Beint í efni
Alviti
Þingmál157. þing · 595. mál

Lengd þingfundar og búnaðarþing

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu í samræmi við markmið stjórnvalda og alþjóðlegar skuldbindingar. Stefnt er að því að Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en árið 2040. Frumvarpið miðar einnig að því að íslenskt samfélag aðlagist áhrifum loftslagsbreytinga og verði betur í stakk búið til að takast á við þau. Við framkvæmd laganna skal hafa réttlát umskipti, vernd líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
12 ræður · 13 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 11. maí 2026

Markmiðið

Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu í samræmi við markmið stjórnvalda og alþjóðlegar skuldbindingar. Stefnt er að því að Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en árið 2040. Frumvarpið miðar einnig að því að íslenskt samfélag aðlagist áhrifum loftslagsbreytinga og verði betur í stakk búið til að takast á við þau. Við framkvæmd laganna skal hafa réttlát umskipti, vernd líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Hvað breytist

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun laga um loftslagsmál. Lagt er til að ráðherra láti vinna loftslagsstefnu Íslands og leggi hana fram á Alþingi. Í stefnunni komi fram langtímamarkmið, millimarkmið og skammtímamarkmið. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sveitarfélög setji sér loftslagsstefnu með mælanlegum markmiðum, greiningu á losun og bindingu, aðgerðaáætlun og mati á áhættu og viðkvæmni vegna loftslagsbreytinga. Stjórnarráð Íslands, stofnanir ríkisins og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins setji sér einnig loftslagsstefnu um eigin rekstur. Þá er lagt til að verkefnisstjórn loftslagsaðgerða fari með samhæfingarhlutverk og beri ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgni aðgerða í aðgerðaáætlun og aðlögunaráætlun. Áætlanirnar verði til fimm ára og endurskoðaðar eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Einnig er lagt til að loftslagsráð verði sjálfstætt og óháð sérfræðiráð sem veiti stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf. Þá kveður frumvarpið á um landsnefnd um loftslagsvísindi og reglulegar samantektarskýrslur um vísindalega þekkingu á loftslagsbreytingum í samhengi við íslenskt samfélag, náttúru og lífríki.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um loftslagsmál, nr. 70/2012. Jafnframt verða breytingar á lögum um Veðurstofu Íslands, nr. 70/2008.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum beinum áhrifum á ríkissjóð en samþykkt frumvarpsins getur kallað á aukið fjármagn vegna stjórnsýslu loftslagsmála og aðlögunaraðgerða.

Meira úr samantektinni

Með frumvarpinu er m.a. lagt til að innleiða:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/841 frá 30. maí 2018 um að fella losun gróðurhúsalofttegunda og upptöku frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt inn í loftslags- og orkurammann fram til ársins 2030 og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 525/2013 og ákvörðun nr. 529/2013/ESB.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/842 frá 30. maí 2018 um bindandi

árlega skerðingu á losun gróðurhúsalofttegunda aðildarríkjanna frá 2021 til 2030 sem

stuðlar að loftslagsaðgerðum til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 525/2013.

Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum frá 2024.

Losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfis- og orkustofnun.

Vísindanefnd um loftslagsbreytingar.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om klima (klimaloven) LBK nr 2580 af 13/12/2021.

Finnland

Klimatlag 423/2022.

Noregur

Lov om klimamål (klimaloven) LOV-2017-06-16-60.

Svíþjóð

Klimatlag (2017:720)

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Ása Berglind Hjálmarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 8. maí 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
26 aðilar
Sveitarfélagið Skagafjörður, Loftslagsráð, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Umhverfis- og orkustofnun, Skógræktarfélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
13 mín · 12 ræður
10 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum beinum áhrifum á ríkissjóð en samþykkt frumvarpsins getur kallað á aukið fjármagn vegna stjórnsýslu loftslagsmála og aðlögunaraðgerða.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 4 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-97/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. jún. 2025 – 29. ágú. 2025· 32 umsagnir

