Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027
Hvar er málið statt?
Nefnd Alþingis fer yfir málið, kallar eftir umsögnum og skilar áliti áður en það fer aftur í þingsal.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að breyta ýmsum lögum sem tengjast tekju- eða gjaldahlið ríkissjóðs í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lagt fram af Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 9. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 104 ræður · 6 klst. 30 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að breyta ýmsum lögum sem tengjast tekju- eða gjaldahlið ríkissjóðs í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Hvað breytist
Lagt er til að ýmis krónutölugjöld hækki um 5,2%, þar á meðal kolefnisgjald, bifreiðagjald, gistináttaskattur, innviðagjald og gjöld af áfengi, tóbaki og nikótínvörum. Sama gildir um gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjald. Þá er gert ráð fyrir að kílómetragjald á ökutæki hækki, annars vegar vegna 5,2% verðlagsuppfærslu og hins vegar vegna viðbótarhækkunar sem ætlað er að skila ríkissjóði 4 milljörðum kr.
Þá er lagt til að sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki (bankaskattur) hækki úr 0,145% í 0,254%. Einnig er gert ráð fyrir að aðgangseyrir að baðlónum og sambærilegri starfsemi færist í almennt þrep virðisaukaskatts og að endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu við byggingu og endurbætur á íbúðarhúsnæði lækki úr 35% í 20%.
Aðrar breytingar varða meðal annars úrvinnslugjöld, umsóknargjöld vegna dvalarleyfa og ríkisborgararéttar, tímabundnar reglur um örorkubætur og örorkulífeyri, forvarnagjald vegna innviða á Reykjanesskaga og gjöld vegna raforku.
Lög sem breytast
Alls er lagt til að breyta 23 lögum.
Kostnaður fyrir ríkið
Gjöld Gert er ráð fyrir að framlag ríkissjóðs vegna sóknargjalda hækki varanlega um 200 milljónir kr. og að heildarfjárveiting vegna sóknargjalda verði 3,6 milljarðar kr. árið 2027. Framlag ríkissjóðs til starfsendurhæfingarsjóða er áætlað 1,3 milljarðar kr. og þá er talið að hækkun jöfnunargjalds raforku auki útgjöld ríkissjóðs um 168 milljónir kr. árið 2027. Tekjur Áætlað er að tekjuráðstafanir frumvarpsins auki tekjur ríkissjóðs um samtals 28,7 milljarða kr. árið 2027. Þar af er gert ráð fyrir að verðlagsuppfærsla krónutölugjalda ásamt viðbótarhækkun kílómetragjalds skili 9,9 milljörðum kr., hækkun bankaskatts 6 milljörðum kr., færsla aðgangseyris að baðlónum o.fl. í almennt þrep virðisaukaskatts 4 milljörðum kr., lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði 3,6 milljörðum kr. og 0% framleiðniviðmið við uppfærslu skattleysis- og skattþrepamarka árið 2027 3,1 milljarði kr. Þá er gert ráð fyrir 1,3 milljarða kr. tekjuáhrifum vegna framlengingar forvarnagjalds á Reykjanesskaga, 600 milljónum kr. vegna verðlagsuppfærslu nefskatta og 168 milljónum kr. vegna hækkunar jöfnunargjalds raforku. Bein áhrif þessara tekjuráðstafana á vísitölu neysluverðs eru áætluð 0,32%. Tekjuaukning vegna jöfnunargjalds raforku mætir samsvarandi útgjaldaaukningu og hefur því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Aðrar breytingar frumvarpsins hafa ýmist áhrif á tekju- eða gjaldahliðina en samanlögð áhrif þeirra á afkomu ríkissjóðs eru talin óveruleg.
