Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 78. mál

Áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að setja ný heildarlög um barnavernd sem tryggi stuðning, umönnun og vernd þeim börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða stefna eigin heilsu og þroska eða annarra í hættu, og stuðli að því að öll börn fái alist upp í öruggu og þroskavænlegu umhverfi. Jafnframt er stefnt að því að styrkja réttindi barna, skýra ábyrgð og valdheimildir stjórnvalda og tryggja samfellu og samstarf milli barnaverndar, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 29. sep. 2026

Markmiðið

Að setja ný heildarlög um barnavernd sem tryggi stuðning, umönnun og vernd þeim börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða stefna eigin heilsu og þroska eða annarra í hættu, og stuðli að því að öll börn fái alist upp í öruggu og þroskavænlegu umhverfi. Jafnframt er stefnt að því að styrkja réttindi barna, skýra ábyrgð og valdheimildir stjórnvalda og tryggja samfellu og samstarf milli barnaverndar, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Hvað breytist

Lagt er til að fjögur umdæmisráð barnaverndar og sérfræðingateymi vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir verði lögð niður og í stað þeirra komi eitt barnaverndarráð á vegum ríkisins. Ráðið yrði sjálfstætt stjórnvald og tæki við flestum verkefnum umdæmisráðanna. Það myndi meðal annars úrskurða um stuðningsúrræði og vistun utan heimilis þegar samþykki liggur ekki fyrir, veita barnaverndarþjónustu heimild til að krefjast lengri vistunar eða forsjársviptingar fyrir dómi og úrskurða um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfðum úrræðum.

Réttindi barna við meðferð barnaverndarmála yrðu styrkt. Samkvæmt tillögunni yrði barn ávallt aðili að máli sem varðar beitingu þvingunar gagnvart því, óháð aldri, auk þess sem skýrar yrði kveðið á um hlutverk talsmanna og rétt barns til að fá skipaðan talsmann. Jafnframt er lagt til mun ítarlegra regluverk um þvingun og önnur inngrip í vistunarúrræðum, þar á meðal um hvaða ráðstafanir teljist til þvingunar, hverjir hafi heimild til að ákveða þær, hvaða skilyrði þurfi að vera uppfyllt og hvernig endurskoðun ákvarðana skuli háttað.

Þá er lagt til að vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir verði felld undir barnaverndarlög og að ábyrgð ríkisins á sérhæfðum vistunarúrræðum fyrir þau verði fest í lög. Einnig er lagt til að tryggð verði aukin samfella milli barnaverndar, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Börnum sem vistuð eru utan heimilis yrði tryggður réttur til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu og heilsufarsmats og áður en þau ná 18 ára aldri yrði metin þörf þeirra fyrir félagsþjónustu eftir að fullorðinsaldri er náð.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi barnaverndarlög, nr. 80/2002. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á 19 öðrum lögum.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna nýs barnaverndarráðs verði 200–250 milljónir kr. auk tímabundins kostnaðar við innleiðingu og uppbyggingu starfseminnar. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn rúmist innan ramma fjárlaga.

Meira úr samantektinni

Í OPCAT-úttekt umboðsmanns Alþingis á neyðarvistun Stuðla árið 2020 beindi umboðsmaður þeim tilmælum til félags- og barnamálaráðherra að taka lög og reglur sem gilda á þessu sviði til skoðunar og leggja til lagabreytingar til að styrkja réttarstöðu barna sem svipt eru frelsi og vistuð á heimilum eða stofnunum á vegum ríkisins. Umboðsmaður beindi jafnframt tilmælum til Barnaverndarstofu og Stuðla um að skilgreina með skýrum hætti hvaða athafnir og ákvarðanir teldust þvingun eða inngrip í friðhelgi einkalífs barns (OPCAT-úttekt á neyðarvistun Stuðla – Skýra þarf lagaheimild til þvingana, 18. maí 2020. Umboðsmaður Alþingis).

Í nýrri OPCAT-úttekt, sem birt var 19. desember 2024, ítrekaði umboðsmaður eldri tilmæli sem ekki hafði verið brugðist við með fullnægjandi hætti, þar á meðal um að börnum yrði tryggð almenn heilsufarsskoðun við komu á Stuðla (Ýmsu ábótavant er varðar aðbúnað og umgjörð starfseminnar á neyðarvistun Stuðla, 19. desember 2024. Umboðsmaður Alþingis).

