Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 5. mál

Sveitarstjórnarlög

Hvar er málið statt?

Í nefndsíðan 15. sep. 2026

Nefnd Alþingis fer yfir málið, kallar eftir umsögnum og skilar áliti áður en það fer aftur í þingsal.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið þannig að sveitarfélög séu betur í stakk búin til að sinna verkefnum sínum, veita íbúum skilvirka þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun sveitarfélaga og byggðarlaga. Frumvarpið felur einkum í sér heildarendurskoðun á reglum um fjármál sveitarfélaga, samvinnu þeirra, þátttöku íbúa og eftirlit með sveitarfélögum, auk breytinga sem eiga að skýra stjórnskipulag og stjórnsýslu sveitarfélaga.

Lagt fram af Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
9. september 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
22 ræður · 1 klst. 9 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 15. sep. 2026

Markmiðið

Að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið þannig að sveitarfélög séu betur í stakk búin til að sinna verkefnum sínum, veita íbúum skilvirka þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun sveitarfélaga og byggðarlaga. Frumvarpið felur einkum í sér heildarendurskoðun á reglum um fjármál sveitarfélaga, samvinnu þeirra, þátttöku íbúa og eftirlit með sveitarfélögum, auk breytinga sem eiga að skýra stjórnskipulag og stjórnsýslu sveitarfélaga.

Hvað breytist

Lagt er til að styrkja fjármálastjórn sveitarfélaga, meðal annars með fimm ára fjármálastefnu og fjármálaáætlun og skýrari reglum um afkomu, skuldir og stórar fjárfestingar.

Reglur um samstarf sveitarfélaga yrðu skýrari, meðal annars um ábyrgð, ákvarðanatöku og kostnað þegar þau reka verkefni sameiginlega. Jafnframt er lagt til að íbúar fái betri upplýsingar og aukin tækifæri til að koma sjónarmiðum á framfæri áður en mikilvægar ákvarðanir eru teknar.

Eftirliti ríkisins yrði breytt þannig að samþykktir og samstarfssamningar sveitarfélaga þyrftu almennt ekki lengur staðfestingu ráðherra fyrir fram. Einnig eru lagðar til skýrari reglur um hagsmuni og starfsskyldur kjörinna fulltrúa.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011. Jafnframt verða breytingar á lögum um félagsheimili, nr. 107/1970, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, íþróttalögum, nr. 64/1998, lögum um leikskóla, nr. 90/2008, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, skipulagslögum, nr. 123/2010, lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, lögum um örnefni, nr. 22/2015, lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Upplýsingaveita sveitarfélaga er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga með samræmdum fjárhagsupplýsingum. Gögnin eru birt í mælaborðum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Löggjöf á Norðurlöndum

Ein helsta breytingin sem felst í frumvarpinu lýtur að ítarlegri áætlanagerð um fjármál sveitarfélaga til langs tíma. Sambærileg ákvæði um langtímaáætlanir er að finna í löggjöf annarra Norðurlanda.

Í Danmörku kveða 2. og 3. gr. reglugerðar um fjárhags- og reikningshald sveitarfélaga, endurskoðun o.fl. (bekendtgørelse om kommunernes budget- og regnskabsvæsen, revision m.v., BEK nr 998 af 03/07/2025) á um að leggja skuli fram árlega tillögu að fjárhagsáætlun ásamt þriggja ára áætlun fyrir næstu ár á eftir. Skal jafnvægis gætt milli tekna og gjalda í samræmi við nánari fyrirmæli reglugerðarinnar.

Í Finnlandi er kveðið á um það í 110. gr. sveitarstjórnarlaga (kommunallag, 410/2015) að sveitarstjórn skuli samþykkja fjárhagsáætlun fyrir eins árs og jafnframt efnahagsáætlun til að minnsta kosti þriggja ára þar sem fjárhagsárið er fyrsta ár tímabilsins. Áætlunin skal vera hallalaus eða skila afgangi, auk þess sem mæla skal fyrir um hvernig unnið verði á uppsöfnuðum halla, eigi það við.

Í Noregi ber sveitarstjórnum samkvæmt 3. og 4. gr. 14. kafla laga um sveitarfélög og fylki (lov om kommuner og fylkeskommuner (kommuneloven), LOV-2018-06-22-83) að samþykkja fjögurra ára fjárhagsáætlun samhliða ársáætlun. Gera skal kröfu um að báðar áætlanir séu raunhæfar, heildstæðar og í jafnvægi, auk þess sem langtímaáætlun skal sýna þróun fjármála, skulda og annarra verulegra skuldbindinga.

Í Svíþjóð mæla 5. og 6. gr. 11. kafla sveitarstjórnarlaga (kommunallag, 2017:725) fyrir um að sveitarfélög geri árlega fjárhagsáætlun þar sem tekjur skuli séu að jafnaði umfram gjöld. Í áætluninni skal jafnframt felast þriggja ára áætlun um fjármál sveitarfélagsins með fjárhagsárið sem fyrsta árið.

Af samanburðinum má ráða að langtímaáætlanir í fjármálum sveitarfélaga eru samnefnari í norrænni löggjöf. Tímalengd áætlana og lagaleg útfærsla eru þó mismunandi og ákvæði frumvarpsins um fimm ára fjármálastefnu og fjármálaáætlun eiga sér því ekki eina sameiginlega norræna fyrirmynd.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Dagur B. Eggertsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
37 aðilar
Grindavíkurbær, Suðurnesjabær, Flóahreppur, Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE, Bláskógabyggð o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 9 mín · 22 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    22 ræður · 1 klst. 9 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-01
    1 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
5Stjórnarfrumvarp9. sep. 2026Eyjólfur ÁrmannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. september 2026 kl. 20:04
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd15. september 2026 kl. 20:04
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

22 ræður · 1 klst. 9 mín
  • 1. umræða: 22 ræður · 5 ræðumenn · 1 klst. 9 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins1143 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur516 mín
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur24 mín
Sigríður Á. AndersenMiðflokkurinn24 mín
Ólafur AdolfssonSjálfstæðisflokkur23 mín

Umsagnir og erindi

38 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
GrindavíkurbærumsögnOpna PDF
SuðurnesjabærumsögnOpna PDF
FlóahreppurumsögnOpna PDF
Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNEumsögnOpna PDF
BláskógabyggðumsögnOpna PDF
Forseti AlþingisathugasemdOpna PDF
GrýtubakkahreppurumsögnOpna PDF
GB stjórnsýsluráðgjöf slfminnisblaðOpna PDF
FjarðabyggðumsögnOpna PDF
AkureyrarbærumsögnOpna PDF
Skeiða- og GnúpverjahreppurumsögnOpna PDF
OrkuveitanumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
HS Veitur hf.umsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
StrandabyggðumsögnOpna PDF
SkagafjörðurumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Norðurorka hf.umsögnOpna PDF
Samband sveitarfélaga á AusturlandiumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
GarðabærumsögnOpna PDF
SamorkaumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
MúlaþingumsögnOpna PDF
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunumsögnOpna PDF
Húnaþing vestraumsögnOpna PDF
VestmannaeyjabærumsögnOpna PDF
Barnaheill - Save the Children á ÍslandiumsögnOpna PDF
HvalfjarðarsveitumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.umsögnOpna PDF
OrkuveitanumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)