Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 272. mál

Sveitarstjórnarlög

Mat á fjárhagslegum áhrifum

LagafrumvarpDagaði uppiSveitarstjórnarmál

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 11. jún. 2025

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 156. þingi. Beið 2. umræðu“

Í stuttu máli

Að skýra og styrkja ferli við mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins á sveitarfélög, m.a. með því að festa í sessi samráð og skýran farveg fyrir úrlausn ágreiningsmála milli ríkis og sveitarfélaga.

Lagt fram af Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
29. mars 2025
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
9 ræður · 24 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 28. jan. 2026

Markmiðið

Að skýra og styrkja ferli við mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins á sveitarfélög, m.a. með því að festa í sessi samráð og skýran farveg fyrir úrlausn ágreiningsmála milli ríkis og sveitarfélaga.

Hvað breytist

Lagt er til að ráðherra skuli tryggja að fram fari sérstakt mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins á sveitarfélög þegar slík áhrif eru fyrirsjáanleg. Matinu er ætlað að greina markmið og tilætluð áhrif, þjónustukröfur og fjármögnun kostnaðar og skal það sent Sambandi íslenskra sveitarfélaga til umsagnar áður en frumvarp er afgreitt úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi eða áður en ákvörðun er endanlega tekin. Verði ágreiningur um niðurstöðu matsins má vísa ágreiningsefninu til samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga. Komi í ljós að mat hafi ekki farið fram þrátt fyrir ljós áhrif skal ráðherra grípa til viðeigandi ráðstafana sem geta m.a. falist í breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Guðbrandur Einarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 28. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Sveitarfélagið Skagafjörður, Akureyrarbær, Samband íslenskra sveitarfélaga, Húnaþing vestra, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
24 mín · 9 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-23/2025· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. feb. 2025 – 17. feb. 2025· 10 umsagnir

Breyting á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög

Breytingarnar fela m.a. í sér skýrari feril kostnaðarmats auk þess sem lögð verður til ný almenn leið til að leysa úr ágreiningsmálum milli ríkis og sveitarfélaga um matið.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-23/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. febrúar 2025)

Ráðuneytinu bárust tíu umsagnir frá sveitarfélögum, landshlutasamtökum og hagsmunaaðilum. Í öllum umsögnum var tekið undir markmið frumvarpsins og fyrirhuguðum breytingum fagnað. Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga (mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög) verða birt í samráðsgátt í febrúar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Skagafjörður
    Á 133. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var tekið fyrir mál 23/2025 til samráðs og þannig bókað. Kynnt áform um fyrirhuguðarar breytingar á 129. grein sveitarstjórnarlaga, sem fjallar um endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Breytingunum er ætlað að koma til móts við gagnrýni sveitarfélaga, m.a. um að dæmi séu um að kostnaðarmat af þessu tagi séu ekki framkvæmd, matið sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær leita eigi umsag… Lesa alla

    Á 133. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var tekið fyrir mál 23/2025 til samráðs og þannig bókað. Kynnt áform um fyrirhuguðarar breytingar á 129. grein sveitarstjórnarlaga, sem fjallar um endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Breytingunum er ætlað að koma til móts við gagnrýni sveitarfélaga, m.a. um að dæmi séu um að kostnaðarmat af þessu tagi séu ekki framkvæmd, matið sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær leita eigi umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig leyst skuli úr ágreiningi. Byggðarráð Skagafjarðar hefur ítrekað bent á skort á kostnaðarmati eða að það sé framkvæmt á ófullnægjandi hátt og fagnar því fyrirhuguðum áformum. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2ÖBÍ réttindasamtök

    Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um breytingar á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög, mál nr S-23/2025.

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um mál nr. S-23/2025.

  • #4Dalabyggð

    Meðfylgjandi er umsögn sveitarfélagsins Dalabyggðar um mál nr. S-23/2025

  • #5Akureyrarbær

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn frá Akureyrarbæ.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-38/2025· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2025 – 4. mar. 2025· 7 umsagnir

Breytingar á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög

Lagður er grundvöllur fyrir skýrara verklagi um fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélög og formlegar leiðir hvernig farið verður með ágreining ríkis og sveitarfélaga um slíkt mat.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-38/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2025)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi að loknu samráði eða í mars 2025. Umfjöllun um niðurstöður samráðs er að finna í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Fjarðabyggð

    Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir sjónarmið um mikilvægi mats á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög sé lagt til grundvallar við gerð laga og reglugerða. Gunnar Jónsson bæjarritari.

  • #2Skagafjörður

    Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál, 38/2025, til samráðs og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar hefur ítrekað bent á skort á kostnaðarmati eða að það sé framkvæmt á ófullnægjandi hátt og fagnar því fyrirhuguðum áformum um að mikilvægi mats á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög sé lagt til grundvallar við gerð laga og reglugerða. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins vegna máls nr. S-38/2025.

  • #4Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Virðingarfyllst, Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.

  • #5Þingeyjarsveit
    Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Sveitarfélögin hafa lengi bent á mikilvægi þess að við lagasetningu sé skýrt ferli varðandi kostnaðarmat, þ.e. mat á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Ekki verður ráðið af framlögðum drögum hvaða afleiðingar það hafi sé ekki orðið við þeirri skyldu að fram fari kostnaðarmat, þ.e. hvaða úrræði eru til að knýja fram slíkt mat. Það er jafnréttismál að kostnaður sveitarstjórnarstigsins í la… Lesa alla

    Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Sveitarfélögin hafa lengi bent á mikilvægi þess að við lagasetningu sé skýrt ferli varðandi kostnaðarmat, þ.e. mat á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Ekki verður ráðið af framlögðum drögum hvaða afleiðingar það hafi sé ekki orðið við þeirri skyldu að fram fari kostnaðarmat, þ.e. hvaða úrræði eru til að knýja fram slíkt mat. Það er jafnréttismál að kostnaður sveitarstjórnarstigsins í landinu sé metinn á sama hátt og ríkisins við lagasetningu og aðrar stjórnvaldsákvarðanir, og leggur sveitarstjórn Þingeyjarsveitar áherslu á að í þessum breytingum verði horft til þess að jafna þessa stöðu milli stjórnsýslustiganna. F.h. sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    9 ræður · 24 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 28. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal

Þingskjöl

2 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
304Stjórnarfrumvarp29. mar. 2025Eyjólfur ÁrmannssonLesaPDF
699Nál. með brtt.11. jún. 2025Guðbrandur Einarsson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir +4LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur10. apríl 2025 kl. 12:37
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd10. apríl 2025 kl. 12:37
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

9 ræður · 24 mín
  • 1. umræða: 9 ræður · 3 ræðumenn · 24 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 14. apr. 2025, frestur 28. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
AkureyrarbærumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Húnaþing vestraumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
NorðurþingumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)