Löggjöf á Norðurlöndum

Í öllum ríkjunum fjórum eru sérstök lagaákvæði um þvinganir eða önnur inngrip gagnvart börnum í tilteknum vistunarúrræðum samkvæmt barnaverndarlöggjöf. Í Danmörku mæla lög um ábyrgð fullorðinna gagnvart börnum og ungmennum í vistun (bekendtgørelse af lov om voksenansvar for anbragte børn og unge (voksenansvarsloven), LBK nr 1006 af 30/08/2024) fyrir um að leita skuli leiða til að ná fram sjálfviljugu samstarfi við barnið, gæta meðalhófs og beita vægari úrræðum ef þau nægja. Sambærileg grundvallarsjónarmið koma fram í finnskum barnaverndarlögum (barnskyddslag, 417/2007), norskum barnaverndarlögum (lov om barnevern (barnevernsloven), LOV-2021-06-18-97) og sænskum lögum um sérstök ákvæði um umönnun ungmenna (lag med särskilda bestämmelser om vård av unga, 1990:52). Reglurnar eru þó misjafnlega víðtækar og gildissvið valdheimildanna ræðst meðal annars af því hvaða vistunarúrræði á í hlut.

Fyrirkomulag búsetu utan heimilis fyrir börn með fötlun eða umfangsmiklar stuðningsþarfir er mismunandi milli landa. Í Finnlandi krefst búseta barns utan heimilis samþykkis forsjáraðila samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk (lag om funktionshinderservice, 675/2023). Séu skilyrði barnaverndarlaga um að taka barn í umsjá og vista utan heimilis hins vegar uppfyllt fer vistunin eftir þeim lögum. Í Svíþjóð geta börn sem falla undir lög um stuðning og þjónustu við tiltekna hópa fatlaðs fólks (lag om stöd och service till vissa funktionshindrade, 1993:387) búið á fósturheimili eða í húsnæði með sérstakri þjónustu. Slík úrræði eru veitt að beiðni barnsins eða lögmæts fyrirsvarsmanns þess með hliðsjón af aldri og hæfi barnsins en vistun án samþykkis getur grundvallast á barnaverndarlöggjöf séu skilyrði hennar uppfyllt.

Í Danmörku tekur löggjöf um málefni barna (bekendtgørelse af barnets lov, LBK nr 642 af 01/07/2026) bæði til stuðnings vegna skertrar færni og til vistunar barna utan heimilis. Vistun getur farið fram með samþykki eða án þess, að uppfylltum sérstökum skilyrðum laganna. Í Noregi er í lögum um heilbrigðis- og umönnunarþjónustu sveitarfélaga (lov om kommunale helse- og omsorgstjenester m.m. (helse- og omsorgstjenesteloven), LOV-2011-06-24-30) og reglugerð um heilbrigðis- og umönnunarstofnanir sveitarfélaga (forskrift om kommunal helse- og omsorgsinstitusjon, FOR-2011-12-16-1254) gert ráð fyrir svonefndu barnebolig, sólarhringsúrræði fyrir börn yngri en 18 ára sem þurfa að búa utan heimilis vegna þjónustuþarfar. Samkvæmt norskum barnaverndarlögum (lov om barnevern (barnevernsloven), LOV-2021-06-18-97) er jafnframt heimilt að taka yfir umsjá barns ef foreldrar tryggja ekki nauðsynlega meðferð og þjálfun fyrir barn sem er veikt, hefur skerta færni eða er sérstaklega hjálparþurfi.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 2. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
17 aðilar
Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umboðsmaður barna, Reykjavíkurborg, Lögreglan á Suðurnesjum, Félagsráðgjafafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna nýs barnaverndarráðs verði 200–250 milljónir kr. auk tímabundins kostnaðar við innleiðingu og uppbyggingu starfseminnar. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn rúmist innan ramma fjárlaga.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-02
    1 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Ragnar Þór IngólfssonFlokkur fólksins24 mín
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur24 mín

Umsagnir og erindi

17 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 18. sep. 2026, frestur 2. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Mennta- og barnamálaráðuneytiðkynningOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Lögreglan á SuðurnesjumumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Barnaheill - Save the Children á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
EinhverfusamtökinumsögnOpna PDF
LandspítaliumsögnOpna PDF
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Barna- og fjölskyldustofaumsögnOpna PDF
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmálaumsögnOpna PDF
Velferðarsvið AkureyrarbæjarumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
Ágúst Fannar LeifssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum · Óundirbúinn fyrirspurnatími · 158. þing · Alviti