Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 270. mál

Meðferð erinda í forsætisráðuneyti

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og skýra lagaumgjörð sjóðsins með heildstæðari og gagnsærri reglum um úthlutun.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
2 ræður · 2 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 28. jan. 2026

Markmiðið

Að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og skýra lagaumgjörð sjóðsins með heildstæðari og gagnsærri reglum um úthlutun.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga þar sem kveðið er á um tekjur sjóðsins og ráðstöfun þeirra, m.a. með því að afmarka meginflokka framlaga úr sjóðnum. Tekjuöflun sjóðsins byggist m.a. á framlagi úr ríkissjóði og árlegu framlagi sem er hlutfall af álagningarstofni útsvars auk hlutdeildar í útsvarstekjum til jöfnunar vegna reksturs grunnskóla og málefna fatlaðs fólks. Gert er ráð fyrir að almenn jöfnunarframlög miðist við jöfnun vegna mismunandi tekjumöguleika og stærðarhagkvæmni og vegna mismunandi útgjaldaþarfa, m.a. með 80% jöfnunarhlutfalli og útgjaldastuðli, og sérstöku framlagi vegna höfuðstaðarálags. Þá eru sett ákvæði um vinnslu persónuupplýsinga og skyldu til að veita sjóðnum nauðsynlegar upplýsingar.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om kommunal udligning og generelle tilskud til kommuner LBK nr 63 af 19/01/2021.

Finnland

Lag om statsandel för kommunal basservice 1704/2009.

Svíþjóð

Lag om kommunalekonomisk utjämning (2004:773).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Dagur B. Eggertsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 13. maí 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
29 aðilar
Innviðaráðuneytið, Suðurnesjabær, Akranesbær, Langanesbyggð, Kópavogsbær o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-32/2025· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2025 – 5. mar. 2025· 38 umsagnir

Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Markmiðið er að stuðla að markvissari og réttlátari úthlutun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, einfalda skipulag sjóðsins og stuðla að því að hann fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-32/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 38 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2025)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í mars 2025. Umfjöllun um niðurstöður samráðsins um frumvarpið og þær breytingar sem gerðar voru að samráði loknu er að finna í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu, sjá hlekk. Einnig var unnin skýrsla um samráð sem er birt hér.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (38)
  • #1Persónuvernd

    Sjá meðfylgjandi umsögn Persónuverndar.

  • #2Múlaþing

    Umsögn byggðaráðs Múlaþings.

  • #3Skagafjörður
    Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál til samráðs, 32/2025 og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins sé komið fram frumvarp til laga um breytingu á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það er löngu tímabært að endurskoða reglurnar og uppfæra þær til samræmis við þarfir og raunveruleika sveitarstjórnarstigsins í dag en sveitarfélögum landsins hefur fækkað umtalsvert á liðnum áratugum á sama tíma og verkefnum þeirra hefur fjölgað verulega. Byggðarráð fagnar því jafnframt að í frumvarpinu er lögð áhersla á að… Lesa alla

    Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál til samráðs, 32/2025 og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins sé komið fram frumvarp til laga um breytingu á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það er löngu tímabært að endurskoða reglurnar og uppfæra þær til samræmis við þarfir og raunveruleika sveitarstjórnarstigsins í dag en sveitarfélögum landsins hefur fækkað umtalsvert á liðnum áratugum á sama tíma og verkefnum þeirra hefur fjölgað verulega. Byggðarráð fagnar því jafnframt að í frumvarpinu er lögð áhersla á að Jöfnunarsjóður styðji í auknum mæli við landstór, fjölkjarna sveitarfélög sem hafa stór þjónustusvæði, fjölbreytt byggðarmynstur og af þeim sökum miklar og flóknar útgjaldaþarfir. Breytingarnar eru til þess fallnar að styðja við þróun sveitarstjórnarstigsins og sjálfbærni þess og er mikilvægur þáttur í jöfnun búsetuskilyrða í dreifðum byggðum. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #4Sveitarfélagið Árborg
    Á 119. fundi bæjarráðs sem haldinn var 27. febrúar 2025 var tekið fyrir frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, í samráðsgátt nr. S-32/2025, auk erindis frá innviðaráðuneytinu, dags. 21. febrúar, um frest til umsagnar til 5. mars. Eftirfarandi bókun bæjarráðs tilkynnist hér með: Bæjarráð Árborgar tekur í meginefnum undir þær breytingar sem koma fram í frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í lagafrumvarpinu eru löngu tímabærar breytingar á regluverki jöfnunarsjóðs sem tekur betur mið af stöðu og gerð sveitarfélaga í dag. Má þar sem dæmi nefna að árið 1990 voru sveitarfélö… Lesa alla

