Beint í efni
Alviti
Þingmál156. þing · 288. mál

Vinnubrögð stjórnarliða í nefndum

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að einfalda ábyrgðar- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga við uppbyggingu og fasteignarekstur hjúkrunarheimila með því að færa fjármögnun og eignarhald alfarið til ríkisins.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
7 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 31. ágú. 2026

Markmiðið

Að einfalda ábyrgðar- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga við uppbyggingu og fasteignarekstur hjúkrunarheimila með því að færa fjármögnun og eignarhald alfarið til ríkisins.

Hvað breytist

Lagt er til að 15% kostnaðarþátttaka sveitarfélaga vegna byggingar og búnaðar hjúkrunarheimila falli niður og að ríkissjóður greiði allan kostnað við öflun húsnæðis fyrir þau. Sveitarfélögum yrði áfram skylt að leggja til lóðir án endurgjalds og kvaða en þeim yrði heimilt að innheimta gatnagerðargjald af lóðunum.

Einnig er lagt til að eignarhlutir sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum í rekstri, sem eru í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga, verði afskrifaðir og færðir til ríkisins. Ríkið annaðist þá og kostaði viðhald og endurbætur fasteignanna. Breytingin næði ekki til kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna hjúkrunarheimila sem eru þegar í byggingu við gildistöku laganna.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Áætlað er að sá hluti byggingarkostnaðar nýrra hjúkrunarheimila sem færist frá sveitarfélögum til ríkissjóðs verði um 1.410 milljónir kr. árlega miðað við núverandi fjárfestingarþörf. Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna verkefnisins gæti numið um 1.600 milljónir kr. á ári miðað við áætlaða þörf á 1.600 nýjum hjúkrunarrýmum á næstu 15 árum. Gatnagerðargjöld vegna 100 rýma hjúkrunarheimilis (um 6.500 fermetrar að stærð) eru áætluð að meðaltali um 190 milljónir kr. Þar að auki fellur til kostnaður við meiri háttar viðhald þeirra eignarhluta sem færast til ríkisins.

Meira úr samantektinni

Samkvæmt OECD voru árið 2023 að meðaltali 41 langtímarými á stofnunum og sjúkrahúsum fyrir hverja 1.000 íbúa 65 ára og eldri í 34 OECD-ríkjum (OECD – Long-term care settings).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk. Sveitarstjórnum ber að tryggja að almennar íbúðir fyrir aldraða séu tiltækar í nauðsynlegum mæli fyrir þá sem hafa sérstaka þörf fyrir slíkt úrræði (Bekendtgørelse af lov om almene boliger m.v. (almenboligloven), LBK nr 1171 af 11/11/2024, sjá einkum 105. gr.).

Finnland. Fjármögnun ríkisins tekur til kostnaðar vegna þeirra verkefna sem velferðarsvæði bera skipulagsábyrgð á. Umönnun aldraðra er meðal þeirra kostnaðarþátta sem lagðir eru til grundvallar við útreikning fjárveitingarinnar (Lag om välfärdsområdenas finansiering, 617/2021, sjá einkum 1. og 13. gr.).

Noregur. Sveitarfélögum ber að bjóða dvöl á hjúkrunarheimili eða í sambærilegu húsnæði með sólarhringsþjónustu þegar slíkt úrræði er samkvæmt faglegu mati það eina sem getur tryggt nauðsynlega og fullnægjandi heilbrigðis- og umönnunarþjónustu (Lov om kommunale helse- og omsorgstjenester m.m. (helse- og omsorgstjenesteloven), LOV-2011-06-24-30, sjá einkum gr. 3-2 a).

Svíþjóð. Sveitarfélögum ber að koma á fót sérstökum búsetuúrræðum fyrir aldraða sem þarfnast sérstaks stuðnings og umönnunar (Socialtjänstlag, 2001:453, sjá einkum 5. gr. í 5. kf.).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Jónína Björk Óskarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 25. apr. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, Snæfellsbær, Samband íslenskra sveitarfélaga · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 7 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Áætlað er að sá hluti byggingarkostnaðar nýrra hjúkrunarheimila sem færist frá sveitarfélögum til ríkissjóðs verði um 1.410 milljónir kr. árlega miðað við núverandi fjárfestingarþörf. Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna verkefnisins gæti numið um 1.600 milljónir kr. á ári miðað við áætlaða þörf á 1.600 nýjum hjúkrunarrýmum á næstu 15 árum. Gatnagerðargjöld vegna 100 rýma hjúkrunarheimilis (um 6.500 fermetrar að stærð) eru áætluð að meðaltali um 190 milljónir kr. Þar að auki fellur til kostnaður við meiri háttar viðhald þeirra eignarhluta sem færast til ríkisins.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 25. apríl 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    7 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

7 ræður · 7 mín
  • Umræða: 7 ræður · 6 ræðumenn · 7 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Ingvar ÞóroddssonViðreisn11 mín
Guðrún HafsteinsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Jón Pétur ZimsenSjálfstæðisflokkur11 mín
Jakob Frímann MagnússonMiðflokkurinn11 mín
Ingibjörg IsaksenFramsóknarflokkur22 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 10. apr. 2025, frestur 25. apr. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustuumsögnOpna PDF
SnæfellsbærumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.