Frumvarp til laga um loftslagsmál

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi um setningu nýrra heildarlaga um loftslagsmál.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-97/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 32 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (32)
  • #1Vinstrihreyfingin-Grænt framboð
    Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um loftslagsmál Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar því að frumvarp til laga um loftslagsmál hafi verið lagt fram, þar sem það staðfestir mikilvægi loftslagsmála í opinberri stefnumótun. Hins vegar teljum við að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar og aðgerðir til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og aðlögun að loftslagsbreytingum. Við viljum því koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Skortur á lagalega bindandi markmiðum Í 4. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli láta vinna… Lesa alla

    Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um loftslagsmál Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar því að frumvarp til laga um loftslagsmál hafi verið lagt fram, þar sem það staðfestir mikilvægi loftslagsmála í opinberri stefnumótun. Hins vegar teljum við að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar og aðgerðir til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og aðlögun að loftslagsbreytingum. Við viljum því koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Skortur á lagalega bindandi markmiðum Í 4. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli láta vinna langtímastefnu í loftslagsmálum og endurskoða hana á fimm ára fresti. Hins vegar eru engar lagalega bindandi skuldbindingar um árangur eða viðurlög við vanefndum. Þetta skapar óvissu um framkvæmd og ábyrgð. VG leggur til að skýrt verði kveðið á um lagalega bindandi markmið og ábyrgðarskyldu stjórnvalda til að tryggja raunhæfa framkvæmd. Lagalega bindandi markmið þurfa að vera bæði til lengri og skemmri tíma. 2. Ónákvæm skilgreining á kolefnishlutleysi Í 5. gr. er kolefnishlutleysi skilgreint sem ástand þar sem jafnvægi hefur náðst milli losunar gróðurhúsalofttegunda og bindingar kolefnis af mannavöldum. Þessi skilgreining gefur möguleika á að treysta um of á kolefnisjöfnun í stað raunverulegs samdráttar í losun. VG telur mikilvægt að lögin setji skýrari áherslu á að forgangsraða beinum samdrætti í losun umfram kolefnisjöfnun með kaupum á kolefniseiningum. Í skilgreiningunni á kolefnishlutleysi í lögum þarf að koma fram að það eigi við um alla losun sem á sér stað á Íslandi (þ.m.t. vegna landnotkunar) og frá öllum geirum (sector-wide targets er lykilhugtak á vettvangi UNFCCC sem er verið að þrýsta lönd á að setja inn í NDC hjá sér). 3. Takmarkað samráð og þátttaka almennings Frumvarpið kveður ekki á um skyldu til samráðs við almenning eða hagsmunaaðila við gerð og endurskoðun loftslagsstefnu. Þetta er í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um þátttöku almennings í umhverfismálum. VG leggur til að lögfestar verði skýrar reglur um samráð og þátttöku almennings og hagsmunaaðila í stefnumótun og ákvörðunartöku í loftslagsmálum. 4. Skortur á fjárhagslegum skuldbindingum Frumvarpið fjallar ekki um fjármögnun loftslagsaðgerða eða hvernig tryggja eigi nauðsynleg fjárframlög til að ná markmiðum laganna. VG telur nauðsynlegt að lögin kveði á um fjárhagslegar skuldbindingar og aðgerðaáætlanir sem tryggja að markmiðin verði raunhæf og framkvæmanleg. Hér er einnig rétt að vísa til tilmæla IPCC um að verja 2-6% af VLF í loftslagsmál og skoða kosti þess að sett verði inn í lögin skuldbinding um að verja 4% af VLF í loftslagsaðgerðir. 5. Ónóg aðlögun að loftslagsbreytingum Þó að markmið laganna sé að íslenskt samfélag og lífríki aðlagist loftslagsbreytingum, skortir frumvarpið skýrari ramma fyrir aðgerðir og áætlanir um hvernig þessi aðlögun eigi að fara fram. VG leggur til að lögin kveði á um gerð aðlögunaráætlana fyrir mismunandi geira samfélagsins, með áherslu á viðkvæma hópa og vistkerfi. Niðurstaða VG telur að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar, skýrari ramma um aðgerðaáætlanir og þátttöku almennings til að tryggja árangur í loftslagsmálum. Við hvetjum til endurskoðunar á frumvarpinu með það að markmiði að styrkja lagalega bindandi skuldbindingar, tryggja raunhæfa framkvæmd og auka þátttöku almennings og hagsmunaaðila.

