Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 3. mál

Menningarminjar og mannvirki

Álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 22. okt. 2026

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að einfalda reglur um vernd húsa og mannvirkja og gera þær markvissari með því að afnema almenna skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna ófriðaðra húsa og mannvirkja frá árunum 1924–1940 og beina þannig vinnu stofnunarinnar frekar að þeim byggingararfi sem talinn er þarfnast verndar.

Lagt fram af Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Sf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 22. okt. 2026 greiddu 38 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
9. september 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
8
Umræða í þingsal
7 ræður · 12 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 10. sep. 2026

Markmiðið

Að einfalda reglur um vernd húsa og mannvirkja og gera þær markvissari með því að afnema almenna skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna ófriðaðra húsa og mannvirkja frá árunum 1924–1940 og beina þannig vinnu stofnunarinnar frekar að þeim byggingararfi sem talinn er þarfnast verndar.

Hvað breytist

Lagt er til að eigendur húsa og mannvirkja sem ekki eru friðuð þurfi ekki lengur, eingöngu vegna aldurs, að leita álits Minjastofnunar Íslands áður en ráðist er í að breyta þeim, flytja þau eða rífa. Sama gildir um ófriðuð kirkjuhús sem reist voru 1940 eða fyrr. Eigendum og forráðamönnum yrði þess í stað heimilt að leita álits stofnunarinnar óháð byggingarári.

Jafnframt er lagt til að byggingarfulltrúar sveitarfélaga geti gert það að skilyrði fyrir leyfi til framkvæmda að eigandi eða forráðamaður leiti álits Minjastofnunar. Þannig yrði ekki lengur sjálfkrafa skylt að afla álits vegna allra húsa sem nú falla undir aldursviðmiðið en áfram væri hægt að kalla eftir faglegu mati stofnunarinnar þegar tilefni er til.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Samkvæmt upplýsingum Minjastofnunar Íslands gildir nú sú regla að eigendur ófriðaðra húsa og mannvirkja sem byggð voru 1940 eða fyrr og forráðamenn kirkna frá sama tíma þurfi að leita álits stofnunarinnar með minnst sex vikna fyrirvara áður en ráðist er í að breyta mannvirki, flytja það eða rífa. Minjastofnun skal svara innan fjögurra vikna og getur lagt til skilyrði fyrir framkvæmdum eða lagt til að mannvirki verði friðlýst (Álitsskyld hús og mannvirki – Minjastofnun Íslands).

Löggjöf á Norðurlöndum

Samanburður við hin Norðurlöndin bendir til þess að vernd ófriðaðra eldri bygginga byggist þar almennt á mati á varðveislugildi, skipulagsákvæðum eða sérstakri friðun fremur en föstu og víðtæku aldursviðmiði á borð við íslensku álitsskylduna.

Í Danmörku telst bygging meðal annars varðveisluverð hafi hún verið tilgreind sem slík í skipulagi sveitarfélags. Áður en slík bygging er rifin verður sveitarfélagið að taka afstöðu til þess hvort banna skuli niðurrif á grundvelli skipulagsreglna. Menningarmálaráðherra getur einnig ákveðið að aðrar byggingar skuli njóta varðveisluverndar. Verndin byggist því á fyrir fram skilgreindu varðveislugildi en ekki almennu aldursmarki (bekendtgørelse af lov om bygningsfredning og bevaring af bygninger og bymiljøer (bygningsfredningsloven), LBK nr. 219 af 06/03/2018; sjá einkum 17.–19. gr. a).

Í Finnlandi þarf almennt leyfi sveitarfélags til að rífa byggingu á deiliskipulagssvæði og í tilteknum öðrum tilvikum. Samkvæmt byggingarlögum (bygglag, 751/2023; sjá einkum 55.-56. gr.) er það meðal skilyrða fyrir niðurrifsleyfi að framkvæmdin torveldi ekki markmið um vernd hins byggða umhverfis. Reglurnar taka því mið af skipulagi og verndargildi en ekki byggingarári einu saman.

