Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 256. mál

Hækkun veiðigjalda

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að styðja við fréttastarfsemi einkarekinna fjölmiðla og styrkja lýðræðishlutverk þeirra með því að taka aftur upp tímabundinn rekstrarstuðning.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 5 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 8. sep. 2026

Markmiðið

Að styðja við fréttastarfsemi einkarekinna fjölmiðla og styrkja lýðræðishlutverk þeirra með því að taka aftur upp tímabundinn rekstrarstuðning.

Hvað breytist

Lagt er til að rekstrarstuðningi við einkarekna fjölmiðla, sem féll úr gildi í ársbyrjun 2025, verði komið á að nýju og að hann gildi til ársloka. Gert er ráð fyrir að fjölmiðlar geti fengið stuðning vegna launa- og verktakakostnaðar við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllunar um samfélagsmál. Skilyrði fyrir stuðningi eru að mestu óbreytt frá fyrra fyrirkomulagi.

Hámark hlutdeildar hvers umsækjanda í heildarfjárveitingu yrði lækkað úr 25% í 22%. Áfram yrði miðað við að stuðningur næmi að hámarki 25% af gjaldgengum rekstrarkostnaði með sérstöku 20% álagi á styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Endanleg fjárhæð úthlutunar réðist af heildarfjárveitingu og umfangi samþykktra umsókna.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir um 500 milljóna kr. kostnaði á árinu 2025 að meðtöldum kostnaði við úrvinnslu umsókna. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á áætluðum fjárheimildum málefnasviðsins fjölmiðlunar verði frumvarpið óbreytt að lögum.

Meira úr samantektinni

Árið 2024 hlutu 27 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning og komu alls um 550,9 milljónir kr. til úthlutunar að frádregnum kostnaði við umsýslu og önnur tengd verkefni. Kemur þetta fram í niðurstöðum úthlutunarnefndar sem Fjölmiðlanefnd birti.

Löggjöf á Norðurlöndum

Á hinum fjórum Norðurlöndunum gilda reglur um opinberan stuðning við fréttastarfsemi. Gildissvið og fyrirkomulag stuðningsins er þó ólíkt milli landa og ekki er alls staðar um reglubundnar úthlutanir að ræða.

Í Danmörku nær framleiðslustuðningur til prentaðra fréttamiðla og textamiðaðra netmiðla sem og miðla þar sem megináhersla er á hljóð- og myndefni ef skrifaðar fréttir eru að minnsta kosti þriðjungur af heildarefni og hafa sjálfstætt gildi. Staðbundnir og svæðisbundnir fréttamiðlar njóta aukins stuðnings að uppfylltum skilyrðum 1., 5. og 6. gr. reglugerðar um fjölmiðlastuðning (bekendtgørelse om mediestøtte, BEK nr 127 af 05/02/2024 með síðari breytingu nr. 1488/2024).

Í Noregi nær rekstrarstuðningur til textamiðaðra frétta- og dægurmálamiðla óháð birtingarformi. Markmiðið er að efla fjölbreytta, vandaða og óháða fréttamennsku um land allt, einkum á mörkuðum sem eru of litlir til að standa undir rekstri og hjá miðlum sem eru valkostur við leiðandi fréttamiðla, sbr. 1.–2. gr. reglugerðar um framleiðslustyrki til frétta- og dægurmálamiðla (forskrift om produksjonstilskudd til nyhets- og aktualitetsmedier, FOR-2022-12-08-2117).

Í Svíþjóð er sams konar áhersla lögð á aðgengi að staðbundnum og svæðisbundnum fréttum um land allt ásamt því markmiði að tryggja fjölbreytni vandaðra, almennra fréttamiðla, sbr. 2. gr. laga um fjölmiðlastuðning (lag om mediestöd, 2023:664).

Í Finnlandi hefur verið komið á tímabundnum stuðningi vegna launa og verktakagreiðslna við ritstjórnarstörf, sbr. 6. gr. reglugerðar um ríkisstyrki til að styðja við upplýsingamiðlun og fréttamiðla árið 2023 (statsrådets förordning om statsunderstöd för stödjande av informationsförmedling och nyhetsmedier 2023, 476/2023). Reglugerðin gildir til ársloka 2025 en samkvæmt upplýsingum frá Traficom, finnsku samgöngu- og fjarskiptastofnuninni, er gert ráð fyrir að úthlutunin fari aðeins fram í eitt skipti.