Afstaða þingflokkanna
Daði Már KristóferssonUtan þingflokkafjármála- og efnahagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Arna Lára Jónsdóttir
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 43 aðilar
- Landssamtök lífeyrissjóða, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Þjóðkirkjan o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 6 klst. 30 mín · 104 ræður
- 19 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gjöld Gert er ráð fyrir að framlag ríkissjóðs vegna sóknargjalda hækki varanlega um 200 milljónir kr. og að heildarfjárveiting vegna sóknargjalda verði 3,6 milljarðar kr. árið 2027. Framlag ríkissjóðs til starfsendurhæfingarsjóða er áætlað 1,3 milljarðar kr. og þá er talið að hækkun jöfnunargjalds raforku auki útgjöld ríkissjóðs um 168 milljónir kr. árið 2027. Tekjur Áætlað er að tekjuráðstafanir frumvarpsins auki tekjur ríkissjóðs um samtals 28,7 milljarða kr. árið 2027. Þar af er gert ráð fyrir að verðlagsuppfærsla krónutölugjalda ásamt viðbótarhækkun kílómetragjalds skili 9,9 milljörðum kr., hækkun bankaskatts 6 milljörðum kr., færsla aðgangseyris að baðlónum o.fl. í almennt þrep virðisaukaskatts 4 milljörðum kr., lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði 3,6 milljörðum kr. og 0% framleiðniviðmið við uppfærslu skattleysis- og skattþrepamarka árið 2027 3,1 milljarði kr. Þá er gert ráð fyrir 1,3 milljarða kr. tekjuáhrifum vegna framlengingar forvarnagjalds á Reykjanesskaga, 600 milljónum kr. vegna verðlagsuppfærslu nefskatta og 168 milljónum kr. vegna hækkunar jöfnunargjalds raforku. Bein áhrif þessara tekjuráðstafana á vísitölu neysluverðs eru áætluð 0,32%. Tekjuaukning vegna jöfnunargjalds raforku mætir samsvarandi útgjaldaaukningu og hefur því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Aðrar breytingar frumvarpsins hafa ýmist áhrif á tekju- eða gjaldahliðina en samanlögð áhrif þeirra á afkomu ríkissjóðs eru talin óveruleg.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 1104 ræður · 6 klst. 30 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-011 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur15. september 2026 kl. 16:55Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd15. september 2026 kl. 16:55Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 104 ræður · 19 ræðumenn · 6 klst. 30 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Miðflokkurinn | 15 | 34 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 11 | 31 mín | |
| Utan þingflokka | 11 | 31 mín | |
| Framsóknarflokkur | 9 | 29 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 7 | 25 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 24 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 24 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 24 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 22 mín | |
| Miðflokkurinn | 3 | 20 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 3 | 20 mín | |
| Miðflokkurinn | 3 | 20 mín | |
| Samfylkingin | 10 | 18 mín | |
| Miðflokkurinn | 3 | 17 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 15 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 15 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 1 | 13 mín | |
| Flokkur fólksins | 4 | 7 mín | |
| Miðflokkurinn | 2 | 3 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Landssamtök lífeyrissjóða | upplýsingar | Opna PDF | |
| Alþýðusamband Íslands (ASÍ) | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök ferðaþjónustunnar | viðbótarumsögn | Opna PDF | |
| Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra | upplýsingar | Opna PDF | |
| Þjóðkirkjan | umsögn | Opna PDF | |
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur | umsögn | Opna PDF | |
| Bláa Lónið hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök iðnaðarins | umsögn | Opna PDF | |
| Laugarás Lagoon ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| KPMG ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök ferðaþjónustunnar | umsögn | Opna PDF | |
| Sky Lagoon ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Grímsnes- og Grafningshreppur | umsögn | Opna PDF | |
| Hvammsvík sjóböð ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Reykjaböð | umsögn | Opna PDF | |
| Húsafells Giljaböð og Lindin á Húsafelli | umsögn | Opna PDF | |
| BSRB | umsögn | Opna PDF | |
| Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) | umsögn | Opna PDF | |
| Fjármála- og efnahagsráðuneytið | minnisblað | Opna PDF | |
| Bændasamtök Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Þjóðkirkjan | umsögn | Opna PDF | |
| Gamla laugin ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Skógarböðin | umsögn | Opna PDF | |
| Sjóböð ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Jarðböðin ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Landsbankinn hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu | upplýsingar | Opna PDF | |
| Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu | umsögn | Opna PDF | |
| Íslandsbanki hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra | umsögn | Opna PDF | |
| Viðskiptaráð Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| VÖK Baths ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Deloitte Legal ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| ÖBÍ réttindasamtök | umsögn | Opna PDF | |
| Kvika banki hf. | umsögn | Opna PDF | |
| SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu | umsögn | Opna PDF | |
| Félag atvinnurekenda | umsögn | Opna PDF | |
| Fjórðungssamband Vestfirðinga | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamtök lífeyrissjóða | umsögn | Opna PDF | |
| Barnaheill - Save the Children á Íslandi | umsögn | Opna PDF | |
| Kristófer S. Arnar P. Júlíusson | umsögn | Opna PDF | |
| Alda - félag um sjálfbærni og lýðræði | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamband eldri borgara, | umsögn | Opna PDF | |
| Hagsmunasamtök heimilanna | umsögn | Opna PDF | |
| Starfsgreinasamband Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Cruise Iceland | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)