Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 97. mál

Framkvæmd jafnlaunavottunar

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að laga íslenskt regluverk um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta að þróuninni í Evrópu og tryggja að stjórnvöld hafi svigrúm til að taka næstu skref í samræmi við önnur Evrópuríki þegar tímabundinni vernd lýkur.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 1. okt. 2026

Markmiðið

Að laga íslenskt regluverk um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta að þróuninni í Evrópu og tryggja að stjórnvöld hafi svigrúm til að taka næstu skref í samræmi við önnur Evrópuríki þegar tímabundinni vernd lýkur.

Hvað breytist

Lagt er til að hámarkstími tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta verði lengdur úr fimm árum í sex. Jafnframt yrði sá tími sem stjórnvöldum er heimilt að fresta meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd á meðan tímabundin vernd stendur yfir lengdur úr fimm árum í sex.

Þá yrði felld brott sérstök heimild til að veita mannúðarleyfi að lokinni tímabundinni vernd. Slíkt leyfi gæti síðar orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis að uppfylltum skilyrðum. Þeir sem dveljast hér á landi á grundvelli tímabundinnar verndar gætu þó eftir sem áður sótt um dvalarleyfi á öðrum grundvelli samkvæmt almennum reglum, svo sem vegna atvinnu, náms eða fjölskyldusameiningar. Jafnframt yrði áréttað í lögunum að dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar geti ekki orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Ábyrgð á skipun flóttamannanefndar yrði jafnframt færð til ráðherra útlendingamála.

Loks er lagt til að heitinu „sameiginleg vernd“ verði breytt í „tímabundin vernd“. Sú breyting lýtur einvörðungu að hugtakanotkun og er ekki ætluð til að hafa áhrif á réttarstöðu þeirra sem njóta verndarinnar.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Í júlí 2026 ákvað ráð Evrópusambandsins að framlengja tímabundna vernd þeirra sem flúið hafa Úkraínu um eitt ár, til 4. mars 2028, með framkvæmdarákvörðun (ESB) 2026/1912.

Ráð ESB hafði áður, í september 2025, samþykkt tilmæli um hvernig haga mætti lokum tímabundinnar verndar. Þar eru aðildarríkin meðal annars hvött til að auðvelda þeim sem uppfylla skilyrði að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli, svo sem vegna atvinnu, náms eða fjölskyldutengsla, og að undirbúa úrræði fyrir þá sem vilja snúa aftur til Úkraínu af eigin vilja (Tilmæli ráðs ESB frá 16. september 2025 um samræmt fyrirkomulag þegar tímabundinni vernd þeirra sem hrakist hafa á flótta frá Úkraínu lýkur).

Löggjöf á Norðurlöndum

Á Norðurlöndunum gilda ólíkar reglur um möguleika þeirra sem njóta tímabundinnar verndar til að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli og um meðferð hælisumsókna þeirra.

Í Noregi má, þegar fimm ár eru liðin frá fyrstu leyfisveitingu á grundvelli sameiginlegrar verndar, veita annað tímabundið dvalarleyfi sem getur orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Meðferð hælisumsóknar má jafnframt fresta í allt að fimm ár, sbr. 34. gr. norskra útlendingalaga (lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her (utlendingsloven), LOV-2008-05-15-35).

Í Finnlandi geta þeir sem njóta tímabundinnar verndar fengið nýtt tímabundið dvalarleyfi á öðrum grundvelli ef þeir uppfylla skilyrði fyrir því, sbr. 54. gr. útlendingalaga (utlänningslag, 301/2004). Meðferð hælisumsóknar er að jafnaði stöðvuð á meðan tímabundin vernd gildir. Þegar verndinni lýkur er meðferð umsóknarinnar aðeins haldið áfram ef umsækjandi óskar eftir því, sbr. 111. gr. laganna.

Í Danmörku getur sá sem hefur dvalarleyfi samkvæmt sérlögum um fólk sem flúið hefur Úkraínu (lov om midlertidig opholdstilladelse til personer, der er fordrevet fra Ukraine, LOV nr 324 af 16/03/2022) sótt um dvalarleyfi samkvæmt almennum útlendingalögum meðan hann dvelst í Danmörku og átt rétt á að dvelja þar meðan umsóknin er til meðferðar, sbr. 1. og 29. gr. sérlaganna. Umsókn um alþjóðlega vernd verður hins vegar ekki afgreidd til fulls meðan viðkomandi á rétt á dvalarleyfi samkvæmt sérlögunum, sbr. 1. gr. reglugerðar um frestun meðferðar hælismála þeirra sem falla undir þau (bekendtgørelse om berostillelse af behandling af asylsager for udlændinge omfattet af Ukrainesærloven, BEK nr 1310 af 30/11/2024).

Í Svíþjóð geta þeir sem njóta tímabundinnar verndar vegna stríðsins í Úkraínu, að uppfylltum skilyrðum, sótt um og fengið tiltekin dvalarleyfi meðan þeir eru í Svíþjóð, meðal annars vegna atvinnu, rannsókna eða náms, auk ESB-blákorts, sbr. 3. og 5. gr. laga um dvalarleyfi í tilteknum tilvikum fyrir útlendinga með tímabundna vernd (lag om uppehållstillstånd i vissa fall för utlänningar med tillfälligt skydd, 2026:456). Tímabundin vernd kemur jafnframt ekki í veg fyrir að umsókn um alþjóðlega vernd sé tekin til meðferðar, sbr. 5. gr. 21. kafla útlendingalaga (utlänningslag, 2005:716).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 8. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
FTA - Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, Tetiana Khismatulina, Íslandsdeild Amnesty International, Rauði krossinn á Íslandi, Útlendingastofnun o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-08
    1 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 6 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur23 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn23 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 24. sep. 2026, frestur 8. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
FTA - Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega verndumsögnOpna PDF
Tetiana KhismatulinaumsögnOpna PDF
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
Barnaheill og UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
The United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR)umsögnOpna PDF
Vladyslav MaliutaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Framkvæmd jafnlaunavottunar · Óundirbúinn fyrirspurnatími · 158. þing · Alviti