Samanburðurinn lýtur því að opinberum stuðningi við fréttastarfsemi almennt en ólíkt er milli landa hvaða miðlar, kostnaðarliðir og úthlutunarreglur falla undir viðkomandi kerfi.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Guðmundur Ari Sigurjónsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 16. maí 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Bændasamtök Íslands, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Sýn hf., Blaðamannafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
5 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir um 500 milljóna kr. kostnaði á árinu 2025 að meðtöldum kostnaði við úrvinnslu umsókna. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á áætluðum fjárheimildum málefnasviðsins fjölmiðlunar verði frumvarpið óbreytt að lögum.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-200/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. okt. 2024 – 23. okt. 2024· 9 umsagnir

Framlenging á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 falla að óbreyttu úr gildi í lok árs. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja gildistímann um þrjú ár

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-200/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Skessuhorn ehf
    Til umsagnar er breyting á lögum um einkarekna fjölmiðla sem miða að framlengingu laganna um þrjú ár. Með samþykkt frumvarpsins er dregið mjög úr þeirri óvissu sem útgefendur einkarekinna fjölmiðla hafa mátt búa við á síðustu árum í ljósi skamms gildistíma laganna hverju sinni. Sem fyrr gegna fjölmiðlar veigamiklu hlutverki í samfélaginu, líkt og víðsvegar um heim þar sem lýðræðið er í hávegum haft. Hér á landi eru tvær blokkir fjölmiðla. Í annarri blokkinni er Ríkisútvarpið sem fær í krafti laga og fjárhagslegs forskots ægivald í samanburði við hina blokkina. Í síðarnefndu blokkinni eru á þr… Lesa alla

    Til umsagnar er breyting á lögum um einkarekna fjölmiðla sem miða að framlengingu laganna um þrjú ár. Með samþykkt frumvarpsins er dregið mjög úr þeirri óvissu sem útgefendur einkarekinna fjölmiðla hafa mátt búa við á síðustu árum í ljósi skamms gildistíma laganna hverju sinni. Sem fyrr gegna fjölmiðlar veigamiklu hlutverki í samfélaginu, líkt og víðsvegar um heim þar sem lýðræðið er í hávegum haft. Hér á landi eru tvær blokkir fjölmiðla. Í annarri blokkinni er Ríkisútvarpið sem fær í krafti laga og fjárhagslegs forskots ægivald í samanburði við hina blokkina. Í síðarnefndu blokkinni eru á þriðja tug ritstýrðra fjölmiðla sem flestir berjast í bökkum ef marka má ársreikninga þeirra. Fjölmiðlar á landsbyggðinni tilheyra síðari blokkinni og annast fréttaflutning á og af sínum svæðum - færa tíðindi sem ella væru flest ekki flutt. Nokkur landsvæði eru nú þegar án fjölmiðils og falla undir skilgreininguna fréttaeyðimörk. Landsbyggðarmiðlar hafa átt sérstaklega í vök að verjast, umfram stærri miðla og þá sem gefnir eru út á stór-höfuðborgarsvæðinu. Prentmiðlar eru í þrengstu stöðunni sökum m.a. hækkunar kostnaðar við prentun og dreifingu. Þar við bætist að fjölgun íslensku mælandi íbúa hefur ekki átt sér stað víða á landsbyggðinni, þar sem fólk af erlendu bergi brotið er frá fjórðungi og upp í þriðja hluta íbúa. Fæst af því ágæta fólki les íslenska miðla. Fyrst og síðast er þó helsta vandamál fjölmiðla breytt fjölmiðlalæsi yngra fólks og á það við á heimsvísu. Samfélagsmiðlar og ýmsar streymisveitur hafa tekið að hluta til yfir það hlutverk sem ritstýrðir fjölmiðlar gegndu alfarið áður og raka til sín tekjum sem áður runnu til framleiðslu frétta á ritstjórnum. Einkareknir fjölmiðlar þurfa því að aðlaga sig breyttu umhverfi, leita leiða til að efla tekjugrundvöll sinn - ella hætta starfsemi. Skessuhorn hefur einn fárra vefmiðla hér á landi reynt að bæta rekstrargrundvöll sinn með sölu áskrifta að vef. Hefur það verkefni gengið að vonum. Það er dæmi um hvernig fjölmiðlar geta, án aðkomu stjórnvalda, leitað nýrra leiða til tekjuöflunar og mætt hækkandi útgáfukostnaði og breyttri fjölmiðlanotkun yngra fólks. Undirritaður saknar þess að í öllum lögum og frumvörpum til stuðnings einkareknum fjölmiðlum til þessa, að ekki er hugað sérstaklega að stuðningi við þá fjölmiðla sem leita sér sjálfshjálpar með þessu móti. Þá hefur heldur ekki verið skattlögð auglýsingasala streymisveitna og samfélagsmiðla á sama hátt og íslenskir miðlar búa við. Á síðustu þremur árum hefur Skessuhorn ehf. notið stuðnings úr Ríkissjóði í gegnum styrkjakerfi til einkarekinna fjölmiðla. Undirritaður færir löggjafarvaldinu þakkir fyrir þennan skilning, en án þessara styrkja hefði rekstri þessa útgáfufyrirtækis verið hætt. Allur fyrirsjáanleiki er frumforsenda fyrir að hægt sé að taka stefnumarkandi ákvarðanir um áframhaldandi rekstur þessa fyrirtækis - og reyndar margra annarra sem stuðnings hafa notið. Þar af leiðandi fagna ég frumvarpinu svo langt sem það nær, fyrir hönd útgáfufélagsins Skessuhorns ehf. Magnús Magnússon, útgefandi

