Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 108. mál

Svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að sporna gegn stórfelldum og ítrekuðum höfundaréttarbrotum, einkum ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, með því að þyngja hámarksrefsingu fyrir slík brot.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
12 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. okt. 2026

Markmiðið

Að sporna gegn stórfelldum og ítrekuðum höfundaréttarbrotum, einkum ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, með því að þyngja hámarksrefsingu fyrir slík brot.

Hvað breytist

Lagt er til að stórfelld eða ítrekuð brot gegn höfundarétti geti varðað sektum eða fangelsi allt að sex árum. Samkvæmt gildandi lögum er hámarksfangelsisrefsing fyrir brot gegn höfundalögum tvö ár. Við mat á því hvort brot teljist stórfellt yrði meðal annars litið til umfangs þess, fjárhagslegs tjóns rétthafa og ávinnings brotamanns auk þess hvort brotið hafi verið framið í atvinnuskyni, verið skipulagt eða verið hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.

Breytingunni er einkum ætlað að ná til umfangsmikillar ólöglegrar dreifingar og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu, svo sem sjónvarps- og kvikmyndaefnis, en ekki sérstaklega til einstaklinga sem kaupa áskrift að slíku efni eða horfa á það í streymi. Fyrir brot sem teljast hvorki stórfelld né ítrekuð yrði hámarksfangelsisrefsing áfram tvö ár.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Frumvarpið getur haft í för með sér bæði aukin útgjöld og auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að hugsanlegur kostnaðarauki rúmist innan fjárheimilda en áhrifin hafa ekki verið metin til fjár.

Meira úr samantektinni

Í rannsókn Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO), sem birt var í nóvember 2024, kemur fram að árið 2023 hafi hver netnotandi á aldrinum 15–74 ára í ríkjum Evrópusambandsins að meðaltali sótt í ólöglega miðlað efni á netinu um tíu sinnum í mánuði. Í um helmingi tilvika var um sjónvarpsefni að ræða. Sama ár fjölgaði heimsóknum á vefsíður þar sem hægt er að gerast áskrifandi að ólöglegri netsjónvarpsþjónustu (IPTV) um 10%. Sú tala nær þó aðeins til heimsókna á áskriftarsíðurnar en segir ekkert um hversu mikið var horft á efnið.

Löggjöf á Norðurlöndum

Í Danmörku og Svíþjóð geta sérstaklega alvarleg höfundaréttarbrot varðað allt að sex ára fangelsi. Samkvæmt 76. gr. dönsku höfundalaganna (bekendtgørelse af lov om ophavsret (ophavsretsloven), LBK nr 1093 af 20/08/2023) varða höfundaréttarbrot að jafnaði sektum. Séu tiltekin brot framin af ásetningi og við þyngjandi aðstæður getur refsingin þó orðið allt að eins árs og sex mánaða fangelsi. Séu brot sérstaklega stórfelld og framin í því skyni að afla sér eða öðrum ólögmæts ávinnings eða við aðrar sérstaklega þyngjandi aðstæður getur refsingin orðið allt að sex ára fangelsi, sbr. 299. gr. b hegningarlaga (bekendtgørelse af straffeloven (straffeloven), LBK nr 1294 af 07/11/2025). Í Svíþjóð varða höfundaréttarbrot sektum eða fangelsi allt að tveimur árum en fyrir stórfelld ásetningsbrot er kveðið á um fangelsi frá sex mánuðum til sex ára, sbr. 53. gr. laga um höfundarétt að bókmenntum og listaverkum (lag om upphovsrätt till litterära och konstnärliga verk, 1960:729).

Í Noregi varða brot gegn lögum um höfundarétt að hugverkum o.fl. (lov om opphavsrett til åndsverk mv. (åndsverkloven), LOV-2018-06-15-40) sektum eða fangelsi allt að einu ári, sbr. 79. gr., en sektum eða fangelsi allt að þremur árum ef brot telst stórfellt, sbr. 80. gr. Í Finnlandi varða tiltekin höfundaréttarbrot sektum samkvæmt 56. gr. a höfundalaga (upphovsrättslag, 404/1961). Samkvæmt 1. gr. 49. kafla hegningarlaga (strafflag, 39/1889) geta brot hins vegar varðað allt að tveggja ára fangelsi. Það á meðal annars við um brot sem framin eru með notkun tölvuneta eða upplýsingakerfa, enda séu þau í báðum tilvikum til þess fallin að valda rétthafa verulegu tjóni eða óhagræði.

Sex ára hámarksrefsingin sem lögð er til í frumvarpinu er því sú sama og gildir fyrir sérstaklega alvarleg höfundaréttarbrot í Danmörku og Svíþjóð, þótt skilyrðin séu ólík. Í frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir að ítrekuð brot geti fallið undir þyngri refsiramma þótt þau teljist ekki stórfelld en sambærilegt ákvæði er ekki að finna í þeim norrænu refsiákvæðum sem hér eru borin saman.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Víðir Reynisson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 8. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Plusminus Optic, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, Arnar Elvarsson, Fjarskiptastofa o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 12 ræður
10 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Frumvarpið getur haft í för með sér bæði aukin útgjöld og auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að hugsanlegur kostnaðarauki rúmist innan fjárheimilda en áhrifin hafa ekki verið metin til fjár.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-08
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    12 ræður · 15 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

12 ræður · 15 mín
  • Umræða: 12 ræður · 10 ræðumenn · 15 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn23 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins23 mín
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur11 mín
Dagur B. EggertssonSamfylkingin11 mín
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur11 mín
Sigurður Örn HilmarssonSjálfstæðisflokkur11 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn11 mín
Pawel BartoszekViðreisn11 mín
Árni HelgasonSjálfstæðisflokkur11 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 24. sep. 2026, frestur 8. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Plusminus OpticumsögnOpna PDF
Samband flytjenda og hljómplötuframleiðendaumsögnOpna PDF
STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttarumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
FjarskiptastofaumsögnOpna PDF
Sýn hf.umsögnOpna PDF
Rithöfundasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði, FRÍSKumsögnOpna PDF
Kvikmyndamiðstöð ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma · null · 158. þing · Alviti