Í Noregi eru byggingar frá tímabilinu 1537–1649 sjálfkrafa friðaðar hafi viðkomandi stjórnvald skilgreint þær sem slíkar. Yngri byggingar og mannvirki sem hafa menningarsögulegt eða byggingarlistarlegt gildi má friða sérstaklega með stjórnvaldsákvörðun. Þetta aldursviðmið er mun þrengra en íslenska álitsskyldan og vernd bygginga byggist að öðru leyti á mati á hverju mannvirki fyrir sig (lov om kulturminner (kulturminneloven), LOV-1978-06-09-50; sjá einkum 4. og 15. gr.).

Í Svíþjóð kveða skipulags- og byggingarlög (plan- och bygglag, 2010:900; sjá einkum 13. gr. 8. kafla og 43.-45. gr. 9. kafla) á um sérstaka vernd bygginga sem hafa sérstakt sögulegt, menningarsögulegt, umhverfislegt eða listrænt gildi. Leyfis er meðal annars krafist til að rífa slíkar byggingar við tilteknar aðstæður og sveitarfélög geta sett frekari verndarákvæði í skipulagi. Verndin byggist því einnig á varðveislugildi og skipulagi en ekki almennu aldursviðmiði.

Samanburðurinn er þó takmarkaður þar sem stjórnsýsluhættir, friðunarflokkar og leyfiskerfi ríkjanna eru ólík. Ekkert þessara kerfa er að fullu sambærilegt við álitsskyldu samkvæmt 30. gr. íslensku laganna um menningarminjar.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Víðir Reynisson

Lokaatkvæðagreiðsla
22. okt. 2026
Samþykkt38 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarp um menningarminjar og mannvirki sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • Sf11–0
  • S7–0
  • V6–0
  • Flf8–0
  • M3–0
  • F2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Arnar Elvarsson, Minjastofnun Íslands · allar umsagnir
Umræða í þingsal
12 mín · 7 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    4 ræður · 6 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-01
    1 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    Umræða 2
    1 ræður · 5 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 35 með, 0 á móti
  17. Umræða
    Umræða 3
    2 ræður · 1 mín
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  20. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
3Stjórnarfrumvarp9. sep. 2026Jóhann Páll JóhannssonLesaPDF
250Nál. með brtt.16. okt. 2026Víðir Reynisson, Grímur Grímsson +6LesaPDF
284Frumvarp eftir 2. umræðu21. okt. 2026—LesaPDF
300Breytingartillaga22. okt. 2026Víðir ReynissonLesaPDF
307Lög í heild22. okt. 2026—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

11 alls · 8 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:08
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd16. september 2026 kl. 16:08
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt21. október 2026 kl. 14:07
    Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.
    1
    • SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. október 2026 kl. 14:07
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um menningarminjar og mannvirki.
    1. gr., svo breytt,
    • SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. október 2026 kl. 14:08
    Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.
    2 (nýr kafli með nýrri grein)
    • SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. október 2026 kl. 14:08
    Að samþykkja grein eða þingskjal í máli um menningarminjar og mannvirki.
    2. gr.
    • SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt21. október 2026 kl. 14:09
    Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.
    3 (ný fyrirsögn)
    • SfSamfylkingin:9 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:3 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur21. október 2026 kl. 14:09
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt22. október 2026 kl. 14:52
    Að veita afbrigði frá þingsköpum vegna máls um menningarminjar og mannvirki.
    • SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt22. október 2026 kl. 14:54
    Að samþykkja breytingartillögu við menningarminjar og mannvirki.
    • SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt22. október 2026 kl. 14:55
    Að samþykkja frumvarp um menningarminjar og mannvirki sem lög.
    • SfSamfylkingin:11 með · 0 á móti
    • SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

7 ræður · 12 mín
  • 1. umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumenn · 5 mín
  • 3. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkingin36 mín
Víðir ReynissonSamfylkingin25 mín
Ólafur AdolfssonSjálfstæðisflokkur21 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðkynningOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
Minjastofnun ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)