  • #2Gunnar Gunnarsson
    Útgáfufélag Austurlands, sem gefur út Austurgluggann og Austurfrétt, fagnar frumvarpinu. Opinberir styrkir hafa skipt miklu máli fyrir tilvist útgáfunnar frá 2020. Á sama tíma hefur félagið verið að vinna í fleiri tekjuleiðum til að styrkja rekstrargrundvöllinn til framtíðar. Styrkirnir hafa veitt hvatningu og skjól til að vinna að þeim. Mikilvægt er að styrkirnir séu tryggðir til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika. Þriggja ára gildistími frumvarpsins er þar skref í rétta átt. Eins og bent er á í greinargerð eru fjölmiðlastyrkir við lýði á hinum Norðurlöndunum og þar hefur vaxandi á… Lesa alla

    Útgáfufélag Austurlands, sem gefur út Austurgluggann og Austurfrétt, fagnar frumvarpinu. Opinberir styrkir hafa skipt miklu máli fyrir tilvist útgáfunnar frá 2020. Á sama tíma hefur félagið verið að vinna í fleiri tekjuleiðum til að styrkja rekstrargrundvöllinn til framtíðar. Styrkirnir hafa veitt hvatningu og skjól til að vinna að þeim. Mikilvægt er að styrkirnir séu tryggðir til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika. Þriggja ára gildistími frumvarpsins er þar skref í rétta átt. Eins og bent er á í greinargerð eru fjölmiðlastyrkir við lýði á hinum Norðurlöndunum og þar hefur vaxandi áhersla verið á að styðja við staðarmiðla. Útgáfufélagið hefur í fyrri umsögnum sínum, svo sem um fjölmiðlastefnu, komið á framfæri frekari athugasemdum og ábendingum um umgjörð staðbundinna fjölmiðla. F.h. Útgáfufélags Austurlands Gunnar Gunnarsson, ritstjóri fyrirsjáanleika Verið að vinna í fleiri leiðum til að styrkja tekjugrundvöll félagsins til framtíðar

  • #3Viggó Einar Viðarsson

    Fella allan stuðning til einkafyrirtækja niður samstundis. Eigendur þessara fyrirtækja völdu sér að fara út í þennan rekstur og það er ekki hlutverk ríkissjóðs að úthluta af skattfé styrki til fyrirtækja. Það er óeðlilegt að ríkisfé sé veitt í valin einkafyrirtæki og er mismunun gagnvart öðrum fyrirtækjum í landinu. Ef fyrirtækið telst nauðsynlegt eða það sé þörf fyrir slíkt fyrirtæki en ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir hendi á slíkt fyrirtæki að vera allfarið í eigu og rekið af ríkissjóði.