  • #2Sigurpáll Ingibergsson
    Hellnasker, ung hugveita á sviði sjálfbærni og umhverfismála, fagnar framlagningu frumvarpsins sem mikilvægu skrefi í mótun heildstæðrar loftslagsstefnu. Hugveitan leggur þó ríka áherslu á að lagasetning skili raunverulegum breytingum – einkum með skýrari ábyrgð fyrirtækja á losun, fjárhagslegum hvötum til að innheimta samfélagslegan kostnað losunar, og aukinni þekkingu í loftslagsvísindum. Helstu atriði umsagnarinnar eru eftirfarandi: - Réttlát umskipti: Ekki bara markmið heldur ferli - Loftslagsbókhald og ábyrgð stórlosenda - Samfélagslegur kostnaður vegna losunar og mengunarbætur - Vísindal… Lesa alla

    Hellnasker, ung hugveita á sviði sjálfbærni og umhverfismála, fagnar framlagningu frumvarpsins sem mikilvægu skrefi í mótun heildstæðrar loftslagsstefnu. Hugveitan leggur þó ríka áherslu á að lagasetning skili raunverulegum breytingum – einkum með skýrari ábyrgð fyrirtækja á losun, fjárhagslegum hvötum til að innheimta samfélagslegan kostnað losunar, og aukinni þekkingu í loftslagsvísindum. Helstu atriði umsagnarinnar eru eftirfarandi: - Réttlát umskipti: Ekki bara markmið heldur ferli - Loftslagsbókhald og ábyrgð stórlosenda - Samfélagslegur kostnaður vegna losunar og mengunarbætur - Vísindalegar rannsóknir og þátttaka Íslands í AMOC-rannsóknum - Þjóðarátak í náttúruvernd og vernd líffræðilegrar fjölbreytni - Ákall til stjórnvalda - Lokaorð Þungamiðjan er að of fá stórfyrirtæki leggja sitt af mörkum í þágu loftslagsmála. Aðeins eitt af 50 stærstu fyrirtækjum landsins nær að draga úr losun í samræmi við Parísarsamkomulagið. Réttlát umskipti snúast um að allir taki þátt í vinnunni framundan. Setja þarf sérstök lög um fyrirtæki sem losa meira en 20 þúsund tonn af CO2í. Skilgreind eru markmið og tímarammi. Loftslagslögin mega ekki vera draumur um 2040 – þau verða að vera verkfæri 2026

  • #3Páll Gunnarsson

    Umsögn um loftslagsáhættu utan aðlögunarhæfni og loftslagsverkfræði.

  • #4Valdimar Össurarson

    Tímabært frumvarp og um flest ágætt. Einn stóran ágalla þarf þó að laga fyrir framlagningu. Sjá viðhengi.

  • #5Fjórðungssamband Vestfirðinga

    Umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    12 ræður · 13 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. maí 2026
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

12 ræður · 13 mín
  • Umræða: 12 ræður · 10 ræðumenn · 13 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Jón GunnarssonSjálfstæðisflokkur23 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur23 mín
Sigurjón ÞórðarsonFlokkur fólksins11 mín
Jón Pétur ZimsenSjálfstæðisflokkur11 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn11 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn11 mín
Þorgrímur SigmundssonMiðflokkurinn11 mín
Pawel BartoszekViðreisn11 mín
Sigmar GuðmundssonViðreisn11 mín
Nanna Margrét GunnlaugsdóttirMiðflokkurinn11 mín

Umsagnir og erindi

27 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 24. apr. 2026, frestur 8. maí 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
LoftslagsráðumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
Umhverfis- og orkustofnunumsögnOpna PDF
Skógræktarfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og fleiriumsögnOpna PDF
Náttúruverndarsamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Veðurstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
VegagerðinumsögnOpna PDF
Aldin - samtök eldri borgara gegn loftslagsváumsögnOpna PDF
Landvernd umhverfissamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
NáttúrufræðistofnunumsögnOpna PDF
Samband sveitarfélaga á AusturlandiumsögnOpna PDF
GrýtubakkahreppurumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Fjórðungssamband VestfirðingaumsögnOpna PDF
International Carbon Registry ehf.umsögnOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF
Árni FinnssonumsögnOpna PDF
Hellnasker - hugveita í sjálfbærniumsögnOpna PDF
Staðlaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.