar hafi þeir tekið námslánin fyrir gildingu núverandi laga, nr 60/2020. Eigi ekki kost á niðurfellingu eins og þeir sem tóku lán eftir breytinguna. Bið ég því um að sett verði inn í lögin við endurskoðunina að það sama gildi um þá sem tóku námslán fyrir breytingu lagana til jafns við þá sem tóku námslán eftir breytinguna. Virðingarfyllst Guðbergur Egill Eyjólfsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 4 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 4 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 4 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 3. apr. 2025, frestur 23. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðkynningOpna PDF
Landssamtök íslenskra stúdentaumsögnOpna PDF
BHMumsögnOpna PDF
Samband íslenskra námsmanna erlendisumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.