  • #4Elísa Guðrún ehf

    Sæl verið þið og þakkir fyrir stuðninginn við útgáfufélag Lifandi vísinda/Lifandi sögu í gegn um vefinn okkar, visindi.is. Það voru samt mikil vonbrigði á sínum tíma þegar ákveðið var að halda flestum, ef ekki öllum tímaritum fyrir utan þennan stuðning en lágmarki fyrir stuðningi er 20 prentútgáfur á ári. Flest, ef ekki öll tímarit koma sjaldnar út. Væri ekki lag að bæta tímaritum (eins og hugmyndin er í Danmörku) við í hugsanlegum stuðningi við einkarekinna fjölmiðla?

  • #5Tunnan prentþjónusta ehf.
    Umsögn og tillögur um breytingar á lögum nr. 38/2011 1. mgr. 62. gr. e. að lengja tímabil skipaðrar úthlutunarnefndar úr tveimur árum í þrjú! UMSÖGN: Sennilega er þetta talið praktíst atriði! Hreinlega erfitt að finna hæfa einstaklinga til að starfa í þessari úthlutunarnefnd. Set mig svo sem ekki beint upp á móti því, en mundi vilja að nöfn þessara einstaklinga verði birt á vef fjölmiðlanefndar. 2. Breyta ártali gildistíma til 2028 UMSÖGN: Set mig ekki upp á móti því, en það þarf að skilgreina þessi lög betur og ræða hvernig þessum málum er háttað! Hef fengið úthlutað frá því þetta byrjað… Lesa alla

    Umsögn og tillögur um breytingar á lögum nr. 38/2011 1. mgr. 62. gr. e. að lengja tímabil skipaðrar úthlutunarnefndar úr tveimur árum í þrjú! UMSÖGN: Sennilega er þetta talið praktíst atriði! Hreinlega erfitt að finna hæfa einstaklinga til að starfa í þessari úthlutunarnefnd. Set mig svo sem ekki beint upp á móti því, en mundi vilja að nöfn þessara einstaklinga verði birt á vef fjölmiðlanefndar. 2. Breyta ártali gildistíma til 2028 UMSÖGN: Set mig ekki upp á móti því, en það þarf að skilgreina þessi lög betur og ræða hvernig þessum málum er háttað! Hef fengið úthlutað frá því þetta byrjaði en verið með hálgert blóðbragð á tungunni! „Þá hefur heldur ekki verið skattlögð auglýsingasala streymisveitna og samfélagsmiðla á sama hátt og íslenskir miðlar búa við.“ Þessu þarf að taka á! Við prentmiðlar og aðrir sem eru að selja áskriftir og auglýsingar í pappírsfjölmiðlum er gert að greiða 11% vsk. af áskriftum og 24% vsk. af auglýsingum. Fólk hefur komist upp með að auglýsa á samfélagsmiðlum FRÍTT og ekkert hægt að fá fyrirtækin sem eru að reka þessa miðla til að innheimta VSK. til íslenska ríkisins. Nú er tæknin (símar) orðin það góð að hægt er að framkvæma þetta auðveldlega. Einfaldlega gæti fólk (atvinnulausir, öryrkjar og eldri borgarar) skráð sig sem tilkynnendur á auglýsingum á samfélagsmiðlum búðargluggum (eigandi verslunar væri ábyrgur fyrir auglýsingu þriðja aðila) og stöðum þriðja aðila, sent inn tilkynningu gegnum App í síma um auglýsingu sem ríkið ætti að fá vask af. Gullgæs fyrir tekjuöflun ríkisins og ef fólk færi í fýlu, þá mundum við bara losna við allan þennan ruslpappír í búðargluggum sem hangir oft langt fram yfir auglýstan viðburð og enginn nennir að taka niður! Þetta er óþolandi samkeppni og ég hef sefað samviskuna um að sækja um þessa styrki sem einskonar sárabót og kannski endurgreiðsla á þeim gjöldum sem við erum skyldug að skila til ríkisins. Tillaga að breytingu á. [62. gr. g. Skilyrði fyrir rekstrarstuðningi. Þar í lið 4 er eftirfarandi: „ 4. Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 sinnum á ári en staðbundnir fjölmiðlar 12 sinnum. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.“ Vil breita þessari grein og hafa þannig: Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 tölublöð á ári og að lámarki 160 blaðsíður A4 stærð eða sambærilegt með aðrar stærðir. Með staðbundna fjölmiðla kæmu 12 tölublöð með lámark 144 blaðsíður A4 stærð eða sambærilegt í öðrum stærðum. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni á virkum dögum í 26 vikur á ári. Styð hugmynd frá Elísa Guðrún ehf. Um að styðja við blöð eins og Lifandi vísindi sem þau gefa út. (þarf þá að bæta við grein um tímarit) Við sem erum að reyna að koma út efni á pappír þurfum stuðning, en ekki að það séu gerðar reglur til að reyna að bíta okkur af sér. Margir fá á tilfinninguna að það sé verið að sníða reglurnar að fáum útvöldum og þá upplifa þeir slík sem spillingu! Virðingarfyllst fyrir hönd Tunnunnar prentþjónustu ehf: Albert Gunnlaugsson ritstjóri Tunnan gefur út DB blaðið www.dbl.is