    Á 119. fundi bæjarráðs sem haldinn var 27. febrúar 2025 var tekið fyrir frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, í samráðsgátt nr. S-32/2025, auk erindis frá innviðaráðuneytinu, dags. 21. febrúar, um frest til umsagnar til 5. mars. Eftirfarandi bókun bæjarráðs tilkynnist hér með: Bæjarráð Árborgar tekur í meginefnum undir þær breytingar sem koma fram í frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í lagafrumvarpinu eru löngu tímabærar breytingar á regluverki jöfnunarsjóðs sem tekur betur mið af stöðu og gerð sveitarfélaga í dag. Má þar sem dæmi nefna að árið 1990 voru sveitarfélög landsins 204 en eru í dag 62 talsins. Á umræddu tímabili hafa litlar breytingar verið gerðar á grunnreglum úthlutunar hjá sjóðnum. Greiðslur jöfnunarsjóðs hafa umtalsvert vægi í tekjum sveitarfélaga og mikilvægt að sambærileg sveitarfélög fái sambærileg framlög með tilliti til tekna. Bæjarráð Árborgar tekur undir þá tillögu að vannýting skattstofna leiði til lækkunar framlaga úr Jöfnunarsjóði, enda sé það í anda tilgangs Jöfnunarsjóðs. Að öðru leyti telur bæjarráð Árborgar að tillögur frumvarpsins séu vandaðar og til þess fallnar að styrkja stöðu sveitarfélaga landsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar.

  • #5ÖBÍ réttindasamtök

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, mál nr S-32/2025.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    2 ræður · 2 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 13. maí 2025
    1 beiðni um umsögn
  3. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 37 með, 0 á móti · handaupprétting

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

1 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • Samþykkthandaupprétting27. júní 2025 kl. 11:12
    Afbrigði
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 2 mín
  • Umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 2 mín

Umsagnir og erindi

39 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 29. apr. 2025, frestur 13. maí 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
InnviðaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
SuðurnesjabærumsögnOpna PDF
AkranesbærumsögnOpna PDF
LanganesbyggðumsögnOpna PDF
InnviðaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
InnviðaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
InnviðaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
KópavogsbærumsögnOpna PDF
SeltjarnarnesbærumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
InnviðaráðuneytiðkynningOpna PDF
InnviðaráðuneytiðkynningOpna PDF
VesturbyggðumsögnOpna PDF
GrindavíkurbærumsögnOpna PDF
HúnabyggðumsögnOpna PDF
HúnabyggðumsögnOpna PDF
GarðabærumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
HúnabyggðumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Skeiða- og GnúpverjahreppurumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
VestmannaeyjabærumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
NorðurþingumsögnOpna PDF
MúlaþingumsögnOpna PDF
HafnarfjarðarbærumsögnOpna PDF
ÞingeyjarsveitumsögnOpna PDF
MosfellsbærumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
ÍsafjarðarbærumsögnOpna PDF
Félag fornleifafræðingaumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
GrýtubakkahreppurumsögnOpna PDF
SkagafjörðurumsögnOpna PDF
Vinstrihreyfingin - grænt framboðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.