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-43/2025· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. feb. 2025 – 6. mar. 2025· 13 umsagnir

Stuðningur til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 féllu úr gildi síðastliðin áramót. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði kaflans verði tekin upp í lögin á ný með gildistíma til næstuáramóta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-43/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Hólmgeir Baldursson
    Það væri mikið framfaraskref ef „Fjölmiðlastyrkir“ yrðu loks útfærðir fyrir ljósvakafyrirtæki sem stunda afþreyingarmiðlum og kosta til verulegum fjárhæðum í að texta og talsetja í samkeppni við erlendar streymisveitur sem ekki þurfa að lúta íslenskum fjölmiðlalögum um textaskyldu í stað þess að eingöngu einblína á „fréttamiðla“ og koma þar með almennilega til móts við „fjölmiðla“ landsins en ekki eingöngu fréttamiðla sem þessi styrkur virðist eingöngu ná yfir. Ég starfræki íslenska Sjónvarpsfélagið Skjá 1 og fullyrði að ekkert styrkjaumhverfi nær yfir opna línulega sjónvarpsmiðlun þar sem þe… Lesa alla

    Það væri mikið framfaraskref ef „Fjölmiðlastyrkir“ yrðu loks útfærðir fyrir ljósvakafyrirtæki sem stunda afþreyingarmiðlum og kosta til verulegum fjárhæðum í að texta og talsetja í samkeppni við erlendar streymisveitur sem ekki þurfa að lúta íslenskum fjölmiðlalögum um textaskyldu í stað þess að eingöngu einblína á „fréttamiðla“ og koma þar með almennilega til móts við „fjölmiðla“ landsins en ekki eingöngu fréttamiðla sem þessi styrkur virðist eingöngu ná yfir. Ég starfræki íslenska Sjónvarpsfélagið Skjá 1 og fullyrði að ekkert styrkjaumhverfi nær yfir opna línulega sjónvarpsmiðlun þar sem þess er krafist samkvæmt lögum um fjölmiðla að allt efni sem birtist skuli textað eða talsett á íslenska tungu. Nýlega auglýstur „endurgreiðslustyrkur“ Fjölmiðlanefndar varðandi texta og talsetningu fyrir börn yngri en 12 ára nær að því er virðist eingöngu fyrir miðla sem selja áskriftir að efninu. F.h. Skjás 1 Hólmgeir Baldursson www.skjar1.is

  • #2Skessuhorn ehf
    Fyrir hönd Skessuhorns ehf. – fréttaveitu Vesturlands fagna ég því sem slíku að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa vissulega lengt líf einhverra miðla, þeirra á meðal okkar. Ekki síst á það við um fjölmiðla sem ekki eru baktryggðir af fjársterkum hagsmunaöflum – eða eru reknir með útvarpsgjaldi úr vasa almennings. Sem útgefandi og ábyrgðaraðili óska ég jafnframt eftir að flýtt verði sem kostur er gerð lagafrumvarps um stuðning næstu ára við einkarekna fjölmiðla. Sé það stefna stjórnvalda að þeir verði áfram til er… Lesa alla

    Fyrir hönd Skessuhorns ehf. – fréttaveitu Vesturlands fagna ég því sem slíku að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa vissulega lengt líf einhverra miðla, þeirra á meðal okkar. Ekki síst á það við um fjölmiðla sem ekki eru baktryggðir af fjársterkum hagsmunaöflum – eða eru reknir með útvarpsgjaldi úr vasa almennings. Sem útgefandi og ábyrgðaraðili óska ég jafnframt eftir að flýtt verði sem kostur er gerð lagafrumvarps um stuðning næstu ára við einkarekna fjölmiðla. Sé það stefna stjórnvalda að þeir verði áfram til er óverjandi annað en skapaður verði meiri stöðugleiki og umfram allt fyrirsjáanleiki í slíkum rekstri. Magnús Magnússon

  • #3Gunnar Gunnarsson
    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 Útgáfufélag Austurlands, útgefandi netmiðilsins Austurfréttar og vikublaðsins Austurgluggans, fagnar því að ráðherra hafi ákveðið að framlengja styrki til einkarekinna fjölmiðla. Eins og fram hefur komið í fyrri umsögnum félagsins hafa þeir síðustu ár skipt miklu máli fyrir útgáfuna. Útgáfufélagið telur þær breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni til bóta. Að hámarksstyrkur sé lækkaður í 22% af þeirri upphæð sem er til ráðstöfunar er til þess fallið að styðja við fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaði. Eins og bent er… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 Útgáfufélag Austurlands, útgefandi netmiðilsins Austurfréttar og vikublaðsins Austurgluggans, fagnar því að ráðherra hafi ákveðið að framlengja styrki til einkarekinna fjölmiðla. Eins og fram hefur komið í fyrri umsögnum félagsins hafa þeir síðustu ár skipt miklu máli fyrir útgáfuna. Útgáfufélagið telur þær breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni til bóta. Að hámarksstyrkur sé lækkaður í 22% af þeirri upphæð sem er til ráðstöfunar er til þess fallið að styðja við fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaði. Eins og bent er á í greinargerð þá hefur þróunin í nágrannaríkjum verið sú að betur er stutt við minni miðla, einkum staðbundna miðla. Útgáfufélag Austurlands þakkar þann skilning sem aðstöðu staðarmiðla er sýndur í þessu frumvarpi, sem fyrrum. Útgáfufélag Austurlands vill vekja athygli á að í þeim löndum er áherslan á miðla sem framleiða fréttaefni eða fjalla um samfélagsleg málefni. Þar sem styrkjunum er ætlað að styðja við fjölmiðla, sem hluta af hornsteinum lýðræðisins, gengur ekki að þeir fari til miðla sem aðeins fjalla um tiltekinn áhugamál eða byggja mest á þýðingum á erlendu efni. Mögulega er tilefni til að skerpa þetta ákvæði enn frekar. Að þessu sögðu vísar Útgáfufélag Austurland til fyrri umsagna sinna um bæði lög um fjölmiðla og fjölmiðlastefnu. Félagið vill ítreka þörfina á að móta reglur til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri miðlanna. Að aðeins sé hægt að ganga að styrkjunum sem vísum, eins mikilvægt og það er, frá ári til árs gerir það ekki. Að endingu lýsa stjórnendur Útgáfufélags Austurlands sig tilbúna til samræðna um stöðu fjölmiðlunar í landinu hvenær sem þess er óskað. F.h. Útgáfufélags Austurlands Gunnar Gunnarsson, ritstjóri

  • #4Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.

    Fyrir hönd Leturstofurnnar Vestmannaeyjum ehf. – Sem gefur út bæjarfjölmiðilinn Tígul. Gleður okkur mikið að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa lengt líf okkar miðils. Er það okkar von að áframhald verði. Takk fyrir okkur, Sæþór Vídó, Kata Laufey og Lind.

  • #5Fjölmiðlatorgið ehf.

    Umsögn Fjölmiðlatorgsins ehf. fylgir í viðhengi. j.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 5 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 16. maí 2025
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 5 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 2. maí 2025, frestur 16. maí 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Bændasamtök ÍslandsminnisblaðOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Sýn hf.umsögnOpna PDF
Blaðamannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Útgáfufélag Austurlands ehf.umsögnOpna PDF
Árvakur hf.umsögnOpna PDF
Fjölmiðlatorgið ehf.umsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.